Þjóðviljinn - 12.06.1987, Blaðsíða 8
HEIMURINN
Persaflóaœvintýrið
Hvað vakir fyrir Reagan?
Bandaríkjastjórn gerir mikið úr nauðsynþess að herskipum sé stefnt inná Persaflóa til verndar olíuflutn
ingaskipum Kuwaitmanna en ýmsirgera þvískóna að Reagan hyggist fyrst ogfremst draga athygli
mannafrá Iranshneisunni með tiltœkinu
Bandarísk herskip munu innan
skamms slást í för með ellefu
olíuflutningaskipum sem sigla
með farm sinn frá Kuwait til
Vesturlanda um hinn nafntogaða
Persaflóa.
Til að draga enn meira úr líkum
á árás írana á flutningafleyin
munu þau draga bandaríska fán-
ann að húni og lúta stjórn banda-
rískra skipstjóra.
Mestar líkur eru taldar á því að
á skipin verði ráðist við mynni
flóans þegar þau sigla um Horm-
uzsundið. Reaganstjórnin hefur
ítrekað ráðið klerkastjórninni í
Teheran frá því að láta til skarar
skríða því komi til þess verði um-
svifalaust svarað í sömu mynt.
Ýmsir hafa gagnrýnt bröltið í
Reagan forseta og sérfræðingar
um málefni Miðausturlanda
segja af og frá að skipum á þessu
svæði stafi meiri hætta af árásum
frana nú en fyrir sex mánuðum
eða ári.
Formaður hermálanefndar
Öldungadeildar bandaríska
þingsins, demókratinn Sam
Bráðnauðsynlegar verndaraðgerðir eða póli-
Orrustuskipin og Reagan forseti.
tískt blöff?
Nunn, fullyrðir að Kuwaitmenn
hafi farið fram á að Sovétmenn
sendu flota sem slægi skjaldborg
um olíuskipin þegar frans-
skandallinn komst í hámæli.
Kuwaitbúar styðja sem kunnugt
er íraka í styrjöld þeirra við írani
og hafa skip þeirra fyrir vikið ver-
ið vinsæl skotmörk hinna síðar-
nefndu. Nunn heldur því fram að
Bandaríkjastjórn hafi ekki
brugðið blundi og boðið herskip-
avernd fyrr en fréttir bárust af því
að Kuwaitmenn hefðu leitað hóf-
anna hjá Kremlverjum.
Sérfræðingur sem vann fyrir
stjórn Carters, fyrrum Banda-
ríkjaforseta, skýrir brambolt Re-
agans á þann veg að honum sé
mikið í mun að endurheimta
traust íhaldssamra leiðtoga í ar-
abalöndum, sem styðja við bak
íraka, eftir að upp komst um sölu
á bandarískum vopnum til erki-
fjendanna, írönsku klerkastjórn-
arinnar.
Ráðamenn í arabaríkjum við
Persaflóa óttast fátt meira en að
sítaklerkarnir í Teheran beri
hærra hlut úr stríðinu við sunn-
amúslimina í Bagdað og hefji því-
næst að hvetja trúarofstækis-
menn í nágrannalöndunum til
dáða.
í leiðara stórblaðsins New
York Times á miðvikudag er
slegið á sömu strengi. „Sá grunur
læðist að manni að allur asinn og
flumbrugangurinn þjóni þeim til-
gangi að sýna hver sé mestur og
bestur og eigi að fá fólk til að
gleyma vopnasölunni til íran sem
fyrst og eyða illum áhrifum henn-
ar meðal araba.“
-ks.
Ítalía
Stjómmálamenn óttast kjósendafæð
ítalskir pólitíkusar eru hrœddir um að kjósendur skrópi á kjördag eftir
að helmingur aðspurðra ískoðanakönnun sagðiþað ekkiþjóna
neinum tilgangi aðgreiða atkvœði. Kommúnistar vinsœlastir afþeim
sem enn hafa áhuga á pólitík
Noregur
Engin
stjórnarslit
Allt útlit er fyrir það að
minnihlutastjórn norska Verka-
mannaflokksins haldi velli þegar
atkvæði verða greidd um van-
trauststillögu þriggja mið- og
hægriflokka í dag.
Það er Framfaraflokkurinn
glístrúpski sem hefur í hendi sér
hvernig málin þróast en formað-
ur hans, Carl Hagen, sagði í gær
að báðir þingmenn flokksins
myndu greiða atkvæði gegn til-
lögunni.
Það er hald manna að Hagen
hafi séð fram á að ekki tækist með
góðu móti að mynda stjórn ef
Brundtland og félagar yrðu hrak-
in úr valdastóium. Formaður
Hægriflokksins, Rolf Presthus,
kvaðst vera svaka skúffaður
vegna málalykta.
-ks.
Miklar óeirðir brutust út í Pan-
amaborg í fyrradag og fer
andstaða íbúanna gegn herfor-
ingjastjórn Manuei Noriega nú
dagvaxandi. Fram undir það síð-
asta hafa námsmenn verið í farar-
broddi en andstaðan gegn stjórn
Noriega nær nú til æ fleiri þjóðfé-
lagshópa.
í gær brást stjórnin við andó-
finu með setningu neyðará-
standslaga og eru nú fjölmörg
borgaraleg réttindi nú úr gildi
fallin, þar á meðal lög sem vernda
borgara gegn fangelsun án dóms
og laga. Þá er bannað að safnast
saman á almannafæri. Ríkisút-
varp Panama skýrði frá þessu í
gær en það er á snærum stjómar-
innar.
í kringum tíu þúsund banda-
Kalt vatn rann milli skinns og
hörunds stjórnmálarefa úr
öllum helstu flokkum Ítalíu í gær
þegar birt var niðurstaða skoðan-
akönnunar um áhuga alþýðu
manna á þingkjörinu sem fram
fer þarlendis á sunnudag og mán-
udag.
Það var tímaritið Europeo sem
hafði veg og vanda af könnun-
inni. í ljós kom að hvorki meira
né minna en 68 af hundraði svör-
uðu því til að kosningabaráttan
væri ýmist hrútleiðinleg eða ákaf-
lega lítið spennandi. 63 prósent
sögðust fullviss um að mun færri
rískir hermenn eru í landinu og
hafa þeir nú fyrirskipun um að
vera við öllu búnir að sögn Wil-
liams Ormsbee en hann er yfir-
maður heraflans og hefur bæki-
stöðvar í Panamaborg. Ekki að
furða þótt Bandaríkjamenn séu
við öllu búnir; umferð um Pan-
amaskurðinn er stjórnað frá
landinu en hann tengir saman
Kyrrahafið og Karabíska hafið
eins og kunnugt er.
Kveikjan að óeirðunum er rak-
in til ummæla Roberto Diaz frá
því á þriðjudag en hann var yfir-
maður í hernum er hann gerðist
liðhlaupi. Diaz bar hvers konar
vammir og skammir á Noriega
hershöfðingja, stjórnanda lands-
ins, og sakaði hann meðal annars
um að hafa staðið fyrir morðum
myndu ganga að kjörborði nú en í
síðustu kosningum þegar 7 milj-
ónir manna eða 16 af hundraði
atkvæðisbærra sátu heima eða
skiluðu auðu.
Leiðtogi Sósíaldemókrata-
flokksins, Franco Nicolazzi,
viðurkenndi að útlit væri fyrir
fjarveru stórs hluta kjósenda en
kvað það ekki gegna neinni furðu
þótt fólk væri fyrir Iöngu búið að
fá sig fullsatt af endalausum ving-
ulshætti stjórnmálamanna.
Þingmaður Kristilega demó-
krataflokksins, Bartolomeo
nokkur Ciccardini, tók í sama
streng hvað viðvék tómlæti al-
og kosningasvindli.
Noriega hefur ekki látið Diaz
eiga neitt hjá sér og sakar hann
um landráð og samsæri gegn
stjórninni. Segir hann að herinn
og lögreglan muni gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að við-
halda lögum og reglu, án þess þó
að láta ginna sig til óhæfuverka.
Óeirðalögregla Panamaborgar
skaut í fyrradag táragasi og
höglum að mannfjöldanum sem
safnast hafði saman til að mót-
mæla herforingjastjórninni. Þar
var einkum um að ræða náms-
menn en þeim bættist miðstétt-
arliðsauki þegar frá leið. Pottar
og pönnur voru barðar og kveikt
var í á nokkrum stöðum. „Nori-
ega er morðingi” og „Noriega er
hommi” voru meðal þeirra slag-
mennings. Hann kvað fólk varla
nenna að líta upp úr súpudiskum
sínum þótt frambjóðandi tæki að
þruma yfir því á gildaskálum. Af-
skiptaleysi og þögn mættu pólit-
íkusum hvarvetna.
Flokksforkólfar eru miður sín
yfir ástandinu og hafa eftir megni
reynt að höfða til yngstu kjósend-
anna í þeirri einlægu von að þeim
þyki þeir ekki jafnleiðinlegir og
hinum eldri. Fjórar miljónir
manna greiða nú atkvæði á Ítalíu
fyrsta sinni og hafa að undan-
förnu fengið lítinn frið fyrir kosn-
ingaagentum sem ætlast til að
þeir trúi því að þingkjörið um
orða sem hljómuðu um miðborg-
ina. Nafnlausar upphringingar til
margra banka, þar á meðal Citi-
bank, urðu enn til að auka á upp-
lausnina en ráðamenn bankanna
voru hvattir til að láta rýma bygg-
ingar þar sem sprengjur væru í
þann veginn að springa.
Rafmagnið var tekið af einni
fárra útvarpsstöðva sem hafa
leyft andstæðingum stjórnarinn-
ar að halda uppi andófi gegn
henni. Flestum skólum í höfuð-
borginni var lokað enda þótt for-
eldrar fengju engin fyrirmæli um
að halda börnum sínum heima.
Fjölmörgum verslunum var einn-
ig lokað.
Mótmæli þessi eru hin öflug-
ustu í landinu síðan herinn hrifs-
aði völdin árið 1983. HS
helgina sé hið mikilvægasta frá
falli Mússólínís.
Hvað viðvíkur vinsældum ein-
stakra flokka þá nýtur Kommún-
istaflokkurinn fylgis flestra, sam-
kvæmt viðhorfsathugun, en mun
þó hreppa mun færri atkvæði en
síðast eða um 27,9 af hundraði.
Útlit er fyrir að Kristilegir demó-
kratar verði flengdir. Þeir geta átt
von á fulltingi 26,4 hundraðs-
hluta kjósenda. Hinsvegar mun
Sósíalistaflokkur Craxis, fyrrum
forsætisráðherra, standa í stað
með rúm 11 prósent.
-ks.
Afvopnun
Reagan
styður Kohl
Reagan forseti lét í gær frá sér
fara ummæli sem ugglaust eiga
eftir að valda heilmiklu íjaðra-
foki á afvopnunarráðstefnu risa-
veldanna í Genf og hugsanlega
torvelda gang samningavið-
ræðna.
Hann sagðist styðja fyllilega þá
kröfu sambandsstjórnarinnar í
Bonn að fá haldið 72 Pershing
1-A flaugum sínum og að fá yfir-
ráð yfir kjarnaoddunum í þær
þótt stórveldin semji sín á milli
um eyðingu allra meðal- og
skammdrægra kjarnaflauga sinna
úr Evrópu.
Hann sagði stjórn sína aldrei
hafa dregið dul á að hún teldi sig
ekki hafa umboð til að semja um
vígtól annarra ríkja og að Sovét-
menn hefðu aldrei vakið máls á
óskum um að þýsku flaugunum
yrði komið fyrir kattarnef.
Ótrúlegt er að Kremlverjar
taki í mál að Vestur-Þjóðverjar
fái að halda flaugunum þrátt fyrir
orð Reagans.
-ks.
8 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 12. júní 1987
Panama
Öflug mótmæli gegn stjóminni
Herforingjastjórnin grípur til neyðarástandslaga. Mannfjölda íhöfuð-
borginni dreift með höglum og táragasi