Þjóðviljinn - 12.06.1987, Síða 14
Fóstrur
Funda um
aðþrengd
böm
Norrœnafóstruráðið með námskeið um
dagvistarheimili og aðþrengd börn
Markmiðið með námskeiðinu
er að raeða það frá öllum
sjónarhornum hvernig dagvistar-
heimilin eru í stakk búin til þess
að sinna þörfum barna sem eiga í
sálarkreppu, sögðu þær Margrét
Gunnarsdóttir og Ingibjörg K.
Jónsdóttir fóstrur um námskeið
sem hófst í gær á vegum Norræna
fóstruráðsins, en yfirskrift þess er
„Aðþrengd börn í nútímasamfé-
lagi“.
Námskeiðið, sem stendur fram
að 17. júní, sækja 150fóstrur, þar
af 50 íslenskar, en alls eru í
fóstruráðinu yfir 100 þúsund
meðlimir. Skrifstofa fóstruráðs-
ins flyst á milli landa á tveggja ára
fresti, en um síðustu áramót kom
hún hingað.
„Þetta norræna samstarf er
mjög mikilvægt því það styrkir
faglega vitund fóstra,“ sögðu
Margrét og Ingibjörg og bættu
því við að þau faglegu og kjara-
legu vandamál sem íslenskar
fóstrur stæðu frammi fyrir væru
samnorræn vandamál fóstra.
Brosmildir formenn fóstrufélaganna á Norðurlöndum: f.v. Solweig Eklund frá Svíþjóð, Helle Blakstad Halk frá Noregi,
Selma Dóra Þorsteinsdóttir, Anna Valtonen frá Finnlandi og Bente Jörgensen frá Danmörku. Á myndina vantar
formann færeyska fóstrufélagsins. Mynd Sig.
Grímsey
Sumarið
gengið í garð
Sumarið er gengið í garð hjá
okkur fyrir nokkru. Bjarg-
fuglinn hefur ungað út og ferða-
mennirnir flognir að. Með nokkr-
um sanni má segja að þetta séu
okkur Grímseyingum sumarboð-
ar, ekki síður en lóan öðrum
landsmönnum, sagði Þorlákur
Sigurðsson, oddviti í Grímsey.
„Undanfarið hefur komið
hingað slangur af ferðamönnum.
Flestir stoppa ekki nema hluta úr
degi, en svo eru alltaf nokkrir
sem dvelja hérna næturlangt og
allt upp í nokkra daga. Flugfélag
Norðurlands flýgur hingað þrisv-
ar í viku, en um miðjum júni er
flogið alla virka daga. Þá kemur
ferðamannastraumurinn til með
að aukast nokkuð, ef að líkum
lætur,“ sagði Þorlákur Sigurðs-
son.
Að sögn Þorláks hafa gæftir og
aflabrögð verið með ágætum í vor
og í sumarbyrjun, þó heldur hafi
dregið úr afla síðustu dagana.
„Menn eru að byrja að taka upp
netin og búa sig undir færaver-
tíðina. Það eru komnir hingað
nokkrir aðkomubátar, sem eru á
handfærum hér við eyna,“ sagði
Þorlákur.
„Það var töluvert sig í bjarg og
eggjatekjan hefur verið ágæt.
Það voraði svo vel að björgin
voru þurr og þokkaleg og gott að
eiga við þetta. Menn sækjast eftir
því að fara bæði nógu tímanlega,
þannig að það sem orpið er séu
góð egg og fara síðan með fjög-
urra daga millibili, því þá eru
menn nokkuð tryggir með að fá
góð egg,“ sagði Þorlákur Sigurðs-
son. -RK
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagid Akureyri
Aðalfundi enn frestað
Aðalfundi Alþýðubandalagsins á Akureyri hefur enn verið frestað af óvið-
ráðanlegum ástæðum. Aðalfundurinn er nú boðaðurfimmtudaginn 25. júní
í Lárusarhúsi kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál.
Allir félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin
ABfí
Kosningahappdrættið
Dregið var 1. júní, í kosningahappdrætti ABR. Vinningsnúmer hefur verið
innsiglað og verður birt þegar fullnaðarskil hafa borist en þó ekki síðar en
15.júnínk.
Þeir sem eiga eftir að skila eru beðnir að gera það strax.
Blaóburður er
BESTA TRSMMIÐ
og borgar sig!
ÞJÓÐVILJINN
Sumarbúðir á vegum
Alþýðubandalagsins
Ertu með á Laugarvatn í sumar?
Nú er aðeins eftir laust pláss á fyrri viku
sumardvalar Alþýðubandalagsins á Laugar-
vatni í sumar og hver og einn er að verða
síðastur að tryggja sér og fjölskyldunni pláss.
Frá mánudeginum 20. júlí til sunnudags
26. júlí eru enn nokkur laus pláss.
Kostnaður við dvölina er: Fyrir börn að
6 ára aldri kr. 1000 Fyrir börn 6-11 ára kr.
5000 Fyrir 12 ára og eldri kr. 8.500
Innifalið í verðinu er fullt fæði alla dagana 7,
morgunverður, hádegisverður, síðdegiskaffi
og kvöldverður. Gisting í 2ja og 3ja manna
herbergjum í Héraðsskólanum, barnagæsla
fyrir yngstu börnin, tvær ferðir í sund og gi.tfu-
bað, þátttaka í fræðslu- og skemmtistarfi og
skipulögðum göngu- og útivistarferðum.
Allt við höndina, íþróttasvæði, bátaleiga,
hestaleiga, silungsveiði og ýmislegt fleira.
Góð afslöppun fyrir alla fjölskylduna, unga
sem aldna í áhyggjulausu og öruggu um-
hverfi, þar sem fólk hvílir sig á öllum húsverk-
unum, en leggur áherslu á að skemmta sér
saman.
Dragið ekki að festa ykkur vikudvöl í
sumar. Komið eða hringið á skrifstofu Al-
þýðubandalagsins, Hverfisgötu 105, Rvík.
sími 17500. Pantanir þurfa að berast fyrir 15.
júlí og greiða þarf kr. 3000 í staðfestingar-
gjald.
i_