Þjóðviljinn - 25.06.1987, Síða 2

Þjóðviljinn - 25.06.1987, Síða 2
■mSPURNINGIN_ Spurt á fiskmarkaöinum í Hafnarfiröi. Hver finnst þér reynslan hafa verið af fiskmörkuð- um hérlendis? Óiafur Torfason, verkamaöur: Ég held að hún sé mjög góð. Menn eru ánægðir með hvernig þetta hefur farið af stað og ég hef varla trú á öðru en að þetta muni alfarið taka við. Þetta er að vísu bara byrjunin en það er Ijóst að það mun ráðast af vilja og hags- munum sjómanna hvert fram- haldið verður. Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambandsins: Ég er fullur bjartsýni miðað við hvernig byrjunin hefur verið. Það hafa verið skiptar skoðanir meðal minna umbjóðenda en ég er viss um að útkoman úr fyrstu uppboð- unum hefur breytt skoðunum þeirra sem voru hræddir við þetta. Markaðirnir eru okkur mikið hagsmunamál. Óskar Þ. Karlason, fiskverkandi: Þetta er rétt þróun. Fiskur er þannig vara að menn eiga að geta keypt hann á misjöfnu verði eftir aðstæðum. Markaðirnir þjóna einnig hagsmunum sjó- manna og ég hef því trú á því að þetta muni verða það sem tekur við. Örn Vilmundarson, háseti á Krossanesinu: Mér líst nokkuö vel á þetta fyrir- komulag. Ef við fáum 34 - 35 kr. fyrir kg. þá er það góð sala fyrir okkur. Menn eru spenntir fyrir þessu og byrjunin lofar góðu. FRÉTTIR Varaflugvöllur Sauöárkrókur í salti Kristmundur Bjarnason, á Sjávarborg í Skagafirði: Varaflugvöllur fyrir NATO liggur í láginni í bili. Biðstaðaþangað til Náttúruverndarráð hefur skilað áliti. Dauðadómur yfir náttúruvernd í Skagafirði verði friðlandið skert að gerist ekkert fyrr en Nátt- úruverndarráð hefur skilað skýrslu um niðurstöður sinna rannsókna. Náttúrufræðingar frá ráðinu hafa verið að vappa hér undnafarnar vikur, fram og aftur um skógana,11 sagði Krist- mundur Bjarnason, fræðimaður á Sjávarborg í Skagafirði, en hann er einn landeigenda að friðlandi því, sem heppilegt þykir undir varaflugvöll fyrir NATO. „Ég stend við það sem ég hef áður sagt - það verður ekkert um landsölu undir hernaðarfram- kvæmdir af minni hálfu. Verði friðlandið skert þýðir það sama og dauðadóm yfir náttúruvernd- arsjónarmiðum hér í Skagafirði,“ sagði Kristmundur Bjarnason. „Náttúruverndarmenn hér í Skagafirði, virðast vera á þeirri skoðun, að komi til þess að frið- landið verði skert, þá sé einsýnt að Náttúruverndarráð er til lítils megnugt og friðlýsing landsvæða, sé í reynd dauður bókstafur, þeg- ar stjórnvöldum sýnist svo,“ sagði Kristmundur Bjarnason. -RK Mál og menning Flytur brátt í Múlann MM opnar nýja verslun við Síðumúlann fyrir haustið Senn líður að því að ný bóka- verslun Máls og menningar verði opnuð við Síðumúlann, en Árni Einarsson framkvæmda- stjóri Máls og menningar spáir Haganesvík Veiði- hugur í Fljóta- mönnum 240 tunnur afgrásleppu- hrognum á 4 trillur Hér áður fyrr voru Fljótamenn atkvæðamiklir við hákarlaveiðar en það er nú löngu liðin tíð. Aftur á móti hafa þeir snúið sér að grá- sleppuveiðum. Fjórar trillur gengu til grá- sleppuveiða frá Haganesvík í vor. Afli þeirra var um 240 tunnur af grásleppuhrognum. Þá var og rauðmagaveiði ágæt í febrúar. Gæftir voru misjafnar, mjög slæmar í mars og varð þá töluvert veiðarfæratjón, en ágætar í maí. Nokkuð fékkst einnig af fiski á trillurnar. Var hann saltaður en söltunaraðstaða er í gamla slátur- húsinu í Haganesvík. Vaxandi áhugi er nú á útgerð í Fljótum og ráðgera trillueigendur kaup á nýjum bátum og stærri en þeir eiga nú. - mhg því að flutningarnir geti orðið fyrir haustið. Árni sagði að húsnæðið myndi vafalaust vekja mikla athygli fyrir innréttingar þeirra Guðna Páls- sonar og Dagnýjar Helgadóttur, en þær væru vægast sagt öðruvísi en fólk ætti að venjast. Þær ku vera í ætt við svokallaðan memphisstíl en þá má gera ráð fyrir að leit verði að beinum lín- um og 90 gráða hornum í nýju búðinni. Árni sagði að í versluninni við Síðumúlann yrði lögð meiri áhersla á gjafavörur og ritföng en í versluninni við Laugaveg og minni áhersla á erlendar bækur. I 700 fermetra kjallara húsnæðis- ins verður bókalager Máls og menningar. -K.Ól. Frágangur fyrir utan nýju verslunina er á lokastigi, en Ingvi Þór Lottsson landslagsarkitekt á heiðurinn af hönnuninni. Til fyrirmyndar. Mynd Sig. Rœkjuvinnslur Vonbrigði með Halldór Framleiðendur ósáttir við úthlutunfleiri vinnsluleyfa Asama tíma og verið er að tak- marka veiðar á rækju við ís- land og þrátt fyrir að margföld vinnslugeta sé til staðar fyrir það magn sem veiða má, heldur ráðu- neytið áfram að útdeiia vinnslu- leyfum, segir í ályktun sem sam- þykkt var á aðalfundi Félags rækju- og hörpudiskframleið- enda á dögunum. Segir í ályktuninni að þetta veiki enn frekar rekstrargrund- völl þeirra fyrirtækja sem byggt hafa afkomu sína á rækjuvinnslu og sé gert þrátt fyrir varnaðarorð m.a. frá síðasta Fiskiþingi. Þá lýsti aðalfundurinn yfir áhyggjum sínum vegna þeirra hugmynda sem fram eru komnar um ícvótaskiptingu á rækju- veiðum. Telja framleiðendur ekki tímabært að taka upp kvóta á úthafsrækjuveiðar, þar sem þekking á veiðisvæðum og veiði- þoli stofnsins sé mjög takmörk- uð. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.