Þjóðviljinn - 25.06.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.06.1987, Blaðsíða 5
Umsjón: Magnús H. Gíslason Mjólkursamlag K.S. Aukin sala á neyslu- mjólk samlagi Kaupfélags Skagfirðinga á sl. ári miðað við árið á undan eða rúmlega 579 þús. ltr. og nem- ur það 6,7%. Sala á neyslumjólk - nýmjólk, léttmjólk og súrmjólk - nam 890.327 ltr. og jókst um 14.032 ltr. frá 1985. Ber þar nýrra við og er þakkað góðri sölu á nýjum súrmjólkurtegundum sem byrjað var að selja á sl. ári. Rjómasala jókst nokkuð auk þess sem fluttir voru til Akureyrar 117.508 ltr. af rjóma til vinnslu á Smjörva. Sala á pakkaðri undanrennu jókst verulega eða úr rúmum 10 þús. ltr. í rúma 15. þús. ltr. Sala á skyrmysu jókst einnig talsvert en verulega dró úr skyrframleiðslu og varð hún tæp 34 tonn. Fram- Nokkur minnkun varð á innveginni mjólk hjá Mjólkur- Hólaskóli Tuttugu og fimm braut- skráðir leiðsla á smjöri minnkaði um 55 tonn, varð 76 tonn á móti 131 tonni árið áður. Allt um það minnkuðu smjörbirgðir ekki nema um 8 tonn. Framleiðsla á ostum minnkaði einnig verulega og um sl. áramót voru birgðir af þeim 15o tonn á móti 177 tonnum ári fyrr. Fyrir innlagða mjólk voru framleiðendum greiddar kr. 216.407.752 kr. eða 13% meira en árið áður. Meðalgrundvallar- verð Samlagsins var kr. 25.087 pr. ltr, en landsmeðaltal var kr. 24.0537. Hefur grundvallarverð verið greitt að fullu og eftirstöðv- ar því engar. I heild var afkoma Samlagsins góð á árinu. Rekstrarafgangur var að mestu leyti lagður í Fram- kvæmdasjóð þar sem ýmsar endurbætur á húsum Samlagsins og búnaði fara að verða aðkall- andi. Fyrir dyrum stendur nú gagn- gerð endurskoðun á reglugerð Samlagsins og er það afleiðing hinna nýja búvörulaga. Ákveðið var að nota verð- skerðingarféð til þess að stuðla að aukinni kynningu á mjólk og mjólkurvörum og meiri mjólk- urneyslu ungmenna. -mhg Athafnasamur félagsskapur Frá Sambandi Skagfirskra kvenna Á krossmessu á vori, eins og undirritaður ólst upp við að vinnuhjúaskildaginn 14. maí væri nefndur, var Bændaskólanum á Hólum slitið. Að venju fór sú at- höfn fram í Dómkirkjunni. í skólaslitaræðu sinni fór Jón Bjarnason skólastjóri lofsam- legum orðum um ástundun og ár- angur nemenda sem hefðu lagt sig mjög fram við námið, dyggi- lega studdir af kennurum sínum. Skólastjóri vék að ýmsum breytingum sem orðið hafa á starfsemi skólans undanfarin ár og enn er ekki lokið. Frá árinu 1984 hafa tvær námsbrautir verið við skólann; almenn búfræði- braut og fiskeldisbraut. Að þessu sinni útskrifaði skólinn 25 nemendur. Eru þeir úr öllum landshlutum, þar af 7 heimamenn, þ.e. Skagfirðingar. Hæstu einkunn við búfræðiprófið hlutu þau Sigríður Bjarnadóttir í Eyhildarholti og Þórarinn Leifs- son í Keldudal. Ýmsir nemendur hlutu sérstök verðlaun fyrir góð- an námsárangur í ýmsum náms- greinum. Viðstaddir skólaslitin voru meðal margra annarra þeir Sig- urður Guðmundsson Hólabiskup og Jón Helgason landbúnaðar- ráðherra. Fluttu þeir skóla og nemendum þakkir og árnaðar- óskir. Skólinn er jafnan fullskipaður og komast þar færri að en vilja. Þrátt fyrir erfiðleika sem yfir ganga nú um stundir ber hin mikla aðsókn að bændaskólunum óljúgfróðan vott um áhuga ungs fólks á störfum við landbúnað og er gott til þess að vita. -mhg í Sambandi skagfirskra kvenna eru nú 13 kvenfélög. Þótt sumir telji töluna 13 ekki giftusamlega verður ekki séð að hún hái starf- semi Sambandsins. Það er ágæt- lega athafnasamur félagsskapur eins og glögglega kom fram í máli fornianns Sambandsins, Sól- veigar Arnórsdóttur i Útvík, á að- alfundi þess, sem haldinn var í Varmahlíð fyrir nokkru, í boði Kvenfélags Seyluhrepps. Meðal þess, sem Sambandið hefur beitt sér fyrir er námskeiða- hald, basarar, haustskemmtanir kvenfélaganna, hópferð til Dan- merkur og vinnuvaka á Löngu- mýri. Ágóðinn af vinnuvökinni rann til Dvalarheimilis aldraðra á Sauðárkróki og voru því færðir ýmsir munir, svo sem handofnir borðdreglar úr íslensku bandi á öll borð í borðstofu og dagstofu og veggstykki. Áður hafði Kvenfélag Sauðárkróks gefið öll húsgögn í stofurnar. Þá veitir Sambandið bókaverð- laun þeim nemendum, í grunn- skólanum í Hofsósi, Sauðárkróki og Varmahlíð, sem fram úr skara í handmennt og heimilisfræðum. Enn má nefna, að Sambandið ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 hefur látið gera platta með mynd eftir Friðrik Arnar Haraldsson, 14 ára Sauðkræking, en hann hlaut 1. verðlaun í hugmynda- samkeppni um minjagripagerð, sem Sambandið efndi til. Verður plattinn m.a. fáanlegur á helstu ferðamannastöðum. Væntanlegt er afmælisrit Kvenfélags Sauðárkróks en það varð nírætt á næstliðnu ári. Höf- undur ritsins er Aðalheiður Ormsdóttir og nefnist það „Við Ósinn“. Á fundinum komu skógrækt- armálin til umræðu og var m.a. rætt um framtíð skógræktar- stöðvarinnar í Varmahlíð. Um hana ríkir nú óvissa vegna fjár- skorts og er illt til þess að vita því hún hefur reynst mikil lyftistöng skógræktar í Skagafirði. Stjórn Sambands skagfirskra kvenna er nú þannig skipuð að formaður er Sólveig Arnórsdótt- ir, varaformaður Ingibjörg Jó- hannesdóttir, ritari Sigurbjörg Bjarnadóttir og gjaldkeri Lovísa Símonardóttir. Formaður orlofs- nefndar er Áshildur Öfjörð, rit- ari Elín Lúðvíksdóttir og gjald- keri Kristbjörg Bjarnadóttir. -mhg. V.Hún. Tekjuafgangur 642 þús. kr hjá kaupfélaginu á Hvammstanga Frá Kaupfélagi Vestur- Húnvetninga á Hvammstanga berast okkur þær fregnir að af- koma þess hafi veriS allnokkru betri á sl. ári en árið 1985. Heildarvelta félagsins varð 527 millj. kr. og er það 15,7% aukning. Vörusala varð 178 millj. kr. og jókst um 8,9%. Tekjuaf- gangur félagsins varð 642 þús. kr. er aukaafskrift að upphæð 4,8 millj. og niðurfærsla viðskipta- krafna að upphæð 2,5 millj. höfðu verið færðar til gjalda. Innistæður á viðskiptareikning- um voru 54. millj. og er það 14,91% hækkun. Skuldir á við- skiptareikningum hækkuðu um 13,04% og voru rúmar 31 millj. kr. Innistæður í innlánsdeild námu í árslok 54 millj. kr. og uxu um 33,15% frá fyrra ári. Heildar- afurðagreiðslur til framleiðenda voru 225 millj. kr. eða 14,26% hærri en árið áður. Heildarlauna- greiðslu hjá félaginu voru 42 millj. kr. sem er 17,83% hækkun frá fyrra ári. Fram kom á aðalfundi Kaupfélagsins og var samþykkt tillaga þar sem skorað var á land- búnaðarráðherra og stjórn Stétt- arsambands bænda að gera ráð- stafanir til þess að komið verði nú þegar stjórn á alla kjötfram- leiðslu í landinu. Taldi fundurinn það óforsvaranlegt að takmarka framleiðslu á kindakjöti einu sér en láta aðra kjötframleiðslu velta áfram að vild. -mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.