Þjóðviljinn - 25.06.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 25.06.1987, Blaðsíða 11
ERLENDAR FRETTIR Breskir jafnaðarmenn Suður-Kórea Gegn sam- einingu Leiðtogar Frjáls- lyndaflokksins hafa gagnrýnt kollega sína í Jafnaðarmanna- flokknum harðlega fyrir að beita sérgegn sameininguflokk- anna Forystumenn flokkannna tveggja sem buðu fram sem „miðjubandalag“ í þingkjörinu þann ellefta júní á Bretlandi, Frjálslynda flokksins og Jafnað- armannaflokksins,standa nú í há- værum deilum um það hvort æskilegt sé að leggja þá niður og reisa á rústum þeirra einn, sterk- an miðjuflokk. Það eru frjálslyndir sem ólmir og uppvægir vilja að þetta nái fram að ganga enda varla vanþörf á breytingum þar sem bandalagið hreppti eingöngu 22 af 650 sætum í neðri málstofu þingsins. Þar af fengu frjálslyndir sautján en jafn- aðarmenn aðeins fimm. Frjáls- lyndir skella skuldinni vegna hrakfaranna á tvíflokka-/tveggja leiðtogakerfi bandalagsins, breskir kjósendur hafi sýnt það svart á hvítu að þeir uni einum sterkum leiðtoga. Jafnaðarmenn virðast hinsveg- ar ekki vera jafn hrifnir af hug- myndinni. Þeir telja flokk sinn hafa hlutverki að gegna í breskri pólitík enn um sinn. ísrael Viéræður til einskis Viðræður Chun Doo Hwans forseta og Kims Young-Sams auka ekki bjartsýni um lýðrœðisþróun í bráð. Kim Dae-Jung látinn laus úr stofufangelsi Chun Doo Hwan forseti Suður- Kóreu lét í gær Kim Dae- Jung, annan af tveim leiðtogum Sameinaða iýðræðisflokksins, lausan úr stofufangclsi. Um hundrað stuðningsmenn Kims fögnuðu ákaflega þegar herbílar óku á brott frá heimili hans eftir að dátar höfðu staðið þar vörð í tvo mánuði. Félagi Kim Dae-Jungs, Kim Young-Sam, hafði sett frelsun hans sem skilyrði fyrir því að hann ræddi við Chun forseta um ástandið í landinu og leiðir til að binda enda á látlausa götubar- daga óeirðalögreglu og mótmæl- enda. Sá fundur fór fram í gær. Kim Young-Sam sagði viðræður sínar við Chun ekki hafa leitt til neins og í yfirlýsingu Sameinaða lýð- ræðisflokksins var sagt að fund- urinn hefði engan árangur borið. Kim sagði strax eftir fundinn að hann gæti ekki með góðri sam- visku hvatt menn til að fresta mikilli mótmælagöngu sem fyrir- huguð er á morgun. í flokksyfir- lýsingunni var kveðið sterkar að orði og fullyrt að flokkurinn myndi „taka höndum saman við öll lýðræðislega sinnuð öfl í landinu og ekki linna látunum fyrr en lýðræði væri komið á fót og ráðgerðir stjórnarinnar um að Táragas, táragas, táragas... Ekki verður lát á átökum slagsmálalögreglu og mótmælenda í Suður-Kóreu á næstunni. sitja áfram við völd brotnar á bak aftur“. í gær efndu um 10 000 náms- menn við 40 háskóla vítt og breitt um Suður-Kóreu til mótmæla, fimmtánda daginn í röð. Enn- fremur bárust fréttir af því að um 700 félagar frjálsra verkalýðsfé- laga og námsmenn hafi slegist við óeirðalögreglu í suðurhverfum Seoul. Þetta er í fyrsta sinn í þess- ari lotu baráttunnar að verka- menn láta hana til sín taka. Flest verkalýðsfélög í landinu eru ákaf- lega höll undir ríkisstjórnina en andófsfélög hafa víða sprottið upp á undanförnum árum. -ks. í gær sögðu fyrirmenn flokks- ins að öllum félögum hans yrði á næstunni sent bréf í pósti sem innihéldi atkvæðaseðil. Flokks- mönnum yrði gefinn kostur á að greiða atkvæði á milli tveggja kosta, nánari samvinnu flokk- anna tveggja eða sameiningu þeirra. Þeir drógu hinsvegar enga dul á það að þeir myndu hvetja menn til að hafna sameiningu. Einn helsti leiðtogi Frjálslynda flokksins, David Alton, varð ó- kvæða við þessum fréttum og sagði jafnaðarmenn auka mjög á ringulreið í herbúðum bandalags- ins með þessu hátterni. „Ef flokkarnir bera ekki gæfu til sam- einast að fullu þá stöndum við í sömu sporum og fyrir kosning- arnar. Félagar beggja flokka verða að greiða sameiningu braut.“ -ks. Arabar lögou niður vinnu Um 700 000 arabískir borgarar lögðu niður vinnu ígœr til að andœfa mismunun og krefjast jafnréttis á við gyðinga Mjög mikil þátttaka var í gær í allsherjarverkfalli araba í ís- racl sem kveðast orðnir lang- þreyttir á að vera meðhöndlaðir sem annars flokks borgarar í landinu. Skóiar, verslanir og wrksmiðjur stóðu auð og yfirgef- in víða í norðurhéruðum Israels þar sem þorri arabanna er búsett- ur. Talsmaður verkfallsnefndar- innar, Nazir Mujali, sagði verk- fallið aðeins vera fyrstu aðgerð í herferð mótmæla gegn mismun- un á fjölmörgum sviðum, svo sem í menntamálum, opinberum út- gjöldum og atvinnumálum. „Arabískir bæir fá um 75 pró- sent lægri framlög frá því opin- bera en samsvarandi byggðarlög gyðinga. Til að mynda er þörfin orðin mjög brýn í menntamálum, við þurfum um 1,500 nýjar skóla- stofur strax til að geta haldið uppi kennslu. Stjórnvöld hafa lofað því að verða okkur úti um 40 á þessu ári en til samanburðar má geta þess að börnum gyðinga munu þau útvega 460 nýjar skóla- stofur. Vfða á herteknum svæðum héngu veggspjöld þar sem arab- ískir íbúar, sem eru um 1,3 miljón talsins, voru hvattir til að sýna ísraelsku aröbunum samstöðu. í bænum Nablus á vesturbakka ár- innar Jórdan lá öll vinna niðri en þar var arabísk kona myrt á dög- unum. Þau sömu heryfirvöld létu loka Al-Najah háskólanum í Nablus og Abu Dis menntaskólanum skammt utan Jerúsalem af ótta við að námsmenn efndu til mót- mæla í samstöðuskyni með ara- bísku ísraelsmönnunum. Yfirvöld í ísrael höfðu ekki hátt í gær en þó viðurkenndi einn ráðherranna, Moshe Arens, í út- varpsviðtali að arabískir borgarar væru settir skör lægra en gyðingar í landinu. Hann reyndi að gera lítið úr verkföllunum og fullyrti að kommúnistar hefðu afvega- leitt fólk. Þessu vísaði Mujali á bug. Hann sagði að vissulega ættu félagar kommúnistaflokks- ins sæti í verfallsnefndinni en þar væru einnig félagar fjölmargra annarra flokka, til dæmis Verka- mannaflokksins sem sæti á í ríkis- stjórn. -ks. Sambandsþingið í Bonn Hart deilt um dauöafanga Stjórnarflokkarnir vesturþýsku eru á öndverðum meiði um hvort veita eigi chileönskum dauðaföngum hœli Mjög snarpar umræður urðu á Sambandsþinginu f Bonn í gær um mál fjórtán Chilemanna sem eiga dauðadóma yfir höfði sér í heimalandinu en óska eftir hæli sem pólitískir flóttamenn í Vestur-Þýskalandi. Samkvæmt stjórnarskrá Chile eiga dauðafangar rétt á að dómi þeirra verði breytt í ævilanga út- legð fallist ríkisstjórn einhvers lands á að veita þeim hæli. Því fóru fjórtánmenningarnir þess á leit f fyrra við ráðamenn í Vestur- Þýskalandi að þeir tækju við sér. Fjórir hafa þegar verið dæmdir til dauða í undirrétti fyrir hinar ýmsu sakir en þeir heyra allir til Aæruliðahreyfingu sem berst fyrir falli Pinochets einræðis- herra. Um mál þeirra er nú fjall- að í hæstarétti en ekki er búist við því að hann hnekki dómi undir- réttarins. Hinir tíu gista dýflissur Santí- ago og eru bornir sömu sökum og eiga sama dóm í vændum. Fjöl- mörg mannréttindasamtök halda því fram að játningar mannanna hafi verið knúnar fram að undan- gengnum pyndingum. Sambandsstjórnin vesturþýska er klofin um þetta mál. Hans- Dietrich Genscher utanríkisráð- herra og foringi frjálsra demó- krata er hlynntur því að mennirn- ir fái vist en innanríkisráðherrann og straussverjinn Friedrich Zim- mermann er öldungis ósammála. f gær kvaddi jafnaðarmaður- inn Freimut Duve sér hljóðs með eftirminnilegum hætti: „Ég á það sammerkt með mörgum ykkar að hafa slitið barnsskónum á tíma þegar við lutum einhverri verstu einræðisstjórn sem uppi hefur verið. Þegar ég frétti að Hitler hefði verið sýnt banatilræði var ég fullviss um að tilræðismenn- irnir væru ótfndir glæpamenn. En ég var þá barn að aldri. Nú veit ég að þeir voru hetjur. Það væri skelfilegt glapræði að koma þeirri flugu í kollinn á harðstjór- unum í Chile-að lýðræðissinnar í Bonn leggi trúnað á sannleiks- gildi játninga sem öryggislögregl- an í Chile knýr fram.“ En Zimmermann lét sér ekki segjast. Hann sagði endanlegan dóm ekki liggja fyrir og fram að þessu hefði ekkert komið fram sem mælti gegn því að umsókn fjórtánmenninganna væri hafnað vegna „þjóðaröryggis“ einsog hann orðaði það. Þá fékk einn þingmanna Græn- ingja, Ellen Olms, ekki orða Zimmermann: Hvort vegur þyngra umhyggja fyrir öryggi Vesturþjóðverja eða trúnaður við skoðanabræður í Chile? bundist: „Zimmermann tekur sér stöðu við hlið Pinochets og virðist reiðubúinn til að troða með hon- um á líkum fólks.“ Aðalheimild: REUTER Flmmtudagur 25. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.