Þjóðviljinn - 25.06.1987, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 25.06.1987, Qupperneq 6
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið Akureyri Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldinn fimmtudaginn 25. júní kl. 20.30 í Lárusarhúsi. Dagskrá: Venjuleg aðaifundarstörf. Önnur mál. Allir félagar hvattir til að mætá. Stjórnin Kosningahappdrætti ABR Vinningsnúmerið Dregið hefur verið í kosningahappdrætti Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Vinningurinn, sem er bifreið, kom á miða nr. 3271. Vinningshafi er beðinn að hafa samband við skrifstofu Alþýðubandalagsins Hverfisgötu 105 - sími 17500. Alþýðubandalagið í Reykjavík Gróðursetning í Heiðmörk 5. og 6. deild ABR (Breiðholts- og Árbæjarhverfi) gangast fyrir gróðursetn- ingarferð í Heiðmörk laugardaginn 27. júní. Þátttakendur safnist saman við Elliðavatnsbæinn klukkan 13.30. 5. deild (Gísli, 77354), 6. deild (Hafþór 672365). Deildarstjórnirnar MIÐSTJÓRNAR- FUNDUR 26.-28. júní - Reykjavík Dagskrá: Flokkurinn og framtíðin Föstudagur 26. júní: Kl. 20.00 Framsögur: Ásmundur Stefánsson, Guörún Helgadóttir, Ragnar Arnalds, Svavar Gestsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Kristín Á. Ólafsdóttir. Laugardagur 27. júní: Kl. 10.00 Starfshópar: 1) Kjaramál og stéttabarátta. 2) Flokkurinn og samtök launafólks. 3) Flokkur og fjölmiðlar. 4) Flokkurinn og staða kvenna. 5) Skipu- lagsmál flokksins og starfshættir. 6) Stefnan i atvinnu- og efna- hagsmálum. 7) Byggðamál. Kl. 12.00-13.00 Matarhlé, kl. 13.00: Starfshópar frh., kl. 15.00- 15.30: Skil starfshópa, almennar umræður. Sunnudagur 28. júní: Kl. 10.00: Almennar umræður frh., kl. 12.00-13.00: Matarhlé, kl. 13.00: Almennar umræður frh., niðurstöður, önnur mál. Stefnt að fundarslitum fyrir kl. 17.00 sunnudag. Miðstjórnarmenn eru beðnir að tilkynna skrifstofu (s. 17500) þátt- töku eða forföll. Gamalt sæluhús á Steingrímsfjarðarheiði. Þar mun þýskur nasisti hafa leynst um sinn eftir að Bretar hernámu 1940. Tímarit Ekki þekki ég mikið til starf- semi Atthagafélags Stranda- manna utan hvað fundum okkar Strandapósts hefur borið saman nokkur undanfarin ár og finnst mér að með okkur hafi tekist góð kynni. Út er kominn 20. árg. ritsins. Ber hann með sér nú sem áður að Strandamenn hafa frá mörgu að segja og eru ólatir við að festa á blað margháttaðan fróðleik sem ella færi forgörðum. Haldið er áfram birtingu hinna bráð- skemmtilegu þátta Skúla heitins á Ljótunnarstöðum um alda- mótamennina í Bæjarhreppi. Hermann Búason rifjar upp minningar um Borðeyrardeiluna 1934, sem landsfræg varð á sinni tíð. Hermann á þarna einnig aðra grein þar sem hann víkur að minningum frá einvígi því sem þeir Hermann Jónasson og Ólafur Thors háðu á Hólmavík rétt fyrir alþingiskosningarnar 1937 eða fyrir 50 árum, en af því gengu miklar sögur á þeim árum og lengi síðan. Ragnheiður Vigg- ósdóttir frá Broddanesi segir frá þeim kynlega kvisti Ásta-Brandi, einum hinum síðasta fulltrúa ís- lenskrar förumannastéttar. Hann lést fyrir rúmum aldarfjórðungi og er vel við hæfi og mátti helst ekki seinna vera að honum væri reistur minnisvarði. Það hefur Ragnheiður Viggósdóttir svo sannarlega gert með grein sinni. Árið 1862 var býlið Gilhagi reist í landi Mela í Hrútafirði, sunnan Miklagils. Gilhagi fór í eyði 1943 og höfðu þá verið þar 14 ábúendur. Ingunn Ragnars- dóttir frá Grænumýrartungu rifj- ar upp sögu býlisins og greinir frá ábúendum þar. Er sú frásögn öll fróðleg og skemmtileg í senn. Birt er útvarpserindi Þorsteins Matthíassonar um Sigurð Rós- mundsson frá Gilsstöðum í Selár- dal, en Sigurður hefur nú verið búsettur í Reykjavík um langt skeið. Sigurður er skáldmæltur og birtir Þorsteinn nokkur ljóða hans með erindi sínu. Ingólfur frá Prestsbakka heldur áfram Hrút- firðingaþáttum sínum og Kjartan Ólafsson, Sandhólum, segir nokkuð frá Gísla Gunnlaugssyni í Hlíð og birtir allmargar lausavís- ur eftir hann. Sigurgeir Magnús- son segir frá sveitarblaðinu Gesti, sem út kom á árunum 1902-1912 og stofnanda þess og ritrstjóra, Halldóri Jónssyni í Miðdalsgróf í Tungusveit. Árið 1907 birtist í Gesti kvæðabálkur, 76 vísur, þar sem getið er allra þáverandi búenda í Tungusveit og fylgir hann með frásögn Sig- urgeirs. Höfundur lét ekki nafns síns getið en haft er fyrir satt að hann hafi verið Guðjón Hjálm- arsson í Heiðarbæ. Guðmundur Jakobsson segir frá ferð sinni að Reykjaskóla í Hrútafirði haustið 1936, en þá fór hann Strandasýslu endilanga, mestmegnis fótgangandi. Ungt fólk þarf minna að hafa fyrir því að setjast á skólabekk nú en þá, sem betur fer sjálfsagt, en ekki er ég viss um að Guðmundur hefði viljað missa af að hafa farið þessa ferð. Dýrmundur Ólafsson frá Stóru-Borg á þarna einnig ferða- sögu. Greinir hann þar frá ferð sinni og nokkurra félaga, fram og til baka, norðan úr Hrútafirði og á skemmtisamkomu á Laugum í Hvammssveit vorið 1936. Kapp- siglingin nefnist frásögn Gísla Jónatanssonar í Naustavík. Gísla Jónatanssonar í Naustavík. Segir þar frá siglingu föður hans Jónat- ans Árnasonar, við annan mann í ofsaroki og stórsjó frá Hafnar- hólma í Skáhamravog. Magnús Jónsson hét félagi Jónatans og voru þeir á litlum sexæringi. Er frásögn Gísla byggð á sögn Þor- steins, sonar Magnúsar, en hann hafði eftir föður sínum. Annar sexæringur, stærri, mannaður 5 skipverjum, var með í för og kom þar af kappsiglingin. Hefur öll þessi sigling verið ærið tvísýn en lauk þó giftusamlega enda fum- laus handtök um borð. Framhald er af sjálfsævisögu- ágripi Jóns Einarssonar, en hann flutti til Ameríku 1888, 26 ára gamall. Jón Einarsson var hinn merkasti maður, lagði gjörva hönd á margt og fékkst m.a. all- mikið við ritstörf. Ingvar Agnars- son segir frá því þegar hann ung- ur drengur hóf leit að jarðskorp- unni með því að grafa holu í jörð- ina. Hafði Ingvar heyrt á tal föður síns og bónda þarna í sveitinni um þessa merkilegu skorpu og lék nú forvitni á að líta hana með eigin augum. Sveinbjörn Valgeirsson birtir okkur ýmsar minningar sínar frá Norðurfirði og kemur býsna víða við. Loks eru í þessum síðasta Strandapósti ljóð eftir Ingólf Jónsson frá Prestsbakka, Ingimar Elíasson, Jónu Vigfúsdóttur frá Stóru-Hvalsá, Guðrúnu Jóns- dóttur frá Kjós, Matthildi Guð- mundsdóttur frá Bæ á Selsströnd og Skálfs- eða Skjálgsbragur og Bæja- eða sóknarvísur eftir sr. Björn Hjálmarsson í Trölla- tungu. Hér er margt fémætið að finna og er þeim ekki efnis vant, Strandamönnum. -mhg Kaupfélag Skagfirðinga Batnandi afkoma Afkoma Kaupfélags Skagfirð- inga mátti heita allgóð á sl. ári. Rekstrarafgangur reyndist fast að 16 millj. kr. en árið 1985 nam hallinn hins vegar tæpum 28 millj. Veldur þarna mestu um lækkandi fjármagnskostnaður. Heildarvelta kaupfélagsins og Fiskiðjunnar var rúmlega 1500 millj. og hefur velta milli ára aukist um 19%. Heildarfyrningar hjá félaginu námu rúmum 40 millj. Félagið greiddi í opinber gjöld á árinu, til ríkis og sveitarfé- laga, rúmar 19 millj. kr. og sölu- skattsskil þess námu 49 millj. eða samtals til ríkis og sveitarfélaga rúmlega 68 millj. kr. Heildar- launagreiðsiur urðu rúmar 144 millj. á móti 118 millj. árið áður. Félagsmenn eru nú 1565, hefur aðeins fjölgað. Fjárfestingar voru þær helstar að lokið var við innréttingu á skrifstofum félags- ins í hinu nýja húsnæði þess og stendur þá „Grána” gamla auð orðin og yfirgefin, „besta búð í heimi”, eins og Magnús skáld á Vöglum komst eitt sinn að orði, og gengið var frá kaupum á eignum graskögglaverksmiðj- unnar Vallhólms hf. Samþykkt var að leggja 1 millj. kr. af hagnaði félagsins í Menn- ingarsjóð. Skal helmingur þess geymast þar til minnst verður 100 ára afmælis félagsins árið 1989. -mhg 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.