Þjóðviljinn - 25.06.1987, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 25.06.1987, Qupperneq 10
FLÓAMARKAÐURINN .. ,,n- < • • Starfsmann Þjóðviljans vantar litla íbúð til leigu. Skilvísum greiðslum og mjög góðri umgengni heitið. Uppl. í síma 35236. Barnagæsla í Seljahverfi Unglingsstúlka óskast til að gæta 5 ára telpu í júlí og ágúst. Uppl. í síma 79144 eftir kl. 17.30 Geymsluherbergi óskast Vil leigja 8-12 mz þurrt herbergi fyrir bækur og aðra muni. Borga árs- fjórðungslega fyrirfram. Sími 681548. Kettlingar fást gefins 2 fallegir vel vandir kettlingar fást gefins á gott heimili. Sími 78394 eftir kl. 19.30 Til sölu IKEA spegill 48x48 cm, kr. 500. IKEA eldhúsborð 80x120 cm kr. 2000. Vönduð leðuraktygi (sleða) á hund, kr. 2500. Antikrúm, franskt, útskorið með háum göflum, breidd 130, verðtilboð. Uppl. í síma 672482, Guðrún. Til sölu Eldhúsborð og 4 stólar úr beyki til sölu. Uppl. í síma 16671 e. kl. 20. Óskast keypt Óska eftir að kaupa hvíta handlaug íborði. Uppl. ísíma 16671 e. kl. 20. íbúð óskast Óska eftir 3-4 herb. íbúð eða gömlu húsi í miðbænum til leigu. Uppl. í síma 25825. Zoom linsa 75-200 mm F4, 5 til sölu. Verð kr. 12.000. Uppl. í síma 675089. Til söiu barnastóll á reiðhjól, gömul taurulla á fótum, stofuskápur með glerjum (módel 1947) og grjótgrind á Su- baru '78-’80. Selst ódýrt. Uppl. í síma 681310 á daginn. Kettlingar Fallegir kettlingar fást gefins. Sími 43188. Dugleg 16 ára stúlka óskar eftir vinnu í júlí og fram til 15. ágúst. Uppl. í síma 72617. Mazda 818 station ’78 til sölu. Verð 60-70 þús. Uppl. í síma 40693 frá kl. 9-21 og s. 83277 eftir kl. 21. Þorvaldur. Óska eftir 3-4ra herb. íbúð eða gömlu húsi í miðbænum til leigu. Uppl. í síma 25825. Til sölu páfagaukur og búr og stórt hjóna- rúm. Selst allt á vægu verði. Uppl. í síma 686318. Til sölu 2 vetrardekk á felgum á Trabant. (Fyrir lítið). Sími 36687 eftir kl. 17. Óska eftir að kaupa barnaferðarúm Sími 687816. Vil kaupa létta tvíburadekku og fallegt furu- hjónarúm. Uppl. í síma 12602 seinni part dags. Barnfóstra óskast Mig vantar góða barnfóstru til að passa tæplega 2ja ára strák í sumar. Bý í Norðurmýri. Uppl. í síma 12602 seinni part dags. Til sölu Hef til sölu fallegt barnarimlarúm. Uppl. í síma 12602 seinni part dags. Skjalaskápur óskast Sigurlaug. Sími 17513 f.h. og 24617 e.h. Barnavagn óskast Óska eftir að kaupa vel með farinn barnavagn. Einnig hjólaskauta nr. 32-33. Sími 19513. Túnþökur Gróskumiklar túnþökur úr Land- sveit til sölu. Sími 99-5040. Blár Brio barnavagn til sölu notaður í Vá ár. Selst á hálf- virði. Sími 622151. Barnlaust par óskar eftir 2ja herb. íbúð. Erum reglusöm. Öruggar mánaðar- greiðslur. Uppl. í síma 84117. Tjaldvagn óskast Óska eftir að kaupa Combi Camp tjaldvagn. Uppl. í síma 43473. Kolaeldavél óskast (sumarbústað Sími 74335. Reiðhjól 20“ Kalkoff kvenreiðhjól sæmilega með farið til sölu á kr. 1.500.-. Sími 75605. MÖÐVIUINN I'íminn Blaðburdur er BESTA TRIMMIÐ og borgar sig^ þlÓÐVIUINN Höfudmálgagn stjómarandstöðunnar Áskriftarsími (91)68 13 33 Alan Garcia forseti meðal indíána. Helsti keppinauturinn í flokki hans hefur snúið baki við stjórn hans. Gerir herinn það næst? Perú Valdabarátta í neyðarástandi TogstreitaAlans Garciaforseta ogLuis Alva Castros forsæt- isráðherra innan Byltingarsinnaða ameríska alþýðuflokksins leiðir til stjórnarkreppu. Örbirgð og örvœnting vatn á myllu Það er alkunna í Perú að Alan Garcia forseti og Luis Alva Castro forsaetisráðherra hafa ekki setið á sárs höfði um nokk- urra ára skeið. Castro hefur lengi verið áhrifamaður innan flokks forsetans, Byltingarsinnaða am- eríska alþýðuflokksins, og töldu margir hann líklegt forsetaefni árið 1985 sökum reynslu hans og vinsælda innan flokks. En þá stal hinn 36 ára gamli Garcia senunni, náði kjöri og Castro varð að láta sér lynda að verða forsætisráð- herra keppinautarins. Garcia ríkir á daginn, herinn að næturþeli Samkvæmt stjórnarskrá Perú á Garcia ekki kost á því að ná endurkjöri árið 1990. Castro hef- ur ekki farið dult með þann ásetning sinn að verða eftirmaður hans. Þó er talið að afsögn hans og ráðuneytis hans í fyrradag hafi komið forsetanum í opna skjöldu og vissulega kemur hún á slæm- um tíma því efnahagur landsins er í kaldakoli, maóískir skærulið- ar færa sig æ meira uppá skaftið í helstu borgum og herinn er til alls líklegur. Hann hefur þegar öll völd í landinu í sínum höndum eftir að skyggja tekur. Það húmar að Varúð lífshætfa! Pegar myrkrið skellur á breytist Lima í draugaborg. Út- göngubannið heldur fólki í stof- ufangelsi. Ungir menn með stál- hjálma og hríðskotabyssur eru hvarvetna á varðbergi og hnot- skóg eftir „hryðjuverka- mönnum“. Þeir eru mjög tauga- veiklaðir og lífi og limum ferða- langa er hætta búin, jafnvel þótt tími innilokunar sé ekki runninn upp „Á dögunum skutu þeir konu, klukkustundu áður enn útgöngu- bannið gekk í gildi,“ fullyrðir leigubílstjóri og rýnir í myrkrið ef vera kynni að einhvers staðar væri dáti að gefa honum merki um að nema staðar. Skyndilega bendir hann uppá gangstéttina. „Sjáðu, þarna er lík.“ Og mikið rétt. Á að giska mið- aldra maður í gráum jakkafötum liggur þar á bakinu með útrétta maoista handleggi. Hann virðist vera dá- inn. Leigubílstjórinn þverneitar að nema staðar svo hægt sé að ganga úr skugga um hvprt maður- inn sé hjálparþurfi. „Það er alltof hættulegt. Sérðu ekki að hann er dauður. Þeir koma í fyrramálið og hirða líkið.“ Útgöngubann „í sextíu daga“ Pað var Alan Garcia sem lét setja útgöngubannið í febrúar 1986 í kjölfar sprengjuherferðar rnaóistasamtakanna Sendero Luminoso í höfuðbo’rginni. Upp- haflega átti að aflétta þvi eftir 60 daga en það er enn í gildi. Margir Perúmanna álíta það aðeins for- boða þess sem koma skal. Stjórnmálaóvissa, afleitt efna- hagsástand, spilling og ókyrrð á vinnumarkaði auka ótta manna um veikburða lýðræði og gruninn um að herinn bíði aðeins hent- ugrar átyllu til að hrifsa öll völd í sínar hendur. Golfklúbbar og bókasöfn En sumir hafa engu að kvíða, hvernig sem hlutirnir velkjast. Einstaklingar úr yfirstéttinni yppa öxlum kæruleysislega er tal- ið berst að útgöngubanni, sprengingum og verkföllum og benda réttilega á að allt þetta eigi sér stað í „Perú hinna“, landi fá- tækrahverfa, smábænda og Qu- echua indfána. Kona sem fæst við húsabrask orðar það svo: „Þótt útlendingar geri sér ekki grein fyrir því þá eru um tuttugu prósent íbúa þessa lands skólagengið og siðmenntað ágætisfólk." Hún er hamingju- söm því að viðskiptin blómstra og dóttir hennar mun ganga að eiga mikils metinn mann innan skamms, bandarískan mann. Hún heldur áfram: „Sannleikur- inn er sá að áttatíu prósent lands- manna er alls fáfrótt, vanþróað og menningarsnautt fólk.“ Hún fær ekki skilið hví Garcia reynir að höfða til slíks fólks og fær ekki orða bundist þegar talið berst að ákvörðun hans um að breyta hinum glæstu húsakynn- um Golffélags Lima í almenn- ingsbókasafn. „Hugsið ykkur bara hverskonar fólk mun hafast við í E1 Golf þegar búið verður að breyta staðnum í bókasafn sem verður opið fyrir hvern sem er!“ Sendero Luminoso; hverjir og fyrir hverja? Enginn veit nákvæmlega hve mikils stuðnings Sendero Lumi- noso skæruliðar njóta í Perú þótt samtökin hafi óneitanlega fært út kvíarnar eftir að mörg hundruð fangelsaðir félagar voru myrtir af hermönnum. Hugmyndafræði samtakanna er strangmaóísk. Félagarnir kalla Fidel Castro aldrei annað en „strengbrúðu sósíalheimsvaldasinnanna", So- vétmenn eru „helvítis endur- skoðunarsinnar" og Sandinista- stjórnin í Nicaragua er svo borg- araleg að ekki tekur því að velja henni ónöfn! Afstöðu sína til nú- verandi valdhafa í Kína tjá þeir þó með dramatískustum hætti. Peir hengjadauðahunda í ljósa - staura og benda þvínæst á að þannig eigi að meðhöndla „hund- ana sem sviku menningarbylting- una.“ Leigubflstjóri af indíánaættum segir að kynþáttahatur og kúgun séu á það háu stigi að bláfátækir indíánar og kynblendingar fylki sér undir merki hverrar þeirrar hreyfingar sem lofi róttækum breytingum og skeyti ekki hætis- hót um „hugmyndafræði". „Ef ég byggi uppí fjallahéruð- unum og einhver skítugur dáti girntist konu mína eða dóttur þá væri ómögulegt að koma í veg fyrir að hann fengi vilja sínum framgengt. Fólkið er náttúrlega í uppreisnarhug vegna þess að það er hungrað og svívirt." En í fátækrahverfi höfuðborg- arinnar býr verkamaður sem er öndverðrar skoðunar. Hann full- yrðir að Senderoliðar kúgi smá- bændur til liðs við sig. Hann segir engu skipta fyrir hve miklum vonbrigðum hann verði með stjórn Garcia og „svikin loforð“ hans, hann muni aldrei styðja Senderohreyfinguna. „Fidel Castro og Che Guevara, þeir voru alvöruskæruliðar. Senderoliðar fleygja bara sprengjum út og suður án þess að hugsa um hverjir verði fyrir þeim. Þeir eru bara ævintýra- menn, hryðjuverkamenn.“ -ks. 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILjlNN Flmmtudagur 25. jún(1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.