Þjóðviljinn - 27.06.1987, Page 3

Þjóðviljinn - 27.06.1987, Page 3
FRETTIR Reiðhöllin í Víðidal Stytlist f vfgshina Reiðhöllin vígð 10. júlí. Hennarfyrsta verkefni verður að hýsa umfangsmestu sýningu hérlendisfrá upphafi, landbúnaðarsýninguna í ágúst Það er mikið eftir ógert hérna, en við leggjum nótt við dag og búumst við að allt verði klárt fyrir vígsluna, sagði Vilhjálmur Bjarnason verkstjóri í nýju reiðhöllinni í Viðidal í samtali við Þjóðviljann í gær, en ráðgert er að vígja þetta mikla hús með við- höfn 10. júlí næst komandi. Reiðhöllin er talin vera stærsta hús hér á landi að gólffleti og hennar fyrsta hlutverk verður einmitt að hýsa umfangsmestu sýningu sem haldin hefur verið á íslandi, landbúnaðarsýninguna í ágúst. Sýningin hefst 14. ágúst og er haldin á vegum Búnaðarfélags ís- lands og landbúnaðarráðuneytis- ins í tilefni 150 ára afmælis Bún- aðarfélagsins. Félagið sem stofn- að var árið 1837 hét að vísu Suðuramtsins hús- og bústjórn- arfélag í upphafi, en 1899 var nafninu breytt í Búnaðarfélag ís- lands og náði þá til alls landsins. Á sýningunni verður lögð sér- stök áhersla á nýbúgreinar, en þarna getur að h'ta hvaðeina sem lýtur að landbúnaði, búfé, rekstr- arvörur og afurðir. Á sýningunni verður einnig rakin þróunarsaga landbúnaðar á íslandi. -gg Heyskapur Sláttur með fyrra fallinu Sláttur er nú hafinn víða um land eða í þann mund að hefjast og er hann víða fyrr á ferð nú en oft áður sökum þess hve vel voraði í ár. Þess eru jafnvel dæmi að menn séu búnir að hirða af tún- um. Að sögn Jónasar Jónssonar búnaðarmálastjóra hafa þurrkar víða háð grassprettu, sérstaklega á sunnan- og vestanverðu landinu, og því eru áhöld um hvort hey verða mikil. En menn eiga þó von á að þau verði góð. -gg Húsateikningar Kjartan Valgarðsson með sænsku frjópokana „Profil“, „Blommor och bin“ og „Okeido'1. Gæðafrjópokar frá Svíþjóð Selfyssingar hefja innflutning á smokkumfrá Sænsku upplýsingastofnuninni um kynferðismál tíma eru taldir með þeim örugg- Hægt erað fá allt að 30 stykki í Fyrirtækið Fyrirtak sf. frá Sel- fossi hefur hafið dreifingu og sölu á smokkum sem standast ströngustu gæðakröfur Sænsku upplýsingastofnunarinnar um kynferðismál (RFSU). Smokkar þessir sem ekki hafa fengist hér á landi til skamms ustu, sem völ er á, þar sem þeir hafa staðist gæðapróf RFSU og er dreift af þeirri stofnun í Sví- þjóð. Hér er um 3 tegundir að ræða, sem allar eru framleiddar úr náttúrulegu gúmmíi og geymdar í loftþéttum umbúðum. pakka. Kjartan Valgarðsson innflytj- andi smokkanna sagði í viðtali við blaðið að ekkert gæðaeftirlit væri með innfluttum smokkum hér á landi, en ábyrgð RFSU væri strangasti gæðastimpill, sem völ væri á. „Það er óþolandi að geta ekki treyst vöru eins og þessari, þar sem svikin vara gæti haft ófyrir- sjáanlegar afleiðingar fyrir not- andann,“ sagði Kjartan að lok- um. Smokkar frá RFSU eru með- al annars seldir hjá kaupfélögum um land allt. —ólg Fjórhjólaakstur Vemlegt vandamál Lögreglan í Keflavík: Ljótnáttúruspjöll afvöldumfjórhjóla í Trölladyngju, Hraunslandi, Vigdísarvöllum og í Sandvík. Lögreglumenn sammála um að reglugerð dómsmálaráðuneytisins sé mjög ábótavant og óskýr. Mosfellssveit og Seltjarnarnes hafa bannað með öllu aksturfjórhjóla innan sinna umdœma námunda við höfuðborgarsvæð- ið. Enda er svo komið að tvö Okkur er alltaf að berast kvart- anir undan akstri á fjórhjól- um bæði í þéttbýli svo og á friðuð- um náttúrusvæðum. Sérstaklega hefur verið mikið um fjórhjóla- akstur meðfram Grindavíkurveg- inurn, i Trölladyngju, Hrauns- landi, VigdísarvöUum og í Sand- víkinni. A þessum stöðum hafa víða verið unnin ljót náttúrus- pjöll, sagði Karl Hermannsson að- stoðaryfirlögregluþjónn í Kefla- vík. Sagði Karl að samkvæmt reglu- gerð dómsmálaráðuneytisins frá því 7. apríl síðastliðnum um fjór- hjólin væru ákvæðin ekki nógu skýr og mjög erfitt fyrir lögregl- una að vinna eftir henni. Það væri til dæmis bannað að aka fjórhjól- um í þéttbýli og akstur utan vega væri einnig bannaður samkvæmt náttúruverndarlögum. Sömu sögu höfðu lögreglu- menn í Reykjavík, Hafnarfirði, Selfossi, Hvolsvelli og á Seltjarn- arnesi, að segja sem Þjóðviljinn hafði samband við. Samkvæmt reglugerðinni mega unglingar sem hafa próf á skellinöðru og eru 15 ára og eldri aka fjórhjóli, en þeir mega ekki keyra það hraðar en 40 kílómetra á klukku- stund, þó svo að hægt sé að keyra hjólin allt upp í 100 kflómetra hraða. Sagði Steinþór Nygaard, varðstjóri í umferðardeild lög- reglunnar í Reykjavík að það væri nánast óvinnandi verk að framfylgja reglugerð dómsmála- ráðuneytisins og fjórhjólaakstur væri fyrir löngu orðinn verulegt vandamál, bæði á götum borgar- innar og svo á náttúrusvæðum í sveitarfélög hafa bannað allan akstur á fjórhjólum innan marka þeirra. Það er Mosfellssveit og á Seltjarnarnesi. Þar samþykkti bæjarstjórnin samhljóða á fundi 24. júní síðastliðinn bann við öllum akstri á fjórhjólum innan bæjarmarkanna, og meðal ann- ars vegna þess að veruleg spjöll hafa verið unnin á Valhúsahæð- inni og á Suðurnesi. grh Undir fölsku flaggi Egill Guðmundsson, ístjórn Arkitektafélagsins: Hvetjum fólk til að kynna sér menntun þeirra sem hanna byggingar. Mikil brögð að því að teikningar séu auglýstar á röngum forsendum. Arkitektar einir mega auglýsa arkitektateikningar k ví niiður eru mörg dæmi um ■ það að menn auglýsa arkit- ektateikningar, án þess að arki- tekt hafi komið þar nærri. Arki- tekt er iögverndað starfsheiti og því hafa engir aðrir en arkitektar rétt á að auglýsa teikningar af mannvirkjum undir þessu heiti, sagði Egill Guðmundsson, stjórnarmaður í Arkitektafélagi íslands, um ástæður auglýsinga félagsins að undnaförnu, þar sem húsbyggjendur eru áminntir um að ganga vel úr skugga um, eftir hvern teikningarnar eru. „Ástæður þess að við viljum minna húsbyggjendur á að ganga úr skugga um, hvaða menntun þeir hafi, sem fólk fær til að hanna fyrir sig, eru þær að undan- farið hefur birst í DV auglýsing um teikningar að húsum og sumarbústöðum, sem sagðar eru eftir arkitekta. Við vitum betur, - þessar teikningar eru ekki eftir arkitekta," sagði Egill Guð- mundsson. „Þær teikningar, sem nefnast arkitektateikningar, eru byggingarnefndarteikningar. Við megum teikna byggingarnefn- darteikningar. í reglugerð segir þó að arkitektar, tæknifræðingar og verkfræðingar, sjái um teikningar hver á sínu sviði. Menn greinir á um það hvað til- heyri sviði hvers. Þannig geta tæknifræðingar teiknað bygging- arnefndarteikningar, en við megum ekki teikna járnat- eikningar. Við teljum að þar sé farið inn á okkar svið. En það breytir því ekki að aðeins teikningar eftir arkitekta má kalla arkitektateikningar," sagði Egill Guðmundsson. -RK Laugardagur 27. júní 1987 PJÖÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.