Þjóðviljinn - 27.06.1987, Side 15
ÍÞRÓTTIR
íþróttir
Um helgina
Það er mikið um að vera í
íþróttum um helgina.
Heil umferð verður leikin í 1.
deild. ÍA og KR leika í dag á
Akranesi og hefst leikurinn kl.
14.30. Á morgun eru svo þrir
leikir. Þór og Víðir leika á Akur-
eyri, ÍBK og KA í Keflavík og
Völsungur og FH á Húsavík.
Þessir leikir hefjast kl. 20. Síðasti
leikurinn í 7. umferð er svo á
þriðjudagskvöld, en þá leika
Fram og Valur á Laugardalsvelli.
í fyrstu deild kvenna eru fjórir
leikir. í dag leika KR og Breiða-
blik á KR-velli, ÍBK og Valur í
Keflavík og KÁ og Þór á Akur-
eyri. Þessir leikir hefjast kl. 14,
nema leikur KR og Breiðabliks,
sem hefst kl. 14.30.
Á morgun leika svo ÍA og
Stjarnan á Akranesi.
Þá eru tveir síðustu leikir í 7.
umferð. Selfoss og Einherji leika
á Selfþssi í dag kl. 18 og Víkingur
og ÍBÍ á Laugardalsvelli á mánu-
dag kl. 20.
Pollamótið í knattspymu
stendur nú yfir í Vestmannaeyj-
um, en því lýkur á sunnudag.
Norrænt barna- og unglinga-
mót fatlaðra hefst í dag. Mótið
verður sett í Laugardalshöll kl.
10.30 og stendur fram á sunnu-
dag.
Vestmannaeyjar
Tommamótið
Tommamótið hélt áfram i gær
og var að sjálfsögðu mikið fjör í
Vestmannaeyjum. Það er Týr
sem sér um mótið að þessu sinni
og hefur það gengið nyög vel.
Urslit í gær:
A-flokkur:
Fylkir-lK......................3-1
Týr-Völsungur..................2-0
lA-Fylkir......................3-1
Leiknir-ÍK.....................3-0
Reynir-ÍR......................1-2
Þróttur-UBK....................2-3
Valur-Reynir...................0-1
Þór-lR.........................1-4
Haukar-(Bk........................
Fram-Grótta....................3-0
KR-Haukar......................3-0
Afturelding-lBK................2-4
Víðir-Víkingur.................1-4
IBÍ-KA.........................0-3
FH-Víðir.......................3-0
Stjarnan-Víkingur.............1 -2.
B-flokkur
Týr-Völsungur..................1-1
ÍA-Fylkir......................3-1
Leiknir-(K................... 1-4
Reynir-ÍR......................0-3
Þróttur-UBK....................0-3
Valur-Reynir................. 3-0
Þór-(R.........................4-1
Haukar-(BK.....................6-5
Fram-Grótta....................3-0
KR-Haukar......................3-0
Afturelding-lBK................0-3
Víðir-Víkingur.................0-3
ÍBf-KA.........................3-0
FH-Víðir.......................3-0
2. deild
Enn sigrar Leiftur
Leiftur-KS 1-0 ★ ★
Leiftursmenn halda áfram að
koma á óvart og í gær lögðu þeir
Siglfirðinga.
Leikurinn var jafn lengst af, en
í fyrri hálfleik voru Leiftursmenn
þó heldur sterkari. Þeim tókst þó
ekki að skapa sér mjög hættuleg
færi. Á 38. mínútu kom sigur-
markið. Halldór Guðmundsson
skoraði með glæsilegri hjólhest-
aspyrnu eftir þvögu í vítateig.
Fyrri hálfleikurinn einkenndist
af baráttu og lítið um góð færi.
Leiftursmenn voru þó meira með
boltann.
Siglfirðingar sóttu í sig veðrið í
síðari hálfleik og sóttu stíft. En
þeir voru óheppnir við markið.
Leiftursmenn vörðust mjög vel
og þess á milli áttu þeir skyndi-
sóknir sem sköpuðu hættu við
mark Siglfirðinga.
Þrátt fyrir að hafa varist
meiripart síðari hálfleiks má
segja að sigur Leifturs hafi verið
sanngjarn. Geir Hörður Ágústs-
son og Halldór Guðmundsson
áttu mjög góðan leik, auk Ró-
berts Gunnarssonar.
Hjá KS var Mark Duffield yfir-
burðamaður.
í Vestamnnaeyjum léku ÍBV
og Þróttur og lauk leiknum með
jafntefli 2-2.
-jh
Staðan
í 2.deild:
Víkingur.....6 5 0 1 13-7 15
Leiftur.......7 4 1 2 8-4 13
Þróttur.......7 3 1 3 12-12 10
Einherji......6 2 3 1 7-8 9
(R............7 2 2 3 10-11 8
KS............6 2 2 3 10-11 8
ÍBV...........7 2 3 2 9-10 9
UBK...........7 3 1 3 7-7 7
Selfoss.......6 1 3 2 10-12 6
iBl...........6 1 0 5 7-11 3
Blikar á lofti. Gunnar Gylfason og Magnús Magnússon hafa hér betur í
baráttu við Heimi Karlsson. Mynd. Sig.
Siguröur Pétursson lék vel í gær,
Austurríkismönnum.
en það nægði ekki til sigurs gec
Golf
Tap gegn Austuníki
íslendingar töpuðu gegn
heimamönnum á Evrópumótinu í
golfi á Austurríki.
í fjórleiknum sigruðu Úlfar
Jónsson og Sveinn Sigurbergs-
son, en Sigurður Pétursson og
Sigurjón Arnarson töpuðu.
Leikur Úlfars og Sveins var mjög
jafn, en Sveinn náði mjög góðu
upphafshöggi og Úlfar átti mjög
gott annað högg, en þá hafnaði
kúlan rúmum metra frá holunni.
Staðan eftir fjórleikinn því 1-1.
En ekki gekk jafn vel í einstak-
lingsleiknum. Úlfar var sá eini
sem sigraði í sínum leik, 3-2.
Gylfi Kristinsson tapaði 1-2, Sig-
urður Sigurðsson, 2-3, Sigurjón
Arnarson 1-2 og Sigurður Péturs-
son 1-2. ísland tapaði því
leiknum 2-5.
ísland mætir Noregi í dag. Sig-
urvegararnir leika um 13. sæti, en
þeir sem tapa hafna í 15. sæti.
„Þetta var ágætt,“ sagði Frí-
mann Guðlaugsson fararstjóri í
samtali við Þjóðviljann í gær.
„Strákarnir léku mjög vel og
Úlfar náði frábærum leikjum.
Það þýðir ekkert annað en að
vera bjartsýnn fyrir leikinn gegn
Norðmönnum á morgun og vona
það besta“
Það sem kom mest á óvart var
sigur Svía gegn fyrrverandi Evr-
ópumeisturum Skotum, 4-3. Sví-
ar mæta Englendingum sem sigr-
uðu Spánverja. í hinum undanúr-
slitaleiknum mæta írar, sem sig-
ruðu Þjóðverja, Frökkum sem
sigruðu Wales.
í gær birtum við mynd sem við
sögðum vera af Úlfari Jónssyni.
Svo var ekki og biðjumst við vel-
virðingar á því.
-Ibe
Laugardagur 27. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
FERDA
TRAVEL AGENCY
LINDARGATA 14 - SÍMAR: 14480 -12534
Örfá sæti laus
17 dagar eða 31
Verð með hálfu fæði 32.610 eða 42.1
50% afsláttur fyrir 12 ára og yngri.
2. deild
Létt hjá Blikum
UBK-ÍR 3-0 ★★ ★
Brciðablik átti ekki í miklum
vandræðum með slaka IR-inga á
Kópavogsvellinum í gær. Sigur-
inn stór, en hefði getað verið
stærri.
Blikar byrjuðu leikinn mjög
vel og fyrsta markið kom á 17.
mínútu. Jón Þórir Jónsson átti
gott skot að marki ÍR, Þorsteinn
varði, en hélt ekki boltanum og
Magnús Magnússon fylgdi vel á
eftir og skoraði.
Tveimur mínútum síðar kom
annað markið. Ólafur Björnsson
tók hornspyrnu, boltinn barst til
Magnúsar sem skoraði með góð-
um skalla, 2-0.
Blikarnir voru mun sterkari í
fyrri háfleik og áttu nokkur mjög
góð færi. Jón Þórir Jónsson var
iðinn við að opna vörnina og áttu
varnarmenn ÍR í mesta basli með
hann.
Á 70. mínútu kom svo þriðja
markið. Guðmundur Guð-
mundsson tók þá aukaspyrnu við
vítateig ÍR á Gunnar Gylfason.
Hann gaf á Ingvald Gústafsson
sem var í dauðafæri og skoraði af
öryggi, 3-0.
ÍR-ingar hresstust aðeins við í
lokin og áttu þokkaleg færi, en
Sveinn Skúlason varði vel í marki
Breiðabliks.
Það voru Blikar sem lengst af
réðu ferðinni og hefðu átt að
skora fleiri mörk í fyrri hálfleik.
Guðmundur Guðmundsson og
Magnús Magnússon voru bestu
menn liðsins og Sveinn Skúlason
var öruggur í markinu.
ÍR-ingar vour daprir og áttu í
raun aldrei möguleika. -MHM