Þjóðviljinn - 04.07.1987, Blaðsíða 1
Laugardagur 4. júlí 1987 142. tölublað 52. árgangur
1
Seiðakvíslarmálið
Búist við kröfuflóði
Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi: Seiðakvíslarmálið hefur ákveðið
fordæmisgildi við vissar aðstœður. Ægilegtslys hjá bygginganefnd og
áminning um vandaðri vinnubrögð
Pað er erfitt að meta fordæmis-
gildi þeirrar ákvörðunar
borgarráðs að greiða eiganda
hússins við Seiðakvísl 5 þessar
bætur. En það er enginn vafi á því
að þetta er ákveðið fordæmi í
málum þar sem verið er að heim-
ila nýbyggingar, viðbyggingar
eða aðrar breyfingar á húsum og
getur kallað á að aðrir fylgi á eftir
með svipaðar kröfur. Réttur er
víða brotinn á mönnum þótt þetta
dæmi sé sérstaklega slæmt, sagði
Sigurjón Pétursson borgarfull-
trúi í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Sigurjón sat hjá í atkvæða-
greiðslu í borgarráði um bóta-
greiðslur til eiganda hússins við
Seiðakvísl 5 vegna stærðar og
staðsetningar hússins við hliðina,
Seiðakvíslar 7. Seiðakvísl 7 var
teiknuð af varaformanni bygg-
ingarnefndar og fékk skjóta af-
Gulllaxveiðarnar
Gulllaxinn
dyntóttur
Hilmir 11SU hœttur
gulllaxveiðum að sinni
og kominn á rœkju
Við hættum þessum veiðum í
júní, enda höfðu þær gengið verr
en t.d. í fyrrasumar, en það þýðir
alls ekki að við séum að gefast
upp á þessum veiðum. Við erum
ákveðnir í að fara á gulllax aftur
næsta vor og vitum um fleiri sem
hyggjast gera það sama, sem er
mjög ánægjulegt, sagði Hilmar
Jóhannsson útgerðarstjóri Hilmis
II SU í samtali við Þjóðviljann í
gær, en Hilmir hefur einn ís-
lenskra báta stundað veiðar á
gulllax.
Hilmar sagði í gær að það væri
erfitt fyrir eitt skip að stunda
þessar veiðar, það væri eins og
fyrir loðnubát að vera einn á mið-
unum.
„Gulllaxinn virðist vera tals-
vert dyntóttur, hann hegðaði sér
allt öðru vísi nú en í fyrra og það
háir okkur nokkuð að það þekkir
enginn háttalag hans nægilega
vel, hvernig hann gengur og svo
framvegis. Hann var t.d. mun
dýpra núna, allt niður á 380
faðma, og við ráðum ekki við að
veiða hann á slíku dýpi,“ sagði
Hilmar.
Afli Hilmis á þessari
gulllaxvertíð var 80-100 tonn og
hafði verið gengið frá sölu þess
magns og miklu meira til Noregs
áður en veiðar hófust.
í vor voru uppi áform um að
senda Jón Finnsson RE á gulllax-
veiðar í sumar, en af því varð
ekki. Hins vegar er gert ráð fyrir
að Sighvatur Bjarnason frá Vest-
mannaeyjum fari á guillax í lok
júlí. Einnig er vitað um áhuga
margra annarra á þessum
veiðum, m.a. HB & Co á Akra-
nesi, sem hyggst senda Rauðsey
Ak á gulllaxveiðar í sumar eða
næsta sumar.
-«g
greiðslu í byggingarnefnd, en í
síðustu viku samþykkti borgar-
ráð að greiða eiganda Seiðakvísl-
ar númer 5 850 þúsund krónur í
skaðabætur vegna óþæginda.
„Ég vildi ekki samþykkja svo
háar bætur án þess að fyrir lægi
dómur í málinu, en ég var hins
vegar reiðubúinn að samþykkja
að borgin gerði ráðstafanir til
þess að draga úr óþægindum bæði
núverandi eiganda Seiðakvíslar 5
og væntanlegra, t.d. með því að
byggja vegg á milli húsanna.
Það var auðvitað ægilegt slys af
hálfu byggingamefndar og
hönnuða hverfisins að sam-
þykkja þessar teikningar að hús-
inu við Seiðakvísl 7 og áminning
til þeirra um að vanda betur sín
vinnubrögð framvegis. Ég minn-
ist þess ekki að borgin hafi áður
þurft að greiða skaðabætur
beinlínis vegna rangrar ákvarð-
anatöku í bygginganefnd,“ sagði
Sigurjón Pétursson.
-gg
Helgarveörið
Rólegt
en skýjaö
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu íslands þá verður
ágætis veður um helgina.
Norðan- og austanlands verður
skýjað og einhver úrkoma.
Vestan- og sunnanlands verður
skýjað með köflum og úrkomu-
laust.
Á SA-landi verður hæg breyti-
leg átt en annarstaðar verður
fremur hæg norðaustlæg átt.
-gsv
Þessum unga manni fannst full ástæða til að gefa mömmu sinni rembingskoss í miðju Austurstræti I gær, en ungir sem aldnir notuðu góðviðrið til að sýna sig og
sjá aðra. I sunnudagsblaðinu segir frá götusölu í Austurstræti. Mynd Loftur.
Stjórnarmyndun
Þríhjól til moldar
Príhjólið tekur við á miðvikudag. Kratar mishressir með ríkisstjórn Porsteins.
Miðvikudagur til moldar, það
á vel við Iandbúnaðarstefnu
þessarar ríkisstjórnar,“ sagði
þingmaður Alþýðuflokksins við
Þjóðviljann í gær, en Þorsteinn
Pálsson hefur lýst því yfir að þri-
hjólið taki við á miðvikudag.
Kratar eru mjög mishressir
með þá ríkisstjórn sem nú er ver-
ið að mynda og Karvel Pálmason
hefur lýst því yfir að hann muni
ekki styðja stjórnina, einsog
Þjóðviljinn greindi frá í gær.
Finnst Karvel og fleiri lands-
byggðarþingmönnum sem hlutur
landsbyggðarinnar sé minni en
enginn með þrístirnið af Reykja-
víkurlistanum í ráðherrastólum
og hvorki samgönguráðuneyti né
neitt af atvinnumálaráðuneytun-
um hjá krötum. Þá hafa sumir
kratar á orði að með þríhjólinu sé
búið að lögfesta Jón Helgason
sem landbúnaðarráðherra.
Karvel mun ekki
Þingflokkar krata, Framsókn-
ar og Ihalds funduðu stíft í gær og
áfram var haldið við að semja
stjórnarsáttmáiann. Þá mun búið
að útkljá kaupleigudeiluna milli
krata annarsvegar og íhalds og
Framsóknar hinsvegar. Niður-
staða fékkst í því hvernig
kaupleiguíbúðirnar koma inn í
styðja stjórnina
húsnæðiskerfið en ekkert var ák-
veðið um hversu margar
kaupleiguíbúðir yrðu byggðar,
né hversu miklu fjármagni yrði
veitt í þær.
Á sunnudag munu æðstu stofn-
anir flokkanna þriggja þinga;
flokksstjórn Alþýðuflokksins,
miðstjórn Framsóícnarflokksins
og flokksráð Sjálfstæðisflok-
ksins. í framhaldi af því verður
svo gert út um ráðherraembættin
á þingflokksfundum. Á miðviku-
dag er svo áætlað að halda ríkis-
ráðsfund, en forseti íslands mun
halda til Manar við England í dag
og koma aftur á þriðjudag.
-Sáf
Hvalveiðar
Hvalarannsóknír á villigötum
Islenskir vísindamenn hafa ekki
enn unnið úr þeim gögnum sem
aflað var hér á landi meðan hval-
veiðar voru leyfðar. „Vfsinda-
veiðarnar“ svokölluðu eru skipu-
lagðar eins og hinar hefðbundnu
veiðar voru stundaðar á meðan
þær voru leyfðar.
Sú gagnasöfnun sem af slíkri
veiði fæst er ekki til þess fallin að
afla nýrrar vitneskju um hvala -
stofnana.
Þetta eru nokkur atriði sem
koma fram f ítarlegu viðtali við
danska líffræðinginn Birgith
Sloth í Sunnudagsblaðinu í dag,
en Sloth er sérfræðingur danska
umhverfismálaráðuneytisins í
hvalamálum og hefur fylgst með
hvalarannsóknum í heiminum
undanfarin 10 ár.
-úlg.
Sjá bls. 7 í Sunnudagsblaðinu