Þjóðviljinn - 05.07.1987, Side 5

Þjóðviljinn - 05.07.1987, Side 5
„Þetta er klassískur kvöldkjóir fullyrti Elísabet Jökulsdóttir sem seldi föt af flóamarkaði. „En íslendingar hafa enga döngun í sér til að prútta, - það er meinið. Ég verð alltaf svo glöð þegar einhver ber við að prútta við mig, að ég lækka onúr öllu valdi. Fimmhundruð króna kjóll getur þá farið á tíkall!" Fötin eru frá ýmsum tímum, en eru óslitin og tandurhrein. Verðið er ekki hátt: Barnaföt á 50 krónur og kjólar og buxur á tvö til þrjúhundruð. „Þetta er visst mótvægi við neysluþjóðfélagið," sagði Elísabet, „það er alveg ótrúlegt sem fólk hendir af svoaðsegja nýjum fötum“. „Nel, þaft er ekkl bara ungt og ástfanglð fólk sem kauplr blóm!“ Guðrún Jóna Bragadóttir sat við að selja ilm og litfögur blóm í Austurstræti og var ekkert sérlega vel við að fá Ijósmyndara yfir sig: „Það er komið hingað næstum á hverjum degi frá einhverju blaði, með spurningu dagsins! Það er t.d. spurt um urslit í einhverjum tilteknum fótboltaleik eða eitthvað álíka spenndandi “ Pönnukökur, föt, rabbarbarl og tllheyrandl sulta á borðum Oddnýjar Guð- mundsdóttur. Hún býr í Hveragerði en lætur sig ekki muna um að keyra í bæinn á morgnana á fimmtudögum og föstudögum. „Mig langaði að sjá mannlífið og þetta er svo Ijómandi gaman," tjáði hún blm. Sunnudagsblaðsins. „Ég vaknaði klukkan hálfátta í morgun og bakaði pönnukökurnar, fór siðan út í garð og tíndi rabbarbara. Svo brunaði ég í bæinn!" Oddný sagðist verðleggja fötin eftir fólki: „Ég var með frakka um daginn sem átti að kosta 450 kall. Það var gamall maður sem kom nokkrum sinnum að skoða frakkann, greinilega frekar efnalitill. Gamli maðurinn fékk hann á þrjúhundruð. En þú hefðir þurft að borga fimmhundruð!" Sunnudagur 5. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Slórþjóðunum skellt Það fer ekki á milli mála hverjir voru stærstu íþróttaviðburðir nýliðinnarviku. Sigrarís- lenska landsliðsins í hand- knattleik á heims- og ólympí- umeisturum Júgóslava, og bronsliðinu frá HM, Austur- Þýskalandi. Sigurinn á Júgóslavíu er eftir- tektarverðari fyrir þá sök að lið Júgóslava var sterkara en það sem kom hingað til lands sl. vetur og tapaði. Nú voru snillingarnir Isaakovic, Rnic og Cvetkovic aft- ur með, lausir úr meiðslum og herþjónustu, en það dugði ekki til. Og hvenær skyldu Júgóslavar hafa skorað síðast aðeins 15 mörk í landsleik - á heimavelli?! Hve- nær áður hefur ísland sigrað Austur-Þýskaland? Aldrei! Tapleikurinn gegn Spáni á miðvikudagskvöldið kostaði ís- lenska liðið silfurverðlaunin en að ná bronsverðlaunum á móti þar sem Júgóslavía, Sovétríkin, Austur-Þýskaland og Spánn eru meðal mótherja er vissulega glæsilegur árangur. Góður áfangi og „móralskt“ veganesti fyrir Ól- ympíuleikana þar sem Júgóslavía og Sovétríkin eru meðal mót- herja íslands. En á meðan karlalandsliðið var að ná þessum árangri bárust vá- leg tíðindi úr kvennahandboltan- um. Unglingalandsliðinu vísað úr forkeppni heimsmeistarakeppn- innar vegna þess að ísland og Vestur-Þýskaland gátu ekki komið sér saman um leikdaga, og skeyti frá HSÍ til Vestur- Þjóðverja barst 90 mínútum of seint! Þetta er dularfullt og alvar- legt mál sem áhugamenn um handknattleik og fleiri krefjast að farið verði rækilega ofaní saumana á. Stúlkurnar eru búnar að æfa markvisst fyrir þessa keppni í marga mánuði, margar fómað dýrmætum tíma í stúd- entsprófum fyrir æfingar og það er gífurlegt áfall fyrir þær ef ekk- ert verður úr þátttöku. Það gæti brotið niður allt það sem byggt hefur verið upp og meira en það. íslenskur kvennahandknatt- leikur er á viðkvæmu stigi og má alls ekki við svona skakkaföllum. Landsliðið í frjálsum íþróttum reið ekki feitum hesti frá C-riðli Evrópukeppninnar í Portúgal. Neðsta sætið, bæði í keppni karla og kvenna, varð hlutskipti ís- lands þrátt fyrir sigra Einars Vil- hjálmssonar og Þórdísar Gísla- dóttur í sínum greinum. Helga Halldórsdóttir setti íslandsmet og varð önnur í 400 m grindahlaupi, en annars var árangurinn ekki til að hrópa húrra fyrir. Breiddin hjá okkur er lítil, og margar ástæður fyrir því. Veigamest sennilega þó lélegar aðstæður fyrir æfingar og keppni hér á landi. Enda hefur íslenskt frjálsí- þróttafólk sjaldan náð árangri síðustu árin nema með því að dvelja langdvölum erlendis. Golflandsliðið gerði það öllu betra og varð í 14. sæti Evrópu- keppninnar í Austurríki. Ágæt frammistaða á Evrópumæli- kvarða og árangur íslenskra golf- manna nú og áður er betri en margir gera sér grein fyrir. í vikunni var dregið í forriðla Evrópukeppninnar í körfuknatt- leik. Óvæntur árangur íslands í síðustu Evrópukeppni gerir það að verkum að mótherjarnir nú eru ekki eins sterkir og annars hefði orðið. ísland leikur við Frakkland, Danmörku og Sviss, og fara allir leikirnir fram-í Luz- ern í Sviss í september. Tvö lið komast áfram í aðalkeppnina og þar á ísland vissulega möguleika, en landslið okkar, Dana og Sviss- lendinga eru mjög áþekk að styrkleika. Verst að fá aldrei að njóta krafta Péturs Guðmunds- sonar í svona mótum, með hann innanborðs yrði íslenska liðinu ekki skotaskuld úr því að komast áfram. Á dögunum fékkst staðfesting á því að Eðvarð Þór Eðvarðsson, íþróttamaður ársins 1986, er áfram í hópi bestu baksunds- manna í Evrópu. Hann er númer átta á Evrópulistanum í 200 m baksundi fyrstu sex mánuði árs- ins og er líklegur til enn frekari afreka. Víst er að fáir íslenskir íþróttamenn hafa iagt meira á sig eða æft markvissar en Eðvarð til að ná langt í sinni grein. Ekki stoppaði Steinar Birgis- son handknattleiksmaður lengi hérlendis. Kom heim í vor og gekk til liðs við HK, en er farinn til Noregs á ný án þess að leika einn einasta leik. Þrátt fyrir góða viðleitni íslensku félaganna geta norskií greinilega boðið uppá betri kjör. Keppnin í 1. deildinni í knatt- spyrnu tók nýja stefnu í vikunni. Allt stefndi í einvígi Vals og KR um meistaratitilinn en nú töpuðu þau bæði sínum fyrstu leikjum, KR gegn í A og Valur fyrir Fram. Ragnar Margeirsson lék sinn fyrsta leik með Fram og gerði það sem þurfti, skoraði sigurmarkið gegn Val, og það er einmitt svona maður sem meistarana hefur vantað til þessa í sumar. Þegar Guðmundur Steinsson verður kominn við hlið Ragnars seinna í þessum mánuði eru allir mögu- leikar opnir fyrir Framara. Pétur Ormslev lék nú á ný í sinni uppá- haldsstöðu, á miðjunni, og sýndi með snilldarleik að þegar hann nær sér á strik standa fáir íslensk- ir knattspyrnumenn honum á sporði. Naumur sigur Víkinga á ísfirð- ingum sýnir hvað 2. deildin er gott um þdð að segja? Ekki alveg! Krakkarnir í Víði voru nefnilega beitt ströngum heraga á meðan á mótinu stóð, fengu ekki að leika sér úti í frítímum eins og hinir og njóta þannig dvalarinnar til fullnustu. Kona sem var í farar- stjórn eins liðanna sagði mér að það hefði verið hræðilegt að horfa uppá þessa meðferð á ves- alings börnunum. Hver er til- gangurinn með þessu? Spyr sá sem ekki veit, en svo mikið er víst að krakkarnir úr Víði hafa örugg- lega ekki haft sömu ánægju af keppninni og aðrir þátttakendur, jafnvel þótt uppskeran væri verð- laun fyrir prúðmennsku. Barnaskóli Selfoss Okkur vantar kennara í íþróttum (2 stöður) og handmennt (1 staða). Upplýsingar í símum 99-1498 eða 99-1320. Skólanefnd. Eðvarð Þór Eðvarðsson, númer átta á Evrópulistanum í 200 m. bak- sundi. Guðmundur Stelnsson byrjar að leika með Fram í fótboltanum innan skamms. Þá eru Islandsmeistararnir til alls líklegir! jöfn. Víkingar orðnir langefstir, ísfirðingar einir á botninum, samt er munurinn ekki meiri. Menn greinir á um styrkleikann í deildinni en töp 2. deildarliða gegn 3. deildarliðum í Mjólkur- bikarnum í vikunni segja sína sögu um hve lítill munur er í raun orðinn á þessum deildum. Eftir 17 sigurleiki í röð í 1. deild kvenna, frá því í september 1985, máttu Valsstúlkurnar gera sér að góðu jafntefli við ÍBK. Þær eru samt efstar sem fyrr og fá senni- lega mesta keppni frá Skaga- stúlkunum um meistaratitilinn. Einhver viðamesti og glæsileg- asti íþróttaviðburður hérlendist á hverju ári er Tommamótið í Vestmannaeyjum, knattspyrnu- mót fyrir 10 ára og yngri, sem lauk sl. sunnudag. Eyjamenn eru orðnir sérfræðingar í þessu móts- haldi og öllu sem því fylgir. Undirbúningur þátttökuliða er orðinn margþættur og viðamikill og tilhlökkun barnanna gífurleg. Fyrir mörg þeirra er þetta mót stærsti viðburður ársins og sárasti söknuðurinn hjá mörgum við það að verða 11 ára er að komast ekki lengur til Eyja! Sama félagið, Víðir úr Garði, fær sérstök prúðmennskuverð- laun mótsins á hverju ári. Allt ÍÞRÓTTASPEGILL VÍÐIR \ sigurðsson;

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.