Þjóðviljinn - 05.07.1987, Side 16

Þjóðviljinn - 05.07.1987, Side 16
POPPSÍÐA PUNKTAR AF POPPI OG PLÖTUÚTGÁFU Eins og alltaf er nóg um að vera í heimi poppsins og best að demba sér bara strax í það sem væntanlegt er eftir svo sem eins og tvær vikur. Þó er rétt að nefna fyrst tvær plötur sem líklega eru nú þegar komnar til landsins. Það er plata Rogers Waters „Radio K.A.O.S.". og Marrilion en hún heitir „Clutching at Straws". Það er reyndar merkilegt hve margir í eldri kantinum eru að gefa út skífur þessa dagana, söngvarinn úr Who, Roger Dalt- rey sendi frá sér nýja skífu og nefnist hún „Can’t Wait To See the Moon“. Tveir gítarleikarar eru líka að senda frá sér sólóp- lötur Sammy Hagar (úr Van Hag- ar) sendir frá sér plötu sem ein- faldlega ber nafnið „Sammy Hag- ar“ og Joe Walsh (sem m.a. lék með Eagles) sendir frá sér skífu sem ber nafnið „Got Any Gum“. Gömlu sýrurokkararnir úr Greatful Dead eru að senda frá sér sína fyrstu stúdíóplötu í 7 ár og nefnist hún „In The Dark“. Aðrir gamlir sýrurokkarar, nefnilega Ieifarnar af JefTerson Airplane/Starship sem núna kalla sig bara Starship senda líka frá sér nýja plötu og hefur hún hlotið heitið „No Protection" og svona í leiðinni er rétt að minna á nýút- komna hljómleikaplötu með Do- ors „Live Hollywood Bowl“ en með henni kemur út vídeó af sömu tónleikum. Elton John sendir líka frá sér nýja hljómleikaplötu og heitir hún einfaldlega „Live Austral- ia“. Emmylou Harris er líka að senda frá sér nýja plötu og heitir hún „Angel Band“. Dvergurinn í þungarokkinu Dio er að senda frá sér nýja skífu og gengur hún undir nafninu „Dream Evil“ og þykir nafnið sérlega frumlegt. Tveir góðir, John Wetton (sem m.a. lék með King Grimson) og Phil Manzanera (sem m.a. lék með Roxy Music) senda frá sér plötu sem þeir hafa unnið að í sameiningu og kalla þeir hana einfaldlega „Wetton & Manzan- era“. Fabulous Thunderbirds (sem þrátt fyrir miklar vinsældir í Bandaríkjunum hafa ekki hlotið mikla eftirtekt hér á landi) senda frá sér nýja plötu „Hot Number“ og er henni spáð miklum vinsæld- um í Bandaríkjunum. Fixx sendir frá sér nýtt efni og heitir platan „React“. Hljómsveitin á bakvið endur- vaktar vinsældir lagsins „Funky Town“ Pesudo Echo sendir frá sér stóra plötu og nefnist hún „Love and Adventure“. Crusados senda frá sér stóra plötu sem heitir „After Dark“ og hin skemmtilega gamaldags hljómsveit ,TIooters“ sendir frá sér plötu sem nefnist „One Way Home“. Marianne Faithful sem unnið hefur til virðingar á undanförn- um plötum sendir frá sér nýja plötu sem hún kallar „Strange Weather". Great White sendir frá sér plötu sem heitir „Once Bitten" og Tony Mac Alphine kemur með nýja plötu sem heitir „Security". Að lokum vil ég nefna þrjár plötur sem telja verður merki- legar. Fyrst er það tónlistin úr myndinni „Straight To Hell“ sem nú eru nýhafnar sýningar á í Bret- landi. Áplötunnierm.a. aðfinna lög flutt af Joe Strummer,. The Pouges o.fl.. Síðan er það plata með lögum úr myndinni „Who’s that girl“ en á henni eru 5 lög með Madonnu og að lokum er það safnplatan „Hits Revival" en á henni er að finna gömul lög sem orðið hafa vinsæl á nýjan leik á liðnum vikum og mánuðum. íslenskt - velt á gott Nú í byrjun júlímánaðar er sýnilegt að sama þróun og verið hefur á undanfömum árum er í íslenskri plötuútgáfu. Síðasti mánuður var augljóst dæmi um þetta en þá komu út þó nokkrar plötur sem vert er að minnast á. Verður næstu línum eytt í það að líta á nokkra þeirra. Eins og við er að búast eru gæðin misjöfn og er það reyndar eitt af því sem er liður í þessari þróun að svo virðist sem einhverjir álíti sem svo að slíkt geti orðið þeim til framdrátt- ar. Því miður er ekki hægt að taka íslenska tónlistarmenn og dæma þá á öðrum grundvelli en aðra og það hlýtur að vera þeim kapps- mál að standa sig jafn vel og er- lendu keppinautamir. STUÐMENN Á GÆSAVEIÐUM Popp eins og þaö gerist best á íslandi Ef U2 er stærsta nafnið í er- lendu poppi eins og er (og að því má færa nokkur rök) em Stuð- menn sú íslenska poppsveit sem líkja mætti við U2. Það leikur varla nokkur vafi á því að Stuð- menn hafa áunnið sér sess hér á landi sem sveit sem kannski kem- ur fólki ekki á óvart með frum- legum lagasmíðum, en ljóst er að þeim hefur tekist að ávinna sér traust sem næsta ömgg söluvara þar sem spilað er á velþekkt stef sem flestum líkar vel við. Þessi nýjasta afurð þeirra er steypt í þetta mót og er enda að finna á plötunni amk. 5 smelli sem eiga eftir að heyrast mikið á hinum frjálsu öldum hljóðvak- ans, sem og úr börkum lands- manna. Hvort þetta efni myndi eiga möguleika á öðmm mörkuðum en þeim íslenska tel óg þó afar vafasamt. Hér er ekki um að ræða efni sem teljast verður á nokkum hátt sérlega frískt. Tæknivinna er með miklum ágæt- um og hefur að mínum dómi tek- ist sérlega vel upp í þeim efnum. Hér er því að mínu áliti á ferðinni plata sem á eftir að koma sér vel í hvaða gleðskap sem er, en hér er ekki í gangi nein stórkostleg til- raunastarfsemi. PS & BJÓLA - GÓÐIR HLUTIR GERAST HÆGT Spilað á strengi sem heyrst hafa áður Þessi afurð þeirra P.S. (sem unnið hefur sér nokkra frægð fyrir lagið „Ung og Rík“) og S. Bjólu (sem óþarft ætti að vera að kynna) er afsprengi þeirra hrær- inga sem átt hafa sér stað bæði hér og erlendis á síðustu ámm. Hér er átt við þá stefnu sem sumir hafa tekið á uppruna rokksins og endurspeglast í einhverskonar endurreisn tónlistar sem má muna sinn fífil fegurri. Á þessari plötu er reyndar hlaupið dálítið úr einu í annað og því miður er útkoman sú að grip- urinn verður fyrir vikið hálf stefnulaust dútl í hinu og þessu. Hvort hér er því um að kenna að tveir tónlistarmenn unnu að þess- ari plötu skal ég ekki segja neitt um, en það er þó ekki hægt að neita því að sá grunur læðist ó- sjálfrátt að manni. Tónlistin á sína góðu spretti og er ekki að efa að hér er á ferðinni plata frá mönnum sem geta gert betur. Það sem er á þessari plötu er einfaldlega ekki alveg nógu gott. Það vantar líka textablað, því það er ekki nóg að hafa eitthvað að segja í textunum ef ekki er hægt að gera sér grein fyrir hvað það er. í heildina séð samt, ekki svo slæm tilraun og er vonandi ekki langt að bíða þess að við fáum meira að heyra með P.S. og Bjólu. TÍBRÁ - YFIR TURNUM Yngvi Þór Kormáksson -Borgarinn ekki til fyrirmyndar Það kemur fyrir að mann skorti orð til að lýsa því sem manni finnst og eftir að hafa hlustað á þessar tvær plötur greip mig slík tilfinning. Það er algjörlega hulið mínum skilningi af hverju plötu- útgefendur eru að gefa út efni eins og þetta. Reyndar er rétt að segja frá því að Tfbrá reynir þó. Þrátt fyrir það er hér um að ræða grip sem aldrei kemst upp úr meðalmennskunni. Ekkert nýtt, og gamlar og þreyttar lummur teknar enn einu sinni og boðnar upp. Um Ingva Þór Kormáksson hef ég það að segja að aldrei hélt ég að annað eins og þetta gæti kom- ið út á íslandi. Algjört rusla- tunnufóður. Tímamót í tónlistarsögunni FYRSTI ÍSLENSKI HUÓMDISKURINN KOMINN ÚT í síðustu viku kom út hljóm- diskur með Bubba Morthens og hefur hann þar með orðið brautryðjandi í nýrri tækni sem í síauknum mæli hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi. Hljómdiskurinn ber nafnið „Frelsi til sölu“ og er á honum að finna öll þau lög sem voru á sam- nefndri L.P. plötu ásamt fjórum öðrum lögum (þar af eitt glæ- nýtt). Diskurinn er gefinn út í sam- vinnu Grammsins og Japis. Af Gramm-útgáfunni er það annars að frétta að hún hefur ný- lega gefið út safnplötuna „Geyser“ í Bandaríkjunum og hefur sú hlotið mjög j ákvæða um- fjöllun þar vestra. Bandaríska tónlistartímaritið „Billboard“ valdi skífuna m.a. sem eina af áhugaverðustu skífum vikunnar, þegar hún kom út og verður það að teljast vel af sér vikið. Bubbi Morthens er núna á tón- leikaferð um landið og vinnur meðfram því að upptökum á efni sem væntanlega kemur út er líða tekur á sumarið. Til glöggvunar fyrir þá sem áhuga hafa, birtist hér listi yfir þá staði sem Bubbi spilar á næstu daga. Laugardagur 4.júlí H-100 Ak- ureyri, sunnudagur 5. júlí Grunnskólinn Kópaskeri, mánu- dagur 6. júlí Þórsver Þórshöfn, þriðjudagur 7. júií Mikiigarður Vopnafirði, miðvikudagur 8. júlí Hnitbjörg Raufarhöfn, sunnu- dagur 12. júlí Herðubreið Seyðis- firði, mánudagur 13. júlí Valhöll Eskifirði. 16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 5. júlf 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.