Þjóðviljinn - 16.07.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.07.1987, Blaðsíða 2
pSPURNlNGINn Hefur þú grætt land og ræktað skóg? Siguriín Guðmundsdóttir, hús- móðir: Nei, aldrei. Ég á ekki einu sinni garð, þannig að ég reikna ekki með að það standi til hjá mér. Þórdís Jónsdóttir, húsmóðir: í ræktuninni hef ég haldið mig við garðinn heima. Gunnar Jörundsson, verslun- armaður: Já. Mitt framlag til ræktunar landsins er á sumarbústaðarlóð minni í Þrast- arskógi. Freyr Bragason, afgreiðslu- maður: Já, ég vann við það í tvö ár í Reykjavík og inn við Elliðaárnar. Guðný Guðmundsdóttir, versl- unarmaður: Ég vann við það í unglingavinnunni, en fannst það ekkert sérstaklega áhugavert. FRETTIR Hörpudiskur Hörkum þetta af okkur Verð á hörpudiski hefur lœkkað um 25-30% frá áramótum. Ástœðan: Offramboð á Bandaríkjamarkaði. Ágúst Sigurðsson íStykkishólmi: Tökum þessu eins og hverju öðru hundsbiti. Verðhrun hefur orðið á hörpu- diski. Um síðustu áramót var verðið fyrir hvert pund af blokkarfrystum hörpudiski 4,50- 4,80 dollarar en er nú komið nið- ur f 3,30 dollara og er á niðurleið ef eitthvð er. Á síðasta ári voru veidd hér við land 17-18.000 tonn af hörpudiski. Að sögn Árna Benediktssonar, framkvæmdastjóra hjá Vinnu- málasambandi Samvinnufélag- anna er ástæðan fyrst og fremst offramboð. Birgðir hafa hlaðist upp hjá söluaðilum í Bandaríkj- unum og veldur það miklum erf- iðleikum. Einn af stærstu hörpudiskf- ramleiðendum landsins er fyrir- tæki Sigurðar Ágústssonar í Stykkishólmi en þar var landað um 5 þúsund tonnum af hörpu- diski á síðasta ári. Ágúst Sigurðs- son forstjóri sagði að þetta verðh- run kæmi afar illa við þá. Þó gætu þeir selt eitthvað af lausfrystum hörpudiski, en það væru ekki Víðir Kristjánsson framanvið asbestsvæðið í Fellaskóla. „Varúð! Asbestryk er hættulegt heilsunni" stendur á viðvörunar- spjaldi, sem af einhverjum ástæðum er á ensku. (mynd: E.ÓI). Fellaskóli Asbestið fjaiiægt Unnið aðþvíað taka niður asbestplötur á göngum skólans. Miklar varúðarráðstafanir gerðar vegna mengunarhœttu. Innflutningurog notkun asbests bannað hér á landi 1983 Þessa dagana er verið að vinna við að taka niður asbestplötur úr gangaloftum í Fcllaskóla í Breiðholti. Það eru sex starfs- menn Keflavíkurverktaka sem vinna við það, en það fyrirtæki er hið eina hér á landi sem hefur til þess útbúnað og kunnáttu. Vegna mengunarhættu eru starfsmenn- irnir í einnota búningum og nota rykgrímur sér til varnar. Miklar varúðarráðstafanir eru gerðar í skólanum meðan á verk- inu stendur og er tjaldað fyrir með plasti þar sem unnið er hverju sinni til að forðast að as- bestryk berist í burtu á aðra staði í skólanum. Vinna hófst við verk- ið 6. júlí og er stefnt að því að ljúka því um næstu mánaðamót. Að sögn Víðis Kristjánssonar deildarstjóra í Hollustuþátta- deild hjá Vinnueftirliti ríkisins tóku borgaryfirvöld ákvörðun um það í fyrrahaust að fjarlægja asbestplöturnar, en mælingar höfðu sýnt að asbestryk var að finna í andrúmslofti á göngum skólans. Þrátt fyrir að mælingarn- ar sýndu að það væri undir hætt- umrökum þótti sýnt að það gæti haft í för með sér mengunarhættu og þess vegna þótti brýnt að fjar- lægja þær við fyrsta tækifæri. Allur innflutningur og notkun asbests er bannaður hér á landi og var reglugerð þar að lútandi gefin út 1. september 1983. Ástæðan fyrir því að asbest er bannað hér á landi er sú sjúk- dómahætta sem það veldur mönnum sem vinna við það eða dveljast í umhverfi þar sem as- best er. Þeir sem anda að sér as- bestryki geta átt á hættu að fá lungnakrabbamein og Mesóte- líóma, sem er sjaldgæf tegund krabbameins í brjóst- eða líf- himnu. Sjúkdómseinkennin geta verið tvo til þrjá áratugi að koma fram. grh mörg fyrirtæki í bransanum sem hefðu útbúnað í þá vinnslu. Flest- ir væru í blokkarfrystingunni. Að sögn Áma hefst veiðitímabilið í júh' ár hvert og stendur fram í mars á næsta ári. Þrátt fyrir verðhrunið stefndu þeir að því að gera út tíu báta nú í júlí á hörpu- diskveiðar. „Þetta er eins og hvert annað hundsbit og svíður aðeins undan þessu í bili, en við hörkum þetta af okkur, eins og venjulega. Annars væri eins gott að leggjast fyrir með lappirnar upp í loft og hætta,“ sagði Ágúst Sigurðsson í Stykkishólmi. grh Noregur Nafnvenjur verða virtar íslensk börn sem fæðast í Nor- egi hafa hér eftir rétt til að fá nöfn. sín skráð að íslenskri venju í norsku þjóðskrána, það er með kenningarnafni föður eða móður. Steingrímur Hermannsson skrifaði fyrir nokkru starfsb- ræðrum sínum norrænum vegna þessa máls, og hefur nú borist svar frá þeim norska, og mun svipaðrar úrlausnar að vænta í Danmörku, en hingað til hefur gengið treglega að fá norræna skriffinna til að skilja íslenska nafnvenju, og hafa þeir viljað gefa börnum föðumafn föðurins. Búskapur Góð heytíð Grasspretta góð um allt land og heygœði yfir meðallagi „Um allt land hefur verið góð heytið í sumar þrátt fyrir að þurrkar hafi seinkað slætti sums- staðar, en yflr allt landið má bú- ast við að heygæði verði vel yfir meðallagi“, segir Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri. Að sögn Jónasar hefur spretta verið góð á Suðurlandi og margir bændur langt komnir með hey- skap og aðrir í þann véginn að ljúka honum. í síðustu viku kom aðeins bakslag í heyskapinn fyrir norðan vegna úrkomu sem tafði eitthvað fyrir en hefur batnað mjög í þessari viku. Á Vestfjörð- um er heyskapur kominn mis- jafnt eftir því hve þurrkatíðin þar hefur komið niður á túnum og grassprettu. Á Austur- og Vest- urlandi hefur heyskapur gengið vel eftir því sem best er vitað. grh 2 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 16. júlf 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.