Þjóðviljinn - 16.07.1987, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 16.07.1987, Blaðsíða 9
< 17 Bandaríska herskipið USS McCloy kemur að hafnarbakkanum í Þórshöfn. Skipið er á svörtum lista yfir bandarísk herskip sem kunna að hafa kjarnorkuvopn innanborðs. Ljósm.: Sósíalurinn. Til handalögmáls kom á hafnarbakkanum í Þórshöfn á milli mótmælenda og danskra sjóliða sem bundu skipið við bryggju. Færeyskir ráðamenn segja að með þessu hafi danski sjóherinn gripið fram fyrir hendurnar á færeysku lögreglunni. Ljósm.: Sósíalurinn. grundarlagið undir hesum félags- skapi.“ Og í 14. september, málgagni Þjóðveldisflokksins, er meðal annars birt fundarályktun frá al- mennum borgarafundi, undirrit- uð af Bergi P. Dam, þar sem meðal annars segir að sú vanvirða sem dönsk og bandarísk stjórnvöld hafi sýnt landsstjóm og þjóðþingi Færeyinga sé brot á mannréttindasáttmála Samein- uðu þjóðanna og Helsinki- sáttmálanum um frið og öryggi í Evrópu, sem þessar þjóðir hafi undirritað. Dagblaðið Dimmalætting, sem er málgagn stjómarandstöð- unnar, gerir hins vegar minna úr málinu, en birtir hins vegar sér- stæð skrif eftir Pauli Ellefsen, þar sem hann segir mótmælendur á bryggjuni hafa verið „ekstrema socialista“, sem séu „eitt óföro- yskt fyrirbrigði" og kommúnista, sem séu „ein illa vorðin smitta borin inn á okkum uttanífrá". Segir greinarhöfundur það vera spumingu hvort „við yfirgnæf- andi meirihluti Færeyinga höfum ekki sýnt þessum nýju og spill- andi smitbemm ófæreyskra siða allt of mikið umburðarlyndi." í greininni er semsagt dæminu snú- ið við, þannig að þeir sem krefj- ast þess að fullveldi Færeyinga sé virt em taldir „ófæreyskir“. Blað- ið segir einnig frá blaðamanna- fundi sem haldinn var um borð í herskipinu, þar sem haft er eftir yfirmanni skipsins að Færeyingar megi prísa sig sæla að fá að hafa uppi mótmæli sín óáreittir, því slíkt frjálsræði tíðkist ekki alls- staðar, og lét yfirmaðurinn hafa það eftir sér að erindi hans um heimshöfin væri einmitt að tryggja mönnum þennan rétt! Herskipið USS McCloy hefur á þessari heimssiglingu sinni haft viðkomu i Kanada, Skotlandi, Noregi og Danmörku. Skipið hélt frá Færeyjum morguninn eftir hina sögulegu heimsókn, og var ferðinni þá heitið til Skot- lands, englands og írlands áður en haldið skyldi til heimahafnar í Norfolk, USA, þar sem em aðal- stöðvar bandaríska flotans. -ólg Fullveldi ■ ■ m$L m eina leiðin segirJóvganDurhuus, lögmaður færeysku landsstjórnarinnar ísamtali við Þjóðviljann Það er mín persónulega skoðun að þetta mál sýni greinilega að við Færeyingar fáum ekki viðunandi lausn okkar mála fyrr en heima- stjórnarlögin hafa verið endur- skoðuð og við fengið fullt forræði yfir okkar utanríkismálum, sagði Jógvan Durhuus, í símtali við Þjóðviljann, en Durhuus gegnir nú lögmannsembætti í færeysku landsstjórninni í forföllum Atla Dams lögmanns. Durhuus er full- trúi Þjóðveldisflokksins í landss- tjórninni, sem skipuð er 6 fulltrú- um fjögurra flokka. Hvaða afleiðingar hefur málið fyrir færeysku lögstjórnina? Málið hefur engar frekari af- leiðingar að ég tel. Það voru 4 af 6 meðlimum landsstjórnarinnar sem sátu fundinn þar sem við samþykktum ályktanir okkar til dönsku stjómarinnar um að skipið skyldi á brott úr færeyskri lögsögu. Þessum tilmælum var ekki sinnt af dönskum yfirvöld- um á þeim forsendum að gera yrði ráð fyrir að skipið myndi ekki brjóta gegn samþykktum Lögþingsins. En færeyska Lög- þingið samþykkti þann 24. febrú- ar 1983 að Færeyjar skyldu vera kjamorkuvopnalaust svæði. Okkur var hins vegar neitað um tryggingu fyrir því að skipið hefði ekki kjamorkuvopn innanborðs. Samkvæmt núgildandi sam- bandslögum okkar við Dan- mörku er það danska stjórnin sem fer með utanríkismál okkar, og það er mín persónulega skoðun að mál þetta sýni að þessu verði að breyta. Hins vegar emm við í samsteypustjóm með öðmm flokkum, og ég get ekki talað fyrir þeirra hönd. Hafa fleiri aðilar f Færeyjum ályktað um þetta mál? Lögþingið er nú í sumarfríi og kemur ekki saman fyrr en 29. júlí. Hins vegar hefur utanríkis- nefnd þingsins ályktað í málinu og hún krafðist þess að skipið færi frá Færeyjum. Er eining innan landsstjórnar- innar um málið? Fulltrúi Kristilega þjóðarflokks- ins í landsstjórninni var fjarver- andi vegna sumarleyfis þegar stjórnin samþykkti mótmæli sín. Hann hefur síðan lýst andstöðu sinni við mótmælin, og hefur flokkur hans gefið í skyn að málið fái einhvem eftirmála. Ég get hins vegar ekki sagt til um hvort málið leiðir til stjómarkreppu. -ólg Flmmtudagur 16. júlí 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.