Þjóðviljinn - 16.07.1987, Side 3
Gísli Gíslason
heitir næsti bæjarstjóri á Akra-
nesi, og var það afráðið á bæjar-
stjórnarfundi i fyrradag. Gísli er
32 ára lögfræðingur og hefur í tvö
ár verið bæjarritari á Skaga.
Hann var einn af sex umsækj-
endum og tekur við af Ingimundi
Sigurpálssyni sem verður bæjar-
stjóri í Garðabæ í haust.
Vist
heitir ungt verkalýðsfélag, sem í
apríl varð 18. aðildarfélag Sam-
bands íslenskra bankamanna.
Vist er starfsmannafélag Visa-
íslands, og í nýútkomnum „Sam-
bandsfréttum" SÍB, þarsem fé-
lagið er boðið velkomið í hópinn,
segir frá því að stjórnina skipa
konur eingöngu: Halla Leifsdóttir
formaður, Björg Jóhannesdóttir
og Steingerður Jóhannsdóttir.
Ný umferðarljós
voru tekin í notkun í gær á gatna-
mótum Lækjargötu og Hafnar-
strætis, og að auki hafa verið
endurnýjuð Ijósin neöst á Banka-
stræti. Eru Ijósin samstillt. í frétt
frá gatnamálastjóra Reykjavíkur
segir að á horni Hverfisgötu og
Lækjargötu hafi verið margt um
árekstra og eigi nýju Ijósin að
bæta þar úr. Verið er að setja upp
Ijós á gatnamótum Kringlumýrar-
brautar og Listabrautar, Lista-
brautar og Kringlunnar, og Bú-
staðavegar og Suðurhlíðar.
Á Blönduósi
á að fara að byggja nýtt hús fyrir
póst og síma. Tvö tilboð bárust í
verkið, það lægra frá Fjarð-
arsmiðjunni f Garðabæ, 16,8
milljónir, hitt frá Stíganda á
Blönduósi, 17,9 millur, sem er 4
prósent frammyfir kostnaðar-
áætlun. Hefur þegar verið samið
við Garðbæingana, og verður
húsið fullbúið á miðju næsta ári,
samkvæmt tilkynningu frá Pósti
og síma.
Svavar Gests
var á síðasta þingi Læons-
hreyfingarinnar kjörinn fulltrúi
Norðurlanda ( alþjóðastjórn
Læonsmanna. Svavar er for-
maður Læonshreyfingarinnar á
(slandi.
KONAN
samtök sem einbeita sér að að-
hlynningu kvenna eftir vímumeð-
ferð hafa fengið hjá Reykjavíkur-
borg loforð fyrir húsnæði sem
rúmað getur 15-20 konur. Þetta
var samþykkt á borgarráðsfundi í
gær.
FRÉITIR
Örbylgjuofnar
Ólöglegir ofnar í sölu
Brögð aðþvíað örbylgjuofnar séu settir á markað án samþykkis Rafmagnseftirlits ríkisins.
BergurJónsson: Munumbannasöluá ofnum sem ekki hafa verið samþykktir
etta mál hefur verið í athugun
hjá okkur og verður áfram
næstu daga. Það er ljóst að séu
örbylgjuofnar í sölu án samþykk-
is Rafmagnseftirlitsins verður
sala þeirra bönnuð, sagði Bergur
Jónsson rafmagnseftirlitsstjóri í
samtali við Þjóðviljann í gær, en í
nýútkomnu Neytendablaði er
greint frá því að 16 tegundir ör-
bylgjuofna séu á markaðnum án
þess að þeir hafi hlotið samþykki
RER.
Bergur sagði í gær að síðan
könnun Neytendablaðsins hefði
verið gerð hefði eftirlitinu borist
umsóknir um samþykki fyrir fjór-
ar tegundir, en enn hefðu engar
skýringar borist vegna 12 annarra
tegunda sem getið er í Neytenda-
blaðinu. Ólöglegt er að selja eða
dreifa örbyblgjuofnum án þess að
þeir hafi staðist prófanir RER.
„Við munum kanna hvort
þessar tegundir eru raunverulega
á markaðnum og þegar niður-
stöður liggja fyrir munum við
grípa til viðeigandi ráðstafana,"
sagði Bergur í gær.
Nokkuð algengt mun vera að
örbylgjuofnar sem menn hyggj-
ast flytja inn og selja hérlendis,
standist ekki þær gæðakröfur sem
gerðar eru, en komi í ljós að ein-
hver þeirra tegunda sem hér er
um að ræða standist ekki gerðar
kröfur, má búast við að seljend-
um verði gert að innkalla ofnana.
-gg
Húsafellshátíð
æar kartöflur voru (matinn í gær á fjölmörgum heimilum á höfuðborgarsvæðinu, og nýnæmi að fá sltkt á matarborð um
jan júlí. Strákarnir í dreifingarstöð Þykkvabæjarmanna í Garðabænum stóðu í ströngu við flokkunina í allan gærdag.
(mynd: Ari).
Puerto Rico
Héðinn
enn efstur
Héðinn Steingrímsson skák-
maður, sem nú keppir á friðar-
skákmóti 12 ára og yngri í Puerto
Rico, gerði jafntefli við andstæð-
ing sinn í 6. umferð mótsins.
Héðinn er því enn efstur á mótinu
með fimm og hálfan vinning eftir
6 umferðir. Alis verða tefldar 10
umferðir. Helstu keppinautar
hans, frá ísrael og Guatemala,
hafa fjóra og hálfan vinning og
etur Héðinn kappi við þann
síðarnefnda í 7. umferð í dag.
-gg
VR hótar að flytja bústaðina
Birgir Gunnlaugsson: Tjón á eignum og landi oftgífurlegt eftir samkomur í grenndinni
Verslunarmannafélag Reykja-
víkur hefur afráðið að flytja
þá bústaði, sem félagið hefur að
Húsafelli, verði djöfulgangurinn
samur næstu verslunarmanna-
helgi og áður. Ég býst fastlega við
að fleiri fylgi þá á eftir, sagði
Birgir Gunnlaugsson í stjórn Fé-
lags orlofshúsaeigenda að Húsa-
felli, en félagið hefur harðlega
mótmælt áformum Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar um að
efna til móts við Húsafell um
verslunarmannahelgina.
- Boðað mót UMSB í nágrenni
Húsafells veldur okkur mjög
miklu angri. Þegar UMSB hélt
síðast mót hér um verslunar-
mannahelgi var staðurinn nánast
lagður í rúst. Um síðustu hvíta-
sunnu héldu engin bönd gestum
Stuðmanna á Gilsárbökkum og
þeir æddu um þrjátíu kílómetra
leið hingað, að því er virðist til
þess eins að eyðileggja, sagði
Birgir Gunnlaugsson.
- Ég get ekki séð hvernig
UMSB ætlar að tryggja það að
hér verði ekki unnar skemmdir
eins og svo oft áður. Sambandið
hefur ekki sinnt í neinu óskum
okkar um viðræður, sagði Birgir
Gunnlaugsson.
- Við erum alveg gáttuð á því
umróti sem fyrirhuguð útihátíð á
okkar vegum við Húsafell hefur
valdið. Síðasta útihátíð að Húsa-
felli sem við héldum var 1976 og
þá voru einu vandamálin í tengsl-
um við drukkna dvalargesti í
sumarbústöðum. Við lágum þá
undir ámæli frá ýmsum fyrir mjög
strangt aðhald. Ég á ekki von á
öðru en við munum hafa stranga
gæslu nú eins og áður. Ásakanir
sumarbústaðaeigenda að Húsa-
felli eiga því ekki við hin minnstu
rök að styðjast - allavega ekki
gagnvart okkur, sagði Sigríður
Þorvaldsdóttir, formaður
UMSB.
Að sögn Sigríðar var verslun-
armannasamkomum UMSB hætt
á sínum tíma bæði vegna þess að
samningur við landeiganda var
runninn út og að mótin stóðu
ekki undir sér lengur.
Landsvæði það sem UMSB
hefur til umráða um verslunarm-
annahelgina er í eigu Ástríðar
Þorsteinsdóttur, systur Kristleifs
Þorsteinssonar að Húsafelli, en
síðan 1983 hefur hann bannað
mótshald og samkomur á sínu
landi, sökum skemmda sem
veislugestir ollu á landi og fast-
eignum og óþæginda sem dval-
argestir í sumarbústöðum máttu
þola.
-rk
Hagrœðing
Sláturhúsunum slátrað
Hagrœðingarnefnd vill leggja niður31 sláturhús, halda 18.
Nýtt sláturhús á Egilsstöðum
Nefnd um hagræðingu í búfjár-
slátrun vill stokka upp slátur-
húsakerfið á landinu, stórfækka
sláturhúsum og endurbæta þau
sem eftir verða. Nefndarmenn
telja að komist tillögurnar í fram-
kvæmd megi spara um 19 prósent
af slátur- og heildsölukostnaði.
í áliti nefndarinnar kemur
fram að 29 sláturhús eru nú rekin
með undanþáguleyfi og þarfnist
mikilla endurbóta til að öðlast
löggildingu. Miðað við óbreyttan
fjölda húsa næmi nauðsynleg
fjárfesting til endurbóta um 1000
milljónum, og þyrfti sláturkostn-
aður til þess að hækka um þriðj-
ung.
Nefndin telur að í þegar lög-
giltum sláturhúsum á Suðurlandi,
Vesturlandi, Vestfjörðum og
Norðurlandi sé hægt að anna allri
fyrirsjáanlegri sauðfjárslátrun. Á
Austurlandi verði að gera úrbæt-
ur, og er lagt til að nýtt hús fyrir
1500 kinda dagslátrun verði reist
á Egilsstöðum.
Nefndin gerir ráð fyrir fjórum
sláturhúsum á Suðurlandi,
tveimur á Vesturlandi, fjórum á
Vestfjörðum, fimm á Norður-
landi og þremur á Austfjörðum.
Lagt er til að 31 sláturhús verði
lagt niður. Á þessu ári verði lögð
niður slátrun í Stykkishólmi á
Bfldudal, Flateyri, Þórshöfn,
Djúpavogi, Vík, Minni Borg,
Grindavík, ísafirði og við Laxá.
Á næsta ári hætti sláturhúsin í
Króksfjarðamesi, Borðeyri, Vík,
Laugarási og hús S. Pálmasonar.
Árið 1989 hætti sláturhúsin á
Skriðulandi, Dalvík, Akureyri,
Svalbarðseyri og hús Slátursam-
lags Skagfirðinga. Árið 1990 hús-
in á Ospakseyri, Vopnafirði,
Reyðarfirði, Eskifirði, Norð-
firði, Fáskrúðsfirði og Feliabæ á
Héraði. Árið 1991 húsin á Breið-
dalsvík, Fagurhólsmýri og Sel-
fossi (Höfn hf.). Árið 1997 verði
síðan aflögð slátrun í Bolungar-
vík.
Lagt er til að stofnaður verði
úreldingarsjóður sem kaupi upp
eignir niðurlögðu sláturhúsanna
og yrði hann fjármagnaður með
verðmiðlunargjöldum. Verð-
mæti þeirra húsa sem lagt er til að
hætti starfsemi er talið um 330
milljónir.
í nefndinni, sem skipuð var af
landbúnaðarráðherra í hittifyrra,
sátu Margeir Daníelsson hag-
fræðingur, Egill Bjamason ráðu-
nautur og Ari Skúlason hagfræð-
ingur.
-m
|t>JÓÐVILJINN - SÍÐA 3