Þjóðviljinn - 16.07.1987, Side 16

Þjóðviljinn - 16.07.1987, Side 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þJÓÐVIUINN Fimmtudaour 16. júlí 1987 152. tölublað 52. árgangur LEON AÐFy\RS€LU 5KÓIACÖNGU SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Landnýting Beitin fimmtungi minni Ólafur Dýrmundsson landnýtingarráðunautur: Beitarálag alltað 20% minna enfyrir 10 árum. Aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra: Engin stefnumörkun í framhaldi af landnýtingarskýrslunni Samdráttur í sauðfjárstofnin- um þýðir að beitarálag á landið hefur minnkað allt að 20% frá 1978, segir Ólafur Dýrmunds- son landnýtingarráðunautur. „Vetrarbeit er nú Iftil sem engin og hrossum er mikið til geflð með allan veturinn þannig að fjölgun þeirra hefur lítil áhrif. Það er því ýóst að beitarálagið er að minnka mikið núna.“ Uppblástur á viðkvæmum landsvæðum síðustu daga hefur vakið marga af værum blundi. Áætluð meðaltöl eru farin að stýra umræðunni og sökudólga leitað. Einn vinsælasti sökudólg- urinn hefur verið íslensk sauðkindin og það beitarálag sem hún hefur valdið. Á síðasta ári var kynnt fyrir Al- þingi landnýtingarskýrsla sem í raun er upplýsingabanki yfir stöðuna. í lok skýrslunnar leggja nefndarmenn til að Skipulagi ríkisins verði falið að vinna að Iandnýtingaráætlun og að tvær nefndir verði skipaðar til að fylgj- ast með verkinu og vera Skipu- laginu til ráðgjafar. Að sögn Bjarna Guðmunds- sonar í landbúnaðarráðuneytinu hefur lítið sem ekkert verið unnið áfram út frá þeirri landnýtingar- * skýrslu sem kynnt var í fyrra. „Við lögðum þó til á síðasta ári í sambandi við fullvirðisréttinn til bænda, að þeir bændur sem kysu að selja eða leigja sinn rétt til framleiðslusjóðs, fengju 10% álag ofan á hann ef þeir sam- Dúntekja Meira magn og betri nýting Nú er dúntekjutíminn liðinn og æðarvarpsbændur eru sammála um að afkoman sé með betra móti í ár. í fyrra var framleiðslan 2200 tonn og nú verður hún eitthvað meiri. Verð fyrir kílóið til bænda er 15.700 kr. óhreinsað en um 17.000 kr. hreinsað. Að sögn Jónasar Helgasonar bónda í Æðey hefur dúntekjan gengið einstaklega vel vegna þurrviðrisins og nýtingin er nú miklu betri en oft áður. „Ég gæti trúað að aukningin í varpinu hjá mér sé um 7% frá í fyrra og þetta er stöðugt á uppleið allar götur frá 1963. Þetta er besta tíð sem komið hefur frá 1963 til þessara verka,“ sagði Jónas. Bændur í Vigur, Dýrafirði og við Kópasker tóku í svipaðan streng og Jónas í Æðey. Úr einu hreiðri koma um 18 grömm af dúni þannig að kflóið næst af um 60 hreiðrum. Búvörudeild Sambandsins kaupir dúninn af bændum og sel- ur hann svo eingöngu til Vestur- Þýskalands. Þjóðverjar borga 1000 mörk fyrir kflóið og í fyrra var reynt að selja svolítið magn til Japans til kynningar. -gsv kvæmt mati réttra aðila væru á þeim svæðum sem viðkvæm eru. Bændur notfærðu sér þennan rétt hins vegar ekki vegna þess ein- faldlega að þetta álag var of lítið. Við munum því leggja til að það verði hækkað verulega og viljum með því stuðla að því að laga sauðfjárræktina að landgæðum með raunhæfum leiðum en þarna spila svo margir aðrir þættir inní og það þarf víðtækt samstarf um landnýtingu og þróun byggða til að ná einhverjum árangri," sagði Bjami Guðmundsson. Árið 1978 var íslenski sauðfjár- stofninn tæplega 900 þúsund fjár en er nú um 670 þúsund. Þessi samdráttur í stofninum kemur jafnt niður á bændum um allt land því enn hefur ekki tekist að stýra niðurskurðinum í samræmi við gróðurverndar- og landnýt- ingarsjónarmið. „Hugmyndir um svæðaskipt- ingu framleiðslunnar eru pólit- ísks eðlis,“ sagði Ólafur Dýr- mundsson við Þjóðviljann. „Við eigum ekki tilbúna skrá yfir það hvar má stunda sauðfjárrækt út frá landnýtingu. Við vitum hins vegar öll að móbergssvæðið^er ákaflega illa farið. En það eru líka svæði utan þess illa farin og önnur innan þess sem em í góðu lagi. Ástandið í beitarmálum hef- ur farið batnandi og gerir það áfram. -gsv m.— - ~ Bátarnir hóldu af stað frá Grandagarði til Færeyja í gær, en áætlað er að þeir komi til Þórshafnar n.k. mánudag. Mynd Ari. Vörukynningar Fljótandi sýning við Færeyjar Útflutningsráð kynniríslenskaframleiðslu íFæreyjum Tveir Somabátar frá Báta- smiðju Guðmundar, hvor um sig með tveggja manna áhöfn, héldu í gær áleiðis til Færeyja, þar sem fimm íslensk fyrirtæki munu standa fyrir vörukynningu um borð í bátunum í 15 fær- eyskum bæjum dagana 20.-25. júlí n.k. Kynntar verða ýmsar ís- lenskar vörur, en þó einkum vörur fyrir sjávarútveg og fisk- vinnslu. Útflutningsráð hafði frum- kvæði að þessari fljótandi vöru- kynningu, en fyrirtækin sem standa að kynningunni auk Út- flutningsráðs em Bátasmiðja Guðmundar, DNG á Akureyri, NORM-EX í Hafnarfirði, Sjó- vélar og íseind. Öll framleiða þessi fyrirtæki vömr fyrir sjávar- útveg. „Þessi ferð er aðeins upphaf að markvissu markaðsstarfi í Fær- eyjum, sem við vonum að eigi eftir að skila miklum ár- angri,“ sagði Jens Ingólfsson, markaðsstjóri hjá Útflutnings- ráði íslands, þegar ferðin var kynnt í gær. Búist er við að bátarnir tveir verði komnir til Þórshafnar á mánudaginn. -gg Iðntœknistofnun Stærðarmat bygginga samræmt Gœtt hefur misrœmis í útreikningum á stœrð bygginga. Endurskoðað- ur staðall á að koma á samrœmi Fram til þessa hafa verið notað- ar ýmsar mismunandi aðferð- ir við að reikna út flatarmál og rúmmál bygginga, allt eftir þvf hver hefur reiknað hverju sinni, en nú hefur verið gefinn út endur- skoðaður staðall um stærðarmat bygginga og er honum ætlað að koma á samræmi í þessum út- reikningum. Slíkur staðall hefur að vísu ver- ið í gildi frá árinu 1971, en notkun hans hefur að sögn ekki verið nægilega almenn. Þeir Gunngeir Pétursson skrifstofustjóri hjá byggingafulltrúa Reykjavíkur, Hafsteinn Pálsson deildarstjóri Rb og Stefán Ingólfsson deildar- stjóri hjá Fasteignamati ríkisins voru því fengnir til þess að endur- skoða staðalinn og er nú unnið að kynningu hans. Vonast er til að þessi endur- skoðaði staðall, ÍST 50, verði al- mennt notaður, svo komist verði hjá misræmi í útreikningum á stærð bygginga, en þess munu dæmi að málaferli hafi orðið vegna mismunandi útreikninga. -gg Krít Korthafar borgi Fólk virðist almennt þeirrar skoðunar að notendur greiðslu- korta eigi sjálfir að greiða þann kostnað sem af þeirn hlýst, m.a. í hækkuðu vöruverði. 86,8% svar- enda í nýlegri könnun Neytenda- samtakanna um greiðslukortan- otkuu, sem birt er í Neytenda- blaðinu, er þessarar skoðunar. Neytendasamtökin spurðu 1161 manns á höfuðborgarsvæð- inu og á Akureyri um notkun korta og kom í ljós að 57,5% að- spurðra nota greiðslukort. Mikill meirihluti kortanna eru frá Visa. Korthafar á höfðuðborgarsvæð- inu virðast vera hlutfallslega fleiri en á Akureyri, auk þess sem þeir fyrmefndu nota þau oftar og meira. _gg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.