Þjóðviljinn - 05.08.1987, Page 3

Þjóðviljinn - 05.08.1987, Page 3
Erfingjar Stefáns Jónssonar rithöfundar og Önnu Aradóttur hafa gefið Hvítársíðu- hreppi hálft bókasafn þeirra hjóna ásamt peningagjöf, 325 þúsund krónum, til frekari bóka- kaupa og til að búa sem best að safninu. í fréttatilkynningu frá Eyjólfi Andréssyni oddvita eru gefendunum færðar bestu þakkir fyrir kærkomna gjöf. Guðmundur Magnússon hefur verið ráðinn aðstoðarmað- ur Birgis ísleifs Gunnarssonar menntamálaráðherra. Guð- mundur er 31 árs, hefur lagt stund á sagnfræði og verið blað- amaður á Morgunblaðinu í þrjú ár. 747 þjáðust í júní af kvefi, hálsbólgu, lungna- kvefi og viðlíka í Reykjavík og ná- grenni samkvæmt skýrslu frá borgarlækni. 58 leituðu læknis vegnaþvagrásarbólgu, 50 vegna iðrakvefs, 44 voru með lungna- bólgu, 33 með hettusótt, 10 með flensu. Níu manns töldust með lúsasmit, þarmeðtalin flatlús, sjö höfðu fengið lekanda, sjö þjáðust af skarlatssótt, sex höfðu kíg- hósta, þrír maurakláða, þrír voru með hlaupabólu og tveir fengu matareitrun. Reykvíkingar og ná- grannar þeirra voru hinsvegar með öllu lausir við rauða hunda í júní, enginn fékk mislinga og ein- kirningasótt herjaði ekki á höfuð- borgarsvæðinu. Frakklandsfarar verða að gjöra svo vel að fá vegabréfsáritun áður en þeir leggja í hann. Utanríkisráðuneyt- ið minnir á þetta að gefnu tilefni í fréttatilkynningu, og bendir á að áritun fæst alls ekki á landamær- astöðvum eða flugvöllum, heldur einungis í frönskum sendiráðum, og tekur um það bil þrjá daga að afgreiða hana. íslensk sendiráð ytra geta ekkert aðstoðað við þetta, segir ráðuneytið. Franska sendiráðið í Reykjavík er á Tún- götu 22, opið virka dagafrá 13.30 til 17, sil vous plait. Péturs megin er hugtak sem á Húsavík er not- að yfir bæði hægri og vinstri, segir í nýjasta Víkurblaði, sem nú fagnar átta ára afmæli. Fyrir nokkrum árum fór bíll útaf vegin- um við Gerðibrekku á Tjörnesi og valt. Tveir farþegar voru í bílnum og þegar sá í aftursætinu var að segja slysasöguna var hann spurður hvorum megin vegar bíll- inn hefði farið útaf. „Nú, hann fór útaf Pétursmegin," hefur Víkur- blaðið eftir sögumanni, en svo vildi til að ökumaðurinn hét Pétur Aðalgeirsson og farþeginn í framsætinu Pétur Jónsson. „Síð- an hefur þetta verið orðtæki hér,“ segir blaðið, „en óskiljanlegt flestum, og einkum notað um þá menn sem eru á báðum áttum, til að mynda í pólitík." FRÉTTIR__________ Grindavík Kapalkerfi fyrir gervihnetti að sem við höfum fyrst og fremst í huga með lagningu kapalkerfls hér í Grindavík er möguleikinn á móttöku efnis beint frá gervihnöttum. Undir- tektir bæjarbúa hafa til þessa ver- ið mjög góðar og munum við skoða þetta mál með það fyrir hendi að geta byrjað nauðsyn- legar framkvæmdir strax á næsta vori, segir Agústa Gísladóttir í Grindávík, í samtali við Þjóðvilj- ann. Að sögn Ágústu voru það íbú- ar í austurhluta Grindavíkur sem fyrstir hreyfðu við hugmyndinni að sérstöku kapalkerfi, sem grafið yrði í jörðu og þar með yrðu engin frekari not af allskyns útvarps- og sjónvarpsloftnetum í bænum. Móttökustöðin yrði svo á þeim stað í bænum sem bestu skilyrðin væru. Hefur verið haft samband við fyrirtæki Kapal- tækni h/f sem hefur þegar sent frá sér greinargerð um málið og sagði Ágústa að samkvæmt henni væru möguleikarnir sem kapal- kerfið byði uppá næstum ótelj- andi og ef þetta yrði að veruleika, þá mundi það hafa í för með sér algjöra byltingu í upplýsinga- streymi inn á hvert heimili í Grindavík. „Við höfum gert kostnaðará- ætlun í grófum dráttum um hvað þetta kæmi til með að kosta fyrir hvert heimili og samkvæmt henni yrði kostnaðurinn eitthvað um 50 þúsund krónur, sem mörgum fínnst æðimikið. En til móts við þá gerum við okkur vonir um að hægt yrði að greiða kostnaðinn með afborgunum, þannig að fjár- útlátin yrðu ekki eins mikil í einu. Einnig þurfumvið að ná samning- um um afnotarétt á efni frá gervi- hnöttunum, og mér skilst að það sé ekkert mál. En svona kapal- kerfi, eins og við hugsum okkur það, er framtíðin. Að heyra og sjá það sem er að gerast í sam- tímanum, beint og milliliða- laust,“ sagði Ágústa Gísladóttir að lokum. grh Sumarháskólinn Sumamiót á Hvanneyri Þátttakendur eru um 170 og eru Danirnir fjölmennastir. Einnig er nokkuð margt um manninn frá Finnlandi, en íslend- ingarnir hefðu mátt vera mun fleiri, sagði Ragnheiður Ragnars- dóttir, sem á sæti í stjórn Nor- ræna Sumarháskólans, en sumar- mót skólans er að þessu sinni haldið á Hvanneyri. Mótið var sett á laugardag, en það mun standa til 8. ágúst. Norræni Sumarháskólinn var stofnaður af Norðurlandaráði árið 1951 með það að markmiði að auka tengsl á milli Norður- landabúa, sem fást við hverskyns fræðagrúsk. Skólinn er frábrugð- inn öðrum skólum að því leytinu til að hann er opinn öllum. Þungamiöjan í starfsemi skólans eru vinnuhópar sem starfa árið um kring. Núna eru starfandi 150 hópar í 21 borg víðs- vegar um Norðurlöndin. Áhersla er lögð á að starfið sé þverfaglegt og að það samtvinni fræði- mennsku og verksvit á viðkom- andi sviði. Viðfangsefnin eru breytileg, en hverju verkefni er sinnt að meðaltali ( þrjú ár. Á meðal þeirra umræðuefna sem í gangi eru má nefna þróun- arleiðir í þriðja heiminum, tækni- þróun og félagslegar afleiðingar hennar, vistfræði, ferðalög og frítíma og tíðaranda. Sumarmót Norræna Sumarhá- skólans var síðast haldið hér á landi árið 1979 á Laugarvatni. -rk íslenska Skjót viðbrögð r Eg hef þegar farið þess á leit við Póst & Síma í Hafnarfirði að fella niður enska textann í sím- svaranum okkar, vegna kvartana sem okkur hafa borist vegna þessa. En dagurinn í gær var sá fyrsti sem símsvarinn var í notk- un til að tilkynna viðskiptavinum okkar um breytt símanúmer fyrirtækisins, segir Hrafnhildur Jóhannesdóttir, sölu- og markaðs- stjóri Sápugerðarinnar Frigg í Hafnarfirði. Nokkrir lesendur Þjóðviljans kvörtuðu yfir þeirri ósvinnu að enskur texti væri talaður inn á símsvara Sápugerðarinnar Frigg á undan íslenska textanum. Að sögn Hrafnhildar var þetta gert fyrst og fremst vegna erlendra viðskiptavina sem hringja oft á tíðum í fyrirtækið. í því sambandi var talið best að hafa enskuna á undan þar sem þeir mundu ella leggja strax á ef símsvarinn svar- aði þeim á íslensku. -grh. Hressir sigurvegarar. Hljómsveitin „Ný Dönsk“ úr Menntaskólanum við Hamrahlíð vann hljómsveitakeppnina á Húsafelli, og hér er sigri fagnað: Danni, Beggi, Bjössi, Einar, Valli og Óli. Sautján sveitir tóku þátt, og var „Blátt áfram“ í öðru sæti og „Hvass" í þriðja. „Ný dönsk“ var stofnuðfyrir þremur mánuðum, og má búast við plötu frá henni á næstunni; verðlaunin á Húsafelli voru upptökutími fyrir tvö lög í Sýrlandi, hljóðveri Stuðmanna, og myndbandsupptaka með öðru laganna. (Mynd: Ari) Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri Eldur í loftræstikerfi Kviknaði í loftræstikerfi Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Skemmdir á fimm deildum sjúkrahússins Laust eftir kl. fimm í gærdag var slökkviliðið kallað að Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri en þar hafði eldur komið upp í þaki við inntak loftræstistokka á nýrri álmu sjúkrahússins. Reykur fór um loftræstikerfið inn á allar deildir í þessum hluta byggingarinnar en þar eru geð- deild, gjörgæsludeild, skurð- stofa, háls- nef- og eyrnadeild og göngudeild. Þar sem eldurinn kom upp eftir kl. 5 var enginn á skurðstofu og göngudeild en tveir sjúklingar voru fluttir af gjör- gæsludeild. Slökkvistarf gekk vel en þó þurfti að rífa töluvert frá í þakinu að sögn Gísla Lórenzsonar var- aslökkviliðsstjóra. Orsakir elds- ins voru enn ókunnar þegar blað- ið fór í prentun, en rannsóknarlö- greglan á Akureyri, slökkviliðið og fulltrúi frá Brunamálastofnun sem af tilviljun var á ferð á Akur- eyri, voru strax farnir að vinna að rannsókn eldsupptakanna. Skemmdir urðu nokkrar á deildunum fímm, fyrst og fremst af völdum reyks og vatns sem kom niður um loftræstikerfíð við slökkvistarfið og því fyrirsjáan- legt að einhver röskun verður á starfsemi þessara deilda á næstu dögum. -yk. Harnbjargsviti Allt blátt af berjum að hefur nú farið minna fyrir ferðamönnum í sumar en ég átti von á. Hingað hafa komið, það sem af er sumri, eitthvað um 60 manns. Annars er voða erfitt að henda reiður á því hversu mikið af fólki kemur hingað, því það labbar hérna framhjá oft á tíðum án þess að maður verði nokkuð var við það, segir Ólafur Þ. Jónsson, vitavörður á Horn- bjargsvita í samtali við Þjóðvilj- ann. Að sögn Ólafs er gott útlit fyrir berjasprettu í sumar. Þarna fyrir norðan er allt að verða blátt af berjum. Nýbúið er að kveikja á vitanum og var það gert 1. ágúst síðastliðinn. En frá 15. maí og þangað til er slökkt á honum. Góður hópur var í heimsókn hjá Ólafi fyrir skömmu. Var það hópur kennara frá Hafnarfirði með Geir Gunnarsson þingmann í broddi fylkingar. Þeir sem leggja leið sína til Látravíkur, þar sem vitinn er, fara að öllu jöfnu úr Hornvíkinni og ganga Al- menningaskarð, en einnig kemur það fyrir, oftar en einu sinni, að kunnugir fara Kýrskarðið, úr Hornvíkinni og yfir í Látravíkina. Yfir sumartímann sér vatnsaflsstöð um að útvega raf- magnið, en um leið og fer að frysta er skipt yfir á díselrafstöð. Það er vitaskipið Árvakur, sem sér um að koma með nauðsyn- lega orkugjafa fyrir hana, en á mánaðarfresti kemur varðskip með vistir fyrir mannfólkið. „Maður er hér uppfullur af vít- amínum. Gnógt er hér af fjalla- grösum sem ég sýð og nota í súp- ur. Annars er ekki mikið um að vera af skiljanlegum ástæðum, hér á Hornbjargsvita, annað en að taka veður á þriggja tíma fresti og hugsa um sjálfan sig,“ sagði Ólafur Þ. Jónsson, vitavörður. -grh Miövlkudagur 5. ágúst 1987,ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.