Þjóðviljinn - 05.08.1987, Síða 9
ERLENDAR FRÉTTIR
Iran
Heimta hefnd og aftur hefnd
Leiðtogar Irana segja Bandaríkjamenn og stjórnvöld í Saudi-Arabíu bera ábyrgð áfallipersneskra
pílagríma í Mekka. Rétttrúnaðarmenn og einangrunarsinnar hafa bœði töglin og hagldirnar í Teheran
Andlegur og veraldlegur leið-
togi klerkastjórnarinnar í Te-
heran, sjálfur ajatollah Ruhollah
Khomeini, kvaddi sér hljóðs í gær
um atburðina í hinni helgu borg
Mekka á fostudaginn var er að
minnsta kosti 275 persneskir píl-
agrímar létu lífið eftir átök við
lögreglu og súnníta.
Hann var ómyrkur í máli að
vanda í orðsendingu sinni til
þeirra 150 þúsund frana sem
staddir eru á slóðum spámanns-
ins um þessar mundir: „Það eru
Bandaríkjamenn sem bera
ábyrgð á þessum glæpum. Með
guðs hjálp munum vér gjalda
þeim rauðan belg fyrir gráan í
fyllingu tímans.“ Hann bætti því
við að hinir föllnu hefðu verið
fórnarlömb „útsendara erkisat-
ans, það er glæparíkisins Banda-
ríkjanna."
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að mörg hundruð manns
létu lífið á föstudag eftir að sló í
brýnu milli persneskra sítamús-
lima og súnnita og/eða saudiara-
bísku lögreglunnar. Enn er ekki
ljóst hve margir féllu. Stjórnvöld
í Rijad fullyrða að 402 hafi beðið
bana, þar af 275 íranir, en ráða-
menn í Teheran segja að minnsta
kosti 600 þegna sinna enn vera
saknað.
Á gríðarfjölmennum útifundi í
Teheran í gær hét forseti þings-
ins, Ali Akbar Hashemi Raf-
sanjani, því að íranir myndu ná
sér niðri á bandarískum hersveit-
um við Persaflóa og „uppræta"
stjórn Saudi-Arabíu.
Loft er mjög lævi blandið á
Persaflóasvæðinu og þótti ýms-
um sem nógu heitt væri í kolun-
um þótt atburðirnir í Mekka
hefðu ekki átt sér stað. í gær hófu
íranir flotaæfingar og vöruðu
þeir alla erlenda aðila við því að
halda inní loft- og landhelgi lands
síns á næstu þrem dögum.
Um nokkurt skeið hafa rétttrú-
aðir einangrunarsinnar, menn á
borð við Ali Khamenei forseta,
og menn sem vilja bæta samskipti
við erlend ríki, til dæmis Rafsanj-
ani, eldað grátt silfur saman um
ýms mál en nú virðast þeir fyrr-
nefndu allsráðandi. Þeir eru stað-
ráðnir í því að flytja út hina ísl-
ömsku byltingu og telja margir þá
hafa hvatt íranska pílagríma til að
láta að sér kveða í Mekka og því
hafi allt farið í bál og brand.
Ýmis ytri atvik hafa verið vatn
á myllu rétttrúnaðarmannanna.
Afleiðingar vopnasölu Reagan-
stjórnarinnar til írana hafi fært
mörgum Persanum heim sanninn
um að Bandaríkjamenn vildu
ekki bæta samskipti ríkjanna.
Skipaverndin á Persaflóa og á-
lyktun Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna hafi síðan lagt einangr-
unnarsinnum lokavopnin í hend-
ur. Eftir atburði föstudagsins
þori ekki nokkur maður að mæla
gegn herskárri stefnu rétttrúnað-
armanna einsog best sést á um-
mælum Rafsanjanis í fyrradag.
-ks.
Ajatollah Khomeini talar ekki tæpitungu. Hann segir þann arma erkisatan Sám frænda bera ábyrgð á atburðunum í
Mekka á föstudaginn var.
Sri Lanka
Tígramir afvopnast
Leiðtogi stœrstu skœruliðahreyfingar Tamílafellstá vopna-
hlésskilmála Gandhis og Jayewardenes
Velupillai Prabhakaran, leið-
togi Frelsistígranna, ávarpaði
100 þúsund Tanifla á Jafínaskaga
í gærkveldi og tiikynnti þeim að
hann hefði fallist á vopnahlés-
samkomulag Rajivs Gandhis, for-
sætisráðherra Indlands, og
stjórnarinnar í Kólombó. Skær-
uliðar hreyfingarinnar, sem er
öflugasti uppreisnarher Tamíla,
myndu afhenda indverska friðar-
gæsluliðinu vopn sín.
Prabhakaran hafði í upphafi
verið algerlega andvígur sam-
komulaginu. En hann áttaði sig
fljótlega á því að ef Frelsistígr-
arnir skoruðust undan myndi
skerast í odda með þeim og ind-
versku hersveitunum á Jaffna-
skaga. Að auki mátti vera ljóst að
samkomulagið naut almennrar
hylli meðal Tamfla, enda eru í því
ákvæði um sjálfsstjórn þeirra í
norðaustri, og ennfremur sá hann
fram á einangrun Tígranna þar eð
skæruliðar annarra uppreisnar-
herja lögðu unnvörpum niður
vopn.
I gær kvað hann illt hafa verið
til þess að hugsa að til átaka kæmi
milli Tamfla og Indverja sem þeir
elskuðu og virtu. Hann sagði
Tígrana í öndverðu hafa tekið sér
vopn í hönd til að berjast fyrir
málstað Tamfla og nú afhentu
þeir þessi sömu vopn því þeir
teldu það þjóna málstaðnum best
nú einsog komið væri. -*s-
Höfuðtígurinn Velupillai Prabhakaran
féllst í gær á friðarsamkomulag ráða-
manna í Kólombó og Nýju-Delhi.
Amsterdam
Kúrdar í hungurverktalli
Leggja undir sig skrifstofu Amnesty International
Um 40 kúrdar lögðu í gær undir
sig skrifstofu Amnesty Inter-
national í Hollandi og sögðust
hvergi fara fyrr en samtökin rit-
uðu ríkisstjórnum Tyrklands og
Holiands bréf og fordæmdu pynt-
ingar og morð í fjórum fangelsum
í austurhiuta Tyrklands.
„Margir stjórnmálafangar hafa
verið myrtir og pyntaðir í þessum
fangelsum. Fangar sem eru í
hungurverkfalli fá ekki að hafa
nokkurt samband við fjölskyldur
sínar. Við munum vera grafkyrr á
þessum stað uns bréfin hafa verið
send, jafnvel þótt það taki langan
tíma,“ sagði kona ein sem orð
hafði fyrir kúrdunum.
Hollandsdeild AI hét í upphafi
því að koma til móts við óskir
setuliðsmanna en hærra settir fé-
lagar í aðalstöðvunum í Lundún-
um gripu fram fyrir hendurnar á
þeim og kváðu það ekki hollt
fyrir orðstír samtakanna ef látið
yrði undan slíkum þrýstingi.
Kúrdar létu víðar að sér kveða í
Amsterdam í gær. Lögreglan
handtók 39 við vesturþýska
konsúlatið þar sem þeir höfðu í
frammi mótmæli gegn illri með-
ferð Þjóðverja á bræðrum sínum.
-ks.
Kennarar
Kennara vantar að Grunnskólanum í Sandgerði.
Kennslugreinar: íslenska, danska, enska og al-
menn kennsla.
Húsnæðisfyrirgreiðsla
Við leitum að frísku fólki sem vill taka þátt í tilraun-
um okkar til að gera skólann okkar betri.
Upplýsingar gefa Guðjón Þ. Kristjánsson, skóla-
stjóri, í síma 92-37436 og Ásgeir Beinteinsson,
yfirkennari, í síma 92-37801.
Búnaðarsamband
Borgarfjarðar
óskar að ráða héraðsráðunaut frá 1. janúar 1988.
Launakjör samkvæmt samningum Félags hér-
aðsráðunauta við búnaðarsamböndin. Umsókn
sendist Búnaðarsambandi Borgarfjarðar, Borg-
arbraut 21, 310 Borgarnesi fyrir 1. september
n.k.
Upplýsingar veita Bjarni Arason, Borgarnesi,
sími 93-71215 og Bjarni Guðráðsson, Nesi, sími
93-51142.
Þökkum öllum er sýndu okkur samúð og hluttekningu við
andlát og útför
Hallmars Freys Bjarnasonar,
Sólvöllum 6 Húsavík
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Ingólfsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.
Mlðvlkudagur 5. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9