Þjóðviljinn - 16.08.1987, Page 13
Mdiblettir í
regnbogans lilum
Þrjú Ijóð eftir Normu
E. Samúelsdóttur
Ljóöin eru úr Ijóðabókinni
„Marblettir í regnbogans litum“
sem væntanleg er á næstunni
Sólargeisli
Svört kóróna
mandala
appelsínugul sól
skuggar trjánna
dansa
dansa
fyrir
þig
Auðœfi
Allir vissu hið rétta
hann lifði á
auðœfum hennar
Allir vissu hið rétta
og hún
hún vissi hið rétta
að hann var ríkur að viti
mjúkur á hörund
ríkur
mjúkur
Allir vissu
Öskrandi
hvíld
Blautt
sleipt gólfið
óöryggi
kaldar hendur
fiskur fiskur
hávaði
bein og aftur
stingandi bein
Hér var hvíldin
öskrandi hvíldin
samræmi
hávíði hið ytra
innra
Passa grœnu rauðu appelsínugulu
merkin
láta ekki ónýta bónusinn
óskiljanlega
ógnvekjandi
lítil fjárráð
krefjandi þarfir
barnanna
Fátœkt
Hér var þó hvíldin
þarna fékk hún
samrœmdan
frið
í œpandi glamri
gleymsku um stund
í beina- og ormaleit
Velferð þjóðar var í hennar
höndum
Sunnudagur 16. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Fjórðungssjúkrahúsið
l!^2Já Akureyri
Hjúkrunarfræðingar.
Hjúkrunarfræðinga vantar strax eða eftir
samkomulagi á eftirtaldar deildir:
Lyflækningadeild
Handlækningadeild
Geðdeild
Endurhæfingar og kvensjúkdómadeild
(B-deild)
Hjúkrunardeild (Sel)
Bæklunardeild
Skurðdeild
Svæfingardeild
Hjúkrunarfræðingar - fræðslustjóri
Fræðslustjóra vantar til eins árs frá 1. sept. 1987
til 1. sept. 1988. Um er að ræða 100% starf,
vinnutími frá 8.00 til 16.00 virka daga.
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar á nokkrar deildir sjúkrahússins
strax eða eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar um ofantalin störf veita hjúkrunarfor-
stjóri, Ólína Torfadóttir og hjúkrunarfram-
kvæmdastjórar Sonja Sveinsdó\tir og Svava Ara-
dóttir í síma 96-22100/ 270, 271, 274.
Fóstrur
Viljum ráða strax eða eftir nánara samkomulagi,
fóstrur til starfa á barnaheimilið STEKK.
Barnaheimilið er í nýuppgerðu húsnæði og er
opið virka daga frá kl. 7.10-19.00.
Upplýsingar veita forstöðumaður STEKKS, Sig-
urjóna Jóhannesdóttir s. 96-22100/299 og hjúkr-
unarframkvæmdastj. Sonja Sveinsdóttir s. 96-
22100/271.
Forstöðumaður skóladagheimilis
Viljum ráða forstöðumann fyrir skóladagheimili
frá 1. sept. 1987 eða eftir nánara samkomulagi.
Um er að ræða afleysingarstarf til eins árs.
Æskileg menntun uppeldis- og/eða kennslu-
fræði.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri
Sonja Sveinsdóttir s. 96-22100/271.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Manitóbaháskóli.
Prófessorsstaða í ís-
lensku er laus til um-
sóknar
Tekið verður á móti umsóknum eða tilnefningum
til starfs við íslenskudeild Manitóbaháskóla og
boðið upp á fastráðningu (tenure) eftir tiltekið
reynslutímabil í starfi ef öllum skilyrðum er þá
fullnægt. Staðan verður annaðhvort veitt á stig-
inu „Associate Professor“ eða „Full Professor"
og hæfur umsækjandi settur frá og með 1. júlí
1988. Laun verða í samræmi við námsferil, vís-
indastörf og starfsreynslu. Hæfur umsækjandi
þarf að hafa lokið doktorsprófi eða skilað
sambærilegum árangri á sviði íslenskra bók-
mennta bæði fornra og nýrra. Góð kunnátta í
enskri tungu er nauðsynleg sem og fullkomið
vald á íslensku rit- og talmáli. Kennarareynsla í
bæði málfræði og bókmenntum er mikilvæg og
æskilegt að umsækjandi hafi til að bera nokkra
kunnáttu í nútímamálvísindum. Þar sem ís-
lenskudeild er að nokkru leyti fjármögnuð af sér-
stökum sjóði og fjárframlögum Vestur-
íslendinga, er ráð fyrir því gert að íslenskudeild
eigi jafnan drjúga aðild að menningarstarfi þeirra.
Þess er vænst að karlar jafnt sem konur sæki um
þetta embætti. Samkvæmt kanadískum lögum
sitja kanadískir þegnar eða þeir sem hafa
atvinnuleyfi í Kanada í fyrirrúmi.
Umsóknir eða tilnefningar með ítarlegum
greinargerðum um námsferil, rannsóknir og
starfsreynslu, sem og nöfnum þriggja er veitt geti
nánari upplýsingar, berist fyrir 30. október 1987.
Karen Ogden
Associate Dean of Arts
University of Manitoba