Þjóðviljinn - 16.08.1987, Blaðsíða 19
SKÁK
Millisvœðamótið í Zagreb:
Kortsnoj
efsta sœti
Viktor Kortsnoj.
í
Með sigri sínum á millisvæð-
amótinu í Szirak í Ungverjalandi
bætist Jóhann Hjartarson í hóp
skákmanna sem áunnið hafa sér
rétt til þátttöku í áskorenda-
keppninni í Kanada á næsta ári.
Fyrir eru fjórir efstu menn úr síð-
ustu áskorendakeppni, Sovét-
mennirnir Vaganian, Sokolov og
Jusupov og Hollendingurinn Jan
Timman. A millisvæðamótinu í
Subotica í Júgóslavíu komust
þeir Short, Speelman og Sax
áfram. Kanadamenn fá einn
keppanda, Kevin Spragett mun
tefla þarna og eftir því sem manni
skilst er þegar afráðið að and-
stæðingur hans í fyrstu hrinu
verði Andrei Sokolov. Það er ekki
Ijóst við hvern Jóhann mun kljást
en líkur eru á því að það verði
Jusupov ellegar Timman. Regl-
urnar eru ekki alveg á hreinu og
því ekki hægt að slá neinu föstu
um þetta atriði.
Þriðja og síðasta millisvæða-
mótið er nú komið á góðan rek-
spöl í Zagreb í Júgóslavíu. Kepp-
endur eru 17 talsins en Boris
Spasskí heltist úr lestinni á síð-
ustu stundu. í Zagreb er einnig
barist um þrjú sæti og meðal þátt-
takenda er sjálfur Viktor Korts-
noj sem ekki hefur teflt í milli-
svæðamóti síðan í Leningrad
1973 en þar varð hann í efsta sæti
ásamt skákmanni sem hann átti
síðar eftir að elda grátt silur við,
Anatoly Karpov. Kortsnoj fer að
nálgast sextugt en hann lætur
ekki deigan síga og virðist á góðri
leið með að tryggja sér sæti í ásk-
orendakeppninni. Eftir átta um-
ferðir var staða efstu manna
þessi: 1.-2. Granda (Perú),
Kortsnoj (Sviss) SVi v. hvor. 3.^t.
Seirawan (Bandaríkin) og Torre
(Filippseyjar) 5 v. hvor. 5.
Ehlvest (Sovétríkin) 4Vi v + 1 bið-
skák. 6. Pinter (Ungverjaland)
4VI v. 7. Nikolic (Júgóslavíu) 4 v.
(eftir 7 umferðir) + 1 biðskák. 8.
Eingorn (Sovétríkin) 4 v. +1 bið-
skák. Neðar í töflunni koma
menn á borð við Miles og Poluga-
jevskí. Polu hefur m.a. teflt við
Kortsnoj og þarf varla að taka
það fram að Kortsnoj vann þá
skák örugglega eins og nálega
alltaf þegar þeir mætast.
Hinn tvítugi Zuniga Granda
frá Perú er þarna í hlutverki Jó-
hanns Hjartarsonar sem spútnik
mótsins. Hann lætur ekki mikið
yfir sér sem skákmaður en hefur
afar traustan skákstfl og verður
fróðlegt að fylgjast með gengi
hans. Það má búast við Yasser
Seirawan í baráttunni en hann er
eina von Bandaríkjamanna til að
hreppa heimsmeistaratitilinn og
hefur talsverða burði í þá átt. Fil-
ippseyingurinn Eugunio Torre er
til alís líklegur því hann teflir
ávallt vel á millisvæðamótum,
komst áfram í Toluca 1982, og í
Biel þrem árum síðar var hann
óheppinn að ná ekki sæti. Hann
tefldi eina skemmtilegustu skák
mótsins þegar hann lagði Sovét-
manninn Ehlvest í fjórðu um-
ferð:
Torre - Ehlvest
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2 Rf3 dó 3. c3
(Góð aðferð til þess að komast út
úr margþvældum afbrigðum sikil-
eyjarvarnarinnar).
3. ... Rf6 4. Be2 Rc6
(Allsekki3. ... Rxe44. Da4+ og
riddarinn fellur).
5. d4 c6
(Enn var peðið eitrað, 4.... Rxe4
5. d5 ásamt 6. Da4+).
6. Rbd2 cxd4 7. cxd4 Be7 8. 0-0
0-0 9. Hel e5 10. d5 Rb8 11. Bfl
Re8 12. Rc4 Rd7 13. Bd2
(Byrjunartaflmennska hvíts hef-
ur lánast. Staðan minnir á kóngs-
indverska vörn þar sem hvítur
hefur unnið mikinn tíma).
13.... g614. g3 f515. exf5gxf516.
Bh3 Rg7 17. Bb4 Hf6 18. Hcl Hh6
19. Bg2 Hg6 20. Db3 Kh8 21. Da3
e4 22. Rfe5! Rxe5 23. Rxe5 Hf6
24. Rc4 b6 25. Re5!
(Riddarinn heldur til baka því
hann finnur snöggan blett á stöðu
svarts, c6-reitinn).
25. ... Bf8 26. Rc6 Dd7 27. Bc3
Hf7 28. f3
(Opnar línur. Staða svarts er orð-
in mjög erfið).
28. ... exf3 29. Bxf3 Kg8 30. Da4
f4 31. Dd4 fxg3 32. Bh5 Hf2 33.
Re7+!
(33. He7 var afar freistandi því
33. ... Bxg7 strandar auðvitað á
34. Dxg7 mát. Svarta staðan býr
þó yfir duldum möguleikum, 33.
... Hg2+! o.s.frv.).
33. ... Kh8 34. He6!
(Nú er áðurnefndur mótspils-
möguleiki úr sögunni).
34. ... Bb7 35. hxg3 Hg2+ 36.
Kxg2 Dxe6 37. Rc6! Dh6 38. Hfl!
Kg8
(Ekki 38. ... Dxh5 39. Hxf8+ og
vinnur).
39. Bf7+ Kh8 40. Hhl Dg5 41.
Hh5!
lif i m
i»l
m *li
1É
i % 1 i m
áö ■ m
m iá % p H|p;
Svartur gafst upp. Þjálfað auga
sér að eftir 41. ... Dcl kemur
lagleg flétta: 42. Hxh7+! Kxh7
43. De4+! Kh8 44. Dh4+ og
mátar.
ORÐSENDING
TIL IAUNÞEGA
Á SKYLDU-
SPARNAÐAR-
ALDRI
Húsnæöisstofnun ríkisins vill hvetja
launþega til aö fylgjast gaumgæfi-
lega meö því á heimsendum reikn-
ingsyfirlitum, aö launagreiðendur
geri lögboðin skil á skyldusparnað-
arfé til innlánsdeildar Byggingar-
sjóös ríkisins.
Athugasemdum skal komið áfram-
færi við starfsmenn skyldusparn-
aðar hjá Húsnæðisstofnun ríkisins
Laugavegi 77 Reykjavík,
síma 696900 kl. 8-16.
^Húsnæðisstofnun ríkisins
Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboöum í jarö-
vinnu og gerö undirbyggingar fyrir verkstæöis-
og skrifstofuhús á Patreksfirði.
Útboösgögn veröa afhent á eftirtöldum stöðum
gegn 2.000.- kr. skilatryggingu.
Skrifstofu Orkubús Vestfjarða
Stakkanesi 1, 400 Isafirði.
Skrifstofu Orkubús Vestfjaröa
Aðalstræti 13, 450 Patreksfirði.
Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar
Borgartúni 20, 105 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 1. september
n.k. kl. 14.00 á skrifstofu Orkubús Vestfjarða,
Aðalstræti 13, Patreksfirði.
INNKAUPASÍTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7. sími 26844
Dagh. SUNNUBORG v/Sóiheima. s. 36385
Dagh. VÖLVUBORG v/VölvuUll. s. 73040
Dagh. MÚLABORG v/Ármúla, s. 685154
Dagh. STAKKABORG v/Bólstaðarh. s. 39070
Dagh. BAKKABORG v / B löndubak ka. s. 71940
Dagh/l*lk*k. FÁLKABORG v/Fálkabakka. s. 78230
Dagh/Ulksk. ÖSP v/AsparUll. «. 74500
Dagh/Ulksk. GRANDABORG v/Boðagranda. s.621855
DAGVISTUN BARNA ÓSKAR AÐ RÁÐA _ FOSTRUR _ Á EFTIRTALIN DAGVISTARHEIMILI:
REYKJAVÍKURBORG
Lnlksk. ARNARBORG v/Maríubakka, s. 73090
Lelksk. Arborg v/Hlaöbss. s. 84150
Leiksk. FELLABORG v/VölvuUll. s. 72660
Leiksk. HÓLABORG v/Suðurhóla, s. 19619
Leiksk. KVISTABORG v/Kvistland. s. 30311
Dagh/lelksk. HRAUNBORG v/Hraunberg. s. 79770
Dagh/leiksk. FOLDABORG v/Frostaíold. s. 673138
Dagh/leiksk. NÓABORG v/Stangarholt. s. 29595
Upplýsingar veita forstöðumenn og umsjónarfóstrur viðkomandi heimila í síma 27277