Þjóðviljinn - 27.08.1987, Side 1

Þjóðviljinn - 27.08.1987, Side 1
Fimmtudagur 27. ágúst 1987 187. tölublað 52. árgangur Lífeyrissjóðimir Bakslag í samninga Deilt um hvort vextir skuli vera fastir eða breytilegir Skyndilegt bakslag kom í samn- inga lífeyrissjóðanna við ríkis- sjóð um skuldabréfakaup sjóð- anna á óformlegum fundi Sigurð- ar E. Guðmundssonar, fram- kvæmdastjóra Húsnæðisstofnun- ar og þeirra Hrafns Magnús- sonar, formanns Sambands al- mennra lífeyrissjóða og Péturs Blöndal, formanns Landssamb- ands lífeyrissjóðanna. Áður hafði verið komist að ó- formlegu samkomulagi um að vextir yrðu 7% af skuldabréfun- um en á fundinum komu upp skiptar skoðanir um hvort vextir skuli vera fastir til 20 ára eða breytilegir og þá uppsegjanlegir eftir tvö ár. Þegar gengið var frá kaupun- um í fyrra gátu sjóðirnir ákveðið hvort þeir keyptu bréfin með föstum eða breytilegum vöxtum en nú er Húsnæðisstofnun andvíg því. Lífeyrissjóðirnir munu hins- vegar tilbúnir að semja um breytilega vexti en viija þá fá hærri vexti en áður hafði verið sæst á. Nú er beðið eftir ákveðnum út- reikningum frá Húsnæðisstofnun á eldri skuldabréfum og er ekki búist við að þeim verði lokið fyrr en á föstudag og ólíklegt talið að formlegur fundur verði haldinn fyrr en þeir liggja fyrir. -Sáf Veiðar Skollakoppur og trjónukrabbi Góður árangur á könnunarveiðumfyrir Austurlandi á trjónukrabba, beitukóngi og ígulkerjum Trjónukrabbi, beitukóngur og ígulker kunna að verða á með- al nýstárlegra tegunda, sem veiddar verða á næstu árum fyrir ’Austjörðum, en tilraunaveiðar Hafrannsóknastofnunar í mars á þessum tegundum gáfu afar for- vitnilegar niðurstöður. Svo virð- ist, sem sums staðar sé grund- völlur fyrir frekari tilrauna- veiðum. Allt að 7 kflóum af vænum trjónukrabba fékkst á 12-16 tím- um með sérstökum krabbagildr- um af franskri gerð við tilrauna- veiðar í Reyðarfirði, og víðar var góð veiði. Niðurstöðurnar varðandi beitukónginn voru ekki eins já- kvæðar. Aðeins ein tegund af íg- ulkerjum veiddist, skollakoppur, og við veiðarnar var notaður hörpudiskplógur. ígulkerin voru að jafnaði stærst og með mesta hrognafyllingu í Stöðvarfirði, en þau eru erlendis veidd vegna hrognanna. Þessar upplýsingar koma fram í grein Sólmundar Einarssonar í síðasta tölublaði Ægis. -ÖS Kennararáðningar 200 stöður lausar Sigurður Helgason, menntamálaráðuneyti: Gengur illa að ráða. Úr þessufást vart aðrir til kennslu en réttindalausir. Astandið sýnu verstá Vestfjörðum og Norðurlandi vestra Kennararáðningar ganga seint - það er víst óhætt að segja það. Enn á eftir að manna um 200 kennarastöður á landinu, sagði Sigurður Helgason, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, er hann var inntur eftir því hvernig gengi að ráða kennara til starfa fyrir næsta skólaár. Sýnu verst er ástandið á Vestfjörðum og á Norðurlandi vestra, þar sem enn vantar viða kennara. - Ég vona að svo verði ekki, sagði Sigurður, er hann var inntur eftir því hvort merkja mætti að hlutfall réttindalausra kennara yrði hærra næsta skólaár en undangengin ár. - En eins og útlitið er í dag eru ekki líkur á að kennurum með kennsluréttindi fjölgi. - Það er reyndar mismunandi sftir fræðsluumdæmum hvernig skiptingu réttindamanna og rétt- indalausra er farið. Sums staðar fækkar réttindamönnum, en ann- arsstaðar er þetta í járnum eða þá að um örlitla fjölgun réttinda- kennara er að ræða, sagði Sigurð- ur. Sigurður upplýsti að þegar væri búið að veita 222 undanþágur til réttindalausra kennara af 325 umsóknum sem borist hefðu til undanþágunefndar, en nefndin hefur enn aðeins veitt þeim unda- nþágur, sem hafa kennslu- reynslu. Aðspurður um gagnrýni á seinagang undanþágunefndar í afgreiðslu umsókna til réttinda- lausra, sagði Sigurður að þar sem lögin gerðu ráð fyrir því að skólar auglýstu eftir réttindafólki allt fram á síðustu stundu, afgreiddi nefndin ekki umsóknir réttinda- lausra, sem væru að hefja kenns- lu í fyrsta sinni, fyrr en útséð væri um að ekki væri unnt að fá rétt- indafólk. - Það má fara að búast við því úr þessu að afgreiðsla nefndar- innar fari að ganga hraðar fyrir sig, sagði Sigurður. -rk Einar Óskarsson og Anna Peggy Friðriksdóttir við Fógetann, í baksýn sóst i byggingarsvæði SH. Mynd Sig. Grjótaþorpið Fógetinn í skugga risans Þegar hafa verið unnar skemmdir á elsta húsi Reykjavíkur vegna framkvœmda SH á lóð Fjalakattarins. Einar Óskarsson: Mjöghissaá að leyft skuli að byggja áþessum stað. Mikið ónæði og rask útaf byggingunni r Eg er mjög hissa á því að það skuli vera vcitt leyfi til að byggja á þessum stað, sagði Einar Oskarsson en hann rekur veiting- ahúsið Fógetann ásamt konu sinni Önnu Peggy Friðriksdóttur. Á lóð Fjalakattarins stendur til að reisa háhýsi á vegum SH og Tryggingamiðstöðvarinnar og eru framkvæmdir þegar hafnar á staðnum, án þess að byggingar- leyfi hafi verið veitt. Einar sagði að nú þegar væri mikið ónæði og rask af þessu auk þess sem óþrifnaðurinn á fram- kvæmdasvæðinu gerði aðkom- una að veitingahúsinu mjög subbulega. „Við erum nýbúin að opna nýj- an sal uppi, þar sem við ætlum að vera með indverskan mat á boð- stólum og er inngangurinn í hann úr Bröttugötu, þar sem fram-. kvæmdirnar eru. Það verður því mjög ólystugt að ganga hér inn auk þess sem mikið ónæði verður af stórvirkum vinnuvélum.“ Þegar hafa orðið skemmdir á húsinu, þakrenna og geretti voru rifin niður og húsið rispað og sagðist Einar hafa kvartað undan því við byggingaraðilann. „Mað- ur getur ímyndað sér að þetta sé bara byrjunin, að skemmdirnar á húsinu verði enn verri þegar stór- virkar vélar verða notaðar.“ Fógetinn er elsta hús Reykja- víkur og þegar háhýsið hefur risið mun það alveg falla í skuggann af umhverfinu og t.d. mun húsið skyggja á Fógetann frá Hafnar- stræti. -Sáf Sjá bls. 3 Útvegsbankinn Salan í salt Rætt um lokað tilboð sem endi í málaferlum Allt bendir til þess að ekkert verði úr þeim áformum bankasölumanna að Útvegsbank- inn verði seldur í þessari umferð. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans er talið að Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra muni efna til lokaðs útboðs í bankann, vitandi það að SÍS muni þá þegar höfða mál á hendur ríkinu. Mun við- skiptaráðherra þá draga útboðið til baka á meðan dómstólar fjalla um málið, sem getur tekið óra- tíma. Jón Sigurðsson sér þetta nú sem einu leiðina út úr þeim ógöngum sem sala Útvegsbank- ans er komin í, því hann vill ógjarnan styggja annan hvorn til- boðsgjafann, en slíkt þýddi líkast til stjórnarslit. Ráðherranefndin hittist í gær og nú árdegis verður ríkis- stjórnarfundur, en ekki er talið að málið beri á góma þar. Aðal- mál þess fundar verður hval- veiðar íslendinga. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.