Þjóðviljinn - 27.08.1987, Síða 6
LANDSBYGGÐIN
FLÓAMARKAÐURINN
Til sölu
Mitsubishi Galant árg. 77, númers-
laus. ATH! verð aðeins 20.000.
Uppl. í síma 36742 eftir kl. 18.
Til sölu
tveggja manna sófi og unglingarúm
með hillum og skúffum (selst ódýrt).
Uppl. í síma 672595 eftir kl. 20.
Til sölu
lítill IGNIS kæliskápur (svo til nýr),
verð kr. 10.000. Uppl. í síma 33075.
Yamaha trommusett
Hvítt Yamaha trommusett með
öllum fylgihlutum til sölu. Uppl. í
síma 23571 eftir kl. 17.
íbúð óskast
2 herbergja íbúð óskast strax til
leigu. Við erum ungt par með 11
mánaða gamalt barn og erum svo
að segja á götunni. Vinsamlegast
hringið í síma 72964.
Þvottavél til sölu
ca. 12 ára gömul Philco þvottavél til
sölu á kr. 4.500. Uppl. í síma 20601
eftir hádegi.
Dýravinir takið eftir!
Fallegir kettlingar fást gefins. Al-
gjört skilyrði að þeir fari á heimili þar
sem hugsað verður vel um þá.
Áhugasamir hringi í síma 31884
eftir kl. 18.30.
ísskápur og sófaborð
International Harvester ísskáþur til
sölu á kr. 4.000. Breidd 62 cm, hæð
139 cm, dýþt 74 cm. Einnig frekar
stórt furusófaborð á kr. 1.000. Sími
622084 eftir kl. 17.
Bíll til sölu
Til sölu er Fiat 127, árgerð ’85, 5
gíra, ekinn 39.000 km, sumar- og
vetrardekk. Möguleiki er á að taka
gott eintak af ódýrum bíl uppí, en sá
hinn sami má ekki kosta meira en
40-50.000. Uppl. í síma 681310 kl.
9-5 á daginn.
Vantar íbúðina þína ekki
leigjendur eins og okkur?
Við erum tvær, þrifnar og sam-
viskusamar ungar stúlkur að Ieita
að 3 herbergja íbúð í miðbæ, vest-
urbæ eða á Nesinu. Vinsamlegast
hringið í síma 25225.
Óska eftir að kaupa
gömul leikföng, bíla, tinleikföng,
Sþaribauka, Walt Disney fígúrur,
járnbrautalestir, dúkkur, bangsa og
jólaskraut og fleira frá því fyrir stríð
og fram til 1960. Uppl. í síma
681936 alla daga.
Veiðileyfi
Veiðileyfi í Langavatni. Góð að-
staða í húsum og traustir bátar.
Einnig er hægt að fá aðstöðulaus
veiðileyfi. Nánari upplýsingar gefur
Halldór Brynjólfsson í síma 93-
7355.
Öruggur aðili
óskar eftir að taka á leigu hús í
nokkur ár í Reykjavík eða nágrenni
(raðhús kæmi til greina). Góð um-
gengni og öruggar greiðslur. Tilboð
sendist inn á auglýsingadeild Þjóð-
viljans merkt „Hús nr. 1".
13.00-15.30
Óskum eftir 12-14 ára unglingi til að
sækja 3 ára gutta á leikskóla kl. 1
og vera heima hjá honum og 8 ára
bróður hans til kl. hálf fjögur. Uppl. í
síma 28783.
Hjónarúm
frá IKEA (bæsuð fura) 6-7 ára gam-
alt, með 2 náttborðum og dýnum.
Uppl. í síma 20045.
íbúð óskast
2 systkini, námsmenn utan af landi,
óska eftir íbúð til leigu strax. Ein-
staklingsherbergi koma einnig til
greina. Uppl. í síma 44442.
Enska - þýska
Einkatímar í ensku og þýsku. Uppl. í
síma 75403.
Persneskir kettlingar
til sölu. Sími 19492.
íbúð óskast
Óskum eftir 2-3 herbergja íbúð í
vetur. Einhver fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Vinsamlegast hringið í
síma 97-31187 (hs.) og 97-31200
(vs.), Dóra eða í síma 40591, Ólöf.
Tvær í vandræðum.
Til sölu
tvíburavagn, verð kr. 7.000. Á sama
stað óskast keypt disksettudrif í
Commodore. Uppl. í síma 79286.
Bíll til sölu
Saab 96 árgerð 1974 til sölu. Bíllinn
þarfnast viðgerðar. Uppl. í síma
32098 eftir kl. 17.
íbúð - vesturbær
4 herbergja íbúð óskast á leigu í
vesturbænum. Fyrirframgreiðsla ef
óskaðer. Uppl. ísíma 18871 eftirkl.
20.
Til leigu
Herbergi til leigu fyrir geymslu á
húsgögnum eða hreinlegri vöru.
Rakalaust, bjart og upphitað. Uppl.
í síma 681455.
Hæ! Hæ!
Ég heiti Sunna Ösp og er 1 árs. Er
ekki einhver góð kona í Hlíðahverfi
sem getur passað mig meðan
mamma er í skólanum og pabbi að
vinna? Síminn hjá mér er 687816.
Barnavagn - systkinasæti
Blár Silver Cross barnavagn til
sölu. Á sama stað er til sölu
systkinasæti á barnavagn. Uppl. í
síma 38564.
Óskast keypt
Óska eftir að kaupa barnasæti á
reiðhjól. Uppl. í síma 38564.
Kettlingur gefins
Mjög fallegur, kolsvartur kettlingur
fæst gefins. Uppl. í síma 25859.
íbúð óskast
Einstæður faðir óskar eftir 2-3 her-
bergja íbúð helst í vesturbæ sem
ALLRA FYRST. Meðmæli ef óskað
er. Vinsamlegast hringið í síma
24836.
Til sölu
Vandaðar kojur til sölu, fiskabúr,
Citroen GS Club 78, skoðaður '87,
sumar- og vetrardekk. Selst ódýrt,
karlmannsleðurjakki. Sími 24836.
Á einhver
barnaleikgrind sem hann vill selja,
lána eða gefa? Vinsamlegast
hringið í síma 20772.
Dúlla á hrakhólum
Hún er hamsturinn minn og ég vil
kaupa handa henni gott búr. Uppl. í
síma 611632. María Gréta.
St. Jósefsspítali
Landakoti
Skóladagheimili
Starfsstúlku/mann vantar í 60% starf frá 1. sept-
ember n.k. á skóladagheimilið Brekkukot, Holts-
götu 7.
Upplýsingar í síma 19600/260 alla virka daga frá
kl. 8 til 16.
Röntgendeild
Okkur vantar aðstoð á röntgendeild Landakots-
spítala. Umsækjandi þyrfti að geta hafið vinnu
strax.
Upplýsingar gefur deildarstjóri í síma 19600/330.
Reykjavík, 26. ágúst 1987.
I sólskinsskapi
Blómarœkt
Látið blómin tala
Tuttugu ogfjórir blómabœndur standa að Blómamiðstöðinni
Það mun hafa verið árið 1961
sem fimm blómabændur, búsettir
í Hveragerði, bundust samtökum
um að ráða sérstakan sölumann í
þjónustu sína. Sú hagræðing sem
af þessu leiddi kom brátt í ljós og
því reyndist ráðing sölumannsins
upphaf annars og meira. í kjöl-
farið kom nefnilega stofnun
Blómamiðstöðvarinnar hf.
Blómamiðstöðin hefur nú þró-
ast upp í það að vera sölufyrirtæki
24 blómabænda. Þeir reka garð-
yrkjustöðvar í Hveragerði, Bisk-
upstungum, Hrunamannahreppi
og Mosfellsbæ. Þessir 24 blóma-
bændur rækta um fjóra fimmtu
þeirra inniblóma sem landsmenn
nota.
Löngum hefur verið sagt að
mjór sé mikils vísir. Það sannað-
ist þarna einu sinni enn. Sölu-
maðurinn, sem tók til starfa hjá
blómabændunum fimm í Hvera-
gerði árið 1961, hafði til umráða
eina litla sendibifreið. Nú eru
starfsmennirnir orðnir sjö og
fjórar bifreiðar eru í daglegum
akstri. Blómin eru sótt til garð-
yrkjustöðvanna og ekið daglega í
blómaverslanir í Reykjavík og
nágrenni hennar. En ekki aðeins
þangað, heldur eru þau einnig
send á hverjum degi til blóma-
verslana úti á landi og þá einkum
með flugvélum. Blóm sem skorin
eru að morgni í Hveragerði eru
þannig gjarnan komin í verslanir
á Akureyri seinni part sama dags.
Þessi eðlilega og sjálfsagða
samvinna blómabænda er í senn
bæði skynsamleg og hagkvæm,
jafnt fyrir framleiðendur og
kaupendur. Hún hefur m.a.
stuðlað að og leitt til sérhæfingar í
ræktun, betri meðferðar blóm-
anna og aukið gæði vörunnar. Og
fyrir verslanir er það auðvitað til
mikilla hagsbóta að geta fengið
öll blóm á einum stað. Þannig er
samvinna að jafnaði öllum til
hagsbóta þegar allir fingur koma í
lófann. -mhg
Fiskirœkt
Fiskeldisþjónustan
farin af stað
Framkvœmdir - þjónusta - ráðgjöf
Fiskeldisþjónustan hf. var
stofnuð 18. júnf og hefur aðsetur
að Birkigrund 47 í Kópavogi.
Stofnendur eru bæði íslenskir og
norskir. Eiga Norðmenn 20% í
fyrirtækinu en íslendingar 80%.
Markmið félagsins er ýmiss
konar framkvæmdir, þjónusta og
ráðgjöf um margskonar eldi í sjó
og fersku vatni, hérlendis sem er-
lendis. Verkefni Fiskeldisþjón-
ustunnar má flokka í fjóra liði: t
1. Að markaðssetja sérhæfðan
hugbúnað fyrir seiðaeldi ásamt
tölvubúnaði.
2. Að markaðssetja ýmsan
eldisútbúnað.
3. Að veita ýmsa faglega og
tæknilega þjónustu varðandi
stofnsetningu, skipulag, fram-
kvæmdir og rekstur eldisstöðva.
4. Að gera framleiðsluathug-
anir á möguleikum til fiskeldis
miðað við aðstæður. Gera grófar
skipulags-, kostnaðar og rekstr-
aráætlanir, miðað við það eldi,
sem til greina kemur hverju sinni.
5. Að gera heildar fram-
kvæmdaáætlun. Yrðu slík verk-
efni unnin í samvinnu við verk-
fræðifélagið Jan Berntsen í Berg-
en. En það er: Nákvæm áætlana-
gerð ásamt teikningum varðandi
framkvæmdir. Áætlun um fjár-
mögnun framkvæmda og rek-
strar. Teikningar varðandi út-
boð. Val eldis- og tæknibúnaðar.
Aðstoð við rekstur vegna byrjun-
arörðugleika. Ráðgjöf um fjárm-
ögnun. Samvinna á norrænum
grundvelli opnar möguleika á
samnorrænni fjármögnun.
Sími Fiskeldisþjónustunnar hf.
er 42576.
- mhg
Tónlistarskóli
Njarðvíkur
Starf undirleikara við söngdeild er laust til um-
sóknar. Um er að ræða pínóundirleik fyrir
söngnemendur í 1.-7. stigi. Einnig vantar klarin-
ettukennara og forskólakennara fram að ára-
mótum Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Har-
aldur Árni Haraldsson, í símum 92-13995 eða
92-12903.
Skólanefnd.
Innilega þakka ég öllum þeim sem glöddu mig og
heiðruðu á 75 ára afmæli mínu 5. ágúst síð-
astliðinn með gjöfum og skeytum og á einn og
annan hátt gerðu mér daginn eftirminnilegan.
Lifið heil.
Arnór A. Guðlaugsson
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN