Þjóðviljinn - 27.08.1987, Síða 16

Þjóðviljinn - 27.08.1987, Síða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 PJÓÐVILIINN Flmmtudagur 27. ágúst 1987 187. tölublað 52. árgangur SKOIAVELTA LEON AÐFARS€LLI SKÓIACÖNCU SAMVINNUBANKI ÍSLANDSHF. Opið bókhald Skilyrðislaus krafa Pétur Sigurðsson, ASV: Verkafólk látið borga tapið, eigendurnir hirtu ágóðann. Páll Valdi- marsson, trúnaðarmaður Dagsbrúnar: Tími til kominn að bursta rykið af þessari kröfu Verkafólk í fískvinnslunni og sjávarútveginum hefur alla tíð rekið fiskvinnslufyrirtækin, en ekki þeir sem eru skráðir eigendur þeirra. Það er látið borga tapið þegar illa árar með lægri launum, en þegar hagnaður Danmörk Fiskur í landann Fyrirtækið Islands- fisk býður upp áfjöl- margarfisktegundir. Heimsendingarþjón- usta. 10% afsláttur fyrir íslenskumæl- andi fólk ,,í'.g er með þessari auglýsingu að tilkynna ykkur að ég er með allan þann besta fisk sem hægt er að fá að heiman. Hann er allur djúpfrystur um borð í skipunum sem veiða hann, fiskurinn er því alltaf glænýr og bestur.“ Svofelldur texti er uppistaðan í dreifíblaði sem íslendingar bú- settir í Danmörku hafa fengið heimsent, og er jafnframt vísað til auglýsingar í nýjum Hafnar- pósti. Fyrirtækið sem þarna er að koma varningi sínum á framfæri hefur búið sér til slagorðið Spis fisk og bliv frisk. Það nefnist Is- landsfisk, og fyrir því er skrifaður Birgir Þorvaldsson. Fiskinn er hægt að fá heimsendan gegn vægu gjaldi ef’ verslað er fyrir ákveðna lág- marksupphæð. Fisktegundirnar sem eru á boðstólum eru ýsu-, þorsk- og karfaflök, reykt karfaflök, salt- fískur í neytendapakkningum, stórlúða, smálúða, heilagfíski, gellur, harðfiskur, kryddsfld og spejesild. íslenskunám hefur sjaldnast verið talið til hygginda sem í hag koma. Islandsfisk afsannar þetta álit, en í auglýsingunni segir að íslendingar og þeir sem tali málið fái tíu prósent afslátt. HS Vextir Dráttarvextir hækka Dráttarvextir hækka frá og með 1. september. Verða þeir þá 3,5% á mánuði eða um 42% á ári. Dráttarvextir hafa ekki verið- hærri síðan 1983. Ástæða þessar- ar hækkunar er háir útlánsvextir bankanna. Sáf er, þá sjá svonefndir eigendur fyrir því að eyða því sem aflast, annað hvort með því að kaupa hlutabréf eða til eigin frflystinga. Þess vegna hefði krafan um opið bókhald mátt koma fram fyrr, sagði Pétur Sigurðsson, formað- ur Alþýðusambands Vestfjarða. - Ég lít svo á að þetta hafi alltaf verið krafa verkalýðshreyfingar- innar, ekki síður en krafan um lífvænleg laun fyrir 8 stunda vinn- udag, sem enn á óralangt í land. Þessum kröfum hefur ekki verið haldið nógsamlega á lofti og for- ysta verkalýðshreyfingarinnar hefur blánað með árunum, sagði Pétur Sigurðsson. - Mér finnst sjálfsagt að verka- fólk eigi heimtingu á að skoða bókhald fyrirtækjanna - fyrir- tækja sem fullyrt er að hafí staðið illa og verkalýðshreyfingingin hefur jafnvel tekið þátt í grátkór atvinnurekenda, sem síðan kem- ur á daginn að eiga nóg aflögu til að leggja til bankakaupa, sagði Pétur Sigurðsson. - Það er sannarlega kominn tími til að bursta rykið af þessari kröfu og fyrst hún er einusinni komin fram er óhjákvæmilegt annað en að hún verði rædd á þingi Verkamannasambandsins í haust, sagði Páll Valdimarsson, trúnaðarmaður í Dagsbrún. Páll sagði að sér þætti það ekki óviðeigandi að Dagsbrún tæki þessa kröfu upp nú þegar nokkur fyrirtæki á svæði félagsins gera tilboð í Útbvegsbankann. - Það má nefna Eimskip og Granda og ég býst við því að Dagsbrúnar- mönnum sé umhugað um að sauma að þessum aðilum, sagði Páll Valdimarsson. - rk Þjóðviljinn Hallur Páll ráðinn Hallur Páll Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Þjóð- viljans og er stefnt að þvi að hann taki til starfa um 1. október. Guðrún Guðmundsdóttir, sem gegnt hefur starfi framkvæmda- stjóra um fimm ára skeið, hefur sagt starfí sínu lausu þar sem hún hyggst snúa sér að kennslu. Hallur Páll hefur m.a. setið í bæjarstjórn fyrir Alþýðubanda- lagið á ísafirði og var um tíma forseti bæjarstjórnar. Undanfar- in ár hefur hann starfað við fast- eignadeild Kaupþings. Hann er með BA-próf í sálarfræði, heimspeki og íslensku. - SÁF Veröld Hóffar. Draumaíbúð Hófíar fögru Karlsdóttur er eitt af helstu sýningaratriðum á „Veröld ’87“ sem hefst í Laugardalshöll í dag klukkan sex. Hófí var í gær ekki búin að innrétta að fullu, enda sagði hún að draumurínn væri leyndarmál þangaðtil opnað verður, en sýningunni var þjófstartað í gærkvöldi með mikilli leysigeislasýningu á borgarhimninum. A sýningunni er sérstök áhersla lögð á húsbúnað ýmsan og innréttingar, og stendur hún frammá annan sunnudag. (Mynd: Sig.) Mjólkurbílstjórar Flóamenn í sýnastríði Tryggvi Ágústsson mjólkurbílstjóri: Neitum að taka oftar mjólkursýni en tvisvar í viku, nema að fá greitt r Imótmælaskyni tökum við ekki reglulega mjólkursýni nema tvisvar í viku hjá hverjum bónda, eins og við gerðum áður en okkur var fyrirskipað að taka sýni dag- lega, eða sex sinnum í viku hverri, sagði Tryggvi Ágústsson, mjólk- urbflstjóri hjá Mjólkurbúi Flóa- manna á Selfossi, en mjólkurbfl- stjórar eru óánægðir með að fá ekki greitt aukalega fyrir um- fangsmeiri sýnatöku, sem þeim er ætlað að inna af hendi. Mjólkurbflstjórarnir gera það að kröfu að fá 15% ofan á fasta- kaupið vegna sýnatökunnar. - Eftir að farið var að flytja mjólk- ina á tankbflum höfum við séð um sýnatökuna. Við höfum feng- ið greidd 5% ofan á fastakaupið fyrir að taka sýni tvisvar í viku á hverjum bæ og við viljum fá hækkun þar á fyrir að taka s^ni sex sinnum, sagði Tryggvi ústsson. - Það er fundur í dag með stjórnendum mjólkurbúsins og það ræðst væntanlega þá hvort §engið verður að kröfum okkar. :g veit ekki betur en það sé fullur vilji hjá báðuin aðilum að þetta ieysist sem fyrst, sagði Tryggvi Ágústsson. - rk Búvöruverð Hækkanir eftir helgina Við eigum að vera búnir að semja um verðlagsgrundvöl- linn fyrir 1. september. Það er fundur í sexmannanefndinni í dag, en það liggur ekkert Ijóst fyrir enn hvaða breytingar kunna að verða á búvöruverðinu um mánaðamót, sagði Gunnlaugur Júlíusson, hjá Stéttarsambandi bænda en búast má við að ein- hvcrjar verðhækkanir verði á sauðfjár- og mjólkurafurðum. - Það eina sem búið er að á- kveða er verðskerðing á feitu dilkakjöti. Feita flokknum verð- ur skipt upp í tvo flokka og verð þess feitari skert um 25% miðað við verð á fyrsta flokki af dilka- kjöti, en á hinum um 11%. Ann- að er ekki umsamið, sagði Gunn- laugur Júlíusson. Gunnlaugur sagði að Stéttars- ambandið myndi sækja fast að fá nú inní búvöruverðið þá 12% hækkun á tekjulið bænda, sem frestað var í fyrra. - Við reynum náttúrlega að ná sem mestu af því inní samningana núna,. en hvort það tekst er annað mál, sagði Gunnlaugur. - rk

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.