Þjóðviljinn - 24.09.1987, Page 9
reynist ekki alltaf unnt að vinna á
þann veg, sem maður hefði helst
viljað. Og stundum kemur það
auðvitað fyrir, að maður efast um
að réttar ákvarðanir hafi verið
teknar. Kannski orkar allt tví-
mælis þá gert er.
Nauðsyn
samstöðunnar
- Eitthvert heilræði til bænda?
- Ég er nú kannski ekki fær um
að gefa öðrum heilræði. En á það
vil ég samt leggja þunga áherslu,
að samstaðan er bændum fyrir
öllu. Þeir verða að hugsa og
starfa sem ein stétt, í einni órofa
fylkingu. Það er ávallt brýnt en
þó aldrei nauðsynlegra en á erfið-
leikatímum. Bændur þurfa að
standa fast saman um Stéttarsam-
band sitt. Þeir þurfa að efla og
styrkja samtök sín á öllum svið-
um. Þeir eru samherjar en ekki
keppinautar á hvaða sviði bú-
vöruframleiðslunnar sem þeir
svo starfa.
Þakka samfylgdina
- Nú ert þú að láta af for-
mennskunni og um leið setu í
stjórn Stéttarsambandsins. Sakn-
arðu starfsins?
- Það er nú mín eigin ákvörð-
un að hætta. Ég hef setið í stjórn
Stéttarsambandsins síðan 1969
og verið formaður þess síðan
1981. Það er orðinn nokkuð
langur tími og ekki óeðlilegt að
nýr maður taki við. En hvort ég
sakna starfsins - jú, öðrum þræði
geri ég það en á hinn bóginn sé ég
ekkert eftir því að láta nú af þess-
um störfum. Þetta hefur ekki
alltaf verið dans á rósum, hvorki
fyrir mig né bændur. En í þessu
starfi hef ég kynnst mjög mörgu
fólki og góðu. Mér hefur oft verið
sýnd mikil þolinmæði, - kannski
stundum óverðskulduð, - í sam-
bandi við þau störf, sem ég hef
þurft að leysa af hendi. Mér þykir
vænt um að hafa fengið aðstöðu
til þess að vinna að margháttuð-
um hagsmunamálum bændastétt-
arinnar. Það hefur verið mikill og
ánægjulegur þáttur í lífi mínu,
sem ég hefði alls ekki viljað missa
af.
Ég vil svo að endingu koma á
framfæri þakklæti til þeirra, sem
ég hefi unnið með í Bændahöll-
inni, fyrir ákaflega ánægjulegt
samstarf. Ég vil þakka þeim, sem
ég hef starfað með í stjórn Stétt-
arsambandsins og sumir láta nú
af störfum samtímis mér. Einnig
mönnum eins og Gunnari Guð-
bjartssyni, Árna Jónassyni, Há-
koni Sigurgrímssyni og svo, eins
og ég sagði öllum sem ég hef unn-
ið með þarna í Höllinni við Hag-
atorg. Ég óska þeim mönnum,
sem nú taka í fyrsta sinn sæti í
stjórn Stéttarsambandsins, far-
sældar í störfum og vona að
stjórnin megi verða samhent eins
og verið hefur.
Eins og alþjóð veit er Ingi
Tryggvason sonur hins lands-
kunna skógræktarfrömuðar
Tryggva heitins Sigtryggssonar á
Laugabóli í Reykjadal nyrðra.
Ég spurði Inga hvað hann tæki
sér fyrir hendur nú þegar hann
hættir að hafa afskipti af málefn-
um Stéttarsambandsins.
- Ég hef næg verkefni og þarf
engu að kvíða hvað það snertir.
Til að byrja með fer ég nú heim í
Reykjadalinn.
Það skyldi nú aldrei vera að
Ingi fari að vinna þar að skóg-
ræktarmálum svona fyrsta sprett-
inn. Sagt er að eplið falli sjaldan
langt frá eikinni.
- mhg
Feröamálanefnd Reykjavíkur hefur samþykkt að efna til
samkeppni um gerð minjagripa tengdum Reykjavíkurborg
og Höfða.
Samkeppnin er haldin í tilefni þess að eitt ár er liðið frá stór-
veldafundi sovéskra og bandarískra ráðamanna í Reykja-
vík.
Þátttaka;
Heimild til þátttöku hafa allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar sem
hafabúsetuá Islandi.
Dómnefnd:
Dómnefnd skipa Björn Friðfinnsson, forstöðumaður lögfræði- og
stjórnsýsludeildar Reykjavíkur, Gísli B. Björnsson, teiknari F.Í.T. og
Þórunn Gestsdóttir, fulltrúi ferðamálanefndar.
Ritari nefndarinnar er Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri.
Trúnaðarmaður:
T rúnaðarmaður dómnefndar er Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri.
Fyrirspurnir:
Fyrirspurnir má aðeins senda skriflega til trúnaðarmanns dómnefndar
fyrir 14. sept. 1987, og mun hann leggja afrit af þeim fyrir dómnefndina
en svara fyrirspurnum frá og með 15. september.
Keppnistillögur:
1. Keppnistillögum skal skila á ógegnsæjan pappír, stærð A-2 (59.4
cm x 42.0 cm) eða upplímdar á pappír af sömu stærð. Heimilað er
að tillögunum fylgi fuliunninn gripur. Allur skýringartexti með tillög-
um skal vera vélritaður eða ritaður á annan vélrænan hátt.
2. Höfundum þeirra tillagna sem hljóta verðlaun verður falin endan-
leg gerð þeirra til fjöldaframleiðslu.
3. Ekki eru sett nein skilyrði um útlit eða gerð minjagripanna önnur en
að þeir henti vel til fjöldaframleiðslu.
Merking og afhending:
1. Tillögur skulu vera auðkenndar með 5 stafa tölu (kennitölu).
Ógegnsætt umslag merkt orðinu „nafnmiði" og kennitölunni fylgi
tillögunni. í umslaginu skal vera nafn og heimilisfang tillöguhöfund-
ar eða -höfunda.
2. Skila skal tillögum til trúnaðarmanns, Ómars Einarssonar, Frí-
kirkjuvegi 11 í síðasta lagi 8. október 1987, kl. 16:00.
Úrslit:
Sigurvegurum keppninnar verður tilkynnt um úrslit strax og þau eru
ráðin á sérstökum Reykjavíkurkynningardegi 12. október 1987 og
þau síðan birt í fjölmiðlum.
Sýning:
í tengslum við ráðstefnu sem haldin er þennan samadag um Reykja-
vík sem funda- og ráðstefnustað verður haldin opinber sýning á til-
lögunum.
Verðlaun:
Verðlaun eru samtals kr. 175.000,-.
Þaraferu: 1. Verðlaun kr. 100.000,-
2. Verðlaun kr. 50.000,-
3. Verðlaun kr. 25.000,-
Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Höfða 12. október.
Hagnýting hugmynda:
Ferðamálanefnd áskilur sér rétt til fjöldaframleiðslu á verðlaunatillög-
um með þeim takmörkunum sem lög um höfundarrétt setja.
Fimmtudagur 24. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9