Þjóðviljinn - 24.09.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 24.09.1987, Blaðsíða 11
ERLENDAR FRÉTTIR El Salvador/Nicaragua Vopnahlé og viðræður ígœrféllust vinstriskœruliðar í El Salvadorá að eiga orðastað við Duarteforseta. I fyrradag kvaðstforseti Nicaragua œtla að láta draga úr árásum á Kontraliða höRFRÉTTIRm Gríska ríkisstjórnin er ekki söm í dag og hún var í fyrradag. Þá gerði And- reas Papandreou veigamiklar breytingar á ráðuneyti sínu, í þriðja sinn frá því hann hófst til valda árið 1981. Nú voru þrír fé- lagar úr vinstri armi Pasokflokks forsætisráðherrans á ný gerðir að ráðherrum en þeir höfðu orðið að víkja í síðustu uppstokkun. Ýmsir gera því skóna að kosningar séu á næsta leyti í Grikklandi og segja nýju stjórnina vera mjög „fyrir- kosningalega." Papandreou tók því hinsvegar fjarri í gær. Enn- fremur vísaði hann á bug orðrómi um að alvarlegur ágreiningur væri innan Pasokflokksins milli stuðningsmanna sin sjálfs og fyl- gjenda ástkærrar eiginkonu sinn- ar, Margrétar nokkurrar Papand- reou! Forseti írans hinn nafntogaði gráskeggur Ali Khamenei, sagði í New York í gær að árás bandarískrar þyrlu á íranskt skip á Persaflóa í fyrradag hefði verið mestu mistök sem Bandaríkjamenn hefðu gert frá því Ronald Reagan var kjörinn forseti. „Þeir skulu fá að snýta rauðu," sagði hann síðan undan vefjarhettinum, steytti hnefann og setti í brýrnar. Mikill kjörgripur verður seldur á heljarins miklu uppboði sem fram fer í Bæjara- borginni Munschen þann sjötta nóvember næstkomandi. Þetta er ritvél af Remingtongerð, vel kom- in til ára sinna og tæplega hæf lengur til síns brúks. Engu að síður gera uppboðshaldarar sér vonir um að geta krækt í 30 þús- und bandaríkjadali fyrir gripinn. Jú, þetta er eitt af helstu tólunum úr verkfæraskáp Adolfs þess Hitl- ers er af mikilli andagift samdi fjölda ritverka. Eitt þeirra, „Mein Kampf', kvað hafa runnið úr höfði hans, niður í gegnum hendur og fingur og ritvél þessa áður en það subbaðist á pappír. Demókrataflokkur- inn bandaríski er einu forsetaefninu fátækari. Jósef nokkur Biden gaf í gær út þá yfirlýsingu að hann væri hættur í keppninni um út- nefningu flokksins fyrir forsetakj- örið að ári. Ástæðan kvað einkum vera sú að upp hefur komist um ýms vafasöm brögð hans á um- liðnum árum í stjórnmálabröltinu. Hann viðurkenndi að sér hefði orðið það á að Ijúga sig góðan nemanda. Hann hafi ekki verið meðal efstu manna í sínum bekk í skóla, staðreyndin væri sú að hann hefði verið hálfslappur námsmaður. Ennfremur sagði hann það rétt vera að hann hefði tekið ýmsa kafla úr ræðum Ró- berts Kennedys og Neils Kinn- ocks ófrjálsri hendi og þrumað þá af hjartans sannfæringu yfir fáf- róðum kjósendum. Nú eru tveir demókratar úr leik í forkosningas- lagnum, annar fyrir ræðustuld en hinn fyrir kvennastúss. Hver skyldi verða næstur og hvað verður honum borið á brýn? Kona nokkur var búsett í borginni Wellington á Nýja-Sjálandi og varð fyrir því óláni að varpa síðustu öndinni í svefni á dögunum sem er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema fyrir það að sjö menn þurfti til að bera líkið úr húsi og sveifla því uppá líkvagn. Lögreglan kvaðst hafa orðið að leita ásjár krafta- karla þegar hún uppgötvaði að hin burtsofnaða vó 343 kíló á evu- klæðum einum fata. Leiðtogar vinstri sinnaðra skæruliða í El Salvador hafa fallist á að ganga til viðræðna við Jose Napóleon Duarte forseta um frið og vopnahlé í landinu. Fund- ur þeirra mun hefjast þann fjórða október næstkomandi. Maður er nefndur Guillermo Ungo. Hann er forseti Bylting- arsinnuðu lýðræðisfylkingarinn- ar (FDR) sem er stjórnmálaarm- ur Farabundo Marti skæruhers uppreisnarmanna (FMLN). Hann dvelur allajafna í útlegð í Panama og þaðan ræddi hann við fréttamenn í síma í gær. Ungo sagði allar fylkingar upp- reisnarmanna hafa verið einhuga að baki ákvörðuninni um að fall- ast á viðræður við Duarte. „Við föllumst á að eiga fund með Du- arte þann fjórða október í San Salvador.“ Hann kvað enn ekki Kim Dae-Jung er að öllum lík- indum frægasti stjórnarand- stæðingurinn í Suður-Kóreu en fast á hæla honum kemur nafni hans og flokksbróðir, Kim Young-Sam. Annar hvor þeirra verður frambjóðandi Endur- reista lýðræðisflokksins í forseta- kjörinu í desember næstkomandi. En hvorugur vill víkja og gætir nú vaxandi togstreitu milli þeirra um hnossið. í gær bar einn af helstu ráð- gjöfum Kim Dae-Jungs Kim Young-Sam skilaboð frá vopna- bróður sínum og keppinaut þar sem þess er vinsamlegast farið á leit við hann að hann dragi fram- boð sitt til baka. Kosningastjórar Kim Young- Sams brugðust ókvæða við, sögðu bónina ósmekklega og kröfðust þess að samningavið- ræðum félaganna um framboð- smálin yrði haldið áfram, að minnsta kosti út þennan mánuð. Kimarnir sneru bökum saman í baráttu sinni gegn stjórn Lýðræð- isiegs réttlætisflokks forsetans Chun Doo Hwans. Henni lyktaði sem kunnugt er með sigri andófs- aflanna í sumar eftir látlausar götuóeirðir í margar vikur. Frambjóðandi stjórnarflokks- ins hefur þegar verið valinn en það er krónprins Chuns, Roh Tae-Woo að nafni. Roh gegndi lykilhlutverki þegar forsetinn var vera búið að ákveða hverjir tækju þátt í viðræðunum fyrir byltingar- menn en fullyrti að þeir yrðu úr æðstu röðum, þar á meðal félagar úr Þjóðarráði FDR-FMLN. Hann greindi ennfremur frá því að allir helstu leiðtogar vinstri- manna myndu á næstunni eiga fund með erkibiskupi E1 Salva- dor, Arturo Rivera Damas, en hann hefur flutt boð á milli þeirra og Duartes. Ráðamenn og leiðtogar upp- reisnarmanna hafa ekki sest að samningaborði í E1 Salvador frá því í nóvember árið 1984. Allar tilraunir til að koma á nýjum fundi hafa farið út um þúfur fram að þessu. Viðræðurnar þann 4.október fara fram að frum- kvæði forsetans er nýverið reit undir plagg í Guatemala með fjórum miðamerískum kollegum neyddur til þess að slaka á klónni í júlí og er forseti Lýðræðislega réttlætisflokksins. Þeir Chun eru báðir fyrrum herforingjar. Kimarnir vita sem er að ógjör- legt verður að leggja Roh að velli nema flokkur þeirra tefli fram einum frambjóðanda. Því verðu; annar hvor að draga sig í hlé. Þeir hafa löngum verið keppinautar um forystuhlutverk í Endurreista lýðræðisflokknum og báðir eru þeir metnaðarfullir og kappsamir menn. Ráðamönnum stendur mikill stuggur af Kim Dae-Jung og líta þeir á hann sem sinn versta fjanda. Síðustu sjö árin hefur hann ýmist setið í dýflissu, stofu- fangelsi eða dvalið í útlegð. Hann veit sem er að eftir þessa löngu fjarveru úr sviðsljósinu þarf hann að styrkja ímynd sína og flytja mál sitt fyrir landsmönnum. Til þess þarf hann tíma og því reynir hann í lengstu lög að draga val frambjóðanda flokks síns á lang- inn. Stofnanir flokksins kjósa for- setaframbjóðanda og þar hefur Kim Young-Sam bæði tögl og hagldir. Því er hann mjög áfram um að valið verði sem fyrst inilli þeirra nafna því hann óttast að keppinaut hans vaxi ásmegin með tíð og tíma. Kim Dae-Jung er nefnilega annálaður ræðusnill- ingur. -ks. Daníel Ortega og Napóleon Duarte. komið er. sínum þar sem hann strengdi þess heit að friðmælast við skærulið- ana. í fyrradag tilkynnti Daníel Or- tega, forseti Nicaragua, að hann hygðist skipa her sínum að hætta að berja á Kontraliðum í vissum landamærahéruðum lands síns og með því stíga skref í átt að vopna- hléi. Ortega sagðist með þessu gefa fulltrúum samninganefndar ríkj- anna fimm er standa að friðar- Báðir standa við fyrirheit sín, enn sem áætluninni kost á að ná sambandi við uppreisnarmenn og ræða við þá um vopnahlé í landinu. Hann gat þess ennfremur að yfirmanni kaþólsku kirkjunnar í Nicaragua, Miguel Obando y Bravo kadínála, hefði verið tjáð að útvarpsstöð kirkjunnar, Ra- dio Catolica, væri frjálst að starfa á ný. Ortega sagði þessar ákvarð- anir vera teknar vegna ákvæða friðaráætlunarinnar frá Guatem- alafundinum. -ks. Fimmtudagur 24. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 Suður-Kórea Kimar í kapphlaupi Stjórnarandstöðunni gengur illa að velja frambjóðandafyrirforsetakjörið í desember Kim og Kim, Dae- Jung til vinstri og Young-Sam við hlið hans. Samkeppnin fer harðnandi. Húsbyggjendur Þeim húsbyggjendum, sem þurfa á rafmagns- heimtaug að halda í hús sín í haust eða vetur, er vinsamlegast bent á að leggja inn umsókn um hana sem allra fyrst til þess að unnt sé að leggja heimtaugina áður en frost er komið í jörðu. Gætið þess að jarðvegur sé kominn í sem næst rétta hæð, þar sem heimtaug verður lögð, og að uppgröftur úr húsgrunni, byggingarefni eða ann- að hindri ekki lagningu hennar. Heimtaugar verða ekki lagðar, ef frost er komið í jörðu, nema gegn greiðslu þess aukakostnaðar sem af því hlýst. Nánati upplýsingar eru gefnar á heimtaugaaf- greiðslu Rafmagnsveitunnar, Suðurlandsbraut 34, í síma 686222. RAFM AG NSVEITA REYKJAVÍKUR Dagheimili í Vogahverfi Til að vera betur í stakk búin að veita börnum á Sunnuborg, Sólheimum 19 markvisst uppeldi í samræmi við þroska þeirra og þarfir viljum við ráða uppeldismenntað fólk og aðstoðarfólk í 100% og 50% störf. Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 36385. Verkamenn - rafvirkjar Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða verkamenn við jarðstrengjalagnir og rafvirkja við uppsetningu á rafbúnaði í aðveitu- og dreifi- stöðvar. Bónusvinna. Mötuneyti á staðnum. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri alla vinnu- daga og yfirverkstjóri milli kl. 12.30 og 13.30. 3 RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.