Þjóðviljinn - 24.09.1987, Side 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Loðna
Fundarlaun
til Amar
Ágœtis loðna. Verk-
smiðjurnar yfirbjóða
hveraðra. Sam-
keppni um hráefnið
Við fy.rstu sýn virðist loðnan
sem Örn KE kom með hingað
til Krossanesverksmiðjunnar í
gærmorgun, um 700 tonn, vera
ágætis loðna. Eins og við höfum
áður auglýst borgum við 3000
krónur fyrir tonnið, sem eru
nokkurs konar fundarlaun fyrir
fyrsta farminn sem hingað kem-
ur, sagði Ásbjörn Dagbjartsson,
rannsóknastofumaður hjá
Krossanesverksmiðjunni.
Nú þegar hafa fjögur loðnu-
skip hafið veiðar og tvö af þeim
mun þegar vera komin í land til
löndunar. Fyrir utan Örn KE er
Jón Kjartansson kominn til Eski-
fjarðar með 1100 tonn eftir sólar-
hringsveiði. Önnur skip sem eru
komin á miðin eru Guðrún Þork-
elsdóttir SU og Skarðsvík SH.
Lágmarksverð Verðlagsráðs
sjávarútvegsins fyrir tonn af
loðnu er 1600 krónur, og er þá
miðað við 16% fitu og 15% þur-
refni, en verðið hækkar um 74
krónur tonnið fyrir hvert umfram
prósentustig af fitu, en 158 krón-
ur fyrir þurrefni.
Þrátt fyrir þetta lágmarksverð
hafa Síldarverksmiðjur ríkisins
boðið 1800 krónur fyrir tonnið. í
raun virðist loðnuverð vera
frjálst, þrátt fyrir samþykkt
Verðlagsráðs um lágmarksverð.
______ grh
Völlurinn
Kani í hliðið
Minni samskipti
áhyggjuefni, segir
bandaríski mœjor-
inn. Vill sjá íslenska
sjónvarpið
„Það hefur verið til umræðu að
bæta hermanni í hliðið,“ sagði
Þorgeir Þorsteinsson, lögreglu-
stjóri á Keflavíkurflugvelli.
Þorgeir sagði að umferð ís-:
lendinga inn á hersvæðið hefði
minnkað mjög mikið eftir að nýja
flugstöðin var vígð. Sagði hann
að það væri mun auðveldara að
halda uppi eftirliti með ferðum
inn á Völlinn, en þangað færu
einungis þeir sem hefðu lögboðin
leyfi eða ættu erindi, en það væru
íslenskir starfsmenn hjá hernum
og hjá byggingarverktökum á
svæðinu, auk viðskiptavina
Landsbankans, en hann er enn
með útibú á svæðinu.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvort hermaður komi í hliðið. en
þótt af því verði þá verða íslensku
varðmennirnir áfram í hliðinu.
Bandaríkjamenn hafa tölu-
verðar áhyggjur af því að sam-
skiptin við Islendinga minnka
vegna nýju flugstöðvarinnar og
lýsti McVadon mæjor því yfir á
fundi með blaðamönnum sl.
þriðjudag að öll samskipti og
gagnkvæmar upplýsingar væru
jákvæðar. í kvöldverðarboði sem
hann hélt fulltrúum íslensku
pressunnar, sagðist hann hafa
mikinn áhuga á að útsendingar
íslenska sjónvarpsins færu inn á
kapalkerfi hermannanna. -Sáf
þlÓÐVILIINN
Fimmtudagur 24. september 1987 211. tölublað 52. árgangur
—
-
■ • r ■
Þjonusta
þína þágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Fjármögnunarleigur
Rangfærslur ráðherra
Kristján Óskarsson: Fullyrðingar um að erlend lán séu notuð til
bifreiðakaupa úr lausu lofti gripnar. Leiga okkar á bifreiðum til
atvinnurekstrar er auðvitað misnotuð
að er slæmt til þess að vita að
ráðherra fer með rangt mál.
Ég get ekki gert mér í hugarlund
hver lætur honum þennan upp-
spuna í té,“ sagði Kristján Ósk-
arsson, framkvæmdastjóri fjár-
mögnunarleigunnar Glitnis.
Kristján sagði að fullyrðingar
fjármálaráðherra og sögusagnir
um að erlendar lánveitingar upp
á milljarð hefðu verið notaðar til
bifreiðakaupa, væru algerlega úr
lausu lofti gripnar.
Jón Baldvin Hannibalsson
áætlar að erlendar lántökur á
vegum fjármögnunarleiga til
kaupleigusamninga einkaaðila
muni nema 2-3 milljörðum króna
á árinu og þar af fari einn
milljarður til kaupa á einkabif-
reiðum. Jón Sigurðsson, við-
skiptaráðherra hefur boðað hert-
ar reglur um lántökurnar vegna
þessa.
„Öll kaup á bifreiðum undir
þremur tonnum, sem fjármögn-
unarieigurnar annast fjármögnun
á, eru fjármagnaðar með inn-
lendu lánsfé. Það er ekki leyfilegt
að nota erlend lán til slíkra
kaupa,“ sagði Kristján.
Kristján sagði að fjármögnun-
arleigurnar hefðu heimild til að
leigja bifreiðar til atvinnurekstr-
ar. „Auðvitað vitum við að það er
misnotað að einhverju marki, en
við getum ekki komið í veg fyrir
það.“
Hjá Glitni renna 25% 80
kaupleigulánunum til blfreiða-
kaupa vegna atvinnustarfsemi.
-rk
Kristín Á. Ólafsdóttir og Stefanía Traustadóttir: Miðstjórnarfundurinn er nauðsynlegur undirbúningur að landsfundinum í nóvember.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins
Samstillum hugmyndimar
Fundurinn verður tvíþœttur. Annars vegar verður fjallað um starf Varmalandsnefndar en hins
vegar um skýrslu atvinnu- og efnahagsmálanefndar
„Þetta er síðasti fundur þessar-
ar miðstjórnar því að landsfund-
ur kýs nýja í nóvember. Það verð-
ur m.a. unnið að undirbúningi
fyrir stefnumörkun landsfundar.
Það er því mikilvægt að mæting
verði góð.“ Þetta sagði formaður
miðstjórnar Alþýðubandalags-
ins, Kristín Á. Ólafsdóttir, þegar
Þjóðviljinn ræddi við hana í gær
um hvers vænta mætti af fundi
miðstjórnar nú um helgina.
„Vinnan við að ná flokknum út
úr pattstöðu er því í fullum
gangi.“
Hvað er átt við með því?
„Það er m.a. átt við að félagar
samstilli hugmyndir sínar um það
hvað beri að gera til að gera
flokkinn allt í senn sterkari, trú-
verðugri og framsýnni. Varma-
landsnefndin hefur staðið fyrir
starfi til að gera valkostina ljós-
ari. Það þarf líka að skýra ýmis-
legt í stefnu flokksins.“
Geturðu nefnt einhver dœmi?
„Ég á við ýmis atriði í
landbúnaðar- og sjávarútvegs-
málum. Hið sama á við um kjara-
málin. Ég gæti líka nefnt afstöð-
una til vaxta og stjórnunar efna-
hagsmála.
Skýrsla atvinnu- og efna-
„Á þessu stigi vil ég ekkert um
það segja hvað við leggjum
fram,“ sagði Stefanía Trausta-
dóttir, talsmaður Varmalands-
nefndar, þegar hún var spurð
hvaða málefnaáherslur nefndin
mundi leggja til að miðstjórn vís-
aði til landsfundar.
„Varmalandsnefnd er að ham-
ast við að ganga frá tillögum sín-
hagsmálanefndar er ágætt tæki til
að feta sig áfram í umræðunni.
Það er ljóst að skýrslan í heild
verður ekki borin upp, hvorki í
miðstjórn né á landsfundi, enda
er hún ekki unnin á þann hátt. En
um. Þar verður getið þeirra mál-
efna sem við teljum að Alþýðu-
bandalagið eigi að leggja áherslu
á. Tillögur okkar taka mið af
þeim umræðum sem urðu á fund-
um nefndarmanna með félögum
um allt land.“
Hvað með könnun á innviðum
flokksins, naflaskoðunina marg-
umtöluðu?
einmitt vegna þess að hún fjallar
um ýmis mál, sem um eru deildar
meiningar, er hún gott tæki til að !
velta við steinum og gá hvað
leynist undir þeim.“
óp
„Varmalandsnefndinni ber að
skila úttekt sinni á þeim málum til
landsfundar. En hvað sem því líð-
ur er nauðsynlegt að halda áfram
pólitísku starfi. Því er ég viss um
að líflegar umræður munu verða
á miðstjórnarfundinum um þau
málefni sem leggja ber áherslu á í
málflutningi Alþýðubandalags-
ins. óp
Miðstjórn Alþýðubandalagsins
Litið fram á veginn
Tillögur Varmalandsnefndar taka mið afumrœðum áfundum
um allt land