Þjóðviljinn - 26.09.1987, Blaðsíða 7
Noregur
Frumkvöðull
jarðsettur
Mikillfjöldi manna
fylgdi Einari Gerhardsen
til grafar
Um 20 þúsund manns jöðruðu
götur miðborgar Oslóar í gær
er líkfylgd syrgjenda Einars Ger-
hardsens, fyrrum forsætisráð-
herra, fór hjá.
Gerhardsen lést á laugardag-
inn var á sjúkrahúsi í höfuðborg-
inni, níræður að aldri. Banamein
hans var hjartaslag.
Forsætisráðherrar Svíþjóðar,
Danmerkur og Finnlands fylgdu
Gerhardsen til grafar ásamt full-
trúum verkalýðsfélaga hvaðan-
æva úr Noregi, ættingjum og vin-
um.
Gro Harlem Brundtland for-
sætisráðherra flutti ræðu er for-
veri hennar var jarðsettur. „Ein-
ar Gerhardsen var ekki einungis
mesti stjórnmálaforingi og þjóð-
höfðingi okkar á þessari öld held-
ur einnig einn hinna bestu
drengja. Það féll honum í skaut
að leggja drög að og hrinda í
framkvæmd velferðarþjóðfélagi
eftir hamfarir kreppunnar miklu
á þriðja og fjórða áratugnum og
það var hann sem stjórnaði
endurreisn þess eftir fimm styrj-
aldarár.“
Gerhardsen var kommúnisti á
sínum yngri árum en söðlaði um
og gekk til liðs við Verkamanna-
flokkinn. Hann var kjörinn for-
maður hans árið 1923. Hann tók
virkan þátt í andspyrnuhreyfing-
unni er Noregur var hernuminn
af Þjóðverjum í síðari heimsstyrj-
öld. Gestapo hafði hendur í hári
hans og í tvö ár sat hann í þýskum
fangabúðum.
Gerhardsen var forsætisráð-
herra Noregs á árunum frá 1946-
1951 og aftur frá 1955-1965.
-ks.
Herforingjastjórnin í Nígeríu
ætlar að leggja völd sín í hend-
ur borgaralegri stjórn árið 1992
en fram að þeim tíma verður öll
stjórnmálastarfsemi bönnuð. Til-
gangur forseta landsins, Ibra-
hims Babangida hershöfðingja,
með þessu ráðslagi er að tryggja
að þeir sem haldið hafa um
stjórnartauma á umliðnum árum
og áratugum, jafnt úr hcr sem
utan hers, víki í eitt skipti fyrir öll
fyrir nýjum mönnum.
Babangida tilkynnti þessa
ákvörðun sína og félaga sinna í
herforingjastjórninni á miðviku-
daginn var. Ef þetta nær fram að
ganga munu ýmsir pólitíkusar, er
verið hafa í sviðsljósinu frá því
landið öðlaðist sjálfstæði frá
Bretum, ekki eiga afturkvæmt á
sjónarsviðið.
Ýmsum stjórnmálamönnum
hefur verið tilkynnt að þeir megi
ekki stússast í pólitík það sem
eftir er ævi þeirra og herbroddum
úr núverandi stjórn, þar á meðal
Babangida sjálfum, er óheimilt
að leita eftir kjöri í kosningum er
fram eiga að fara árið 1997, fimm
árum eftir að herforingjastjórnin
hefur útnefnt arftaka sína úr
röðum almennra borgara. Eftir
tíu ár verða margir þeirra er verið
hafa í framlínu nígerískra stjórn-
mála lagstir undir græna torfu og
harmar Babangida það lítt.
Fréttaskýrendur segja að nán-
ast öllum hafi verið þokað til hlið-
ERLENDAR FRÉTTIR
Slésvík-Holtsetaland
Forsœtisráðherra Slésvíkur-Holtsetalands
sagði afsér embætti ígœr í kjölfar
hneykslismáls
Uwe er maður nefndur Barsc-
hel. Hann var forsætisráð-
herra Slésvíkur-Holtsetalands
allar götur frá árinu 1982 og þar
til í gær að hann sagði af sér vegna
ásakana á hendur honum um að
hafa ieikið Ijótan leik fyrir þing-
kjör er fram fór þarlendis fyrir
skemmstu. Barschel er félagi í
Kristilegum demókrataflokki
Helmuts Kohls kanslara sam-
bandslýð vcldisins.
Það var fyrrum aðstoðarmaður
Barschels sem kom að máli við
blaðamenn vikuritsins „Der
Spiegel" fyrir nokkru og sagði
sínar farir ekki sléttar. Reiner
Pfeiffer staðhæfði að nokkru
áður en gengið var að kjörborði
hafi Barschel skipað honum að
ráða nokkra einkaspæjara í þjón-
ustu sína og gera þeim að þefa
uppi hvaðeina úr einkalífi
oddvita jafnaðarmanna, Björns
Engholms, sem nota mætti gegn
honum í gulri pressu. Ennfremur
bar Pfeiffer að senda nafnlaust
bréf til skattyfirvalda og bera
Engholm skattsvik á brýn.
Að auki tjáði heimildarmaður
þessi Spegilsmönnum að Barsc-
hel hefði fýrirskipað sér að koma
fyrir hlerunartækjum á sinni eigin
skrifstofu og saka síðan Engholm
um njósnabrölt.
Vitaskuld fór allt í háaloft í
Vestur-Þýskalandi er „Der Spi-
egel“ barst til lesenda. Barschel
bar af sér allar sakir en í gær efndi
hann semsagt til fundar með
fréttamönnum í Kiel, höfuðstað
Slésvíkur-Holtsetalands, og tjáði
þeim að hann segði af sér embætti
forsætisráðherra.
Hann kvaðst taka á sínar herð-
ar alla ábyrgð á „leynibruggi
manns er verið hefði blaðafulltrúi
hans um skamma hríð.“ En hann
sagðist ekki hafa veitt Pfeiffer
nein fyrirmæli um að vinna skít-
verk.
„Staðreyndin er óneitanlega sú
að Pfeiffer skipulagði þessi
myrkraverk sín í upplýsingaskrif-
stofu forsætisráðuneytisins... því
hlýt ég að bera pólitíska ábyrgð á
þeim þótt ég hafi aldrei haft hug-
„Watergate í Kiel.“ Forsíða vikuritsins „Der Spiegel" sem út kom þann 14.
september síðastliðinn og hefur nú leitt til afsagnar Uwe Barschels.
mynd um hvað var á seyði.“
Kohl kanslari er nú á alþjóða-
fundi íhaldsmanna í Vestur-
Berlín. Barschelsskandallinn
hefur ekki orðið til að gleðja
hann einsog menn geta gert sér í
hugarlund en í gær vildi hann
ekki tjá sig um afsögn flokks-
bróður síns.
Ekki eru liðnar nema tvær vik-
ur frá því kristilegir demókratar,
undir leiðsögn Barschels, töpuðu
miklu fylgi í Slésvík-
Holtsetalandi sem jafnan hefur
verið öruggt vígi þeirra. Þegar
talið hafði verið uppúr kjörk-
össum kom í ljós að jafnaðar-
menn höfðu skotið þeim ref fyrir
rass og fengið 36 menn kjörna á
þing á móti 33 kristilegum og 4
frjálsum demókrötum.
Með fulltingi þeirra síð-
astnefndu tókst Barschel að lafa í
ernbætti í tvær vikur til viðbótar.
Hann segist nú ætla að höfða mál
gegn Pfeiffer vini sínum og viku-
ritinu er birti frásagnir hans. En
flokksbræður hans í Kiel verða að
fara að svipast um eftir nýjum
leiðtoga. -ks.
Nígería
setftir í stjómmálabann
Babangida forseti hyggst tryggja að alger umskipti verði íforystuliði
landsins og gamlir jálkar eigi ekki afturkvœmt í valdastóla
ar er reiknað hafði verið með að
skipuðu næstu borgarastjórn.
„Forsetinn hefur þurrkað alla út
af umsækjendalistanum,“ skrifar
ritstjóri blaðs eins í höfuðborg-
inni Lagos.
í hópi þeirra sem svo grátt eru
leiknir er Moshood nokkur Abi-
ola, moldríkur blaða- og bókaút-
gefandi og þekktasti stjórnmála-
skörungur Yoruba ættbálksins úr
vesturhéruðum landsins.
Hann er fyrrum félagi í fram-
kvæmdastjórn Þjóðarflokksins
nígeríska. Sá flokkur laut forystu
Shehu þess Shagari sem var for-
sætisráðherra borgarastjórnar-
innar sem fór með völd fram til
ársins 1983 að herinn steypti
henni af stóli.
Shagari hlaut einnig lífstíðar-
bann og samt er hlutskipti hers-
höfðingjans er rændi frá honum
völdum, Mohammed Duhari.
Tveir aðrir hershöfðingjar er far-
ið hafa með æðstu völd eru enn-
fremur útilokaðir, þeir Yakubu
Gowon og Olusegun Obasanjo.
Babangida sagði á miðvikudag
að brýna nauðsyn hefði borið til
að banna stjórnmálabrölt þessara
karla sem allir eru alræmdir fyrir
spillingu og gerræðislega stjórn-
arháttu. Markmið hans væri að
greiða götu fyrir nýjum leið-
togum sem létu heiðarleika og
hag almennings sitja í fyrirrúmi.
Helsti talsmaður hans, Duro On-
adule, rökstyður ákvörðun hús-
bónda síns á þennan hátt: „Það
Krossfarinn sjálfur, Ibrahim Ba-
bangida hershöfðingi.
voru Nígeríumenn sjálfir sem
kröfðust þess að pólitíkusarnir
yrðu settir í bann. Þeir vilja nýtt
blóð.“
Á ýmsu hefur gengið í tuttugu
og sjö ára gamalli sögu landsins.
Vanhæfum hvítflibbum hefur
með jöfnu millibili verið ýtt fram
af hengifluginu af ekki síður van-
hæfum herforingjum. Mannskæð
borgarastyrjöld skók Nígeríu á
ofanverðum sjöunda áratugnum.
Spilling valdhafa og embættis-
manna er landlæg.
Þó þykir stjórn Babangidas
vera undantekning frá þeirri
reglu. Rithöfundurinn heimsk-
unni, Wole Soyinka, er Nígeriu-
búi og eini Afríkumaðurinn er
hreppt hefur bókmenntaverð-
laun Nóbels. Soyinka og valdhaf-
ar hafa oft eldað grátt silfur sam-
an og hann var fyrr á árum tíður
gestur í dýflissum þeirra.
í nýlegu viðtali við blaðantann
bandaríska vikuritsins
Newsweek fórust honum orð á
þessa leið um stjórn Babangidas:
„Það sem veldur því að ég bind
vonir við núverandi stjórn er ein-
læg viðleitni hennar í þá veru að
halda í heiðri almenn
mannréttindi í þjóðfélagi okkar.
Hún hefur vakið trú manna á því
að lög séu marktæk og það heyri
sögunni til að ráðamenn hunsi
þau og fangelsi menn og pyndi að
vild sinni... Þótt þessari ríkis-
stjórn takist ekki að leiða nema
helming áforma sinna til lykta þá
munu menn minnast hennar á já-
kvæðan hátt.“
Ýmsir efast um að tilskipun
forsetans nái fram að ganga, að
minnsta kosti átakalaust. Sjálfur
hyggst Babangida sitja við völd
næstu fimm árin og búa í haginn
fyrir eftirkomendurna. En margt
getur gerst í jafn óstöðugu
þjóðfélagi og því nígeríska á
fimm árurn.
„Fjölmargir valdamiklir menn
er hafa mikilvæg sambönd jafnt
innanlands sem utan eiga vafa-
lítið bágt með sætta sig við útilok-
un frá stjórnmálabrölti. Ef marg-
ir slíkir taka höndum saman gæti
það reynst stjórninni skeinu-
hætt,“ segir spekúlant nokkur í
Lagos.
Vonbrigðin eru náttúrlega
mikil því margir bannmanna
höfðu hugsað sér gott til glóðar-
innar að hefja á ný stjórnmálaaf-
skipti árið 1990 þegar slíkt verður
öðrum en þeim frjálst. Sumir
hafa jafnvel pungað út með stór-
ar fjárfúlgur til undirbúnings
blaðaútgáfu og til að afla sér vin-
sælda í ýmsum fátækum þorps-
samfélögum.
En þótt Babangida takist að
halda aftur af valdagírugum
bannmönnum mun hann eiga í
mesta basli með hina öflugu fjöl-
miðla í Nígeríu. Stjórnendur
þeirra láta allsekki vel að stjórn.
Samkvæmt fyrirmælum forsetans
er þeim stranglega bannað að
birta ellegar flytja svo mikið sem
eitt einasta orð sem bannmenn
láta út úr sér. Þeir sem voga sér að
óhlýðnast þessum fyrirmælum
verða dregnir fyrir herdómstóla
og eiga fimm ára fangelsisvist yfir
höfði sér.
Haft hefur verið á orði að þetta
bendi ekki til þess að forsetinn
beri mikla virðingu fyrir
mannréttindum. Sjálfursegir Ba-
bangida þetta fórn sem þjóðin
verði að færa eigi Nígería að
brjóta sér leið út úr þeim
ógöngum sem landið er nú í og
ógna fullveldi þess. -ks.
Laugardagur 26. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7