Þjóðviljinn - 26.09.1987, Síða 12
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIUINN
Laugardagur 26. september 1987 213. tölublað 52. árgangur
Þjónusta
íþínaþágu
0
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Útvegsbankinn
Ekkert
að gerast
Útvegsbankamálið
óútkljáð íþingbyrjun.
SÍS beitir áhrifum sínum
íAlþýðuflokknum tilað
hafa áhrifá Jón Sigurðs-
son
Flest bendir nú til þess að Út-
vegsbankamálið verði óút-
kljáð þegar nýtt þing kemur sam-
an í október. „Það er engin lausn
sjáanleg og helmingaskiptin
koma ekki til greina,“ sagði hátt-
settur maður í Sambandinu.
Einsog lesendur muna gaf Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherra
fulltrúum Sambandsins og KR-
ingum frest til mánaðamóta til að
útkljá málið sín á milli. Eftir sam-
eiginlegan fund með viðskipta-
ráðherra fyrr í mánuðinum gaf
Jón í skyn að málin þokuðust í
rétta átt.
„Það var ákveðið á fundinum
að Jón myndi tala fyrir hönd okk-
ar fundarmanna og í sjálfu sér
vorum við sáttir við það, því það
var ekki frá neinu að segja. Það
gerðist ekkert á fundinum,“ sagði
Sambandsmaður sem sat fund-
inn.
Það eina sem gæti orðið til þess
að Jón afgreiddi málið fyrir þing-
byrjun er þrýstingur frá krötum,
en Sambandið beitir nú áhrifum
sínum innan Alþýðuflokksins til
að Jón Sigurðsson gangi að til-
boði SÍS, eða viðurkenni kaupin
einsog Sambandsmenn líta á mál-
in. -Sáf
Það mæðir mikið á lögreglunni í Reykjavík þessa dagana við að reyna eftir mætti að sporna við hraðakstri á götum
borgarinnar. Mynd: Sig.
Átak gegn hraðakstri
500 ökumenn kærðir
Ríkharður Björgvinsson varðstjóri: 50 ökumenn hafa verið sviptir
ökuskírteinisamstundis. Átak lögreglunnargengið vonum framar.
Markmiðið að fœkka slysum og óhöppum í umferðinni
Frá byrjun september, þegar
við hófum umferðarátakið,
höfum við kært um 500 ökumenn
fyrir of hraðan akstur. Þar af
hafa 50 ökumenn verið sviptir
ökuskírteini samstundis. Að jafn-
aði þurfum við að hafa afskipti af
um 20 ökumönnum á dag vegna
brota á hámarkshraða. Þetta er
fólk á öllum aldri en þó lítillega
meira á aldrinum 20-25 ára, segir
Ríkharður Björgvinsson, varð-
stjóri á umferðardeild lögregl-
unnar í Reykjavík.
Að sögn Ríkharðs hafa um 70-
80 ökumenn verið kærðir fyrir að
aka yfir á rauðu Ijósi og vegna
brota á stöðvunar- og biðskyldu.
Þá hefur lögreglan klippt númer
af um 400 bifreiðum og þurft að
hafa afskipti af 60-70 bifreiðum
vegna trassaskapar við umskrán-
ingu og eigendaskipta.
Fastar sektir við broti á
stöðvunar- og biðskyldu eru 1000
krónur og vegna aksturs yfir
gatnamót á rauðu ljósi 3000 krón-
ur. Við önnur brot svo sem brot-
um á hámarkshraða, fer sektin
eftir því hve hraðinn er mikill og
einnig hitt hvort viðkomandi er
að fremja fyrsta brot eða hvort
hann hefur komið við sögu um-
, ferðarlagabrota sí og æ.
„Við erum tiltölulega ánægðir
með hvernig gengið hefur í átaki
lögreglunnar í umferðarmálun-
um og við höfum orðið varir við
að ógætilegur akstur hefur
minnkað að mun á götum borgar-
innar. En markmið okkar er að
reyna að fækka slysum og óhöpp-
um í umferðinni eins og kostur
er. Það hefur verið mikið hringt
til okkar og við beðnir um að hafa
óeinkennisklædda lögreglumenn
og bíla við umferðareftirlit og
reynum að sinna því eftir efnum
og ástæðum hverju sinni," sagði
Ríkharður Björgvinsson, varð-
stjóri í umferðardeild lögregl-
unnar.
- grh
Síldarvertíð
Samið við
Finna og Svía
A ukin fyrirframsala
til Finnlands og
Svíþjóðar. Enn
ósamið við
Sovétmenn
Sfldarútvegsnefnd hefur gengið
frá samningum við sfldar-
kaupendur í Finnlandi og Svíþjóð
um fyrirframsölu á 50 þúsund
tunnum af hausskorinni og slóg-
dreginni sfld og 9 þúsund tunnum
af flakaðri sfld. Um er að ræða
fjölmargar tegundir og verkunar-
aðferðir en þessir samningar
samsvara um 83 þús. tunnum af
heilsaltaðri sfld.
Þetta er um fjórðungi meira en
selt var til þessara landa með
fyrirframsamningum á sl. hausti.
Samið var um sama verð og í
fyrra í sænskum krónum og
finnskum mörkum.
Enn hefur ekki tekist sam-
komulag við Sovétmenn um
fyrirframsölu en Sovétríkin eru
langstærsti kaupandi af saltsíld
héðan á undanförnum árum.
Samningsumleitunum við aðra
hugsanlega kaupendur er enn
haldið áfram.
Síldarvertíð hefst í næsta mán-
uði en Hafrannsóknarstofnun
hefur lagt til að aflinn á
haustvertíð fari ekki yfir 70 þús.
tonn. Á vertíðinni í i fyrra
veiddust um 65 þús. tonn,
-lg-
Sértilboð á 1 kílóapakkningum til l.okt.