Þjóðviljinn - 06.10.1987, Síða 6
FLÓAMARKAÐURINN
Óska eftir a kaupa
litsjónvarp, einig „fifties" Ijósast-
æði. Uppl. i síma 681936.
Karlmannsreiðhjól
Óska eftir að kaupa ódýrt en sæmi-
lega gott karlmannsreiðhjól. Ef þú
átt eitt slíkt sem þú vilt selja þá vins-
amlegast hringdu í síma 15785.
Herbergi til leigu
Herbergi til leigu fyrir geymslu á
húsgögnum eða hreinlegri vöru.
Rakalaust, bjart og upþhitað. Upp-
lýsingar I síma 681455.
Rúta til sölu
15 manna nýleg rúta til sölu. Sími
91-27180.
Góður bíll til sölu
Til sölu Fiat 127 árg. '85. Einstak-
lega sparneytinn og þægilegur bíll I
toppstandi. Vetrardekk fylgja. Til
greina koma skipti á ódýrari. Upp-
lýsingar I síma 681310 kl. 9-17 og I
síma 13462 e. kl. 19.
Síamskettlingur óskast
á gott kattavinaheimili. Upplýsingar
í síma 622998.
Kaupi alls kyns
gömul húsgögn
Mega vera biluð og eða með ónýtu
áklæði. Einnig óska ég eftir því að
kaupa ritsöfn, gamalt leirtau og
glös. Upplýsingar í síma 622998 e.
kl. 19.
Til sölu
Cortina '74 1600 í góðu ástandi.
Selst ódýrt. Sími 46623.
Til sölu
barnakojur. Sími 46623.
ísskápur
Viltu gefa eða selja ísskáp? Vins-
amlegast hringdu í síma 10060.
Svalavagn óskast
fyrir lítið. Sími 83191 e. kl. 17.
Vantar þig dagmönnu?
Get bætt við mig barni frá kl. 7.30-
14. Nánari upplýsingar veittar I
síma 31884.
Til sölu
Datsun 120Y '78 skoðaður '87,
vetrardekk og útvarp, góður bíll á
góðu verði. Einnig Austin Allegro
'78 I varahluti. Á sama stað óskast
PC tölva og húsgögn af ýmsu tagi
m.a. í barnaherbergi. Sími 18475.
Til sölu
Acorn Electron+3 tölva með disk-
ettudrifi, minnisstækkun, innbyggð-
ri ritvinnslu og leikjum. Verð kr.
8.000.- Einnig skáktölva, Chess
Challenger SC9, verð kr. 3.500.- Á
sama stað óskast keypt He-man
dót. Uppl. í síma 641613 e. kl. 19.
Góð Mazda
til sölu eftir árekstur, lítið keyrð.
Uppl. í síma 685144 og 681993.
Litli páfagaukurlnn
okkar
flaug út um gluggann á Holtsgötu
fimmtudaginn 1. okt. Ef svo heppi-
lega vill til að einhver hafi náð hon-
um eða viti um hann þá vinsamlega
hafið samband í síma 25104.
Svefnbekkir - hjól
- rafmagnsritvél
Til sölu lítill, vel meðfarinn svefn-
bekkur 150 cm og notað Winther
barnahjól 16". Einnig fæst gefins
aamall svefnsófi, áklæði sæmilegt.
Á sama stað óskast keypt raf-
magnsritvél. Uppl. í síma 43614 e.
kl. 19.
Óska eftir svalavagni
helst gefins. Sími 42346.
Svalavagn óskast
Símar 13681 og 622790
2ja sæta sófi óskast
sími 13681 og 622790.
Rauð Electrolux
uppþvottavél
til sölu. Uppl. í síma 77392.
Óska eftir góðri LÖDU
1500 eða 1600, ekki station, '86
eða '87 módel. Uppl. I síma
681993.
Barnapössun
Barngóð stúlka óskast til að gæta
Sigurborgar (4ra ára) nokkur kvöld í
mánuði. Við búum á Kambsvegi.
Vinsamlegast hringið I síma 32711.
3ja gíra
kvenmannsreiðhjól
fæst gefins. Uppl. ísíma 681310frá
kl. 9-17.
Vil kaupa
lítinn sófa, sófaborð og stóla. Uppl. í
síma 31519.
Gömul eldhúsinnrétting
fæst gefins I dag. Sí,mi 39672.
Stór, lítið notaður
djúpsteikingarpottur til sölu á kr.
3.000.- Sími 46942 á kvöldin.
Naggrisunga
vantar heimili. Hann kostar aðeins
600 kr. og er mjög fallegur. Uppl. I
síma 22424 e. kl. 13.
Ódýr frystikista
310 lítra Electrolux frystikista selst
ódýrt. Sími 19513.
Óska eftir að kaupa
ódýra og góða ryksugu. Uppl. í
síma 37537.
Vefstóll til sölu
danskur. Sími 17385.
Tvíburar á götunni
Fjögurra manna fjölskylda óskar
eftir 3-4 herbergja íbúð, helst í vest-
urbæ. Góðri umgengni, reglusemi
og skilvísum greiðslum heitið. Uppl.
í síma 622154 eða á Þjóðviljanum í
síma 681333 (Elísabet).
Ódýr byrjun
Gott tækifæri fyrir þá sem eru að
byrja búskap til að fá ódýra muni í
innbúið. Búslóðtilsölu. Sími 13894.
Handunnar, rússneskar
tehettur og matrúskur
í miklu úrvali. Póstkröfuþjónusta.
Ath. Get komið með vörurnar á t.d.
vinnustaði og í saumaklúbba ef
óskað er. Uppl. I síma 19239.
Rúm gefins
Hjónarúm með áföstum náttborð-
um en án dýna fæst gefins ef ein-
hver vill hirða það. Sími 622542.
Halló!
Bráðvantar íbúð, litla eða stóra.
Erum 2 í heimili, fullorðin og barn.
Góðri umgengni og skilvísum
greiðslum heitið. Uppl. í síma
50751.
Til sölu eru eftirtalin
húsgögn og munir
fyrir 300 kr. hver: 13" felgur,
strauborð, sófaborð og forn skíði á
kr. 200.-. Ennfremur gardínubrautir
af ýmsum lengdum sem fást fyrir
það sem viðkomandi vill greiða.
Loks alveg stórkostlegir leir-
þostulínsmunir svo sem salerni
sem er ókeypis þó það sé I
fullkomnu lagi og matardiskar sem
fást fyrir lítið. Þá mætti einnig tala
um tæki til þess að ná matnum af
diskunum svo sem gaffla. Allar
nánari upplýsingar er að fá í síma
30672.
Þjóðviljann vantar dugmikið
sölufólktil starfa. Vinnutími
erákvöldinogum helgar.
Góð laun fyrir duglegt fólk.
Hafið samband við Hörð
í síma 681333.
þJÓÐVIUINN
Opið bréf
til ritstjórnar Þjóðviljans
Það hlýtur að hvfla allnokkur
pólitísk ábyrgð á ritstjórn Þjóð-
viljans, þegar hún kallar lið sitt
upp f lofthýsið og leggur á ráðin
hvernig blaðið fái bezt beitt
hjörvum sínum í baráttunni fyrir
þjóðfrelsi og sósíalisma í þessu
landi. Valið hlýtur að vera erfitt,
því úr öllum áttum er að vinnandi
fólki og þjóðfrelsinu sótt: stofn-
anir samfélagsins eru á útsölu
handa auðvaldinu, kór hátekju-
manna rekur upp öskuróp við
minnstu leiðréttingu verkalauna,
erlend hermaskína setur orða-
laust upp hverja vígstöðina af
annarri um vestur- og austurland.
Því er það ekki að ástæðulausu að
ritstjórnin kalli regin sín á rök-
stóla: Hvað má nú til varnar
verða...?
Og svarið kom. Yfir þverar
forsíður Þjóðviljans síðastliðinn
miðvikudag og fimmtudag var á
vandanum stungið: Listasafn
þjóðarinnar er að verða of fínt og
of dýrt. Það er verkurinn mikli.
„Kostnaður úr böndunum“ segir
í fimm dálka fyrirsögn á forsíðu
30. sept. „Áætlanir hvellsprungn-
ar“ segir á sama stað 1. október.
Með fimbulhneykslun er það haft
eftir ónafngreindum mönnum að
„aðeins það alfínasta er nógu
fínt í þetta hús og hvergi hefur
verið sparað í krónum og
aurum“. Og til þess að gera fólki
enn betur grein fyrir þessari þjóð-
arvá, er næsta dag ítrekað að
listasafnið nýja verði við opnun
orðið álíka dýrt og hinn gamli
skrifstofuhjallur Sambandsins
við Sölvhólsgötu, sem ríkið ætli
nú að kaupa. Með þau kaup (og
væntanlega dýrar breytingar) er
auðvitað allt í lagi, því þau koma
íslenzkri þjóðmenningu ekkert
við, en þjóðsafn íslenzkrar listar,
það er alvarlegra mál.
Nú þurfa menn ekki einu sinni
að vera ritstjórar til þess að sjá í
hendi, að listasafn hlýtur að vera
margfalt dýrara en skrifstofuhús.
Birta, hiti, raki, sýningarveggir,
gólf sem hundruð þúsunda troða,
listaverkageymslur, fegurð um-
hverfis... allt eru það miklu dýr-
ari hlutir en nokkurt kontórhús
þarf til sinna nota. Og enn er það
undan dregið, sem jafnvel rit-
stjórar ættu að vita, að listasafnið
eignaðist Glaumbæ fyrir eigið fé,
gjafafé og arf, og til nýbyggingar-
innar fóru að nokkru leyti sjóðir
þess sjálfs, svo sem hin höfðing-
lega gjöf Kjarvals, er hann lagði ■
eigið húsbyggingarfé sitt til List-
asafns íslands.
f eina tíð voru þeir menn við
Þjóðviljann, svo sem Kristinn E.
Andrésson og Magnús Kjartans-
son, sem töldu íslenzka þjóð-
menningu meira en nokkurra.
króna virði. Með yddum penna
sínum réðust þeir gegn óvinum
alþýðunnar og hverskonar púka-
hætti þegar menningarlíf okkar
átti undir högg að sækja. Þá
flykktust lista- og menntamenn
að hreyfingunni og litu til Þjóð-
viljans sem fremsta málsvara lýð-
menningar í landinu. En nú, þeg-
ar allt er í uppnámi í kringum
okkur, lífskjör manna, hernaðar-
umsvif, friðarmálin og atóm-
mengun hafsins, þá er niðurstað-
an í lofthýsinu sú, að bygging yfir
listasafn þjóðarinnar, nú loks, á
103. afmælisári þess, sé sjálft hið
stóra hneyksli!
Sem lesandi Þjóðviljans vil ég
mótmæla slíkri fölsun alls mats.
Blaðið kennir sig við jafnrétti.
Jafnrétti er meðal annars það, að
öllum almúga sé gert kleift að
njóta listmenningar. Það kennir
sig við sósíalisma. Sósíalismi er
með öðru það, að hefja vinnu-
, stéttirnar til vitundar um þann arf
sem þær eiga, en öll íslenzk list er
úr þeim akri sprottin. Og blaðið
kallar sig málgagn verkalýðs-
hreyfingar. Það ætti að fela í sér
sókn og vörn í kjara- og menning-
armálum hennar, en ekki að
hrópa: Sjáið fuglinn! þar sem
enginn fugl er, meðan úlfarnir
eru að hremma hana.
Björn Th. Björnsson
Attiugasemd btaðamanns
Það er misskilningur að Þjóð-
viljinn sé að agnúast yfir því að
Listasafn íslands eignist hús yfir
starfsemi sína, slíkt er meira en
sjálfsagt og menningu þjóðarinn-
ar bráðnauðsynlegt. Fréttir Þjóð-
viljans af byggingu Listasafnsins
hafa enda fjallað um allt annað.
Þær hafa fjallað um hlut embætt-
ismanna og stjórnmálamanna
sem hafa haft yfirumsjón með
byggingunni.
Listasafn íslands er dýr fram-
kvæmd og undrar það engan.
Einsog Björn Th. bendir réttilega
á þá þarf listasafn að vera þannig
útbúið að hægt sé að varðveita
þar listaverk án þess að hætta sé á
að þau skemmist, auk þess sem
fagurfræðileg sjónarmið skipta
einnig máli. Þá hefur Listasafn
íslands verið mjög lengi í bygg-
ingu og hefur það aukið kostnað
við bygginguna.
Þrátt fyrir þetta hlýtur að verða
að gera þær kröfur til hönnuða og
annarra sem hafa umsjón með
byggingunni að þeir geri kostnað-
aráætlanir sem standast. Einsog
fram hefur komið þá stenst ekki
lengur áætlun sem gerð var í vor.
Vantar þar upp á tug milljóna. Þá
höfðu eldri áætlanir einnig
sprungið áður. Þetta eru kannski
smápeningar í samanburði við
margt annað bruðl í þjóðfé-
laginu. Engu að síður er þetta
frétt sem ritstjórn Þjóðsviljans
fannst ástæða til að flytja.
Það ættu allir að vera sammála
um að Listasafn íslands eignist
veglegt hús yfir listaverkasafn
þjóðarinnar. Einmitt þessvegna
er mikilvægt að þannig sé staðið
að verkinu að enginn blettur falli
á. Því miður hefur nú komið í ljós
að vinnubrögð við undirbúning
verksins hafa ekki verið nógu
vönduð og nákvæm. Það hörm-
um við en fögnum því að loksins
rennur upp sú langþráða stund að
Listasafn íslands opnar í eigin
húsnæði.
-Sáf
6 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 6. október 1987