Þjóðviljinn - 06.10.1987, Síða 11

Þjóðviljinn - 06.10.1987, Síða 11
ERLENDAR FRÉTT1R Danmörk Nýr krataforingi SvendAuken tók við formennsku í Jafnaðarmannaflokknum um helgina Félagar danska Jafnaðar- mannaflokksins kusu sér nýj- an formann á laugardag í stað gömlu kempunnar Ankers Jörg- ensens sem ákvað að láta af emb- ætti eftir ósigur flokksins í þingk- jöri í öndverðum síðasta mánuði. Ekki komu þeir neinum á óvart því fyrir valinu varð formaður þingflokksins og varaformaður- inn Svend Auken. Auken er 44 ára gamall fyrrum háskólakenn- ari í stjórnmálafræðum og var at- vinnumálaráðherra í minnihluta- stjórn forvera síns á árunum 1977-1983. Auken þykir vera vinstra megin við miðju í flokkn- um og heyrir til hópi miðstéttar- uppa sem mikið hafa látið að sér kveða meðal jafnaðarmanna á undanförnum árum. Danska þingið kemur saman til Svend Auken, nýkjörinn formaður danska Jafnaðarmannaflokksins, hlýðir á mál forvera sfns, Ankers Jörgensens. fyrsta fundar í dag eftir þingkjör- ið. Stjórn Pauls Schluters virðist hanga á horriminni og óvíst hvort hún á langa lífdaga fyrir höndum. Það er kunnara en frá þurfi að segja að stjórnarflokkarnir fjórir töpuðu samtals allverulegu fylgi í kosningunum og hafa nú aðeins umráð yfir 70 af 179 sætum á lög- gjafarsamkundunni. Schlúter þarf því að reiða sig á fulltingi tveggja tlokka utan stjórnar, Framfaraflokks Glistrupsliða og „Róttæka vinstriflokksins." Þessir tveir flokkar sitja ekki á sárs höfði og hefur leiðtogi þess síðarnefnda neitað að segja af eða á um það hve mikils stuðn- ings stjórn er reiðir sig á Fram- faraflokkinn geti vænst af hans hálfu á vetri komanda. Það getur því vel farið svo að Danir verði að ganga að kjör- borðinu á ný í vetur. Auken sagði í fyrradag að þjóðin myndi ekki taka slíku fagnandi. En tvær skoðanakannanir sem birtar voru á sunnudag gáfu það til kynna að yrði kosið þegar í stað gæti svo farið að Jafnaðarmannaflokkur- inn og Sósíalski þjóðarflokkurinn hrepptu meirihluta á þingi. -ks. y Tíbet Asakanir ganga á víxl Kínverskir ráðamennfullyrða að Dalai Lama beri ábyrgð á ofbeldisöldunni í Tíbeten fulltrúi hans vísaðiþvíábug ígær Fulltrúi andlegs og „veraldlegs“ leiðtoga Tíbetbúa, Dalai Lama, sem nú býr í útlegð í Nýju- Delhi á Indlandi, þvertók fyrir það í gær að hans hátign bæri ábyrgð á ofbeldisverkum í höfuð- borg Tíbet, Lhasa, sem orðið hafa að minnsta kosti 19 manns að bana á undanförnum dögum. „Tíbetbúar bera enga ábyrgð á ofbeldisverkunum í Lhasa og síst af öllum hans heilagleiki,“ sagði talsmaður Lamas í gær. „Dalai Lama hafði ekki hugmynd um hvað fram fór þegar átökin áttu sér stað,“ bætti hann við og sagð- ist harma hvað orðið hafði. í gær stóð skrifað í leiðara Dag- blaðs alþýðunnar í Peking að það væri „engin tilviljun" að upp- hlaup hefði orðið í Tíbet þann fyrsta október síðastliðinn. Það hefði átt sér stað aðeins viku eftir að Dalai Lama hefði átt fund með bandarískri þingnefnd og látið svo ummælt að ekki kæmi annað til greina en að Tíbet endurheimti sjálfstæði sitt. Um þessar fullyrðingar fórust talsmanni Lamas svofelld orð: „Þetta er alrangt. Hugmyndir Dalais Lamas eru í anda friðar og sátta. Kínverska stjórnin ber alla ábyrgð á því sem átt hefur sér stað í Tíbet.“ Hann gat þess ennfremur að mun fleiri hefðu fallið á átökun- um en kínverska stjórnin vildi vera láta en hún segir sex manns hafa látið lífið. En hann bætti því við að nú væri erfitt um vik að afla sér upplýsinga frá Lhasa þar eð kínverskir hermenn hefðu lokað öllum leiðum út úr borginni og slegið hring um klaustur. Talsmaðurinn sagði átökin á fimmtudaginn hafa hafist með þeim hætti að munkar og al- mennir borgarar hafi farið í friðsamlega mótmælagöngu en lögreglumenn hafið skothríð á þá og handtekið fjölda manns. „Skiljanlega svaraði fólkið of- beldi með ofbeldi en ég vil ítreka að við hörmum að ofbeldisverk voru framin.“ -ks. Dalai Lama. Kveðst ekki hafa hvatt einn né neinn til ofbeldis- verka í Tíbet. Bandarísk tvíundarvopn Ógna samningshorfum Sovétmennsýndu um helginafulltrúum 41 ríkis svœði sem notað hefur verið við tilraunir með efnavopn Ál Mikil verðhækkun r Alverð hækkaði mjög mikið á Málmmarkaði Lundúna (LME) í gær eftir að menn upp- götvuðu skyndilega að framboðið var fremur lítið og fengu kaupæði. Á1 sem ekki fæst afgreitt fyrr en þremur mánuðum eftir að kaup fara fram seldist á 1,150 sterlings- pund (um 73 þúsund íslenskar krónur) hver smálest. Það kvað aðeins vera hænufeti frá hæsta verði sem nokkru sinni hefur fengist fyrir ál en það var í janúar árið 1984 að 1,160 pund (um 74,660 krónur) fengust fyrir tonnið. Að sögn málmbraskara í Lund- únum benda öll sólarmerki til þess að framundan sé gósentíð fyrir álframleiðendur. Verð á kopar, sinki og nikkel kvað enn- fremur hafa hækkað á LME í gær. -ks. Sovéskur hershöfðingi, Anatolí Kuntsevich, lét svo ummælt í gær að áform Bandaríkjastjórnar um að heíja framleiðslu á svo- nefndum tvíundarvopnum í lok þessa árs gætu orðið til þess að samningaviðræður um að hætta framleiðslu efnavopna og eyðingu birgða færu út um þúfur. Tvíundarvopn kváðu vera efnavopn í tveim hlutum sem ekki verða virk nema þeim sé skeytt saman. „Framleiðsla tvíundarvopn- anna mun flækja mjög allar við- ræður risaveldanna í Genf um eyðingu efnavopna. Hún gæti jafnvel haft það í för með sér að þær færu út um þúfur, nú þegar svo stutt virðist í það að samning- ar takist.“ Hershöfðinginn lét svo um- mælt á blaðamannafundi sem haldinn var degi eftir að Sovét- menn heimiluðu fulltrúum 41 þjóðar að skoða svæði sem notað hefur verið við tilraunir með efnavopn. Fram að þessu hefur engum óviðkomandi verið heim- ilt að stinga upp kollinum í nánd Shikhany við Volgubakka. Yfirmaður þeirrar deildar sov- éska hersins er hefur efnavopn á sinni könnu, Vladimir Pikalof hershöfðingi, ávarpaði einnig fundinn og fullyrti að einsog mál- um væri komið ættu Bandaríkja- menn og Sovétmenn álíka mikið af efnavopnum í búrum sínum og vísaði á bug fullyrðingum Banda- ríkjamannsins Max Friedersdorf þess efnis að hinir síðarnefndu hefðu verulega „yfirburði" á því sviði. -ks. y Grœnland Anægjulegt Yfirlýsingar Gorbatsjofs ísamrœmi við stefnu heimskautsþjóða Yflrlýsingar Gorbatsjofs í Múrmansk bera vitni um ánægjulega þróun sem er í sam- ræmi við óskir þeirra þjóða sem byggja heimskautssvæðið, sagði Jonathan Motzfeldt formaður landstjórnarinnar í Nuuk nú um helgina við grænlenska útvarpið. Grænlenski forsætisráðherr- ann benti sérstaklega á að tillögur Gorbatsjofs um afvopnun á norðurslóðum væru samkvæðar ályktunum ICC, Sambands heimskautsþjóða, um hernað- armál á svæðinu. Motzfeldt sagði að hann teldi víst að fjallað yrði um ræðu Gorbatsjofs í öryggis- og varnarmálanefnd grænlenska þingsins. Sú nefnd verður kjörin í fyrsta sinn þegar þingið kemur saman í Nuuk í þessari viku. -m RÍKISÚTVARPIÐ Samkeppni um minningaþætti Ríkisútvarpiö efnir til samkeppni um minningaþætti um efni sem tengist hlutdeild útvarps í íslensku þjóölífi áfyrri tíö. Um erað ræöaminningarfrá árdögum útvarpsins, um einstaka útvarpsmenn, eftirminnilega atburði sem útvarpi tengist og almenn not fólks af útvarpinu meöan það vareinstæðurfjölmiðill í sinniröð. . Heimilt er að fá til skrásetjara sem riti niður eftir frásögn sögumanns. Tvenn verðlaun verða veitt, 40 og 20 þúsund krónur, auk óskertra höfundarlauna, en Ríkisútvarpið áskilursér flutningsrétt á þeim þáttum sem það kýs. Þættirnir skulu ekki vera lengri en 10-12 síður vélritaðar. Handritum sé skilað til Ríkisútvarpsins, Efstaleiti 1,150 Reykjavík í síðasta lagi 1. febrúar á næsta ári, merkt Útvarpsminningar. núiu RÍKISÚTVARPIÐ Bakkaborg við Blöndubakka Fóstrur og fólk með aðra uppeldismenntun eða reynslu af uppeldisstörfum óskast til starfa sem fyrst. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 71240. Þrlðjudagur 6. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.