Þjóðviljinn - 06.10.1987, Side 15
Árni Benediktsson skrifar
Sönn ánægja
að svara
„En þvímiburer
greinin í Pjóðviljanum
skrifuð í títuprjónastíl,
þar sem hver hugsun
er umvafin
broddborgaralegri
þoku, þannig að
hvergi sér handa skil“
Þannig er aö síðasta laugar-
dag var heilsíðugrein í Þjóðviljan-
um undir fyrirsögninni Fiskimiðin
í sameign. Hluti greinarinnar er
helgaður nýlegri ákvörðun Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins um að
verðleggja ekki fisk fram til 15.
nóvember. í þessari grein er því
haldið fram að samvinnu-
hreyfingunni beri að gera grein
fyrir afstöðu sinni. Nú vill svo til
að ég er sá fulltrúi í Verðlagsráði
sjávarútvegsins, sem sennilegt
er að standi næst samvinnu-
hreyfingunni og er því ekki óeðli-
legt að það komi í minn hlut að
svara þessu.
Og reyndar er mér sönnn
ánægja að svara þessu, ef ég gæti.
Ef ég vissi hverju ætti að gera
grein fyrir, hvaða afstöðu ætti að
skýra. En því miður er greinin í
Þjóðviljanum skrifuð í títuprjón-
astíl, þar sem hver hugsun er um-
vafin broddborgaralegri þoku,
þannig að hvergi sér handa skil.
Áður en ég svara verð ég því að
biðja um frekari skýringar, þann-
ig fram settar að hönd á festi. Þær
spurningar, sem ég neyðist til að
bera fram eru þessar:
1. í greininni er fjallað um
„frjálst" fiskverð og frjálst
fiskverð. Hver er munurinn á
þessu tvennu? Á samvinnu-
hreyfingin að gera grein fyrir
afstöðu sinni til „frjálsa" fisk-
verðsins eða frjálsa fiskverðs-
ins?
2. í greininni stendur: „Sú spurn-
ing hlýtur því að vakna hvort
andstaðan í verðlagsráði við
frjálst fiskverð ráðist fyrst og
fremst af þröngum hagsmun-
umSÍS". Geturverið að grein-
arhöfundur ruglist á andstöðu
við „frjálst" fiskverð og and-
stöðu við frjálst fiskverð?
Hvaða andstaða var við frjálst
fiskverð?
3. Hveriir eru þröngir hagsmun-
ur SÍS í sambandi við fisk-
verðsákvörðun?
Að fengnum greinilegum
svörum við þessu er mér sönn
ánægja að gera grein fyrir afstöðu
minni í Verðlagsráði. Hún er að
vísu öll kunn, þeim sem eitthvað
fylgjast með á þessum vettvangi
og kunna að nýta sér það sem þeir
heyra og sjá.
Árni Benediktsson
Gunnar Hjaltason
sýnir í Listakrubbu
Gunnar Ásgeir Hjaltason er
fæddur að Ytri-Bakka við Eyja-
Hitt
og
þetta
eftir ýmsa
listamenn
í Gallerí Borg Austurstræti
hafa nú verið hengd upp allmörg
olíumálverk. Flestareru myndirn-
ar af minni gerðinni og hanga þar
undir samheitinu Hitt og þetta
Hér er um að ræða verk eftir
Hring Jóhannsson, Tryggva Ól-
afsson, Baltasar, Kjartan Guð-
jónsson, Daða Guðbjartsson,
Jón Þór Gíslason, Temmu Bell
og Karólínu Lárusdóttur. Einnig
eru nokkrir skúlptúrar eftir Þór-
dísi Á. Sigurðardóttur.
Þessi verk eru öll til sölu og
munu hanga uppi þessa viku. Til-
valið fyrir þá sem vilja eignast
listaverk á viðráðanlegu verði.
Gallerí Borg Austurstræti er opið
frá kl. 10 á morgnana og eftir það
á almennum tíma verslana.
(F réttatilky nning)
fjörð 1920. Hann nam teikningu,
módelteikningu og olíumálun hjá
Bimi Björnssyni og Marteini
Guðmundssyni og sótti ýmis
námskeið í Handíðaskólanum
m.a. tréristu hjá Hans Alexander
Miiller. Gullsmíði nam hann hjá
Guðmundi Guðnasyni og Leifi
Kaldal 1943-47.
Gunnar hefur sýnt oft og víða,
(fyrst í Hafnarfirði 1964) m.a. í
Norræna húsinu, Bogasal, á Ak-
ureyri, í Vestmannaeyjum og í
Kópavogi 1971, á Mokkakaffi, í
Eden í Hveragerði, Borgarnesi,
Hvammstanga og víðar. Hann
hefur einnig tekið þátt í samsýn-
ingum m.a. hafnfirskra málara í
Uppsölum Svíþjóð og á íslands-
sýningu í Vínarborg, Austurríki
1984.
Þá hefur Gunnar myndskreytt
bækur og tímarit, m.a. Árbók
Ferðafélags íslands frá 1975
(teikningar), Úti og inni, Friðrik
Friðriksson 1952, (tréristur)
Draumrúnir Sigurður H. Guð-
mundsson 1984 (teikningar), og
400 teikningar í íslands Ferða-
leiðir, Kristján Arngrímsson
1987.
Sýningin er opin á sama tíma
og Bókasafnið mánud. til föstud.
kl. 9 - 21 og laugardaga kl. 11 -
14. Hún er öllum opin gjaldfrítt
og eru allar myndirnar til sölu.
þlÓÐVIUINN
0 68 13 33
Tíminn
0 68 18 66
0 68 63 00
Blaðburður er
BESTA TRIMMIÐ
og borgar sigl
bLAÐBERAR ÓSKAST í
þJóoyiuiNN
Hlíðar
Nýja miðbæ
Fellsmúla
Bakkahverfi (Breiðholti)
Seljahverfi
Ártúnsholt
Kópavog (vestur)
Kópavog (austur)
Smáíbúðahverfi
Fossvog
Vesturbæ
Seltjarnarnes
Hafðu samband við okkur
IMÓÐVILIINN
Síðumúla 6
0 68 13 33
ORÐSENDING FRA
IÐNLÁNASJÓÐI
(JM BREYTT
UTLANAKJOR
Hinn 15. september kom til framkvæmda breyting á útlánakjörum Iðnlánasjóðs. Þau eru nú
sem hér segir:
Vélalán háð lánskjaravísitölu 7,65% vextir
Byggingarlán háð lánskjaravísitölu 8,65% vextir
Útlán bundin gengi SDR 8,65% vextir
Lán vöruþróunar- og markaðsdeildar háð lánskjaravísitölu 5,00% vextir
Byggingarlán undir 5.000.000,00 kr. eru háð lánskjaravísitölu en byggingarlán yfir
5.000.000,00 kr. eru bundin gengi SDR.
Vélalán undir 250.000,00 kr. eru háð lánskjaravísitölu en vélalán yfir 1.000.000,00 kr. eru
bundin gengi SDR.
En þegar tekin eru vélalán hærri en 250.000,00 kr. en lægri en 1.000.000,00 kr. ræður lántaki
hvor kjörin hann þiggur.
Samsvarandi breyting verður á útistandandi lánum þar sem ákvæði skuldabréfa heimila
slíkt.
IÐN LÁIMASJÓÐUR
IÐNAÐAHBANKÍMN LÆKJAR6ÖTU 12. 101 REYKJAVlK,
S(MI 691800