Þjóðviljinn - 10.10.1987, Page 2
P-SPURNINGIN
Óttastu kjarnorkumeng-
un í höfunum umhverfis
landið?
n
FRETTIR
Bragi Þorbergsson
kennari:
Að sjálfsögðu geri ég það, að
minnsta kosti þegar litið er til
framtíðarinnar. Þar kemur hvort-
tveggja til, kjarnorkukafbátar og
losun úrgangsefna í sjó.
Guðrún Bjarnadóttir
verslunarstjóri:
Jú, að vissu leyti, án þess þó að
ég hafi hugleitt þessa hluti neitt
að ráði.
Magnús Jónsson
verslunarmaöur
Ég hef ekkert hugsað um það, en
það má búast við umhverfisslys-
um ef svona heldur áfram.
Fjóla Jónsdóttir afgreiðslu-
kona:
Ég hef nú engar sérstakar
áhyggjur vegna þessa, en
óhöppin geta gerst á þessu sviði
eins og öðrum.
Hjörleifur Bergsteinsson
vélfræðingur:
Já, það kemur að því að það
verður að skoða þessi mál ræki-
lega. Hvaðeina sem viðkemur
kjarnorku er ekki bara hægt að
leyfa út í bláinn.
Sjónvarpsstöðvarnar
Slegist um erlent efni
Jón Óttar Ragnarsson: Samkeppnin hefurnœr tvöfaldað kostnað
á erlendu efni. Hinrik Bjarnason: Ekkert verðstríð í gangi
Samkeppni Stöðvar tvö og
RÚV á erlendum mörkuðum
hefur nær tvöfaldað kostnað á er-
lendu efni, segir í dreifibréfí Jóns
Óttars Ragnarssonar sjónvarps-
stjóra til áskrifenda stöðvarinnar
í tilefni af ársafmæli hennar á
föstudaginn. I bréfi Jóns Óttars
er tilkynnt hækkun áskriftar-
gjalda úr 1050 krónum í 1250
krónur.
„Mestur hluti þessarar hækk-
unar á rætur að rekja til verð-
bólguþróunar, en hluti til aukins
kostnaðar,” segir í bréfi sjón-
varpsstjóra, og tiltekur hann, auk
erlenda efnisins, sífellt meiri
þjónustu við áskrifendur í þessu
sambandi.
Ekki náðist í Jón Óttar, en Sig-
hvatur Blöndal, markaðsstjóri
Stöðvar tvö, sagði að í sjálfu sér
væri ekki um verðstríð að ræða
milli sjónvarpsstöðvanna, en
menn hefðu þó aðeins ýtt hver
við öðrum.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans greiðir Sjónvarpið nú um
12 dollara fyrir hverja mínútu
leikins efnis, en 8 dollara fyrir
annað efni. Sighvatur var spurð-
ur um innkaupsverð Stöðvar tvö
til samanburðar og sagði hann að
þau á Stöð tvö væru undir þessu
verði og teldu það of hátt. „Meg-
instefnan hjá okkur hefur verið
að skipta beint við framleiðendur
og losna við milliliðafrum-
skóginn,” sagði hann, „enda hef-
ur það sýnt sig að það hefur tekist
að ýta verðinu niður.”
„Það er ekkert verðstríð í gangi
milli sjónvarpsstöðvanna, enda
kaupum við erlent efni fyrir fast
verð. Þetta fyrirkomulag erum
við fastheldin á, enda höfum við
ekki mannskap til að standa í
miklum verðsamningum,” sagði
Hinrík Bjarnason dagskrárstjóri
hjá Sjónvarpinu.
1. október hækkuðu áskriftar-
gjöld Stöðvar tvö í 1250 krónur úr
1050 krónum, en það hafa þau
kostað á mánuði síðan í aprfl.
Þegar Stöð tvö tók til starfa 9.
október í fyrra kostaði áskriftin
hins vegar 950 krónur. „Héðan í
frá ætlum við okkur að endur-
skoða verðið á þriggja mánaða
fresti miðað við verðlag,” sagði
Sighvatur Blöndal.
HS
Jóhannes Ragnarsson í Ólafsvíkurhöfn. Kraninn á prammanum í baksýn er notaður við að koma stálþilinu niður. Mynd
S'9 Ólafsvík
Nýr viðlegukantur
Framkvœmdum við nýjan viðlegu- og löndunarkant lýkur ísumar.
Hugmyndir uppi umfiskmarkað
Unnið er á fullu við nýjan við-
legukant í höfninni í Olafsvík
og er stefnt að því að Ijúka fram-
kvæmdum í haust. Rekin eru nið-
ur stálþil við uppfyllingu en þar
verður síðan í framtíðinni bæði
viðlegu- og löndunargarður.
„Höfnin er alltof lítil og þessar
framkvæmdir duga ekki til,“
sagði Jóhannes Ragnarsson hafn-
arvörður í samtali við Þjóðvilj-
ann.
Ólafsvíkurhöfn er aðal útflutn-
ingshöfnin á Snæfellsnesi þannig
að mikil umferð stórra flutninga-
skipa er um höfnina. Þá hafa
bátar stækkað en heimamenn
gera út tvo togara auk þess sem
bátaútgerð er öflug. Þar að auki
landar mikill fjöldi vertíðarbáta
annarsstaðar að í Ólafsvík. Trillu
útgerð heimamanna er tölu-
verð, eða á bilinu 30-40 en auk
þess landa trillur hvaðanæva að í
höfninni. í sumar voru einn dag-
inn taldar 74 trillur í höfninni.
Jóhannes sagði að það sem af
væri árinu hefði verið landað í
Ólafsvík mestum þorski á
landinu, en í endaðan ágúst voru
16.053 tonn komin á land í Ólaf-
svíkurhöfn.
„Töluvert magn af afla að-
komubáta hefur verið keyrt
suður og sl. vetur fóru allt upp í 26
bflar frá Ólafsvík suður.“
Að sögn Jóhannesar hafa kom-
ið upp hugmyndir um fiskmarkað
á Snæfellsnesi og eðlilegast væri
að slíkur markaður yrði staðsett-
ur í Ólafsvík. „Þessar hugmyndir
eru þó enn á byrjunarstigi. Hvort
þær verða að veruleika er annað
mál.“
-Sáf
Nírœður í dag:
Erlendur
Ólafsson
verkamaður
Níræður er í dag Erlendur
Ólafsson verkamaður, til heimilis
f Stigahlíð 12.
Erlendur er fæddur á Jörfa í
Kolbeinsstaðarhreppi 10. októ-
ber 1897. Kona hans, Anna Jóns-
dóttir, er frá Kaldárbakka í sömu
sveit.
Þau hjón fluttu til Reykjavíkur
árið 1935 og vann Erlendur lengst
af síðan við höfnina - hann var
elsti starfandi hafnarverkamaður
hjá Eimskip þegar hann lét þar af
störfum fyrir níu árum, þá áttatíu
og eins árs að aldri.
Erlendur Ólafsson var um ára-
bil í stjórn Dagsbrúnar og gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir fé-
lagið.
Þegar Erlendur lét af störfum
komst hann m.a. svo að orði í
blaðaviðtali:
„Það er eins og nótt og dagur
þegar samanburður er gerður á
aðbúð og kjörum hafnarverka-
manna hér við höfnina haustið
1935 þegar ég kom hingað í
atvinnuleit og nú í aprfl þegar ég
lauk síðasta vinnudegi mínum...
Á því tímabili hefur mikið
áunnist þótt enn sé löng leið til
þess jafnréttis sem ég tel að allir
menn eigi að fá að njóta.“
Ahugamenn
Erótík í bakmenntum
Félag áhugamanna um bók-
menntir hefur boðað fund í
Odda á laugardag kl. 14.00 þar
sem fjallað verður um „Erótík í
bókmenntum“.
Fyrirlesarar á fundinum eru
þau, Kristján Árnason bók-
menntafræðingur sem fjallar um
Eros fornan og nýjan, Soffía
Auður Birgisdóttir háskólanemi
sem ætlar að fjalla um dulda og
bælda erótík í íslenskum bók-
menntum, Guðbjörg Þórisdóttir
skólastjóri sem fjallar um erótík í
verkum Thors Vilhjálmssonar og
Guðbergur Bergsson rithöfundur
sem fjallar um ásthneigð í bók-
menntum.
Á eftir erindum verða opnar
umræður en fundurinn er opinn
öllu áhugafólki um bókmenntir.
-•g-
Sé þig á eftir, þarf á
blaðamannafundinn hjá SÍS.
2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. október 1987