Þjóðviljinn - 14.10.1987, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 14.10.1987, Blaðsíða 6
ALÞÝÐUBANDALAGHD Alþýðubandalagið Reykjavík Félagsfundur ABR boðar til félagsfundar fimmtudaginn 15. október kl. 20.30 að Hverf- isgötu 105. Fundarefni: 1) Kosning 100 fulltrúa og 100 varafulltrúa á Landsfund Alþýðubandalagsins. 2) Almenn stjórnmálaumræða. ATH: Tillaga uppstillinganefndar mun liggja frammi á skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105 frá og með mánudeginum 12. okt. Aðrar uppástungur undirritaðar af tillögu- mönnum skulu berast skrifstofu ABR fyrir kl. 20.30 miðvikudaginn 14. okt. Ef til kosningar kemur verða aðalmenn og varamenn kjörnir í einu lagi með einföldu vægi allra atkvæða. Munið að greiða félagsgjöldln Stjórn ABR Alþýðubandalagið Seltjarnarnesi Aðalfundur Alþýðubandalagið á Seltjamarnesi boðar til aðal- fundar í Félagsheimilinu (niðri) fimmtudaginn 15. október kl. 20.30. Dagskrá: 1) Skýrsla stjórnar. 2) Kosning nýrrar stjómar. 3) Kosning fulltrúa í kjördæmisráð. 4) Kosn- ing fulltrúa á Landsfund. 5) Ólafur Ragnar Grímsson raeðir um stöðu stjórnmálanna í upphafi þings. Stjórnin Ólafur Ragnar Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Kjördæmisráðstefna í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldin laugar- daginn 17. október kl. 10.00 í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18 Akureyri. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Skýrsla kosningastjórnar og reikningar. 3. Útgáfumál og flokksstarf. 4. Efnahags- og atvinnumál. Framsaga. 5. Stjórnmálaályktun. Framsaga. 6. Kosningar - almennar umræður - önnur mál. Áætluð þingslit kl. 18.00. Kvöldvaka Stjórn kjördæmisráðs AB Akranesi Aðalfundur Aðalfundur AB Akranesi verður í Rein laugardaginn 17.10. klukkan 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Aherslupunktar landsfundar 3. Kosning fulltrúa á landsfund 4. Kosning fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs. S.Önnurmál. Stjórnin AB/Keflavík og Njarðvík Aðalfundur verður haldinn miðvikudaginn 14. október klukkan 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, kosning fulltrúa á landsfund, önnur mál. Fundurinn verður í Verslunarmannafélagshúsinu Hafnargötu 28. Stjórnin Alþýðubandalagið Reykjanesi Aðalfundur kjördæmisráðs Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn laugardaginn 24. október kl. 14.00 í Þinghóli, Kópavogi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Alþýðubandalagið Skagafirði Félagsfundur á Sauðárkróki Alþýðubandalagsfélag Sauðárkróks heldur félags- fund í Villa Nova n.k. föstudagskvöld 16. október kl. 20.30. Dagskrá: 1) Kosning fulltrúa á landsfund. 2) Önnur mál. Ragnar Arnalds alþm. mætir á fundinn. Ragnar Alþýðubandalagið Blönduósi og nágrenni Aðalfundur Alþýðubandalagsfélag Blönduóss og nágrennis boðar til aðalfundar í hótelinu á Blönduósi, sunnu- daginn 18. október kl. 16.00. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Kosning fulltrúa á Landsfund. 3) Steingrímur J. Sigfússon alþm. mætir og ræðir stjórnmálaviðhorfin. Stjórnin Steingrímur Landsfundur Alþýðubandalagsins Skrifstofa flokksins minnir á 2. mgr. 14. gr. laga Alþýðubandalagsins: „Þegar boðað er til reglulegs landsfundar skulu grunneiningar hafa lokið kjöri fulltrúa á landsfund þremur vikum áður en hann er haldinn." Þar sem landsfundurinn verður settur 5. nóvember skal kjöri fulltrúa vera lokið eigi síðar en 15. október. Þess er vænst að fulltrúatal hafi borist skrifstofunni eigi síðar en 22. Flokksmfdstöð Alþýöubandalagsins október. ABR Greiðið félagsgjöldin Alþýðubandalagið í Reykjavík hvetur félagsmenn til að greiða heimsenda gíróseðla sem allra fyrst. Stjórnin Kirkjunnar þjónar hafa látið friðarmálin sífellt meira til sín taka og ítarleg tillaga um friðarmál liggur nú fyrir Kirkjuþingi. (Mynd: Sig.) Kirkjuþing Eyðingu kjamavopna fagnað Tillaga á Kirkjuþingi um að hvetja íslenska stjórnmálamenn til að vinna að útrýmingu allra kjarnorkuvopna. Varað við uppbyggingu hefðbundins vígbúnaðar Naumast þarf það að þykja undrunarefni þótt friðarmáJ beri á góma á Kirkjuþingi, enda ekki ný bóla. Fyrir Kirkjuþingi því sem nú stendur yfir liggur álykt- unartillaga um friðarmál sem þeir flytja sr. Lárus Þ. Guð- mundsson og dr. Gunnar Krist- jánsson. Er hún á þessa leið: „Kirkjuþing 1987 fagnar þeim árangri sem náðst hefur í afvopn- unarviðræðum stórveldanna um að allar meðaldrægar og skammdrægar eldflaugar í Evr- ópu verði fjarlægðar. Kirkjuþing lýsir yfir sérstakri ánægju vegna þess að ísland var vettvangur þess fundar sem hafði þessa mikilvægu þróun í för með sér. Þingið hvetur íslenska stjórnmálamenn til að tengja nafn íslands enn frekar við af- vopnun með áframhaldandi út- rýmingu allra kjarnorkuvopna að markmiði. Jafnframt varar þingið við hug- myndumum aukna uppbyggingu hefðbundins vígbúnaðar. Þingið fagnar yfirlýsingu nú- verandi utanríkisráðherra um að hann muni styðja tillögu Svíþjóð- ar og Mexíkó á þingi S.Þ. um stöðvun allra kjarnorkuvopnatil- rauna og áskorun til stórveldanna um að hætta þegar öllum tilraun- um sínum.” Trúlega hefðu einhverjir talið fyrirfram að ekki yrði eining um slíka ályktun á Kirkjuþingi. Þeg- ar þetta er ritað á hún að vísu eftir að fá umfjöllun í nefnd og kann þvi að taka einhverjum breyting- um. Varla þó veigamiklum ef dæma má af þeim röddum, sem fram komu við fyrstu umræðu. Sr. Lárus P. Guðmundsson fylgdi tillögunni úr hlaði með fá- einum orðum. Sr. Þorbergur Kristjánsson taldi hæpið af þing- inu að iýsa fylgi við tillögu Sví- þjóðar og Mexíkó þar sem um hana væri pólitískur ágreiningur. Sr. Árni Sigurðsson sagði þetta hina þörfustu tillögu. Andrúms- loftið í heiminum og viðhorf til þessara mála hefði mjög breyst til hins betra við leiðtogafundinn í Reykjavík fyrir ári. Það væri mis- skilningu að Svíþjóðar-Mexíkó tillagan bæri meiri keim af pólitík en annað það sem minnst væri á í tillögunni. Minnti og á þá hættu sem okkur stafaði af kjarnorku- vígbúnaðinum umhverfis landið. Halldór Finnsson benti á að minnast hefði mátt á stækkun endurvinnslustöðvarinnar í Do- unreay. Dr. Gunnar Kristjánsson sagði þjóðina gera sér æ ljósari grein fyrir því að hún væri í fremstu víglínu ef til kjarnorkuátaka kæmi. Með sífelldu tali um póli- tík í þessu „sambandi værum við bara að slá ryki í eigin augu. „Við sr. Lárus Guðmundsson eru ekki flokksmenn utanríkisráðherra. En ef við erum sannfærðir um að málstaður sé góður, þá á það ekki að skipta máli hver berst fyrir honum. Kirkjan á ekki að óttast afleiðingar þess að leitast við að hafa áhrif á pólitíska stefnu- mótun í þjóðfélaginu." Sr. Lárus Þ. Guðmundsson vitnaði í orð utanríkisráðherra, Steingríms Hermannssonar, og tók undir þau orð sr. Árna Sig- urðssonar að allt annað viðhorf ríkti nú í heiminum til þessara mála en fyrir tveimur til þremur árum. Menn væru farnir að sjá gegnum blekkingar hergagna- framleiðenda og stríðsæsinga- manna. -mhg ALÞÝÐUBANDAiAGK) Alþýðubandalagið Hafnarfirði Aðalfundur Bæjarmálaráðs Aðalfundur Bæjarmálaráðs ABH verður haldinn í Skálanum, Strandgötu 41, laugardaginn 17. október kl. 10.00 Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Drög að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar fyrir árið 1988 - Magnús Jón Árnason hefur framsögu. 3) Starfsáætlun vetrarins. 4) Önnur mál. Alþýðubandalag Borgarness og nágrennis Félagsfundur Félagsfundur í Röðli laugardaginn 17. október kl. 14.00. Dagskrá: 1) Kosning fulltrúa á landsfund. 2) Onnur mál. Stjórnin Alþýðubandalagið Blönduósi og nágrenni Aðalfundur Alþýðubandalagsfélag Blönduóss og nágrennis boðar til aðalfundar í hótel- inu á Blönduósi, sunnudaginn 18. október kl. 16.00. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Kosning fulltrúa á Landsfund. 3) Steingrímur J. Sigfússon alþm. mætir á fundinn og ræðir stjórnmálaviðhorfin. Stiórnín Alþýðubandalagið Akureyri Bæjarmálaráðstefna Bæjarmálaráðstefna Alþýðubandalagsins á Akureyri 19. október klukkan 20.30 í Lárusarhúsi. Dagskrá fundarins: 1. Kjaramál. 2. Dagskrá bæjarstjórnar. Stjórnin 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miövlkudagur 14. október 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.