Þjóðviljinn - 14.10.1987, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 14.10.1987, Blaðsíða 8
Diego Masson stjórnandi. Roger Woodward, einieikari í Píanókonsert Áskels Mássonar. Sinfónían Frumflytur píanókonsert eftir Áskel Másson Diego Masson stjórnandi tónleikanna Píanókonsert eftir Áskel Más- son veröur frumfluttur á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitar íslands, annað kvöld 15. októ- Páll Jóhannesson syngur á nýrri hljómplötu Út er komin hljómplatan „Ég syng um þig“ með söng Páls Jó- hannessonartenórs. Olafur Vignir Albertsson leikur með á pí- anó. Hljóðritun fórfram í Hlégarði nú í sumar, og annaðist hana Halldór Víkingsson með staf- rænnitækni. Platan erpressuð hjá hinu virta fyrirtæki Teldec í V-Þýskalandi. Á hljómplötunni eru 17 lög, m.a. eftir Sigvalda Kaldalóns og Sveinbjörn Sveinbjörnsson, einnig þekkt lög frá Ítalíu s.s. O sole mio, Rondine al Nido og Core ’ngrato. Tvö sfðustu lögin syngur Páll með Karlakór Akur- eyrar og Karlakórnum Geysi undir stjórn Atla Guðlaugssonar. Frá árinu 1981 hefur Páll verið við söngnám á Ítalíu, meðal kennara hans þar var Pier Mir- anda Ferraro. Þá hefur Páll unnið til verðlauna í hinni alþjóðlegu söngkeppni í Siena á Ítalíu sem kennd er við Ettore Bastianini. ber. Verkið samdi Áskell sér- staklega fyrir píanóleikarann Roger Woodward. Mikill áhugi er á því að þetta verk verðifiutt víðarog munu Ro- ger Woodward og umboðs- maður hans beita sér fyrir að svo verði. Sjö ár eru síðan Áskell kvaddi sérfyrst hljóðs á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitarinnar með Klarínettu- konsert sínum og síðar voru fiutt Konsertþáttur fyrir litla trommu og hljómsveitog víólukonsert. Aukþessa verks Áskels verða á dagskrá Parísarsinfónían eftir Mozart og „Myndir á sýningu" eftir Mussorgsky. Stjórnandi á tónleikunum verður franski hljómsveitarstjór- inn Diego Masson. Har.n var áður vel þekktur slaghljóðfæra- leikari en hefur undanfarin ár stjórnað hljómsveitum. Hann er stofnandi og stjórnandi Musique Vivante, sem einbeitir sér að flutningi nútímatónlistar. Mas- son var um tíma tónlistarstjóri óperunnar í Marseilles og stjórn- andi Sinfóníuhljómsveitarinnar þar. Að undanförnu hefur hann þó í ríkari mæli snúið sér að stjórn hljómsveita víða um Evrópu, þ.á m. hefur hann stjórnað BBC Sinfóníuhljómsveitinni og Fíl- harmoníuhljómsveit Lundúna. Einleikari á tónleikum hljóm- sveitarinnar að þessu sinni er ást- ralski píanóleikarinn Roger Wo- odward, en þeir Diego Masson eru góðir félagar. Woodward hefur búið í Lundúnum í rúm 20 ár og getið sér gott orð sem túlk- andi sígildra og nýrra píanó- verka. Hann hefur t.d. verið tal- inn besti Chopin túlkandinn í dag og einnig frumflutt tónverk eftir tónskáld sem síðar urðu vel þekkt, s.s. japanska tónskáldið Takemitsu og Frakkann Martin Feldman. En þrátt fyrir að Roger Woodward sé í dag einn besti konsertpíanisti heims, spilar hann gjarna í minni hljómsveit- um og slær á léttari strengi. í ti- lefni af 200 ára afmæli Ástralíu á næsta ári mun hann halda tón- leika víða í Ástralíu en einnig taka þátt í djasstónleikaferð með djasstóniistarmanninum Cecil Taylor. Einsog venjulega eru á- skriftartónleikar Sinfóníuhlj óm- sveitarinnar haldnir í Háskólabíó og hefjast kl. 20.30. Grænland Vel heppnuð menningarhátíð Sinfónían þótti jafn arfageggjuð og Kim Larsen Mikil menningar- og listahátíð var haldin í Nuuk á Grænlandi í byrjun september. Á dagskrá voru málverkasýningar, flutt leikrit, þjóðlagakonsertar, umræður um grænlenska tungu, margvíslegarsýningar þar sem m.a. var sýnt hvernig þjóðin bjó árið 1956, Veiði- mannalif á Grænlandi, sýning ágrænlenskum þjóðbúning- um, skinnaverkun, vefnaði og frá Thule kom Aajaku Meteq með atriði sem kallað var „TrommudansfráThule". Þá sóttu margir gestir frá hinum Norðurlöndunum hátíðinaen frá íslandi kom Sinfóníuhljóm- sveitin og gerði þar stormandi lukku og þótti slá Kim Larsen út, en hann hélttónleikasl. vor. Sinfóníuhijómsveitin var klöppuð fram alls sex sinnum og varð að taka fjögur aukalög áður en áheyrendur samþykktu að fara heim. Talað er um tón- leikana sem einn af hápunktum hátíðarinnar, en þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem haldnir eru sinfóníutónleikar á Græn- landi. í frásögn af tónleikunum er vitnað í einn af yngri áheyrendum sem lét þau orð falla að sinfónían væri „jafn arfageggjuð og Kim Larsen.“ Menningarhátíðin þótti takast vel í hvívetna og var vel sótt. Litið var einnig á hátíðina sem lið í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, að með skýrari menningarvitund mætti efla sjálfstraust og sjálfsvit- und þjóðarinnar. Þá er þess einnig getið í frétt frá atburðinum, að nú hafi græn- lensk stúlka fengið í fyrsta skipti inni í Myndlista- og handíðaskóla íslands í fullu námi. Það er Lisa Hessner, 25 ára, sem verður í höggmyndadeild skólans og fær námslán frá Heimastjórninni til að ljúka námi á íslandi. -ekj. Garðar Cortes Slær í gegn Syngur McDuffí óperunni Macbeth hjá North-óperunni Garðar Cortes þótti slá í gegn á frumsýningu á óperunni Macbeth, North óperunni, sem hefur höfuðstöðvar í Leeds í Bretlandi. Garðar syngur hlutverk McDuff, sem er stærsta tenór- hlutverkið í sýningunni, en önnur aðalhlutverk eru fyrir baritón og sópran. Garðar hefur verið ráð- inn til að syngja átta sýningar með North-óperunni. Síðan hef- ur hann verið ráðinn til að syngja í Barbicancenter í London, á Puccinitónleikum 31. október. Þar mun Garðar synja aríur úr Puccinióperum. Fyrir þá sem eru á ferð í London um mánaðamótin er því upplagt að skella sér þang- að. Næsta haust hefur Garðar svo verið ráðinn til að syngja hlut- verk Ótelló hjá jósku óperunni. -ekj. Garðar Cortes, formaður Islensku óperunnar og söngvari. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 14. október 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.