Þjóðviljinn - 14.10.1987, Side 11

Þjóðviljinn - 14.10.1987, Side 11
MÖRFRÉTTIR---------------- Níræðar ömmur eru ekkert lamb að leika við, aö minnsta kosti ekki sú bandaríska Lueille Thomson, en hún er elsta manneskjan sem tekist hefur að krækja sér í svarta beltið í júdó. Fyrir vikið er hún komin í heims- metabók Guinnes. Fyrir í þeirri bók er meðal annarra krakki frá Kanada, Westley Ciaranella, en henni áskotnaðist svarta beltið þegar hún var aðeins fjögurra ára gömul. Veiðiþjófar í frumskógum Bangladesh hafa orðið uppvísir að þeirri óþokka- legu iðju að eitra fyrir tígrísdýr í ábataskyni, og fyrir komu þeir að minnsta kosti 50 dýrum. Þeir not- uðu eitrað belju- og geitakjöt til að vinna á tígrísdýrunum. Hvert skinn er metið á jafngildi 80 þús- und íslenskra króna á mörkuðum í Hongkong, Singapore og Tai- landi. Um 500 bengaltígrísdýr er enn að finna í Bangladesh, og hefur skógarvarsla nú verið hert þeim til varnar. Engar vöflur á Gorbatsjoff sovétleiðtoga: á fundi í Leníngrad í gær sagðist hann reiðubúinn að hitta Reagan Bandaríkjaforseta innan viku til viðræðna um afvopnunarmál. Hann sagði að Sovétmenn og Bandaríkjamenn gegndu afger- andi hlutverki í alþjóðapólitíkinni, og því væri lífsnauðsynlegt að halda uppi viðræðum. Lenín- gradreisa Gorbatsjoffs er í tengs- lum við íhöndfarandi hátíðahöld vegna sjötugsafmælis bolsévíka- byltingarinnar. Hann hefur meðal annars heimsótt beitiskipið Ár- óru, en skothríð frá skipinu mark- aöi upphaf árásarinnar á Vetrar- höllina árið 1917. Geimapinn Vandræðagemlingur sem orðinn er sjónvarpshetja í heimalandi sínu, Sovétríkjunum, lenti heilu og höldnu á mánudag- inn var ásamt fríðu föruneyti; öðr- um apa, froskum, skorkvikindum og rottum. Söfnuð þennan bar niður í austurhluta Síberíu, en meiningin var að lendingin ætti sér stað í miðasíulýðveldinu Kas- akstan. Kvikindin fóru í loftið í septemberlok á síðasta ári, en markmiðið með ferðinni var að stúdera áhrif þyngdarleysis á þau. Apinn Vandræðagemlingur losaði sig fljótlega eftir að geim- ferðalagið hófst, og dundaði sér síðan við það öllum stundum að hræra ( öllu tækjadraslinu, so- véskum sjónvarpsáhorfendum til óblandinnar ánægju. George Bush varaforseti Bandaríkjanna, hefur nú fyrir alvöru sett kúrsinn á for- setaembættið sjálft. Formlega til- kynningu þar aðlútandi lét hann frá sér fara á mánudaginn var, og er hann nú á tíu daga kosninga- ferðalagi um þver og endilöng Bandaríkin. Skoðanakannanir gefa til kynna að hann hafi yfir- burðaforskot á helsta keppinaut sinn meðal repúblikana, öld- ungadeildarþingmanninn Robert Dole. Margur stjórnmálarýnirinn telur að sú trú margra kjósenda að Bush sé pólitískt himpigimpi verði honum helst að fótakefli, en varaforsetinn hefur átt í beyglum með að sýna fram á að hann standi fyrir eitthvað ákveðið í stjórnmálum. Sendiboði dauðans er titlatog sem Nicaraguamenn áskilja Jeane Kirkpatrick, en hún var áður sendiherra Bandaríkj- anna hjá Sameinuðu þjóðunum. Eins og er gegnir hún engum op- inberum embættum, en er stödd í Nicaragua á vegum Reagans forseta. Kontrarnir hafa löngum átt hauk í horni þar sem hún er, og hafa þeir skírt eina af sveitum sínum í höfuðið á henni í sæmdarskyni. Utanríkisráðherra Nicaragua veittist harkalega aö henni í vikubyrjun og sagöi hana vera útsendara þess manns sem kom stríðinu í landinu af stað. _______________ERLENPAR FRÉTTIR____________ Friðarverðlaun Nóbels Arias hreppti hnossið Oscar Arias, forseti Costa Rica, hlautfriðarverðlaun Nóhels íárfyrir friðarframlag í Mið-Ameríku. Úthlutunin kom nokkuð á óvart Oscar Arias Sanchez, forseti Costa Rica, hlaut friðarverð- laun Nóbels í ár fyrir framlag sitt til friðar í Mið-Ameríku. Úthlut- unin kom nokkuð á óvart, en al- mennt var búist við að Corazon Aquino forseti Filipseyja, suður- afríski baráttumaðurinn Nelson Mandela eða Alþjóðaheilbrigðis- stofnunin - WHO - myndu hreppa hnossið. Tilkynning úthlutunarnefndar- innar er svofelld: „Norska Nób- elsverðlaunanefndin hefur ákveðið að veita Oscar Arias Sanchez forseta Costa Rica, frið- arverðlaun Nóbels í ár fyrir friða- rframlag hans í Mið-Ameríku, en að hans frumkvæði voru friðar- samningar undirritaðir í Guate- mala 7. ágúst á þessu ári. Arias forseti er öðrum mönnum fremur höfundur sam- komulagsins, og hefur þar með stuðlað að því að friður og festa megi ríkja í þessum heimshluta, sem lengi hefur mátt búa við ósætti og borgarastyrjaldir. Með þessu hefur hann tekið upp merk- ið þar sem framlagi Contadora- ríkjanna sleppti. Nefndin leggur á það áherslu að friðarsamkomulagið er niður- staða ábyrgrar samvinnu milli ríkjanna fimm sem það undirrit- uðu, og fyrir vikið er lagður traustur hornsteinn að áfram- haldandi lýðræðisþróun og sam- vinnu milli þjóða og ríkja. Forsenda friðar er að lýðræðis- leg stefnumið verði að veruleika, þar sem allir njóti frelsis og jafnréttis. Að áliti nefndarinnar er Oscar Arias öflugur talsmaður slíkra stefnumiða. Friðarframlag hans hefur mikla þýðingu fyrir fleiri þjóðir en þær einar sem byggja Mið-Ameríku. Oscar Arias varð forseti Costa Rica í fyrra. Hann var 47. forseti landsins og jafnframt sá yngsti, rúmlega hálffimmtugur. HS Oscar Arias, forseti Costa Rica. Norska Nóbelsverðlaunanefndin tók hann fram yfir Corazon Aquino, Nelson Mandela og Alþjóðaheilbrigðisstofnunina, en almennt var reiknað með að verðlaunin lentu hjá einhverju þeirra. Grœnfriðungar Enga efnabrennslu á sjó Grœnfriðungar við öllu búnir, en skip í eigu Bandaríkjamanna hyggst brenna efnaúrgangi undan strönd Hollands Umhverfissamtök Grænfrið- unga sögðu í gær að þau hygð- ust koma í veg fyrir að skip hlaðið efnaúrgangi léti úr höfn í Antwerpen í Belgíu. Beluga, skip Grænfriðunga, bíður átekta skammt undan Antwerpen, og hyggst stöðva brennsluskipið Vulcanus ef belg- ísk stjórnvöld gefa því leyfi til að láta úr höfn, en Vulcanus er í eigu bandarískra aðila. Þetta kom fram á blaðamannafundi Græn- friðunga í gær. Brennsluskipið var stöðvað af belgískum tollyfirvöldum á sunn- udaginn var, þar sem ekki var að sjá af pappírum um borð að áhöfnin hefði tilskilin leyfi til að brenna efnaúrgangi frá Frakk- landi, Spáni og Belgíu, en það er ætlunarverkið, og er fyrirhugað að brennsla þessi eigi sér stað um 60 sjómílur undan norðurströnd Hollands. Grænfriðungar halda því fram að farmurinn innihaldi skordýra- eitur og fleiri hættuleg efni, en eigendur Vulcanusar vísa því á bug. Þá segja Grænfriðungar að fyrirhuguð brennsla mengi sjó- inn, og stefni sjávarlífi í voða, auk þess sem strandhéruð í grenndinni gætu orðið illa úti. Áhöfn Beluga hyggst stöðva brennsluskipið, og gefa þar með öðru Grænfriðungaskipi, Síríusi, færi á að senda kafara á vettvang og þann veg hindra efnaúrgangs- brennsluna. í ágúst hófu Grænfriðungar fjögurra mánaða herferð gegn brennslu efnaúrgangs á sjó. Von- ast þeir til að hafa áhrif á um- hverfisráðherra Norðursjávar- landanna, en þeir funda í London í nóvemberlok. Þetta er í þriðja sinn á þessu ári sem samtökin freista þess að stöðva Vulcanus, en í ágúst mis- fórst slík tilraun en áhöfn brennsluskipsins beitti vatnsfalls- byssum gegn köfurum Grænfrið- unga er þeir reyndu að fara um borð í skipið. HS Franska þingið Enga skrípatrúða Franska þjóðarfylkingin, sam- tök hægri öfgamanna í Frakk- landi, sætti ákúrum á þjóðþingi landsins í gær fyrir óspektir. Um- ræður um fíkniefnamisferli stóðu yfir er dró til tíðinda. Þingmenn stærstu flokkanna kröfðust þess að gripið yrði til að- gerða gegn fulltrúum þjóðarfylk- ingarinnar, en aðfaranótt laugar- dags er næturumræður stóðu yfir, stukku fulltrúar þessir yfir auða stóla, hrærðu í sjálfvirkum at- kvæðamaskínum og þrifu til ann- arra fulltrúa. Þjóðfylkingarmenn sögðust með þessu vilja mótmæla fjar- veru þingmanna við umræður. Le Pen, leiðtogi Þjóðarfylkingarinn- ar segir að aðgerðinni hafí verið ætlað að endurreisa virðingu fra- nska þingsins. HS ísrael Ef einhver er drepinn... Enn róstusamt á Vesturbakkanum og Gazasvœðinu í kjölfar morðs ísraelskra hermanna á fimm barna móður Þarfasti þjónninn til þónustu reiðubú- inn: Miklar viðsjár eru nú með her- námsliði israelsmanna og palest- ínskra íbúa á Vesturbakkanum og Gazasvæðinu. Igær kom til óeirða fjórða dag- inn í röð á Vesturbakkanum og Gazasvæðinu, er Palestínsumenn mótmæltu morði ísraelskra her- sveita á fímm barna móður. Að sögn lögreglu hefur heldur dregið úr róstunum. ísraelskur ökuþór varð þó illa úti er bíll hans var grýttur í borginni Ramallah á Vesturbakkanum í gær. Inayat Samir Hindi, 35 ára, var skotin til bana í fyrradag í Ram- allah, rétt fyrir norðan Jerúsal- em, er þar kom til mótmæla gegn ísraelsmönnum. Fimm Palest- ínumenn til viðbótar særðust. Vesturbakkann hertóku fsra- elsmenn í sexdagastríðinu 1967, en áður var hann partur af Jór- daníu. í gær kæfðu ísraelskar her- sveitir mótmæli í fæðingu í Ram- allah, en að sögn forðuðust þær bein átök við andstæðinga sína. Hermenn voru líka á vakki við Bir Zeit-háskólann, en um fimm- hundruð námsmenn fóru í mót- mælagöngu vegna morðsins á Hindi. Hermenn þessir létu þó vera að fara inn á skólalóðina að sögn háskólayfirvalda. I Arad fyrir austan Jerúsalem dreifði lögreglan um 70 ung- lingum með táragassprengjum og hándtók fjóra, er róstur urðu við kvennaskóla einn í bænum. Að sögn Palestínumanna lok- uðu palestínskir verslunar- eigendur búðum sínum í mót- mælaskyni, bæði í Jerúsalem og Ramallah. Þá voru flestir skólar Araba í Jerúsalem lokaðir. Á Gazasvæðinu sem ísraels- menn tóku af Egyptum, einnig í sexdagastríðinu, dreifðu her- menn mannfjölda með skotvopn- um, en fólkið hafði sett upp götu- vígi og kveikt í hjólbörðum. ísraelska lögreglan hefur þá trú að óróasamt verði í landinu út vikuna, en á föstudaginn er von á George Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, í heimsókn til ísraels. Utgáfa ísraelskra hernaðaryf- irvalda á morðinu á Hindi er sú að sjö hermenn og löggur hafi verið á frívakt, og á aðalgötu Ramallah-borgar hafi þeir ekið fram á um hundrað mótmælend- ur sem hafí kastað grjóti og málmhlutum. „Þeir voru á leiðinni til búða sinna er þeir lentu í miðjum mótmælunum. Af mannúðarástæðum reynum við í lengstu lög að grípa til skot- vopna, en öryggissjónarmið eru einnig með í því spilinu. Við vit- um að óeirðir magnast ef einhver er drepinn," sagði þartilgerður talsmaður. HS Mlðvlkudagur 14. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.