Þjóðviljinn - 14.10.1987, Síða 16

Þjóðviljinn - 14.10.1987, Síða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þJÓÐVIUINN Miðvikudagur 14. október 1987 228. tölublað 52. órgangur Þjónusta íþína þágu SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Dounreay Fiskmarioður í hættu Chris Bunyan á opinni umhverfismálaráðstefnuAB: Neytendur sniðganga vöru sem minnsti grunur leikur á að innihaldi geislavirk efni Eftir Tsjernóbyl-slysið vildu Ameríkanar ekki kaupa eldis- lax frá Shetlandi, af því þeir voru hræddir um að hann væri meng- aður, sagði Chris Bunyan, á op- inni ráðstefnu Alþýðubandalags- ins í Gerðubergi á sunnudaginn. Munu þeir vilja kaupa íslenskan fisk, ef það verður slys í Dounre- ay verinu? - spurði Bunyan. Hann kvað það vissulega rétt, að það tæki 4 - 6 ár fyrir geislavirk efni að komast með straumum til íslands. En hins vegar væri alls ekki hægt að útiloka þann mögu- leika, að ákveðin vindátt og úr- koma yfir íslandi gætu séð til þess að geislavirk efni sem slyppu út í andrúmsloftið við slys í Dounre- ay bærust á mjög skömmum tíma til landsins. „En jafnvel þó allt fari vel,“ sagði Bunyan, „og engin slys hendi, þá er samt sem áður lík- legt, að markaðir ykkar fyrir fisk erlendis geti skaðast vegna Do- unreay. Vegna þess að keppi- nautar ykkar munu benda á þá staðreynd, að þeirra fiskur komi úr sjó þar sem engin geislavirk efni séu í, andstætt ykkar haf- svæðum. Og reynslan af Tsjernó- byl hefur einfaldlega sýnt, að neytendur munu sniðganga vörur sem minnsti grunur leikur á að séu menguð af geislavirkum efn- um. Þá dugar ekki einu sinni að sýna góð og gild heilbrigðisvott- orð...“ Lögreglan Krani aðstoðar blinda Lögreglan í Reykjavík ætlar að ganga í lið með blindum á alþjóð- adegi „Hvíta stafsins“, sem er á morgun. Að sögn Ómars Smára Ár- mannssonar lögreglumanns ætlar lögreglan að vera á ferðinni með kranabíl um alla borgina og sjá til þess að blindir þurfi ekki að rekast á neinar bílahindranir uppi á gangstéttum. -lg. Landbúnaður Aldrei meira kjötát Landinn herðir sóknina í svína-, nauta- og ali- fuglakjöt, en kinda- og hrossakjöt á undanhaldi Kjötneysla er enn að aukast á Islandi og var þó mikil fyrir, segir í fréttatilkynningu frá Upplýsing- aþjónustu landbúnaðarins. Is- lendingar eru nú næstmestu kjöt- ætur á Norðurlöndum; aðeins Danir slá okkur við í þeim efnum. Nú eru komnar til Fram- leiðsluráðs landbúnaðarins lok- askýrslur frá afurðastöðvum um sölu og birgðir kjöts á nýliðnu verðlagsári, 30. ágúst 1986 til 1. september 1987. Kjötneysla á mann á íslandi náði 67 kflóa markinu á síðast- liðnu verðlagsári, en var um 65,5 kfló árið 1984. Tölur eru hand- bærar um neysluna á Norður- löndum það ár: Noregur 53 kg., Svíþjóð 54,9 kg., Finnland 58 kg. og Danmörk 84,25 kg. Landinn hefur hert sóknina í svína-, nauta- og alifuglakjöt, en kinda- og hrossakjötsneyslan minnkar enn. Við erum þó enn drjúgir við kindakjötsátið; rúm- lega 35,6 kg. í fyrra, en þar kom- ast Nýsjálendingar einna næst okkur með 28,8 kg. á mann. Að auki borðum við kjöt af ýmsu tagi sem skýrslur ná ekki til. Þar má nefna kjöt af villtum fugl- um, rjúpu, gæs og sjófugli, hreindýrum, selum, hvölum, kjöt af heimaslátruðu og það kjöt sem framleiðendur taka úr sláturhús- um til eigin neyslu. HS . ■ * w Síldarsöltun er komin í fullan gang víða á Austfjörðum og í gær var saltað á fullu í öllum söltunarstöðvum á Eskifirði. Sæljónið kom inn með fullfermi 140 tonn og varðaðskiptaaflanumámillistöðvannaþarsemhverstöðmáekkisaltanema 30 tonn að hámarki á hverjum sólarhring. Mynd - hb/Neskaupstað. Skattamál Fyrirtækin taki þátt Svavar Gestsson leggur fram tvö frumvörp á Alþingi um skattamál vavar Gestsson lagði í gær fram tvö frumvörp, sem varða skattamál landsmanna. Annars- vegar frumvarp um breytingu á Gorbatsjof metsöluhöfundur? Bók hans um perestrojku kemur út í mörgum þjóðlöndum í senn Tíu íslenskir þýðendur sitja þessa viku með sveittan skall- ann við að þýða bók eftir Míkhaíl Gorbatsjov, aðalritara Kommún- istaflokks Sovétríkjanna. Bókin dregur nafn af perestrojku, um- breytingunum miklu sem skekja nú og hrista sovéskt þjóðfélag og um Ieið af þeim „nýja hugunar- hætti“ sem Gorbatsjov telur nauðsynlcgan til að leysa vanda- mál heima fyrir og á alþjóðavett- vangi. Mikið liggur á, því samkvæmt samningum á bókin að koma út á einum og sama degi, með öðrum orðum annan nóvember, í flest- um löndum Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum og svo náttúr- lega í Sovétríkjunum sjálfum. Það var bandaríska forlagið Harpers & Row sem fyrst pantaði þessa bók hjá Gorbatsjov og snýr hann máli sínu í henni jafnt til landa sinna og heimsins alls. Ið- unn gefur út bókina og Heimir Pálsson ritstýrir þýðendum. áb Mikhaíl Gorbatsjov skeiðar nú fram á ritvöllinn. lögum um tekju- og eignaskatt, þar sem gert er ráð fyrir að fyrir- tækin taki meiri þátt í sam- neyslunni en hingaðtil, auk þess sem launafólki er gefinn kostur á að losna við að fylla út framtöl. Hinsvegar endurflytur Svavar frumvarp um Skattadóm og rann- sóknirskattsvikamála. Meðflutn- ingsmenn eru þau Margrét Frím- ansdóttir og Skúli Alexanders- son. Aðalatriði frumvarpsins um tekju- og eignaskatt er að með því er dregið verulega úr frádrátt- arheimildum fyrirtækja þar sem lagðar eru niður í áföngum heim- ildir um ýmsa frádrætti einsog 5% af matsverði vörubirgða, 10% afskriftir af útistandandi viðskiptaskuldum í árslok, fram- lög til fjárfestingasjóða o.s.frv. Það sem snertir almenning mest í frumvarpinu er að opnað er fyrir möguleika á að fólk losni við framtöl um hver áramót með sérstökum heimildum skattstofa. Hliðstætt kerfi hefur verið tekið upp í Danmörku með þeim af- leiðingum að stór hluti skatt- greiðenda sleppur við aö gera framtöl. Ýmis fleiri nýmæli eru í frum- varpinu, t.d. er skattrannsóknar- stjóra gert að rannsaka sérstak- lega samkvæmt úrdrætti framtöl 100 fyrirtækja árlega. Þá eru sam- kvæmt frumvarpinu sett inn ný afgerandi ákvæði um að komið verði í veg fyrir að persónuleg eyðsla forráðamanna fyrirtækj- anna verði flutt á reikning fyrir- tækja. í greinargerð með frumvarp- inu segir að með samþykkt þess- ara tillagna megi gera ráð fyrir verulegri aukningu skatttekna ríkisins af fyrirtækjum. _sáf

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.