Þjóðviljinn - 27.10.1987, Síða 2
FRETTIP
Húsnœðismálin
Skæmhemaður stjómarliða
Núverandi ogfyrrverandifélagsmálaráðherra íhársaman á Alþingi vegnafrumv-
arps um breytingar áhúsnœðislánakerfinu. Kvennalisti og Alþýðubandalag styðja
frumvarp félagsmálaráðherra í megindráttum
mm-SPURNINGIN—
Spurt meðal starfsfólks Kópa-
vogshælis
Hvemig líst þér á fram-
komnar tillögur Þroska-
hjálpar um aö draga
verulega úr starfsemi
Kópavogshælis og
fækka vistmönnum úr
155 í 30 á næstu árum?
Emelía Harðardóttir
sérhæfður aðstoðarmaður:
Ég veit ekki hvað tillaga Þroska-
hjálpar gengur útá í smáatriðum. All-
avega sýnist mór það ekki raunhæft
að fækka vistmönnum niður í 30. Ég
hefði haldið að 80 til 90 væri nær lagi.
Það eru það margir sem ekki eru færir
um að vera á sambýli.
Árni Már Björnsson
yfirþroskaþjálfi:
Ég tel þessar hugmyndir raunhæf-
ar í megindráttum. En þess þarf virki-
lega að gæta að því fólki sem kæmi til
með að flytjast í sambýli, yrði tryggð
fólagsleg aðstaða og atvinnumögu-
leika. Aftur á móti er ekki hægt að
leggja Kópavogshælið niður og þá
starfsemi sem hér fer fram.
Kristjana Sigurðardóttir
þroskaþjálfi í Húsinu við Kópa-
voashæli:
Eg held að þessi hugmynd Þroska-
hjálpar sé framkvæmanleg að hluta.
Ég held að allir séu sammála um að
hafa einingarnar fremur minni en
stærri.
Margrét Ásgeirsdóttir
þroskaþjálfi, í Húsinu við Kópa-
vogshæli:
Eg er hrædd um að þessar hug-
myndir geti orðið til þess að fjár-
veitingavaldið haldi að sér höndum
með fjárveitingar til Kópavogshælis-
ins. Það er þó margt gott um hug-
myndi Þroskahjálpar að segja, en ég
held þó að ekki verði unnt að koma
svona mörgum á sambýli eins og
Þroskahjálp virðist álíta.
Jóhanna Sigurðardóttir, fé-
lagsmálaráðherra, veittist
harðlega að gagnrýni Framsókn-
armanna og Sjálfstaeðisflokks-
manna á svokaliað stjórnarfrum-
varp um húsnæðislánakerflð.
Sagði hún gagnrýnina óvægna,
ómaklega og lágkúrlega.
Alexander Stefánsson, fyrr-
verandi félagsmálaráðherra,
svaraði Jóhönnu fullum hálsi og
sagði að ákveðnir aðilar hafi haf-
ið skæruhernað gegn húsnæðisl-
ánakerfinu og notað eigin
reikniforsendur til að dæma kerf-
ið gjaldþrota, en þessir áróð-
ursmeistarar sætu nú í félags-
málaráðuneytinu og fara með
málefni húsnæðisstofnunar.
Til þessara hörðu orðahnipp-
inga kom þegar Jóhanna mælti
fyrir frumvarpi um breytingu á
lögum um Húsnæðisstofnun
ríkisins. Sagði hún að formaður
annars þingflokksins sem væri
með krötum í ríkisstjórn hefði
verið með skæting opinberlega
auk þess sem þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins hefði skilað skri-
flegri yfirlýsingu til hennar um að
hann styddi ekki frumvarpið
nema með fullt af fyrirvörum, en
það bréf hefði henni ekki borist
fyrr en tveimur dögum eftir að
fnimvarpið var lagt fram, þrátt
fyrir að hún hefði ítrekað reynt
að fá breytingatillögur frá sam-
starfsflokkunum í ríkisstjórn.
Þá hefði fulltrúaráð Framsókn-
arflokksins í Reykjavík sam-
þykkt um helgina ályktun, þar
sem frumvarpið var sagt óljóst og
illa orðað.
Skerðing fyrir hendi
Jóhanna sagði að helsta
gagnrýnisatriðið væri það að með
þessu frumvarpi ætti að taka upp
skömmtunarkerfi. Benti hún á að
samkvæmt núgildandi lögum er
Húsnæðismálastjórn heimilt að
synja fólki um lán hafi það ekki
að mati stjórnarinnar nægar tekj-
ur til að standa undir greiðslu-
byrði lánanna. Sagði hún að eng-
inn hefði mótmælt þessu skerð-
ingarákvæði gagnvart láglauna-
fólki á sínum tíma, en nú þegar á
að skerða lán til þeirra efnameiri,
þeirra sem eiga margar íbúðir
fyrir eða skuldlausar eignir, þá
reka ýmsir upp ramakvein, ekki
bara stjórnarsinnar, heldur hafi
það líka verið gagnrýnt í Vinn-
unni, málgagni ASÍ.
Að sögn Jóhönnu stóðust þær
forsendur ekki, sem húsnæðis-
lánalögin höfðu til viðmiðunar.
Sagði hún að ef ekki yrði gripið í
taumana stefndi í gjaldþrot kerf-
isins innan tveggja áratuga, því
væru þessar aðgerðir til að
minnka sjálfvirknina í kerfinu,
nauðsynlegar. Þó væri hér aðeins
um eitt skref að ræða því margt
annað þyrfti að gera til að koma
þessum málum á hreint.
Hvað ákvæðið um breytilega
vexti í frumvarpinu varðaði, þá
sagðist félagsmálaráðherra tilbú-
inn til að fresta gildistöku þess,
því hún bjóst við að það tæki
þingheim langan tíma að útfæra
það, en frumvarpið þolir enga bið
þar sem um 4000 manns bíða nú
þegar eftir lánsloforði, en slík lof-
orð verða ekki afgreidd fyrr en
eftir gildistöku laganna.
Vanhugsaö spor
Alexander Stefánsson sagði
það óvenjulega málsmeðferð hjá
félagsmálaráðherra að hefja mál-
flutning sinn með árásum á sam-
starfsflokka í ríkisstjórn. Sagði
hann að þingflokkur Framsóknar
hefði fallist á að frumvarpið yrði
lagt fram án skuldbindinga um að
þingmenn flokksins styddu frum-
varpið í þessu horfi.
„Frumvarpið er vanhugsað
spor aftur á bak,“ sagði Alexand-
er. Gagnrýndi hann að ekki hefði
verið leitað samráðs við lífeyris-
sjóðina og aðila vinnumarkaðar-
’ ins og sagðist hann óttast um hús-
næðislánakerfið og stuðning áð-
urnefndra aðila við það, ef frum-
varpið næði fram að ganga. Sagði
hann að samkomulagið við aðila
vinnumarkaðarins mætti ekki
eyðileggja með flausturslegum
aðgerðum stjórnvalda.
Alexander sagði að allt frá því
að nýja húsnæðislánakerfið varð
til hafí ákveðnir aðilar verið með
skæruhernað gegn lögunum og
notað til þess eigin reikniforsend-
ur til að dæma kerfið gjaldþrota,
en þessi svartsýni hefði orðið til
þess að mun fleiri sóttu um lán en
ella hefðu gert. Sagði hann að nú
færu þessir áróðursmeistarar
með þennan málaflokk og spurði
hann hvort ætlun þeirra væri að
eyðileggja húsnæðislánakerfið.
Að lokum sagði Alexander að
þetta væri ekki mál eins ráðherra,
heldur þjóðarinnar allrar, sem
vildi öryggi á þessu sviði.
Athyglisveröur
hávaði
Kristín Halldórsdóttir sagði
hávaðann í einstaka stjórnarlið-
um athyglisverðan og sagðist hún
bíða spennt eftir tillögum frá
þeim sem gagnrýndu frumvarpið.
Þó sagðist hún vonast til þess að
deilur stjórnarliða komi ekki í
veg fyrir málefnalega umræðu
um frumvarpið og að þær
breytingar verði gerðar á húsn-
æðislánakerfinu, sem nauðsyn-
legar eru.
Kristín gagnrýndi aðgerðar-
leysi fyrri ríkisstjórnar í þessum
málum og benti á að Kvennalist-
inn hefði gagnrýnt frumvarpið
um húsnæðislánastofnun þegar
það kom fram. Hvað frumvarpið
sem Jóhanna mælti fyrir nú varð-
aði, þá sagði Kristín að Kvenna-
listinn styddi meginmarkmið
frumvarpsins. Síðan taldi hún
upp nokkur atriði í frumvarpinu
sem henni fannst ekki ganga
nógu langt einsog t.d. hvort ekki
væri réttara að sá sem ætti
fullnægjandi húsnæði fyrir fengi
ekki lán frekar en það væri miðað
við þann sem ætti tvær íbúðir
fyrir.
Hvaða mismunandi vaxta-
greiðslur áhrærir þá styður
Kvennalistinn slíkt. Sagði Kristín
að eðlilegt væri að einungis þeir
sem eru að byggja eða kaupa í
fyrsta skipti eða eru að stækka við
sig vegna breyttrar fjölskyldu-
stærðar, njóti niðurgreiddra
vaxta, auk þess sem þeir einir hafí
forgang við úthlutun lána.
Fjöreggið í höndum
misindismanna
„Það var á Alexander Stef-
ánssyni að heyra, að honum fynd-
ist fjöreggið sitt frá því að hann
var félagsmálaráðherra, vera
komið í hendurnar á hálfgerðum
misindismönnum," sagði Stein-
grímur J. Sigfússon.
Taldi Steingrímur þessa um-
ræðu milli núverandi og fyrrver-
andi félagsmálaráðherra hina
sérkennilegustu og því væri full
ástæða til að spyrja enn einusinni
hvort hér væri á ferðinni stjórn-
arfrumvarp eða eitthvað annað.
Steingrímur sagði að af mál-
flutningi Jóhönnu hefði mátt
ráða að engar breytingatillögur
hefðu borist frá stjórnarsinnum
fyrr en á öðrum degi eftir að
frumvarpið var lagt fram og fór
hann fram á að bréfi þingflokks
Sjálfstæðisflokksins yrði dreift til
stjórnarandstöðunnar svo hún
gæti kynnt sér málið.
Þá sagði hann að á Alexander
væri það fyrst og fremst að skilja
að frumvarpið væri ótímabært,
óþarft og yitlaust. Þar sem Alex-
ander er formaður félagsmála-
nefndar blæs því ekki byrlega
fyrir frumvarpinu, en mikil nauð-
syn er á að það fái skjóta af-
greiðslu þar sem um 4000 manns
bíða eftir úrlausn á umsóknum.
Steingrímur rakti meginatriðin
í ræðu Jóhönnu um hvernig á-
standið er, að biðtíminn væri
kominn á þriðja ár og að hann
muni lengjast ef ekkert er aðhafst
og að þrátt fyrir þessar ráðstafan-
ir muni hann lengjast. Hann vakti
athygli á því að hvorki Jóhanna
né Alexander hefðu minnst á það
að framlag ríkissjóðs hefur verið
mun minna en reiknað var með í
samkomulagi aðila vinnumark-
aðarins og það væri því í raun
ríkissjóður sem hefði brotið
samkomulagið milli aðila vinn-
umarkaðarins og ríkisstjórnar-
innar og ætti stóra sök á þessum
langa biðtíma og að í óefni horfði
varðandi vaxtamuninn.
Steingrímur sagði að Alþýðu-
bandalagið væri í meginatriðum
sammála þeirri hugsun sem kæmi
fram í frumvarpinu og sagðist
hann hafa fallið fyrir þeim rökum
félagsmálaráðherra, að þar sem
hægt væri að takmarka lánsrétt
þeirra verst stöddu ætti að vera
hægt að takmarka lánsrétt þeirra
sem best eru settir.
Þegar hér var komið sögu var
umræðum frestað en sex voru
eftir á mælendaskrá.
-Sáf
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 27. október 1987
Alxeander Stefánsson segir Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra, að frumvarpið um húsnæðismál sé vanhugs-
að spor afturábak.