Þjóðviljinn - 27.10.1987, Blaðsíða 3
Utanríkismál
Steingrímur
greinir fra
fundi með
Shulfz
í Bnissel
Steingrímur Hermannsson er
nýkominn heim af fundi utan-
ríkisráðherra Atlantshafsbanda-
lagsins í Brussel. Á fundi þessum
reifaði George Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, gang
nýafstaðinna viðræðna sinna og
sovéskra ráðamanna í Moskvu.
Steingrímur sagði Shultz hafa
haldið því fram að ekki þyrfti
nema nokkrar vikur til að ganga
endanlega frá samningi um
eyðingu skamm- og meðaldrægra
kjarnfiauga risaveldanna. Málið
snérist nú einkum um ýms flókin
lagaleg atriði og yrði kappkostað
að leysa þau á Genfarfundinum
sem fyrst.
Hinsvegar væri óljóst hvenær
af leiðtogafundi yrði þar eð Mík-
ael Gorbatsjof hefði sagt hann
litlum tilgangi þjóna ef engin ár-
angur væri sjáanlegur í viðræðum
um stjömustríðsáætlunina og
túlkun ákvæða Gagnflaugasamn-
ingsins (ABM) frá árinu 1972.
Steingrímur kvaðst hafa spurt
Shultz að því hvort Murmansk-
ræðu Gorbatsjofs hefði borið á
góma en í henni lagði Sovétleið-
toginn fram tillögur um viðræður
NATÓ og Varsjárbandalagsins,
meðal annars um friðlýsingu á
Norður-Atlantshafi. Shultz hefði
svarað því neitandi og ekki sagst
ætla að vekja máls á þeim til-
lögum við Sovétmenn fyrr en þær
hefðu verið ræddar ítarlega af
NATÓ ríkjunum. Aðspurður
sagði Steingrímur að íslendingar
hefðu enn ekki mótað eigin til-
lögur í þeim efnum.
Steingrímur tjáði frétta-
mönnum að íslensk stjórnvöld
hygðust taka þátt í störfum
Kjarnorkuáætlunarnefndar
NATÓ á næstunni. Sér þætti eðli-
legt að við kappkostuðum að
vera sem best heima í þeim efn-
um sökum umræðunnar um víg-
væðingu í höfum og hemaðarlega
mikilvægrar legu lslands.
-ks.
mETÍlU
Framsóknarflokkur
Veist að krötum
Jón Baldvin gagnrýndur fyrir rhatarskattinn og niðurskurð við íþrótta-
hreyfinguna. Jón Sigurðsson gagnrýndurfyrir aðgerðarleysi í Utvegs-
bankasölunni. Jóhanna Sigurðardóttir gagnrýndfyrir vinnubrögð
við húsnœðismálafrumvarp
Fulltrúarráð framsóknarfélag-
anna í Reykjavík veitist að
öllum ráðherrum Alþýðuflokks-
ins í stjórnmálaályktun, sem sam-
þykkt var á aðalfundi fulltrúa-
ráðsins nú um helgina.
í ályktuninni er skorað á ríkis-
stjórnina að fresta matarskattin-
um og nota tímann til að móta
víðtækar og vandaðar hliðarráð-
stafanir. Telur fulltrúaráðið að
það sé í samræmi við stjórnar-
sáttmálann að afnema undanþág-
ur til að gera söluskattskerfið
skilvirkara. „Hinsvegar kemur
ekki til greina að það verði notað
sem skattálagning á þá, sem
flesta munna hafa að fæða. Því
em víðtækar og þaulhugsaðar
hliðarráðstafanir nauðsynlegar.“
Þá segir að stjórnarsáttmálinn
verði lítils virði, ef einstakir ráð-
herrar túlki efni og innihald hans
samkvæmt þrengstu eigin skoð-
unum. Er þar bent á niðurskurð
til íþróttamála, sem gangi þvert á
stefnu Framsóknarflokksins.
Þá lýsir fulltrúaráðið furðu
sinni á aðgerðarleysi bankamál-
aráðherra í Útvegsbankanum og
telur einsýnt að selja beri Sam-
bandinu bankann.
Að lokum átelur fulltrúaráðið
Sigurjón Pétursson fímmtugur
í gær héldu vinir og félagar Sigurjóns Péturs-
sonar borgarfulltrúa í Reykjavík það hátíðlegt að
hann er kominn á sextugsaldurinn. Sigurjón gegnir
margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir hreyfingu
vinstrimanna á íslandi. Hann á m.a. sæti í stjórn
Útgáfufélags Þjóðviljans, í framkvæmdastjóm Al-
þýðubandalagsins og stjórn Sigfúsarsjóðs. Á merk-
um tímamótum árnar Þjóðviljinn Sigurjóni allra
heilla.
Hér má sjá afmælisbarnið taka utan af einni af
fjölmörgum gjöfum sem honum bárust.
Kvóti á smábáta
Seíur okkar menn á hausinn
Formaður Landssambands smábátaeigenda: Verið að hegna
okkurfyrir aukinn þorskafla togara. Þráttfyrir200 báta
fjölgun hefur aflinn aukist aðeins um 200 tonn
Þessar tíllögur sjávarútvegs-
ráðuneytisins um kvóta á
smábátana er tilræði við stéttina
og í raun skilaboð til okkar
manna að hér með séu þeir komn-
ir á hausinn, segir Aríhur Boga-
son formaður Landssambands
smábátaeigenda í samtali við
Þjóðviljann.
Á fundi samráðsnefndarinnar
um mótun næstu fiskveiðistjórn-
ar síðastliðin föstudag, lagði sjáv-
arútvegsráðuneytið fram tillögu
þess efnis að kvóti verði settur á
smábáta undir 10 tonnum sem
ekki hefur verið áður. Þá er einn-
ig lagt til að bátum undir 100
tonnum verði skipt í tvo flokka:
Annarsvegar bátar undir 6 tonn-
um og hinsvegar bátar yfir 6 tonn-
um. Bátum undir 6 tonnum er
samkvæmt tillögunni bannað að
veiða í net, banndagakerfið með
66 dögum gildir áfram og þorsk-
kvótinn verði 40 tonn yfir árið.
Bátar yfir 6 tonn samkvæmt til-
lögunni verða eingöngu á afla-
marki og mega ekki framselja
kvóta, en mega kaupa hann. 6-8
tonna bátar fá 40 tonna þorsk-
Ríkisstjórnin
P
Stefnuræöan í kvöld
orsteinn Pálsson, forsætis-
ráðherra, mun flytja stefn-
uræðu ríkisstjórnarinnar f kvöld
og í framhaldi af því verða um-
ræður um ræðuna. Stefnuræð-
unni og umræðunni verður sjón-
varpað beint.
Umræðan verður í tveimur
umferðum og kemur Alþýðu-
bandalagið næst á eftir forsætis-
ráðherra, þá Alþýðuflokkur,
Borgaraflokkur, Framsóknar-
flokkur og Kvennalisti. Stefán
Valgeirsson talar á milli umferð-
anna.
í fyrri umferð tala þau Svavar
Gestsson og Margrét Frímanns-
dóttir fyrir hönd Alþýðubanda-
lagsins en Ragnar Amalds í
seinni umferð.
-Sáf
þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa
verið af félagsmálaráðherra við
undirbúning að nýju húsnæðis-
málafrumvarpi, þar sem ekki hafi
verið haft viðunandi samráð við
aðila vinnumarkaðarins né sam-
starfsflokka í ríkisstjóm. Þá
álítur fulltrúaráðið að veigamikil
atriði í frumvarpinu séu óljós og
illa skilgreind og krefjist vem-
legrar endurskoðunar. -Sáf
kvóta og bátar frá 8-10 tonna fá|
70 tonna þorskkvóta. Þeir sem
aflað hafa meira á síðustu ámm
geta fengið að hámarki 120 tonna
kvóta.
Að sögn Arthúrs Bogasonar
em þessar kvótatillögur ráðu-
neytisins alvarleg aðför að smá-
bátaeigendum og verið að hegna
þeim að ósekju fyrir það að
þorskaflinn sé 27 þúsund tonnum
meiri fyrstu 9 mánuði ársins en
gert var ráð fyrir að veiða mætti í
ársbyrjun.
„Þeir skilja það ekki þessir háu
herrar að það em fyrst og fremst
togaramir sem hafa veitt allan
þennan þorsk. Á þessum sama
tíma hafa smábátar aðeins veitt
200 tonnum meira en á sama tíma
í fyrra, þrátt fyrir fjölgun þeirra
um 200 á árinu,“ sagði Árthúr
Bogason.
grh
fÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Útgerð á Suðurnesjum
Afall
„Þetta er alveg agalegt að þurfa
að horfa upp á söluna á Dag-
stjörnunni KE til Útgerðarfélags
Akureyringa h/f, beint fyrir
framan neflð á okkur, á sama
tfma og við erum á fullu við að-
koma Útgerðarfélaginu Eldey á
fót, sem hefur þann tilgang að
stemma stigu við sölu skipa og
báta frá Suðurnesjum meira en
orðið hefur,“ segir Logi Þormóðs-
son fiskverkandi í Sandgerði og
einn af forvígismönnum að undir-
búningi að stofnun Útgerðarfé-
lagsins Eldeyjar, í samtali við
Þjóðviljann.
Útgerð og fiskvinnsla á Suður-
nesjum varð fyrir enn einu áfall-
inu um helgina þegar Dagstjarn-
an KE, 743 brúttórúmlestir að
stærð, smíðuð 1969 í Englandi,
var seld til Ú.A. á Akureyri fyrir
180 milljónir króna, en húftryg-
ging skipsins er aðeins um 82
milljónir króna. Heildarkvóti
skipsins er um 2 þúsund lestir og
þar af þorskkvóti um 1700 tonn.
Mismunurinn á kaupverði og
húftryggingunni er vafalaust
verðmæti kvótans.
Að sögn Loga er þetta þriðja
skipið sem er selt frá Suðurne-
sjum frá því menn þar syðra fóru
af stað með stofnun Útgerðarfé-
lagsins Eldeyjar. Hinir tveir bát-
arnir eru Þórkatla 2 sem seld var
til Hornafjarðar og Binni í Gröf
sem seldur var til Súðavíkur.
„Þorskkvóti Dagstjömunnar
hækkar um 600 tonn með því að
fara á norðursvæðið til Akur-
eyrar, þannig að kvótagróðinn
miðað við fiskmarkaðsverð er vel
yfir 20 milljónir króna, sem Út-
gerðarfélag Akureyringa græðir
á kaupunum," segir Logi Þórm-
óðsson. grh
Herstöðva andstœðingar
Ný miðnefnd
Á landsráðstefnu Samtaka her-
stöðvaandsæðinga, sem haldin
var í Reykjavík á laugardaginn,
var kjörin ný miðnefnd. í henni
sitja:
Aðalmenn:
Amar Már Ólafsson, Auður
Haraldsdóttir, Dýrleif Bjama-
dóttir, Guðrún Bóasdóttir, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Jóhann
Bjömsson, Jón Proppé, Jón
Torfason, Ragnar Karlsson,
Rakel Kristjánsdóttir, Sveinn
Rúnar Hauksson, Tómas Jó-
hannesson.
Varamenn:
Amþór Helgason, Atli Gísla-
son, Ámi Hjartarson, Ástríður
Karlsdóttir, Bima Þórðardóttir,
Bjami Harðarson, Emil Bóas-
son, Guðmundur Georgsson,
Gunnar Karlsson, Jóhanna Páls-
dóttir, Siggerður Þorsteinsdóttir,
Þorleifur Friðriksson.