Þjóðviljinn - 27.10.1987, Blaðsíða 6
TILLOGUR >EFAB FYRIR LANDSFUND AB
Dagheimilið
Blöndubakka 2
Fóstrur og þroskaþjálfar ásamt ófaglærðu starfs-
fólki óskast til starfa sem fyrst.
Um er að ræða stuðningsvinnu með einstökum
börnum og almennt starf á deild. Upplýsingar
gefur forstöðumaður í síma 71240.
Félagatal Vbf. Þróttar
Vegna útgáfu sögu og félagatals Vbf. Þróttar
liggur frammi próförk á afgreiðslu stöðvarinnar,
Borgartúni 33, til 31. okt. n.k. Eru allir sem hlut
eiga að máli beðnir að koma og lesa yfir próförk
sem þeim tilheyrir og gera athugasemdir ef ein-
hverjar eru.
Ritnefnd
Borgnesingar
Nýr umboðsmaður, Inga Björk Halldórsdóttir,
Kveldúlfsgötu 26, sími 71740, hefur tekið við
dreifingu blaðsins.
Afgreiðsla Þjóðviijans
AiÞÝDUBANDAIAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Rabbfundur í
aðdraganda landsfundar
verður haldinn í kvöld, þriðjudagskvöld að Hverfis-
götu 105, og hefst klukkan 20.30. Svavar Qestsson
mætir á fundinn og kynnir drög að stefnuályktun
landsfundar: Framtíðarsýn.
Fundurinn er öllum opinn en landsfundarfulltrúar frá
Fteykjavík eru sérstaklega boðaðir.
Stjórnln
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Aðalfundur bæjarmálaráðs
Aðalfundur bæjarmálaráðs ABK verður haldinn í Þinghóli, fimmtudaginn
29. október kl. 20.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin
Alþýðubandalagið Kjósarsýslu
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Kjósarsýslu verður haldinn miðvikudag-
inn 28. október kl. 20.00 í Hlégarði.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Önnur mál.
Sem sérstakir gestir á fundinn koma þeir: Svavar Gestsson form. Alþýðu-
bandalagsins, Geir Gunnarsson alþm., og Ólafur Ragnar Grímsson vara-
þingm. Munu þeir flytja stutt ávörp í tilefni Landsfundar og ræða flokksstarf-
ið, einnig munu þeir fjalla um það sem efst er á baugi í stjórnmálunum.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti á fundinn. Stjórnln
Alþýðubandalagið á Siglufirði
heldur félagsfund
þriðjudaginn 27. október, kl. 20.30 í Suðurgötu 10.
Dagskrá:
1. Landsfundur Alþýðubandalagsins.
2. Bæjarmál. Stjórnln
Húsnœðismál
Öflugur
Félagsíbúðasjóður
Landsþing ÆFAB leggur til að
eftirfarandi tillaga í húsnæðis-
málum verði lögð fyrir landsfund
AB.
Til að koma megi upp félags-
legu íbúðakerfi, sem bjóði upp á
einhvern valkost til hliðar við sér-
eignakerfið sem nú er ríkjandi í
húsnæðismálum íslendinga, þarf
að gera stórátak. Tillögur ÆFAB
eru:
Sett verði lög um Félagsíbúða-
sjóð.
Markmið laganna verði:
- að stuðla að jafnrétti í húsnæð-
ismálum, einkum þeirra þjóð-
félagshópa er erfitt eiga upp-
dráttar á almennum húsnæðis-
markaði.
- að stuðla að valfrelsi í húsnæð-
ismálum, þannig að leigjendum
og eigendum íbúðarhúsnæðis sé
gert jafn hátt undir höfði.
- að auka jafnræði milli byggðar-
laga og landshuta í húsnæðis-
málum, þannig að unnt verði
að draga sem mest úr nei-
kvæðum áhrifum markaðss-
veiflna fyrir búsetujafnvægi í
landinu.
Skipulag og hlutverk sjóðsins
verði:
Félagsíbúðasjóðurinn skal
starfa í tengslum við Húsnæðis-
stofnun ríkisins sem félagsíbúða-
deild stofnunarinnar, en lúta
sérstakri stjórn. Málefni sjóðsins
skulu heyra undir félagsmála-
ráðuneytið. Sjóðurinn á að starfa
við hlið hins almenna íbúðalán-
akerfis, að framgangi félagslegra
jafnréttismarkmiða í húsnæðism-
álum.
Á vegum sjóðsins skal fara
fram áætlanagerð um virka upp-
byggingu félagslegs húsnæðis í
öllum landshlutum, er á hverjum
tíma byggir á fyrirliggjandi
rannsóknamiðurstöðum um þörf
einstakra sveitarfélaga og al-
mannasamtaka fyrir leiguíbúðir
og aðrar félagslegar íbúðir.
Hlutverk Félagsíbúðasjóðs
skal vera að fjármagna hinn fé-
lagslega hluta opinbera húsnæð-
islánakerfisins. Félagslegt húsn-
æði skal vera húsnæði, sem annað
hvort er í eigu og/eða byggt af
sveitarfélögum, stofnunum eða
fyrirtækjum á þeirra vegum, al-
mannasamtökum með velferðar-
markmið, húsnæðissamvinnufé-
lögum eða öðrum þeim aðilum
sem ekki láta husnæði í té í hagn-
aðarskyni. Fjármögnun sjóðsins
skal vera með þeim hætti að hann
geti fjármagnað a.m.k. einn
þriðja hluta af árlegri húsnæðis-
þörf landsmanna.
Stjóm lánasjóðsins skal skipuð
7 einstaklingum og 7 til vara.
Stjómarmenn skulu vera úr
röðum eftirtalinna aðila: Að-
ildarfélaga ASÍ, aðildarfélaga
BSRB, samtaka sveitarfélaga,
samtaka leigjenda, samtaka
námsmanna, samtaka öryrkja og
fatlaðra og samtaka aldraðra.
Félagsmálaráðherra skipar
stjórnarmenn og varamenn til
tveggja ára í senn.
Hlutverk sjóðsstjórnarinnar skal
vera:
a) Að móta meginþætti í starf-
semi Félagsíbúðasjóðs, þar á
meðal útlánastefnu sjóðsins.
b) Að fjalla um fjármagns- og
framkvæmdaáætlanir sjóðsins
í samráði við forstöðumann.
c) Að hafa eftirlit með starfsemi
sjóðsins og skera úr um vafa-
atriði er upp kunna að koma í
sambandi við lánveitingar
hans.
Fjármögnun sjóðsíns skal vera:
a) Með tekjum af eigin fé sjóðs-
ins, þ.e. afborgunum, vöxtum
og verðtryggingu af veittum
lánum.
b) Með árlegum framlögum úr
ríkissjóði sem nemi tekjum
hans af 1% launaskatti og
framlagi á fjárlögum, ef þarf,
til þess að sjóðurinn geti fjár-
magnað a.m.k. einn þriðja
hluta af árlegri húsnæðisþörf
landsmanna.
c) Með framlagi sveitarfélaga
sem nemi 10% af því fjármagni
sem sjóðurinn lánar til hús-
næðis í viðkomandi sveitarfé-
lagi ár hvert.
d) Með sérstökum lántökum sem
ákveðnar verða í fjárfestingar
og lánsfjáráætlun, þar á meðal
V3 hluta tekinna lán Húsnæðis-
stofnunar hjá lífeyrissjóðun-
um.
Lánveitingar Félagsíbúðasjóðs
Úr Félagsíbúðasjóði er heimilt
að veita lán til bygginga eða
kaupa:
1. Verkamannabústaða og/eða
kaupleiguíbúða.
2. Leiguíbúða sveitarfélaga.
3. Leigu eða hlutareignaíbúða í
eigu húsnæðissamvinnufélaga.
4. Námsmannahúsnæðis.
5. Leigu eða hlutareignaíbúða í
eigu fatlaðra.
Lánveitingar til verkamanna-
bústaða og/eða kaupleiguíbúða
Lánshlutfall skal vera 90%
eðlilegs byggingarkostnaðar eða
kaupverðs ef um verkamanna-
bústaði er að ræða en 100% ef um
kaupleiguíbúðir eiga í hlut. Lánið
skal veitt til allt að 50 ára, með
2,5% ársvöxtum.
Lán tU leiguíbúða sveitarfélaga
Lánshlutfall skal vera 100%
eðlilegs byggingarkostnaðar eða
kaupverðs. Lánið er veitt til allt
að 60 ára, með 2% ársvöxtum.
Lán tU leigu eða hlutareignaíbúða
húsnæðissamvinnufélaga
Lánshlutfall til hlutareignaí-
búða húsnæðissamvinnufélaga
skal vera 90% eðlilegs bygging-
arkostnaðar eða kaupverðs, en
100% ef um leiguíbúð er að ræða.
Lán til húsnæðissamvinnufélaga
skal veita til allt að 50 ára, með
2,5% ársvöxtum.
Lán tU námsmannahúsnæðis
Lánshlutfall til námsmanna-
húsnæðis skal vera 100% eðlilegs
byggingarkostnaðar eða kaup-
verðs. Lánið skal veita til allt að
60 ára, með 2% ársvöxtum.
Lán til leigu eða hlutareigna-
íbúða fatlaðra
Lánshlutfall til hlutareigna-
íbúða fatlaðra skal vera 95% eðli-
legs byggingarkostnaðar eða
kaupverðs, en 100% ef um leiguí-
búð er að ræða. Lánin skal veita
til allt að 60 ára, með 2% ársvöxt-
um.
Lán tU leigu eða hiutareignaíbúða
aldraðra
Lánshlutfall til hlutareignaí-
búða aldraðra er 90% eðlilegs
byggingarkostnaðar eða kaup-
verðs, en 100% ef um leiguíbúð
er að ræða. Lán eru veitt til allt að
60 ára, með 2% ársvöxtum.
Öll lán úr Félagsíbúðasjóði
skulu vera að fullu verðtryggð og
miðast höfuðstóll lánsins við
lánskjaravísitölu eins og hún er á
hverjum tíma. Lánin skulu
tryggð með 1. veðrétti í hlutað-
eigandi fasteign. Lán sjóðsins
skulu vera vaxtalaus fyrstu þrjú
árin en endurgreiðast síðan að
fullu með jöfnum greiðslum
vaxta og afborgana að viðbættum
verðbótum.
Félagsíbúðaráð
f öllum kaupstöðum landsins,
svo og í kauptúnum með 1000
íbúa eða fleiri, skal starfa sérstakt
félagsíbúðaráð, er vinnur að sam-
ræmingu aðgerða til þess að auka
framboð á félagslegu íbúðahús-
næði. í félagsíbúðaráði í kaup-
stöðum eða kauptúnum með
2000 íbúa eða fleiri, eiga sæti
fimm fulltrúar. Fél-
agsmálayfirvöld, húsaleigunefnd
og fulltrúaráð verkalýðsfélaga
skulu tilnefna hver sinn fulltrúa,
og jafnframt skal bæjarstjórn
kjósa tvo fulltrúa úr röðum
leigjenda, aldraðra, öryrkja og
námsmanna. í félagsíbúðaráði í
kaupstöðum eða kauptúnum
með færri en 2000 íbúa eiga sæti 3
fulltrúar. Félagsmálayfirvöld og
stjórn stærsta verkalýðsfélags í
viðkomandi byggðarlagi skulu
tilnefna hvor sinn fulltrúa, og
jafnframt skal bæjarstjórn kjósa
einn fulltrúa úr röðum leigjenda,
aldraðra, öryrkja og náms-
manna.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 27. október 1987