Þjóðviljinn - 27.10.1987, Page 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Suður-Kórea
.. .sundraðir
föllum vér!
Stjórnarandstaðan í Suður-Kóreu býðurfram
tvo frambjóðendur íforsetakosningunum í
desember gegn einumframbjóðanda valdhafa
Fyrrum félagar og samherjar, Kim Young Sam og Kim Dae Jung. Þeir voru sigurreifir fyrir fáeinum mánuðum en þar eð
þeir hyggjast báðir bjóða sig fram til embættis forseta er víst að báðir munu bíða ósigur í desember.
Fyrrum samherjar í baráttu
fyrir lýðræði í Suður-Kóreu
og leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar, Kim Dae Jung og Kim Yo-
ung Sam, munu vera skildir að
skiptum og hyggjast báðir bjóða
sig fram í embætti forseta í kosn-
ingunum sem haldnar verða í des-
ember. Stjórnmálaskýrendur
segja þetta jafngilda því að færa
frambjóðanda valdhafa emb-
ættið á silfurfati.
Það voru samherjar Kimanna
tveggja sem báru þessi tíðindi á
borð í gær. Þeir sögðu að Kim
Dae Jung ætlaði að stofna nýjan
stjórnmálaflokk er stæði að baki
framboði hans en Kim Young
Sam býður sig fram á vegum
Lýðræðislega einingarflokksins,
öflugustu fylkingar stjórnarand-
stæðinga. Yfirlýsingar um flokk-
stofnunina er að vænta frá Kim
Dae Jung á morgun að sögn
stuðningsmanna hans.
Kimarnir hafa að undanfömu
eldað grátt silfur saman um það
hvorum þeirra bæri hnossið.
Hvoragur hefur ljáð máls á því að
víkja og fyrir vikið verða sigurlík-
ur stjómarandstæðinga í forset-
akosningunum að teljast mjög
litlar eða engar. „Fyrst ekki náð-
ist samstaða um einn frambjóð-
anda var ekki um annað að ræða
en að stofna nýjan flokk,“ sagði
einn af bandamönnum Kim Dae
Jungs í gær.
Forsetakjörið í desember er
fyrsta frjálsa kjörið er fram fer í
Suður-Kóreu um sextán ára
Frakkar reyndu á sunnudag ao
gera sem minnst úr þeim
óeirðum er urðu á Tahiti á föstu-
dag. Engu að síður sendu þeir
mörg hundruð hermenn og lög-
regluþjóna til eyjarinnar og eiga
þeir að tryggja að allt verði þar
með kyrrum kjörum framvegis.
Öryggismálaráðherra Frakk-
lands sagði í gær að það væri út í
hött að bera atburðina í Papeete,
höfuðborg Tahitis og frönsku
Pólynesíu, saman við það sem
gerst hefði í Nýju-Kaledóníu og á
Fijieyjum. Eflaust væri einhverja
aðskilnaðarsinna að finna í hópi
skeið. Núverandi forseti, Chun
Doo Hwan, hafði ekki ætlað sér
að efna til kosninga en var
neyddur til þess af almenningi í
sumar einsog menn rekur minni
til. Áður hafði hann valið sér eft-
irmann, Roh Tae Woo að nafni,
kunningja sinn sem einnig er
þeirra 500 verkfallsmanna og
unglinga er lentu í átökum við
lögreglu í Papeete en þeir væru
teljandi á fingrum annarrar hand-
ar.
Átökin hófust er lögregla
reyndi að fjarlægja hafnarverka-
menn sem eru í verkfalli burt frá
hafnarsvæðinu. Þau breiddust
skjótt út er unglingar úr miðborg-
inni lögðu verkamönnum lið og
var grjóti kastað og bensín-
sprengjum varpað að lögreglu.
Þegar látunum linnti lágu tuttugu
slasaðir í valnum, þar af þrír al-
fyrrum hershöfðingi. Hann verð-
ur frambjóðandi flokks ráða-
manna, Lýðræðislega réttlætis-
flokksins, í kosningunum í des-
ember og virðist mjög sigur-
stranglegur vegna klofningsins í
röðum andstæðinganna.
í dag munu íbúar Suður-Kóreu
varlega. 60 voru handteknir.
Útgöngubann var sett á um
kvöldið og neyðarástandsiög
tóku gildi, í fyrsta sinn í sögu Ta-
hitis.
Fjarsýslnaráðherra Frakk-
lands, Bernard nokkur Pons,
sagði að lögreglan í Papeete hefði
verið of fáliðuð til þess að geta
haft taumhald á mannskapnum á
föstudag. Hann kvaðst ekki hafa
áhyggjur af því að um skipulegar
aðgerðir sjálfstæðissinna hefði
verið að ræða.
Engu að síður sendu franskir
ganga að kjörborði og greiða at-
kvæði um nýja stjórnarskrá en
lokadrög að henni voru sam-
þykkt einróma á þingi landsins
fyrir skömmu. Ekki er búist við
öðru en að hún verði samþykkt
með öllum þorra atkvæða.
ráðamenn um 470 dáta og
slagsmálalögreglumenn til Tahiti
um helgina, þar af um 200 her-
menn í útlendingaherdeildunum.
Ýmsir hafa velt vöngum yfir
því hvort aðskilnaðarsinnum á
Tahiti sé að vaxa ásmegin. J»á
hlýtur sú spurning að vakna hvort
Frakkar verði ekki að leita að
nýju tilraunasvæði fyrir kjara-
sprengjur sínar en sem kunnugt
er hafa þeir notað Mururoa kór-
aleyjaklasann til slíks brúks en
hann heyrir til Frönsku Pólynesíu
einsog Tahiti.
-ks
-ks.
Tahiti
Frakkar gera lítiö úr óeirðum
Ráðamenn í París fullyrða að aðskilnaðarsinnar hafi ekki staðið að baki óeirðum á Tahiti áföstudag
SKAK
Umsjón: Helgi Ólafsson
Litlaust jafntefli í 6. skák
Tapið í fimmtu skák situr í Kasparov
Jafntefli varð í sjöttu einvígis-
skák Garri Kasparovs og Anatoly
Karpovs sem tefld var i Sevilla á
Spáni í gær. Kasparov tók sér
ekki frí frá taflinu í gær eins og
margir höfðu spáð > heldur
mætti til leiks greinilega stað-
ráðinn í að jafna metin. Þrátt.
fyrir betri stöðu út úr byrjuninni
komst hann lítt áleiðis gegn ör-
uggri taflmennsku Karpovs og
bauð jafntefli eftir að hafa leikið
sínum 28. leik sem Karpov þáði.
Kasparov er því vinningi undir að
loknum sex skákum.
Umskiptin í fimmtu skákinni
sátu augljóslega í Kasparov og er
margt sem bendir til að sjálfs-
traust hans hafí beðið hnekki.
Taflmennska hans í gær var
óvenju litlaus og hugmynda-
snauð. Karpov brá út af tafl-
mennsku sinni frá annarri og
fjórðu skák og upp kom staða
sem sérfræðingar þekkja úr
lokaða-afbrigðinu í Sikileyjar-
vöm. Virtist hvítur vera að fá færi
á opinni línu, en varnir svarts
voru traustar fyrir og hið tiltölu-
lega auðvelda jafntefli hlýtur að
teljast nokkur sigur fyrir Karpov
sem virðist ráða ferðinni eins og
sakir standa. Það verður þó ekki
auðvelt mál fyrir hann að hrifsa
skákkórónuna af höfði Kaspar-
ovs. Enn á hann óleyst fræðileg
vandamál. Á sviði byrjana stend-
ur hann andstæðingi sínum
greinilega að baki. Næsta skák
verður tefld á morgun, miðviku-
dag og hefur Karpov hvítt.
3. einvígisskák:
Garrí Kasparov -
Anatoly Karpov
Enskur leikur
í. c4-e5
(Það er út af fyrir sig dálítið at-
Jóhann efshir ásamt Kortsnoj
Timman og Ljubojevic
Lofsamleg ummæli Karpovs
Jóhann Hjartarson er enn efst-
ur á stórmótinu í Belgrad í Júg-
óslavíu þrátt fyrir tap í biðskák
fyrir Júgóslavanum Popovic úr 7.
umferð. Viktor Kortsnoj sem var
efstur ásamt Jóhanni eftir Sex
umferðir tapaði einnig sinni skák
gegn Englendingnum Nigel Short
en upp við hliðina á þeim Jóhanni
og Kortsnoj komust góðkunn-
ingjar okkar íslendinga frálBM
mótinu þeir Ljubojevic og Jan
Timman. Þeir eru allir með 4Vi
vinning.
Úrslit í 6. umferð sem tefld var
á laugardaginn urðu þau að Jó-
hann gerði jafntefli við Sovét-
meistarann Álexander Beljavskí,
Nikolic vann Short, Kortsnoj
vann Salov, Timman vann Marj-
anovic, Ljubojevic vann Gligoric
en skák Popovic og Ivanovic fór í
bið.
í 7. umferð sem tefld var á
sunnudaginn urðu úrslit þau að
Beljavskí vann Gligoric, Ljubo-
jeviv vann Marjanovic, Short
vann Kortsnoj, Popovic vann Jó-
hann eftir að skák þeirra hafði
farið í bið og jafntefli gerðu Salov
og Timman og Ivanovic og Nikol-
ic.
Staðan að loknum sjö um-
frðum er þá þessi: 1. Jóhann,
Kortsnoj, Timman og Ljubojevic
allir með 4Vi vinning. 5. Beljavskí
4 v. 6. Popovic 3Vi v. og biðskák.
7.-8. Short og Nikolic 3Vi v. 9.
Ivanovic 3 v. og biðskák. 10. Sal-
ov 3 v. 11. Gligoric 2 v. 12. Marj-
anovic Vi v.
Dagurinn í gær var fyrir bið-
skákir en í næstu umferðum teflir
Jóhann við þá Kortsnoj, Timman
og Ljubojevic.
Anatoly Karpov sem nú stend-
ur í ströngu í Sevilla sagði í viðtali
við júgóslavneska sjónvarpið um
helgina að árangur Jóhanns kæmi
sér ekki á óvart. Hann hefði teflt
við Jóhann á Ólympíuskákmót-
inu í Dubai í fyrra og vissi að þar
færi mjög sterkur skákmaður sem
gæti hæglega orðið fremsti skák-
maður Vesturlanda á næstu
árum.
hyglisvert að eftir annað einvígi
þeirra félaga í Moskvu haustið
1985 steinhætti Karpov að leika
kóngspeðinu með hvít vegna
kraftmikillar taflmennsku Kasp-
arovs í Sikileyjarvörn. Þetta er
auðvitað ekkert annað en Sikil-
eyjarvörn með skiptum litum og
Karpov er leik á eftir!)
2. Rc3-Rc6
(Eftir afhroðið í 4. skákinni telur
Karpov það affararsælast að leita
nýrra leiða.)
3. g3-g4
4. Bg2-d6
5. Hbl-Bf5
(Óvenjulegur leikur en Karpov
virðist vera mikið í mun að forð-
ast heimarannsóknir Kasparovs.
5. .. Bg7 og .. Rge7 er algengasti
leikmátinn.)
6. d3-Dd7 9. Rd5-c6
7. b4-Bg7 10. bxc6-bxc6
8. b5-Rd8 11. Rc3
(11. Re3 kom einnig til álita.)
11 Rp7 ^4. 0-0-Beó
12! Ba3-0-0 ]S- Da4-f5
13. Rf3-h6 16, Rd2*Rf7
(Svartur hefur byggt upp trausta
stöðu þó Kasparov standi eilítið
betur að vígi.)
17. Hb3-Hab8
18. Hfbl-Hxb3
19. Hxb3
(Einnig mátti reyna 19. axb3 og
sækja síðan að veikleikanum á
a7. Svartur á leikinn 19. .. e4!
með gagnfærum á miðborðinu.)
19. .. Hc8
20. Da6-Rd8
21. Bb4-Hb8
22. Ra4
(Pessi leikur bendir til þess að
Kasparov geri sér ekki miklar
vonir um sigur. Til greina kom
22. Ba5 en eftir 22. .. Hxb3 23.
axb3-Db7 nær svartur drottning-
arkaupum og staðan gerist æði
jafnteflisleg.)
22. .. Kf7
23. Bc3-Hxb3
24. axb3-Dc7
25. e3-Bc8
(Þvingar fram enn meiri um-
skipti. Nú blasir jafnteflið við.)
26. Da5-Dxa5
27. Bxa5-Re6
28. Bb4
Kasparov bauð jafntefli um
leið og hann lék þessum leik. Ein-
faldasta svar svarts er 28. .. d5.
Lokastaðan býður ekki upp á
mikla möguleika. Kannski gæti
heimsmeistarinn teflt þessa stöðu
áfram með árangri gegn sér lakari
skákmanni en hann kemst ekkert
áfram gegn Karpov.
Jafntefli.
Staðan:
Karpov 3 */2 - Kasparov 2'/2
Þriðjudagur 27. október 1987. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15