Þjóðviljinn - 17.11.1987, Síða 1

Þjóðviljinn - 17.11.1987, Síða 1
Þriðjudagur 17. nóvember 1987 257. tölublað 52. árgangur Olíulekinn Leiðslan gleymdist 75þús. lítrar runnu út um hliðarleiðslufyrir tank sem aldrei var byggður. Enginn mundi eftir leiðslunni. Jóhann Sveinsson heilbrigðisfulltrúi: Óvíst hve mengunin er víðtœk Ovissa rfldr um hvernig olían sem lak út úr tanki hersins fyrir ofan Njarðvík fyrir rúmri viku hefur síast um jarðlögin nið- ur við byggðina. Gatið á olíu- leiðslunni fannst loksins um sl. helgi eftir vikuleit, en um 75 þús. lítrar af gasolíu hafa lekið út um aukaleiðslu sem átti að liggja í olíutank sem aldrei var byggður. „Olían hefur farið úr aðal- leiðslunni og inn í gamla auka- leiðslu og lekið þaðan niður í jarðveginn," sagði Jóhann Sveinsson heilbrigðismálafulltrúi Suðurnesja í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. „Þessi litla leiðsla er tengd við aðalleiðsluna og átti að liggja út í tank, en tankurinn hef- ur bara aldrei verið byggður. Leiðslan hefur verið eitthvað skemmd og olían því farið niður í jarðveginn." Enn er óljóst hversu dreifð olían er í jarðveginum, en verið er að rannsaka það mál. „Ef það reynast vera sprungur í berginu, þá gæti olían jafnvel komist í vatnsból og valdið mengun. Við tökum vatnssýni reglulega og enn sem komið er hefur engin meng- un fundist,“ sagði Jóhann. Þegar lekans varð vart fyrir röskri viku gripu heilbrigðisyfirvöld til þess ráðs að loka vatnsbólinu í Njarð- vík, en vatnsstreymið í bólið liggur um mengunarsvæðið. Akveðið hefur verið að fara með olíumettaða jarðveginn í malbikunarstöð og freista þess að binda olíuna í hann. „Hvað svo verður vitum við ekki enn,“ sagði Jóhann Sveinsson. Út um þessa aukaleiðslu sem enginn mundi ettir lak olían úr tanki hersins. Jóhann Sveinsson heilbrigðisfulltrúi Suðurnesja bendir á olíumengunina. :.OI. Mynd: E.( VMSÍ/VSÍ Allt málað svart Starf vinnuhóps VSÍ og VMSl um stöðu útflutningsgreinanna senn lokið. Karvel Pálmason: Heflitla trú á útkomunni. / skýrslu Þjóðhagsstofnunar er allt málað svart Hópurinn skilar senn áliti, en ég hef litla trú á því að það komi mikið út úr þessu starfi, sagði Karvel Pálmason varaformaður Verkamannasambandsins um starf vinnuhóps VMSÍ og VSÍ um stöðu útflutningsatvinnugrein- anna, en hópurinn var scttur af stað að ósk Vinnuveitendasam- bandsins. Karvel sagði að vinnuveitend- ur gerðu lítið annað en að kveina um efnahagshorfur og að á síð- asta fundi hefði forstjóri Þjóð- hagsstofnunar verið fenginn til þess að vera með yfirlestur um bágborna stöðu þjóðarbúsins. „Svona yfirlestrar virðast aldrei koma upp nema þegar þeir lægst launuðu eiga í hlut. Þá er allt mál- að svart. Svo er hins vegar ekki þegar verið er að byggja yfir banka og verslun, eða þegar ver- ið er að semja við iðnaðarmenn," sagði Karvel. Karvel sagði að það hefðu ver- ið skýr skilaboð frá síðasta þingi Verkamannasambandsins að hlutur þeirra sem setið hafa eftir frá jólaföstusamningunum yrði réttur og í samningum við vinnu- veitendur yrði þeirri kröfu fast fylgt eftir. f dag verður haldinn sameigin- legur fundur VSÍ og VMSI og sagði Karvel að hugsanlega skýrðust línurnar á þeim fundi. Þá verður fundur framkvæmda- nefndar Verkamannasambands- ins haldinn á morgun. „Á þeim fundi hljóta menn að segja af eða á hvert skal halda,“ sagði Karvel. -K.Ól. Alþingi Verður borginni stefnt? Tjörnin á skrá yfir náttúruminjar ogþvíber að leita álits Náttúruverndarráðs áður enframkvœmdir við ráðhús hefjast. Guðrún Helgadóttir: Efastekki um að borginni verður stefnt ef ekki verður farið að lögum Norðurlandaráð Grámosi og Tímaþjófur íslenska framlagið ákveðið Skáldsögurnar Tímaþjófurinn eftir Steinunni Sigurðardóttur og Grámosinn glóir eftir Thor Vil- hjálmsson hafa verið tilnefndar af íslands hálfu til bókmenntaverð- launa Norðuriandaráðs árið 1988. Dómnefnd kemur saman í Þórshöfn í Færeyjum í janúarlok og ákveður hver hlýtur verð- launin, rúmar 700 þúsund ísl. krónur, sem verða afhent á þingi ráðsins í Osló næsta vor. Sveinn Einarsson og Jóhann Hjálmarsson eru íslensku fulltrú- arnir í nefndinni og er Jóhann nú formaður hennar. -lg. Tjörnin er á náttúruminjaskrá og samkvæmt 29. grein nátt- úruverndarlaga er skylt að leita álits Náttúru verndarráðs ef fyrir- hugaðar framkvæmdir geta or- sakað að landið breyti verulega um svip, að merkum náttúru- minjum verði spillt eða ef hætta er talin á mengun lofts og lagar. Sé það vanrækt getur Náttúruverndarráð kraflst af lög- reglustjóra að hann stöðvi fram- kvæmdirnar. í umræðu á Alþingi í gær um þingsályktunartillögu Guðrúnar Helgadóttur og fleiri, um að rannsókn verði gerð á lífríki Tjarnarinnar og áhrifum ráð- hússins á það, kom fram að borg- aryfirvöld hafa ekki leitað álits Náttúruverndarráðs vegna fyrir- hugaðra framkvæmda. A Alþingi var m.a. deilt um það hvort það væri hlutverk þingsins að hlutast til um að slík rannsókn færi fram og að Alþingi tæki þannig að sér dómsvald eða hvort ekki væri nær að Náttúruverndarráð stefndi borg- aryfirvöldum. Guðrún Helgadóttir sagði að ákveðið hefði verið að reyna sáttaleiðina fyrst, en ef fram- kvæmdir hæfust án þess að leitað hefði verið álits Náttúruverndar- ráðs, sagðist hún ekki efast um að slík kæra kæmi fram. -Sáf Sjá bls. 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.