Þjóðviljinn - 17.11.1987, Síða 10

Þjóðviljinn - 17.11.1987, Síða 10
ERLENDAR FRÉTTIR Afganistan Rússamir fara Líkur taldar á að Gorbasjoffflýti brottför Sovéthers frá Afganistan til að liðkafyrir toppfundinum með Reagan í nœsta mánuði Samkvæmt frétt vesturþýsks blaðs frá í gær hefur Gorbasj- off Sovétleiðtogi tiikynnt stjórnvöldum í Afganistan að her- inn verði kallaður heim á næst- unni. Gorbasjoff hitti leiðtoga Af- gana, Najibullah, að máli í Mos- kvu hinn 2. nóvember síð- astliðinn, og leitaði samþykkis hans á því að herdeildir Sovét- manna yrðu kallaðar heim „eins fljótt og mögulegt er“, segir blað- ið Siiddeutsche Zeitung, og vitn- ar í heimildarmenn frá Austur- Evrópu sem dveljast í Kabúl, höfuðborg Afganistan, máli sínu til stuðnings. Samkvæmt frásögn blaðsins á Gorbasjoff að hafa sagt Najibull- ah að nú verði byltingarmenn að fara að standa á eigin fótum. Blaðið telur að Gorbasjoff muni nota tækifærið meðan á toppfundi hans og Reagans stendur í næsta mánuði til að kynna áætlanir um heimkvaðn- ingu hersins frá Afganistan. Vestrænir hernaðarsérfræðingar áætla að um 115 þúsund sovéskir hermenn séu nú í landinu. „Þegar hefur verið tekin pólit- ísk ákvörðun í þessa veru. Það eina sem er eftir er að ganga frá framkvæmdinni,“ segir blaðið, og hefur þessa fullyrðingu eftir sovéskum heimildum í Kabúl. Blaðið telur líklegt að rætt verði um slík framkvæmdaatriði á af- vopnunarráðstefnunni í Genf þegar fjallað verður um málefni Pakistan og Afganistan. „ Við verðum á brott frá Afgan- istan fyrr en marga Vesturlanda- búa grunar, og fyrr en stjórnvöld í Kabúl telja æskilegt,“ hefur Suddeutsche Zeitung eftir so- véskum diplómat í Afganistan. Aftan í þessa fullyrðingu er síðan hnýtt þeirri athugasemd að ekki lægi ljóst fyrir hvernig og hvenær af heimkvaðningunni yrði. Blaðið segir að Gorbasjoff hafi fundið að því við Najibullah að sovéskri hernaðaraðstoð í Afgan- istan hefði verið sóað fyrir lítið. Ennfremur að flokkadrættir innan stjórnarinnar í Kabúl gerðu sitt til að veikja vígstöð- una. Þá á Gorbasjoff að hafa sett ofan í við bandamenn sína fyrir að hafa ekki tekist að ganga milli bols og höfuðs á uppreisnar- mönnum. Þá er talið að Sovét- leiðtoginn hafi bent á að þeirri kröfu aukist sífellt fylgi innan lands síns að hernaðaraðstoð við Afganistan verði hætt. „Við höfum staðið með ykk- ur,“ hefur blaðið eftir Gorbasj- off. „Nú verðið þið að sýna lit til að við getum hvatt herinn heim.“ HS 1 Stórblaðið Sud- deutsche Zeitung segirað heimkvaðning So- IvéthersfráAfgan- istan sé á næstu grösum. Með því vilji Sovétmenn liðkafyrirþvíað ár- angurnáistáfyrir- huguðumtopp- fundiReagansog Gorbasjoffs í næsta mánuði. Gorbasjoff Sovét- leiðtogi: Eftirer yðvarr hlutur. Útboð %'y/m Sm Eyjafjarðarbraut eystri um m Kaupang ' Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 3 km, fyllingar 35.000 m3, burðarlag 8.000 m3. Verki skal lokið eigi síðar en 15. ágúst 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Ak- ureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 17. þ.m. Skila skal tilboðum fyrir kl. 14.00 þann 8. desember 1987 á sömu stöðum. Vegamálastjóri ISs Frá menntamálaráðuneytinu: Laus staða Staða Ijósmyndara, sem hafa skal umsjón með myndastofu Landsbókasafns, er laus til umsókn- ar og verður ráðið í hana frá næstu áramótum. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa borist menntamálaráðu- neytinu fyrir 10. desember næstkomandi. Menntamálaráðuneytið, 11. nóvember 1987 Mengun Klórský hrellir Búlgara íbúar í búlgörsku þorpi við Dóná forða sér undan klórskýi frá verk- smiðju í Rúmeníu r Ibúar búlgarska landamæra- þorpsins Ruse flúðu bæ sinn í hrönnum er kæfandi klórský frá Rúmeníu lagðist yfír fyrir skemmstu. Nokkrir íbúanna létu þó við sitja að halda sig innan- dyra til að verjast ófögnuðinum, að sögn fréttastofa í Austur- Evrópu. Hin opinbera fréttastofa Búlg- ara, BTA, getur þó ekki um neinn fólksflótta, en segir: „Hið illþefjandi klórský olli fólki öndunarerfiðleikum og margir' héldu vasaklútum fyrir vitum sér er þeir reyndu að leita skjóls." Forsending þessi barst frá verk- smiðju í bænum Giurgiu í Rúm- eníu, en bær þessi er við Dóná eins og Ruse og steinsnar á milli. „Klórgasið þrengdi sér inn um allar glufur og gættir. Klórmagn- ið var langt yfir leyfilegum mörk- um,“ segir BTA. Ekki nefndi fréttastofan Rúmeníu á nafn í umfjöllun sinni, en sagði að skýið hefði borist úr norðri, og þykir ekki fara á milli mála hver á þessa áttfræðilegu sneið. „Mengunarslys af þessu tagi hafa gerst æ ofan í æ, ogeru íbúar- Ruse nú búnir að fá sig fullsadda,“ segir búlgarska fréttastofan enn fremur. Nicolae Ceausescu, forseti Rúmeníu, sótti höfuðborg grannríkisins heim í fyrra mán- uði. Meðan á þeirri heimsókn stóð var ákveðið að löndin tvö settu á stofn nefnd til að fara ofan í saumana á þessu mengunar- máli. HS Giovanni Goria, fráfarandi forsætis- ráðherra: Aftur og nýbúinn. Italía Aftur í stjóm Fráfarandi stjórnarflokkar reyna að ná saman á ný Leiðtogar flokkanna flmm sem stóðu að hinni föllnu ríkisstjórn landsins sögðu í gær að þeir væru þess fýsandi að lappa upp á stjórnarsamstarfið á nýjan leik og það í fljótheitum, og binda þar með enda á stjórnarkreppuna í landinu. Forseti landsins, Francesco Cossiga, gerði styttri stans í Bret- landi en ráð var fyrir gert vegna stjórnarkreppunnar, en þar var hann í opinberri heimsókn er stjórnin féll. Hann hefur nú rætt við flokksleiðtogana fimm, og segjast þeir allir reiðubúnir til áframhaldandi samstarfs. Ekki er þó ljóst hvernig leysa á ágrein- ingsmál þau sem urðu fimmtán vikna gamalli stjórninni að falli, en þar réð úrslitum andstaða Frjálslynda flokksins við fyrirlig- gjandi drög að fjárlagafrum- varpi. Frjálslyndi flokkurinn er stjórnarflokkanna minnstur. Búist er við að Cossiga forseti ljúki sáttaumleitunum í dag, og þá að öllum líkindum tilnefna forsætisráðherraefni nýrrar fimm flokka stjórnar. HS 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 17. nóvember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.