Þjóðviljinn - 17.11.1987, Page 11
—ÖRFRÉTTIR
Ástralskur kokkur
fékk tveggja ára dóm á dögunum
fyrir að bregða sér í líki rómversk-
kaþólsks presls. Matreiðslu-
maðurinn brotlegi auðgaðist um
sem svarar fimmtíu þúsundum
íslenskra króna á framtaki sínu.
Hann falsaði skjöl til að sýna fram
á að hann hefði þegið vígslu og
tók síðan til við prestsverkin:
skírnir, greftranir, skriftamál og
messugjarðir. Dómurinn þykir í
strangara lagi, en yfirvöld segja
að hann eigi að verða öðrum
svikahröppum víti til varnaðar.
Flughræðsla
í Bandaríkjunum fær byr undir
báða vængi í kjölfar hins hryggi-
lega slyss í Denver um helgina,
eða svo segja þartilgerð yfirvöld.
Það skeður nú æ oftar að ekki er
nema hársbreidd milli flugvéla
þegar þær mætast. Slík tilvik
voru 311 árið 1982, 475 árið
1983 og 589 árið 1984. í hittifyrra
voru þau komin upp í 777, og 812
í fyrra. Margir eru hugsandi yfir
stjórn flugmála; árið 1980 fór sú
umdeilda starfsstétt flugum-
ferðarstjórar í verkfall, en Reag-
an Bandaríkjaforseti rak allt liðið.
Starfsreynslan þykir ekki þvæl-
ast að marki fyrir þeim sem tóku
við.
Indverjar
eru næstfjölmennasta þjóð í
heimi eins og kunnugt er, en ef
marka má mannfjöldafræðinga
er þess ekki langt að bíða að þeir
velti Kínverjum úr umdeilan-
legum heiðurssessi í þessum
efnum. Indverjum fjölgar nú um
fimmtán milljónir á ári, og með
sama áframhaldi ná þeir þúsund
milljóna markinu um aldamót.
Kínverjar eru að sönnu fjölmenn-
ari, en fólksfjölgunin á Indlandi er
orðin örari. Þar munar mest um
strengilega einbirnapólitík kín-
verja í fjölskyldumálum.
Forsetakosningar
fara að líkindum fram í Brasilíu á
næsta ári, en það yrði þá í fyrsta
skipti í 28 ár. Lykilnefnd í stjórnar-
skrármálefnum ákvað á fundi
síðastliðinn sunnudag að klípa
tvö ár aftan af kjörtímabili Sarney
forseta, og samkvæmt því verður
það fjögur ár en ekki sex. Að
sönnu á þjóðþingið eftir að leggja
blessun sína yfir ákvörðun stjórn-
arskrámefndarinnar, en líklegt er
talið að hún standi. Atvinnuleysi
er nú mikið í Brasilíu og verðbólg-
an á þrjúhundruð prósenta ról-
inu. Telja stjórnmálarýnar ein-
sýnt að þjóðkjörinn forseta þurfi
til að kljást við þessi mál.
Mengunarótti
hefur gripið um sig við Persaflóa
vegna olíuborpalls nokkurs í eigu
írana. Bandaríkjamenn gerðu
loftárásir á pallinn í fyrra mánuði
og hafa eldar logað þar síðan.
Óttast menn nú að pallurinn
springi í loft upp þá og þegar.með
þeim afleiðingum að olía flæði í
ómældu magni í sjóinn, sem er
nógu mengaður fyrir á þessum
slóðum.
Fellibylur
lék Texasbúa grátt um helgina.
Talið er að hann hafi orðið að
minnsta kosti ellefu manns að
fjörtjóni, byggingar ruku um koll,
vegir fóru í sundur og rafmagns-
og símastaurar liggja láréttir eftir.
Sex hreppar í Texas urðu verst
úti í veðurhamnum. Á einum stað
rústaði fellibylurinn tveggja
hæða múrsteinshús. „Þetta var
alveg nýtt hús, fólkið var nýflutt
inn,“ sagði lögreglustjórinn á
staðnum.
Silkiormaskeytin
skæðu verða ekki lengur til sölu á
alþjóðamarkaði, segir sendi-
herra Kínverja í Bandaríkjunum,
Han Xu. íranir hafa fjárfest nokk-
uð í flugskeytunum sem bera hið
óherskáa nafn, og notað til árása
á bandarísk skip á Persaflóa.
Fyrir vikið hafa Kínverjar sætt
ámæli Bandaríkjamanna, og hef-
ur verið vík milli vina um skeið.
______________ERLENDAR FRÉTTIR____________
Sri Lanka
Indverjar herða sóknina
Mannfall er indverskar hersveitir reyna að brjóta andspyrnu tamíla
á bak aftur. Miklir bardagar um helgina
Indverskar hersveitir reyna nú
hvað þær mega til að brjóta
andspyrnu Tamfla í norðaustur-
hluta Sri Lanka á bak aftur. Um
helgina létust fimmtán menn í
bardögum að sögn hernaðaryfir-
valda, og hálfur þriðji tugur
manna til viðbótar særðist í átök-
unum.
Bardagar geisuðu á sunnudag-
inn í hafnarborginni Batticaloa,
en þar hefur útgöngubann verið í
gildi síðustu fjóra sólarhringa.
Yfirmenn hermála á Indlandi
segja að um fimm þúsund indver-
skir hermenn taki nú þátt í sókn-
inni gegn Tamílum um austan- og
norðanvert landið. Þeim til
fulltingis eru þyrlur sem fljúga
lágflug yfir skóglendinu, og her-
skip úti fyrir ströndinni gæta þess
að engin hjálp berist tamflum sjó-
leiðina.
Ef marka má ríkisútvarpið á
Sri Lanka er ástandið í Jaffna,
höfuðvígi Tamfla, nú að færast í
eðlilegt horf. Á hinn bóginn er
það ljóst að hermönnum Ind-
verja hefur ekki tekist að komast
inn á Jaffnaskaga sem neinu nem-
ur.
Alls eru nú um tuttugu þúsund
indverskir hermenn á eynni, og
eiga þeir að passa upp á að friðar-
samningar stjórnvalda á Sri
Lanka og indverska forsætis-
ráðherrans, Gandhis, séu haldnir
í heiðri.
Samkvæmt samkomulaginu
eiga Indverjar að afvopna Ta-
mfla, sem hljóti takmarkað frelsi
til sjálfstjórnar að því ætlunar-
verki loknu. Frelsistígrar Tamfla
hafa það að markmiði að koma á
fót sjálfstæðu ríki í norðaustur-
hlutanum.
HS
Indverjar herða sóknina gegn Frelsistígrum Tamíla um landið norðan- og
austanvert. Fórnarlömbum stríðsátakanna fjölgar sífellt.
Afvopnun
Skriður á viðræðum í Genf
Velgengurað jafna ágreining risaveldanna umframkvœmd banns við
meðaldrœgum kjarnavopnum. Mikilvœgt veganestifyrir toppfundinn
í næsta mánuði
Háttsettir embættismenn risa-
veldanna ræða nú afvopnun-
armál af kappi í Genf og leitast
við að jafna ágreining um sátt-
mála um bann við meðaldrægum
kjarnorkuvopnum, en vonir
standa til að hann verði undirrit-
aður á toppfundinum í Washing-
ton í næsta mánuði. Viðræðunum
miðar vel.
Talsmenn segja að höfuðsamn-
ingamönnunum, Max Kampel-
man frá Bandaríkjunum og sov-
éska varautanríkisráðherranum
Yuli Vorontsov, hafi orðið vel
ágegnt við að setja undir leka
hugsanlegra svindilbragða í fyrir-
liggjandi drögum að samningi um
meðaldræg kjarnorkuvopn.
Ekki er þó reiknað með að
heiðursmönnum þessum tveimur
takist að jafna ágreiningsmálin í
öllum greinum. „Samningamenn
beggja aðila í Genf munu halda
áfram viðræðum eftir að samn-
ingaumleitunum Kampelmans og
Vorontsovs lýkur,“ sagði tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins, Charles Redman, í
gær.
Ef af samningnum verður mun
öllum meðaldrægum flugskeyt-
um verða eytt, en með þeim er átt
við flugskeyti sem draga frá 500
upp í 5000 kílómetra. Að lang-
mestum hluta eru þau í Evrópu.
HS
Egyptar
Teknir í sátt
Saudi-Arabar lýstu því yfir í
gær að þeir hefðu tekið upp fullt
stjórnmálasamband við Egypta.
Þar með eru þeir sjöunda araba-
þjóðin sem verður til að friðmæl-
ast við Egypta síðan leiðtogafundi
arabaleiðtoga lauk í Amman í
Jórdaníu í fyrir viku.
Á fundi leiðtoga Arababanda-
lagsins í Amman á dögunum var
ákveðið að einstökum Arabaríkj-
um skyldi í sjálfsvald sett hvort
þau tækju upp stjórnmálasam-
band við Egypta á nýjan leik, en
Egyptar hafa verið mjög úti í
kuldanum meðal araba síðan á
árinu 1979 er þeir undirrituðu
friðarsamninga við fsraelsmenn.
HS
SKÁK
Umsjón: Helgi Ólafsson
Einvígi Kasparovs og Karpovs í Sevilla
Tíðindalítið jafntefli í 14. skákinni
Garrí Kasparov og Anatoly
Karpov gerðu stutt jafntefli í 14.
einvígisskák sinni í Sevilla í gær.
Eftir að hafa leikið sínum 21. leik
bauð heimsmeistarinn jafntefli
sem Karpov þáði. Kasparov held-
ur því enn vinnings forskoti sínu.
Eitthvert millibilsástand virðist
ríkjandi í einvíginu nú. Kasparov
er óþekkjanlegur að því leytinu til
að hann gerir enga tilraun til að
auka forskot sitt og telur hag sín-
um sýnilega best borgið með
Anatoll Karpov á lygnum sjó í 14.
skákinni og á morgun hefur hann
hvítt...
stuttum jafnteflisskákum. Það
þyrfti því ekki að koma á óvart að
nokkrar næstu skákir færu á
sömu leið en enginn vafl er á að
Karpov reynir að herða róðurinn
þegar líða tekur á einvígið.
Kasparov lék kóngspeðinu í
fyrsta leik og aftur tóku þeir til
við Caro-Kann vörnina sem tefld
var í 10. skákinni. Nú sem þá náði
hvítur biskupaparinu af svörtum
en að öðru eyti var staðan í algeru
jafnvægi og eftir 21. leik hvíts
slíðruðu þeir sverðin. Tíu skákir
eru eftir af einvíginu og mun
Karpov áreiðanlega þiggja jafn
hagstæðan byr og gafst í 17., 18.
og 19. skák síðasta einvígis en
þær skákir vann hann allar. Svo
notað sé skákmál hinsvegar, þá
virðist hann orðinn gjörsamlega
vatnslaus með hvítu svo enn
bendir flest til þess að Kasparov
verji titilinn.
14. einvígisskák:
Garrí Kasparov - Anatoly Karp-
ov
Caro-Kann
1. e4 c6
2. d4 d5
3. Rd2 dxe4
4. Rxe4 Rd7
5. Rgf3 Rgf6
6. Rxf6 Rxf6
7. c3
(Þó Karpov hafi jafnað taflið án
erfiðleika í 10. einvígisskákinni
eftir þennan meinleysislega leik
heldur Kasparov fast við hann. Á
því er ekki minnsti vafi að hann
hefur ýmsar endurbætur á tafl-
mennsku sinni á takteinum svo
Karpov verður fyrri til að breyta
út af. Karpov hefur setið í þessari
stöðu beggja megin borðs og
sjálfur kosið að leika 7. Re5 t.d. í
fallegri vinningsskák gegn Vla-
stimil Hort. Annkr leikur, sem
lætur lítið yfir sér, er 7. h3 en
hann er runninn undan rifjum
Boris Spasskís).
7. ... Bg4
8. h3 Bxf3
9. Dxf3 Dd5
(Karpov lék 9. ... Rd5 og 10. ...
Be7 í 10. skákinni. Hann vill
forðast endurbætur Kasparovs.)
10. Be2 e6
11. 0-0 Bd6
12. Dd3 Bc7
13. Bf3 Dd7
(Einhver hefði nú reynt 13. ...
Dd6 með hótuninni 14. ... Dh2
mát en Karpov trúir ekki á
kraftaverk.)
14. Hdl 0-0
15. c4 Had8
16. Db3 De7
(Valdar b-peðið óbeint, 17.
Dxb7?? Bh2+! og drottningin
fellur. Hvítur hefur komið út úr
byrjuninni með biskupaparið og
heldur rýmri stöðu en svarta stað-
an er afskaplega traust.)
17. g3 Bb8
18. Be3 Hd7
19. Hd2 Hfd8
20. Hadl h6
21. a3
Kasparov bauð jafntefli eftir
að hafa leikið þessum leik og
Karpov sættist á þau málalok.
Staðan: Kasparov l'/i - Karp-
ov 6Vi
Þriðjudagur 17. nóvember 1987 WÓÐVILJINN SÍÐA 15