Þjóðviljinn - 20.11.1987, Qupperneq 3
ÖRFRÉTTIR'
Gott bókasafn
er undirstaða háskólastarfs, en
efling Háskólabókasafnsins er
vafalaust sá þáttur í uppbyggingu
skólans sem lengst og mest hef-
ur verið vanræktur, segir í ályktun
Heimspekideildar Háskólans þar
sem þeirri áskorun er beint til
ríkisstjórnar og Alþingis að taka
ekki máttinn úr átakinu við bygg-
ingu Þjóðarbókhlöðunnar.
Félagiö Bændasynir
sem stendur fyrir útgáfu Bænda-
blaðsins hefur ákveðið að stofna
hlutafélag um reksturinn. Rekst-
ur blaðsins hefur gengið ágæt-
lega að sögn eigenda og er hug-
myndin ef vel tekst til með hluta-
fjársöfnun að auka útgáfu félags-
ins með útgáfu mánaðarlegs
dreifbýlisblaðs.
í Minnesota ríki
í Bandaríkjunum hefur verið
stofnaður námssjóður til að
styrkja íslenska námsmenn sem
ætla að stunda nám við Minnes-
otaháskóla. Sjóðurinn er stofn-
aður í nafni Valdimars Björns-
sonar fyrrverandi fjármálaráð-
herra ríkisins, en Háskóli íslands
og Minnesotaskólinn hafa und-
anfarin 5 ár skipst á nemendum.
Botnlíf Mývatns
hefur verið ítarlega kannað af vís-
indamönnum undanfarin ár og
nú er komið út fjölrit frá Náttúru-
verndarráöi þar sem gerð er
grein fyrir niðurstööum þessara
rannsókna. Þá hefur ráðið einnig
gefið út náttúruverndarkort af
Mývatnssveit. Á kortinu er m.a.
sýnt hvernig verndargildi ein-
stakra landssvæða og jarðmynd-
ana við Mývatn er metið.
Framtíð apóteksins
er yfirskrift ráðstefnu sem Lyfja-
fræðingafélagið gengst fyrir á
degi lyfjafræðinnar á Loftleiðum
á laugardag. Ráðstefnan hefst kl.
10 og er öllum opin.
Atvinnuástandið
í október var með albesta móti.
Skráðum atvinnuleysisdögum
hefur fækkað um 40% frá sama
manuði í fyrra og aðeins einu
sinni á þessum áratug hafa verið
skráðir færri atvinnuleysisdagar í
október.
Ríkisútvarpið
opnaði í gær svæðisútvarp fyrir
Austurland í símstöðinni á Egils-
stöðum. Fastar útsendingar
verða síðdegis alla virka daga.
FRETTIR
Skólastefna KÍ
Aukin ábyrgð kennara
Kennarasamband íslands kynnirnýja skólastefnu. Svanhildur
Kaaber: Ahersla lögð á sjálfstœði skóla. Víkjum frá miðstýringunni
Islenskt skólakerfi hefur ein-
kennst af mikilii miðstýringu
og sjálfstæði skóla og fræðsluum-
dæma verið takmarkað, segir í
nýútkominni Skólastefnu Kenn-
arasambands Islands: Kennarar
þurfa að eiga kost á því að taka að
sér aukna ábyrgð hvað varðar
mótun og stjórnun skólastarfs.
Frá v.: Helgi Magnússon safnvörður, Steindór Steindórsson frá Hlöðum, Örlygur Hálfdánarson bókaútgefandi, Ásgeir S.
Björnsson lektor. Mynd: E.ÓI.
Bœkur
íslenskt þjóðlíf í þúsund ár
Heimildarverk um gamalgróið þjóðlífog horfna lífshœtti
Segja má að Daníel Bruun hafi
verið einn af brautryðjendum
í rannsóknum menningarminja á
íslandi. Þessi afkastamikli áhuga-
maður vann Islandi ómetanlegt
gagn. Hann fór um flestar byggð-
ir landsins á ferðum sínum, og er
því Ijóst, að athuganir hans og
rannsóknir hafa verið óvenju víð-
feðmar, enda ferðaðist hann hcr
um í fjölda sumra.
Með rannsóknum sínum og
könnunum hefur Daníel Bruun
bjargað ómældum fróðleik og
þekkingu um íslenska menning-
arsögu allt frá minjum frá land-
námi og fyrstu byggð og til
híbýlahátta fólks á 19. og 20. öld.
Hafa aðrir í rauninni ekki náð
lengra í þeim efnum, og eru þá
ekki taldar sérrannsóknir ein-
stakra þátta innan menningars-
ögunnar.
Þannig hefst formáli Þórs
Magnússonar þjóðminjavarðar
að nýútkomnu stórvirki í bókaút-
gáfu, ritverkinu „íslenskt þjóðlíf
í þúsund ár“ eftir Daníel Bruun, í
þýðingu Steindórs Steindórs-
sonar frá Hlöðum. Bókaútgáfan
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
Deilur um fulltrúana
Rættum Svavar, Steingrím, Margréti íframkvœmdastjórn- ekki
Guðrúnu Helgadóttur. Framhald af formannsslagnum?
Afundi þingflokks Alþýðu-
bandalagsins í fyrradag kom
upp ágreiningur um val á fulltrú-
um þingflokksins í framkvæmda-
stjórn flokksins og virðist meiri-
hluti þingflokksins ekki sætta sig
við að Guðrún Helgadóttir sé þar
áfram einn þriggja fulltrúa.
Náttúruverndarráð
Afstöðulaust
Við höfum ekkert fundað um
málið ennþá. Ég reikna með
að við gerum það í næsta mánuði,
sagði Eyþór Éinarsson formaður
Náttúruverndarráðs aðspurður
um afstöðu ráðsins til þess að
ráðhússkipulagið hafí ekki verið
borið undir ráðið í samræmi við
Náttúruverndarlög.
til með að hafa í för með sér meiri
háttar röskun á umhverfinu.
Eyþór vildi ekki gefa upp sína
skoðun á því hvort eðlilegt hefði
verið að leita umsagnar ráðsins
varðandi byggingu ráðhúss við og
í Tjörninni, en sagði að Náttúru-
verndarráð myndi byrja á því að
kanna hvort Umhverfisverndar-
Eyþór sagði að það væri túlk-'*v,ráð eða Náttúruverndarnefnd
unaratriði hvort það væn
nauðsynlegt að leita umsagnar
ráðsins vegna byggingarinnar en í
lögunum væri kveðið á um nauð-
syn þess, kæmu framkvæmdirnar
Reykjavíkur hefði fengið fram-
kvæmdirnar til umsagnar. Þegar
þær upplýsingar lægju fyrir
myndi Náttúruverndarráð fjalla
um málið. -K.Ól.
Ragnar Arnalds, núverandi
formaður þingflokksins, sagði
við Þjóðviljann í gær, að ekki
hefði staðið til að velja fulltrúana
fyrr en í næstu viku, en málið
hefði verið rætt á fundinum í
fyrradag, meðal annars í sam-
hengi við kjör á nýjum formanni
þingflokksins.
Ragnar sagðist hafa nefnt nafn
Steingríms J. Sigfússonar í því
sambandi og líti hann svo á að
formaður þingflokksins eigi einn-
ig að sitja í framkvæmdastjórn.
Ragnar sagði að aðrar hugmyndir
um fulltrúa hefðu verið ræddar á
fundinum en ekkert ákveðið.
Meirihluti þingflokksins mun
hafa í huga þau Svavar Gestsson
og Margréti Frímannsdóttur til
viðbótar við Steingrím. f síðustu
framkvæmdastjórn sátu úr þing-
flokknum Ragnar, Steingrímur
og Guðrún auk flokksformanns-
ins Svavars.
Guðrún vildi í gær ekkert segja
Stjórn og skólamálaráð Kenn-
arasambandsins afhenti í gær ráð-
herrum mennta- og fjármála
Skólastefnu sína. Hún var sam-
þykkt á fulltrúaþingi sambands-
ins í sumar leið, og að sögn for-
manns KÍ, Svanhildar Kaaber, er
þetta í fyrsta skipti sem heildstæð
stefna er sett fram, þar sem tekið
er á öllum meginþáttum skóla-
starfsins.
Mikið grasrótarstarf liggur að
baki Skólastefnunni. Að sögn
Svanhildar hafa á annað þúsund
kennarar um allt land tekið þátt í
mótun hennar.
Kennarasambandið leggur
megináherslu á að starf kennara
verði skilgreint á ný og metið að
verðleikum. Þá telur sambandið
að hver einstakur skóli eigi að
meta nám og starf sinna nemenda
í samræmi við þau markmið sem
sett eru fram í skólanámsskrá.
Tilgangur skólastefnu er að
hafa áhrif á skólastarf í landinu
og styrkja kennara í starfi. Eftir
áramótin munu kennarar standa
fyrir kynningarherferð meðal
foreldra.
Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra sagði í
ávarpi er honum var afhent ein-
tak af Skólastefnu í gær að í öllum
meginatriðum færi þessi stefna
saman við sína stefnu og mennta-
málaráðuneytisins í skóla- og
menntamálum. HS
Örn og Örlygur gefur verkið út
og hefur unnið að útgáfunni í
rúman áratug. Ritið er í tveimur
stórum bindum, um 600 blað-
síður og í fallega skreyttri bókar-
öskju.
í tengslum við útgáfuna efnir
bókaútgáfan Örn og Örlygur til
sýningar á myndum og teikning-
um úr safni Daníels Bruun í
Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Verður hún opnuð nk. laugardag
kl. 2 og stendur til áramóta. Sýn-
ingin er öllum opin og aðgangur
ókeypis. _ mhg.
um þetta mál, en Ragnarsagði að
hún hefði gengið af fundi, „þegar
hún varð vör við að hún var ekki
talin sjálfkjörin í stjórnina."
Eftir framkvæmdastjórnar-
kjörið á landsfundi Alþýðu-
bandalagsins hefur ríkt nokkur
spenna innan flokksins um full-
trúa þingmanna, þar sem talið
var að val þingflokksins gæti gef-
ið vísbendingar um sáttahug eða
framhald skotgrafahernaðar í
flokksforystunni.
Guðrún, sem nú virðist munu
víkja úr framkvæmdastjórn,
studdi Ólaf Ragnar Grímsson til
formennsku í flokknum, en þau
Svavar, Steingrímur og Margrét
voru öll í hópi yfirlýstra stuðn-
ingsmanna Sigríðar Stefánsdótt-
ur.
Álfheiður Ingadóttir sat þing-
flokksfundinn sem varamaður
Svavars, en þeir Geir Gunnars-
son og Hjörleifur Guttormsson
voru fjarverandi. -m
Skógrækt
280 þús.
plöntur
150 unglingarað
störfum í Reykjavík
Skógræktarfélag Reykjavíkur
var athafnasamt í sumar, eins og
þess hcfur raunar jafnan verið
háttur. I Heiðmörk voru gróður-
settar um 80 þús. plöntur og á
útivistarsvæði borgarinnar um
200 þús. Við það unnu 150 ung-
lingar á vegum Reykjavíkurborg-
ar. Mest var gróðursett í Heið-
mörk eða um 100 þús. plöntur.
Þær skógarplöntur sem ung-
lingarnir hafa gróðursett undan-
farin ár eru nú að verða að
gróskumiklum trjám, svo sem í
holtunum umhverfis Breiðholt 1
og 3.
Nú er að mestu fullplantað í
Breiðholtið, Selásinn, Elliðaár-
hólma og Öskjuhiíð.
Þá var og tekið í notkun nýtt
450 ferm. gróðurhús. Heildar-
plöntuframleiðslan var um 600
þús.
Vetrarstarf félagsins er nú að
hefjast. Jólatrjáasala verður í
Skógræktarstöðinni í Fossvogi
svo sem verið hefur undanfarin
ár. Fræðslufundir hafa verið
skipulagðir og verður hinn fyrsti
þeirra í Norræna húsinu mánu-
daginn 23. nóv. kl. 20.00. Þar
munu landslagsarkitektarnir Ein-
ar E. Sæmundsen og Reynir Vil-
hjálmsson segja frá þjóðgörðum í
Norður-Ameríku, trjágróðri þar
og landslagi og sýna myndir.
Stjórn Skógræíctarfélags
Reykjavíkur er nú þannig
skipuð: ÞorvaldurS. Þorvaldsson
formaður, Jón Birgir Jónsson
varaform., Ólafur Sigurðsson rit-
ari, Björn Ófeigsson gjaldkeri og
Bjarni K. Bjarnason meðstjórn-
andi.
-mhg
Föstudagur 20. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3