Þjóðviljinn - 19.12.1987, Side 5

Þjóðviljinn - 19.12.1987, Side 5
Að þrjátíu árum liðnum Maðurinn og skáldið Steinn Steinarr (156 bls.) Sigfús Daðason setti saman Reykholt 1987 Loksins, loksins - loksins! Ööruvísi held ég sé ekki við hæfi að bregðast við þegar fyrsta bókin um Stein lítur dagsins ljós, tæpum þrjátíu árum eftir dauða hans, sú fyrsta en væntanlega ekki eina. Til skamms tíma hafa fáar fræðilegar greinar birst um skáldskap hans, og skal þá undan skilja ritgerðir Kristjáns Karls- sonar og Silju Aðalsteinsdóttur. Steinn var umdeilt skáld í lif- anda lífi en ástsælt skáld eftir dauða sinn og er núna hugstæður hverjum þeim sem ann góðum skáldskap - og skiptir aldur, stétt eða staða lesenda engu máli. Þannig er þrjátíu ára þögn engan veginn vísbending um tómlæti þjóðarinnar gagnvart Steini. Á kápu umræddrar bókar standa þessi orð: „Hann var eitt af höf- uðskáldum íslendinga á tuttug- ustu öld“ og skal tekið undir þetta því vafalaust er hér ekki of fast að orði kveðið. En hvernig hefur svo tekist að gera fyrstu bókina um Stein úr garði? Að mínum dómi hefur það tekist bæði vel og illa. Bókin er ofin úr nokkrum þátt- um sem grípa hver inn í annan án þess þó að byggingin geti kallast ofskipuleg. Uppistaðan er frá- sögn Sigfúsar um ævi og skáld- skap Steins sem nær yfir rúmar 50 blaðsíður, ýmist heilar eða hálf- ar. Inn í þetta og saman við er blandað ýmsum ljóðum Steins, þar af nokkrum sem ekki hafa birst áður, textum hans í óbundnu máli og blaðaviðtölum við hann. Höfundur þessarar bókar er löngu þekktur fyrir vönduð vinn- ubrögð og harðar kröfur til verka sinna - sem umrædd bók er líka vitni um. Ekki verður höfundur- inn hér sakaður um að bruðla með orð. Saga Steins er rakin í afar stórum dráttum og frásögnin öll í knappara lagi, raunar erfitt að hugsa sér að hún geti knappari verið. Þetta hefur bæði kosti og galla. Orðagjálfur og mas er víðs fjarri. Á hinn bóginn finnur les- andinn oft fyrir því að hann hefði gjarnan viljað fá að vita fleira. T.a.m. segir frá því að Steinn fékk ekki vegabréfsáritun til Bandaríkjanna 1942: „Verður engum getum leitt að því, hvað einkum hefur ráðið því að Steini var bannaður aðgangur að Vest- urheimi hvort þeim herrum hefur litist illa á skáldskap hans, eða hvort tukthúsdómurinn vegna niðurskurðar hakakrossfánans hefur verið honum til trafala, eða eitthvað enn annað.“ Hér er ýjað að „einhverju enn öðru“, sem gæti hafa verið ástæðan en ekki útskýrt. Má vera að það sé órétt- mætt af lesandanum að vilja nán- ari útlistun, kannski er hún ekki til, en lesandinn er samt áfram ófullnægður og forvitinn. Stíll bókarinnar er einfaldur og alþýðlegur, mjög svo undirgefinn viðfangsefninu. Ekki er með því sagt að viðfangsefninu séu gerð „alþýðleg" skil, þvert á móti hafa sannleiksþráin og vísindaleg vinnubrögð verið látin sitja í fyrirrúmi þótt lesandinn taki ekki auðveldlega eftir slíku. Það er trúlegt að höfundi hafi reynst erf- itt að safna heimildum um ævi Steins, sérstaklega þeim sem greina frá æsku hans og uppvexti, ekki síst vegna þess hve Steinn var jafnan fáorður um sjálfan sig. Það má segja að Steinn hafi að þessu leytinu stigið „spor“ sín „í sandi“. Á fremstu síðum bókar- innar segir um Etelríði og Krist- mund, foreldra Steins, að þau hafi verið flutt hreppaflutningum í Saurbæjarhrepp. í framhaldi kemur þessi setning og lætur lítið yfir sér: „Þetta hefur verið árið 1910.“ Á bak við þessi fimm orð liggur líklega athugun sem leiðir til einnar afar líklegrar niður- stöðu sem þó er ekki óyggjandi en skiptir samt miklu máli. Slík vinnubrögð eru virðingarverð: Fátt er jafn-sorglegt og til eins mikillar ömunar allri fræði- mennsku en einmitt það þegar ónákvæmni og villur taka sér bólfestu í viðfangsefninu og lifa þar góðu en óréttmætu lífi. Tilhneigingin til að fullyrða fátt og draga úr allri túlkun verð- ur stundum dálítið kyrkingsleg. Á köflum jaðrar við að höfundur taki enga afstöðu til eigin frá- sagnar. Á einum stað segir: „Varla er fjarri lagi að segja sem svo að æsku Steins sé lokið, í viss- um skilningi, þá er hann fer frá Núpi vorið 1926...“ Af hverju er það „varla fjarri lagi“ og hver er þessi „vissi skilningur"? Slík var- kárni er einkennandi þegar sagt er frá Steini sjálfum en til allrar lukku er annað á seyði þegar fjallað er um ljóðabækur hans. Hér rekur höfundur þróun í ljóðagerð Steins á nokkrum síð- um og vílar ekki fyrir sér að bera saman ljóðabækurnar og túlka efni þeirra og form í örfáum setn- ingum. Hér lifnar textinn við, hér er einhverju vogað og samhengi í ljóðagerð Steins útskýrt, hvorki endanlega né á hinn eina og sanna hátt - en samt útskýrt. Sigfús Daðason mun hafa þekkt Stein vel persónulega, jafnvel betur en margir aðrir. Á slíkri vináttu örlar í bókinni en ekki er gert mikið úr henni. En INGI BOGI BOGASON þessar fáorðu lýsingar á sam- skiptum höfundar og Steins eru þakkarverðar þótt lesandinn hefði þegið fleiri. Má vera að höf- undur hafi viljað forðast að trana sér of freklega fram í sögu Steins. Meðalvegurinn er vandrataður í þessum efnum því nákomin sam- skipti geta svo auðveldlega orðið slúðurkennd á prenti. Ekki er annað hægt að segja en höfundur sé a.m.k. þingmannaleið frá slíku. Merkilegt er að heyra hvað Steinn sagði Sigfúsi um afstöðu sína til ljóðagerðar eftir að hann hafði gefið út allar bækur sínar: „Steinn hafði tíðum yfir sér hul- iðshjúp í samskiptum við aðra menn, en stundum sviptist hjúp- urinn af honum, og svo var íþetta skipti. Hann talaði þá ífullri ein- lcegni um kröfurnar sem skáldlist- in, eða skáldlist nútímans, gerði til iðkenda sinna, og hvefjarri þvi fœri að hann gœti uppfyllt þœr kröfur. Ég reyndi að malda í mó- inn, halda fram málstað Steins Steinn Steinarr gegn honum sjálfum að því er mér þótti, en ég vissi vel að þœr mót- bárur voru tilgangslausar. “ Þrjátíu og sex af ljóðum Steins eru prentuð í þessari bók, auk Dvalið hjá djúpu vatni en svo nefnist frumgerðin að Tímanum og vatninu. Ljóðunum er gjarnan smekklega komið fyrir með skyggðan flöt að baki. Átta þeirra hafa ekki birst í bókum áður en bera samt flest gott vitni um handbragð meistarans, sér- staklega þau sem ort eru í anda Tímans og vatnsins. Það hlýtur alltaf að vera álitamál hvaða ljóð skuli taka í bók sem þessa. Mér sýnist valið vel viðunandi og ljóð- in raunar ganga í takt við megin- textann. Hvort þau eru of mörg er svo annað mál. Töluvert er af myndum í bók- inni og sýna þær margar það sem orð fá aldrei sagt. Fæstar þeirra hafa birst áður og eru því kær- kominn vitnisburður um Stein. Eftirminnileg er t.d. myndin af skáldinu, sitjandi við útidyr, með drúpandi höfuð og hendur undir kinnum, svipurinn fjarrænn í ljóðrænni ró „í öryggi hins sól- hvíta dags“. Þarna eru myndir frá æskustöðvum Steins og af Steini og vinum hans á góðri stund, ým- ist teknar hér heima eða á ferða- lögum hans erlendis. Þótt mynd- irnar séu margar athyglisverðar rýrir samt ýmislegt gildi þeirra. Álloft saknar lesandinn þess að getið sé hvar og hvenær myndirn- ar eru teknar- og slæmt er þegar ekki er getið hver er með skáld- inu á myndum þótt skiljanlega geti verið vandkvæðum bundið að komast að því áratugum síðar. Verra er þó hitt þegar mynda- textinn er misvísandi og jafnvel rangur. Dæmi um slíkt er á bls. 19, þar stendur fyrir ofan mynd- ina: „Mikligarður í Saurbæ“ en í forgrunni er forna höfuðbýlið Staðarhóll, það glittir aðeins í Miklagarð í bakgrunni. Myndasmiða er hvergi getið. Eins og áður segir eru birtir í þessari bók allmargir textar í óbundnu máli eftir Stein og sömuleiðis fáein viðtöl við hann. Allt er þetta gott efni sem mönnum er hollt að lesa og á heima hér, ekki síst lausamál Steins - menn gleyma því nefni- lega gjarnan að Steinn var frábær stílisti í lausu máli þótt ekki liggi stórt eftir hann af því. Á hinn bóginn má finna að uppsetningu þessara texta. Þeir eru illa auðkenndir frá megintextanum og hefði verið lítið mál fyrir út- gefendur að breyta því, annað- hvort með skáletrun eða smækk- un. Það hefði skipt miklu máli fyrir lesendur og útlit bókarinn- ar. í lokin skal hnykkt á því að hér er á ferðinni álitlegur böggull þar sem umbúðirnar hefðu mátt vera í snyrtilegra samræmi við þrautunnið innihald. Ingi Bogi Iðnaðarmenn Iðnskólaútgáfan gefur út bókina Iðnaðarmenn Hjá IÐNÚ, Iðnskólaútgáfunni, er komin út bókin Iðnaðarmenn, sem hefur að geyma frásagnir sex iðnaðarmanna sem helgað hafa krafta sfna íslenskum iðnaði meginhlutaævinnar. Þettaer fyrsta bindi f mikilli ritröð sem væntanleg er. í frásögnum þessara manna, sem staðið hafa í fremstu röð, hver á sínu sviði, er saman kom- inn mikill fróðleikur um íslensk- an iðnað og málefni tengd hon- um. Lítið hefur verið af því að bækur um iðnað og iðnaðarmenn hafi verið gefnar út, og því er þetta þarft verk. Við lestur bók- arinnar sjást fyrstu skrefin í ís- lenskum iðnaði, sögu hans og við kynnumst þeim mönnum sem hafa mótað hana. -ns. Á myndlnni er hluti aðstandenda bókarinnar Iðnaðarmenn. Frá vinstri: Atli Rafn Kristinsson í ritnefnd, Jóhanna Sveinsdóttir sem bjó bókina til prentunar, Björgvin Frederiksen vélsmíðameistari, Bjarni Einarsson skipasmíðameistari, Gísli Ólafsson bakarameistari, Sigurgestur Guðjónsson bifvélavirkjameistari og Sigurður Kristinsson í ritnefnd. Mynd: KGA. Ný skáldsaga eftlr Guðmund Daníelsson: Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur gefið út nýja skáldsögu eftir Guðmund Daníelsson. Heitirhún Vatnið og gerist austanfjalls og ( höfuöstaðnum. Tfmi hennar er 1930-50, en ræturnar liggja aftur til 1914. Utgefandi kynnir Vatnið og bókarhöfund svo á kápu: „Ef til vill má segj a að aðalvið- fangsefnin Vatnsins sé ástin og eignarrétturinn, upphafið og endalokin, tafl andstæðnanna, þar sem allt er í veði, ekki síst lífið. Vatnið er í senn raunveru- legt vatn og tákn tilverunnar og sjálfrar forsjónarinnar, sem er óskilj anleg og ofviða sérhverri valdstjórn og til alls vís, jafnt góðs sem ills. Það sem hún gefur með annarri hendinni - það tekur hún iðulega með hinni. “ Guðmundur Danfelsson Laugardagur 19. desember 1987 pjÓÐVILJINN - SlÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.