Þjóðviljinn - 19.12.1987, Side 10
YDDA F11,4/SlA
menning/bækur
Tveggja alda gamalt skáldrlt
Eiríkur Laxdal:
SAGA ÓLAFS
ÞÓRHALLASONAR.
Álfasagan mikla. Skáld-
saga frá 18. öld. Þorsteinn
Antonsson og María Anna
Þorsteinsdóttir sáu um út-
gáfuna. Bókaútgáfan Þjóð-
saga 1987.
Það má teljast til nokkurra tíð-
inda, að í öllu bókaflóði haustsins
rekur á fjörur lesenda tveggja
alda gamalt skáldrit, áður ó-
prentað, Ólafs sögu Þórhallason-
ar, eftir Eirík Laxdal. Raunar
hefur rit þetta verið ýmsum meira
eða minna kunnugt og nokkrir
orðið til að benda á það, en fáir af
þeim skilningi, sem ber að hafa
við könnun verksins. Höfundi
hefur því löngum verið ætlaður
annar tilgangur með verki sínu en
fyrir honum sjálfum vakti. Til-
gangur hans var að semja skáld-
sögu en ekki að segja þjóðsögur,
eins og sumir hafa viljað vera
láta. Hafa því flestir látið lítt af
bókinni og vafasamt hve mikinn
hluta hennar þeir hafa lesið, því
að bókin er löng, hátt á fjórða
hundrað blaðsíður af drúgu letri.
Sennilega hefur það ekki bætt
orðstír bókarinnar hjá samtíma-
mönnum og hinum fyrri kynslóð-
um, að höfundur bókarinnar var
utangarðsmaður þjóðfélagsins,
hafði spjallað biskupsdóttur, siglt
til háskólanáms í Kaupmanna-
höfn og farið þar í hundana eins
og stundum var komist að orði.
Hann lauk ævi sinni norður á
Stokkahlöðum sem staðfestulaus
flækingur og landshornamaður.
Ólafs sögu Þórhallasonar fer
svo fram að hún gerist hálf í
mannabyggð og hálf í undir-
heimum álfa, ævintýra og úti-
legumanna. Ólafur er hinn mesti
kvennahrókur og gengur jafnt í
sæng óspjallaðra álfameyja sem
mennskra og gerist af þessu öllu
saman mikil og margflókin saga,
þar sem einni sögunni er skotið
inn í aðra að dæmi Þúsund og
einnar nætur. En sú bók hafði þá
fyrir ekki ýkja löngu hafið sigur-
för sína um álfuna og orkað fast á
bókmenntir tímabilsins ekki
síður en sagan af Róbinson Krús-
óe, en áhrifa þeirra beggja virðist
gæta í frásögn Eiríks.
í sögunni er ofið saman ís-
lenskt aldarfar eins og það var á
ofanverðri 18. öld og sá heimur
þjóðsagna og ævintýra sem þjóð-
in hrærðist í um sömu mundir.
Ekki skal þó fullyrt að höfundur-
inn hafi haft fyrir sér ákveðnar
sagnir, þegar hann ritaði bók sína
og eins lfklegt að hann hafi „logið
þeim upp frá eigin brjósti“, eins
og einn þeirra, sem um Eirík rita
kemst að orði. En þó hann hafi
sennilega búið frásögn sinni það
gerfi sem þær hafa í bókinni, eiga
þær uppruna sinn að rekja til efn-
iviðar úr hugmyndaheimi aldar-
innar. Þær verða þannig skuggsjá
tímans, þar sem drættirnir eru
efalaust markaðir skýrari drátt-
um.
Af sögunni má ráða, að á
háskólaárum sínum í Kaup-
mannahöfn hafi Eiríkur heillast
af hugmyndum upplýsingarstefn-
unnar, sem þá var efst á baugi.
Þetta kemur glöggt fram í við-
ræðum hans og prestsins í Krýsu-
vík við álfkonuna Álfbjörgu í
Krýsuvíkurbjargi, þar sem hún er
fulltrúi hinnar nýju fræðslustefnu
gegn menningarlegri stöðnun ís-
lensks þjóðfélags. Þannig opnar
Ólafs saga okkur yfirsýn inn í
gildan þátt íslenskrar menningar
Verslunarsaga Vestur-Skaftfellinga
Kjartan Ólafsson
Vestur-Skaftafellssýsla gefur
út fyrra bindi Verslunarsögu
Vestur-Skaftfellinga, eftir Kjartan
Ólafsson, fv. ritstjóra, í tilefni
þess að eitt hundrað ár eru liðin
frá því að verslun fluttist inn í hér-
aðið.
Vestur-Skaftafellssýsla var um
aldir sú íslensk byggð þar sem
samgöngur voru hvað erfiðastar
enda er héraðið sundurslitið af
straumhörðum jökulvötnum og
eyðisöndum, auk þess sem
strandlengjan er bæði hafnlaus
og brimasöm. Hvergi á landinu
voru kaupstaðarferðir lengri og
erfiðari, hvort heldur sem farið
var austur á Papós eða vestur á
Eyrarbakka til að sækja brýnustu
lífsnauðsynjar. Sumir týndu líf-
inu í glímunni við árnar en aðrir
misstu hesta sína eða varning í
beljandi flauminn. Það olli því
ekki litlum þáttaskilum í lífi
Skaftfellinga þegar uppskipun í
vörum hófst í Vík í Mýrdal og
verslun og þjónusta færðist inn í
héraðið. Nú er rétt öld síðan Vík
varð löggiltur verslunarstaður,
en það var 2. desember 1887.
Þegar líða tók að hundrað ára
afmæli þessa sögulega atburðar,
þótti sýslunefnd Vestur-
Skaftafellssýslu einsýnt að láta
rita verslunarsögu byggðarinnar
og fól hún ritnefnd Dynskóga,
héraðssögurits sýslunnar að sjá
um framkvæmd verksins. Rit-
nefndin réði til þess Kjartan Ól-
afsson fv. ritstjóra til að rita sög-
una. Hefur hann dregið fram í
dagsljósið fjölda merkra heim-
ilda og átt viðtöl við Skaftfellinga
sem enn mundu uppskipun við
hafnlausa strönd og verslunar-
hætti í upphafi aldarinnar, en
sumir þeirra eru horfnir af sjón-
arsviðinu, nú þegar þetta rit kem-
ur út. Kjartan ritar um efnið af
mikilli þekkingu, á fjörlegan og
ljósan hátt.
í fyrra bindi Verslunarsögu
Vestur-Skaftfellinga er fjallað
um söguna frá síðari hluta 18.
aldar og fram undir fyrri
heimsstyrjöld.
Jafnframt greinargóðri frásögn
um upphaf og þróun verslunar-
innar er varpað ljósi á mannlíf og
atvinnuhætti og þá menn sem
voru í fararbroddi í sókn til fram-
fara og bættra lífskjara. Bókin er
rúmar 400 bls. að stærð í stóru
broti, og hana prýða um 400
myndir sem fæstar hafa verið
birtar áður og varpa ljósi á löngu
horfna lífshætti og mannlíf í harð-
býlu héraði.
Verslunarsaga Vestur-Skaft-
fellinga, fýrra bindi, fæst á ás-
kriftarverði, kr. 3.300.00 hjá
Björgvin Salómonssyni, Skeiðar-
vogi 29, en almennt verð er kr.
4.950.00.
eins og hún var á dögum höfund-
arins.
Svo hefur löngum verið talið,
að á síðari hluta 18. aldar hafi
hagur íslenskrar tungu verið hvað
bágastur, og hefur margt verið
tínt fram því til stuðnings. Saga
Ólafs Þórhallasonar sýnir, að hér
er ekki um einhlítan dóm að
ræða. Frásögn Eiríks er yfirleitt á
hreinu og prýðisfallegu talmáli.
Þó að einstöku hnökrar séu á frá-
sögninni gætir þeirra svo lítið, að
lesandinn tekur varla eftir því.
Orðkyngi Eiríks er mikil, án þess
að vera langsótt og sérviskuleg,
og öll ber frásögnin merki hins
þaulvana sagnamanns, eins og
hún hefði mótast við að segja sög-
una aftur og aftur á ferðalagi höf-
undar um byggðir landsins.
Af umsögn þeirra sem bjuggu
söguna til prentunar virðist hafa
verið vel til verksins vandað og
þeir freisað þess að skila texta
frumritsins orðrétt. Það hefur þó
áreiðanlega ekki verið alltaf létt
verk, því að hönd Eiríks er með
afbrigðum ólæsileg, eða svo
reyndist hún mér, þegar ég fyrir
mörgum árum freistaði þess að
lesa söguna. Af hálfu forlagsins
er bókin hin prýðilegasta.
Haraldur Sigurðsson
Um þessar mundir eru fyrstu bankakort-
in að falla úr gildi. Athugaðu því strax hvað
þitt kort gildir lengi.
Ef það er útrunnið bíður þín nýtt kort í
bankanum þínum og þú ættir að sækja það
við fyrsta tækifæri. Þannig kemstu hjá óþæg-
indum sem ógilt bankakort getur valdið.
< Hér sérðu gildistíma bankakortsins
Bankakortið- tákn um traust tékkaviðskipti.
Alþýðubankinn, Útvegsbankinn,
Búnaðarbankinn, Verzlunarbankinn,
Landsbankinn, og Sparisjóðirnir.
Samvinnubankinn,
ER BANKAKORTIÐ
ÞITT í GILDI?