Þjóðviljinn - 19.12.1987, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 19.12.1987, Qupperneq 14
REYKJKJIKURBORG Jlau&a% Stöcáa Dagvist barna Staða forstöðumanns Forstöðumannsstaöa á leiksk./dagh. Foldaborg, Frostafold 33, Grafarvogi er laus til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Upplýsingar gefa framkvæmdastjóri og umsjón- arfóstrur á skrifstofu Dagvistar barna, sími 27277. HH REYKJKJÍKURBORG HH Jlcuctevi Stöcáa Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27 Starfsfólk óskast til starfa í eldhús og viö ræsting- ar Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377. Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma Þórlaug Marsibil Sigurðardóttir Hátúni 10a Reykjavík sem andaðist 14. desember verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju mánudaginn 21. desember kl. 15. Þráinn Sigurbjörnsson Kjartan Kristófersson Hafdís Guðmundsdóttir Þóra Ósk Kristófersd. Kristófer Óskar Baldursson Auður Kristófersdóttir barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar Ingibjörg Jónsdóttir frá Vaðbrekku andaðist í sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 17. desember. Guðrún Aðalsteinsdóttir Jóhanna Aðalsteinsdóttir Guðlaug Ingibjörg Aðalsteinsdóttir Jón Hnefill Aðalsteinsson Stefán Aðalsteinsson Sigrún Aðalsteinsdóttir Aðalsteinn Aðalsteinsson Hákon Aðalsteinsson Ragnar Ingi Aðalsteinsson Ástkær móðir okkar, Guðrún H. Steingrímsdóttir Nýiendu, Miðnesi andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði, 15. desember. Jarðsett verður að Hvalsnesi þriðjudaginn 29. desember kl. 14.00. Steinunn G. Magnúsdóttir Hákon Magnússon Einar M. Magnússon Gunnar R. Magnússon Bára Magnúsdóttir Sólveig Magnúsdóttir Móðir okkar, tengdamóðir og amma Guðrún Bjarnadóttir Kópavogsbraut 63 andaðist í Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, miðvikudaginn 16. desember. Bjarni R. Jónsson Björgvin Jónsson Þórdís Eggertsdóttir og barnabörn SKAK Umsjón: Helgi Ólafsson Æsispennandi lokaskák fór í bið í gœr: Miklar Iflair á því að Kasparov vinni og verji titilinn Tuttugasta og fjórða, og þar með síðasta skákin, í meira en tveggja mánaða löngu einvígi Garrís Kasparovs og Anatolys Karpovs stóð fyrir sínu eins 'og vænta mátti. Þessi skák var æsi- spennandi eftir sem því leið á og kom skákklukkan þar mikið við sögu, en báðir keppendur lentu í feiknalegu tímahraki - þó eink- um Karpov sem þurfti að leika 12 síðustu leikjum sínum á innan við fjórum mínútum. Karpov virtist jafna taflið fremur auðveldlega en þó aldrei fullkomalega, og var á tímabili var eins og væri hann á valdi draumkenndra tilfinninga. Hann ætlaði aldrei að koma sér að því að leika og tiltölulega ein- föld miðtaflsstaða tók að þróast heimsmeistaranum, mjög í vil. Undir lok setunnar gerði Kaspar- ov harða hríð að kóngsstöðu svarts með Karpov alveg á „lakk- inu“ eins og það er kallað. Hann átti innan við mínútu á síðustu átta leiki. Rafeindaklukkur á skáktap fáfu til kynna að Karpov hefði fallið á tíma og brutust við það út fagnaðarlæti í tilefni þess. Karpov náði tímarmörkunum, er peði undir og hans bíður geysi- erfið vörn. Skoðanir manna munu vera skiptar og þær raddir hafa heyrst að svartur eigi að halda jafntefli. Sovéski stór- meistarinn Georgadze, sem er á bandi Kasparovs eiga nokkra vinningsmöguleika. Raymond Keene, enski stórmeistarinn, kvaðst sjaldan hafa séð Karpov jafn taugaóstyrkan. Feiknarleg spenna var ríkjandi í Lope De Vega leikhúsinu, troð- fullt út úr dyrum. Fæstir áttu von á að Kasparov næði að herða upp hugann og tefla til sigurs en hann var greinilega í baráttuskapi þrátt fyrir rólega byrjun og tafl- mennska hans frá 21. leik minnti um margt á hans bestu daga, en hann hefur sannarlega verið frá sínu besta í þessu einvígi: Garri Kasparov vígalegur á svipinn. 24. einvígisskák: Garrí Kasparov - Anatoly Karpov Vængtafl 1. c4 Ýmsir urðu til þess að spá því að Kasparov myndi breyta út af sínum hefðbundna fyrsta leik. Hann hefur ekki snert drottning- arpeðið í þessu einvígi. 1. .. e6 2. Rf3 Rf6 3. g3 d5 4. b3 Be7 5. Bg2 0-0- 6. 0-0 b6 7. Bb2 Bb7 8 e3 Það kann að koma mönnum á óvart hversu rólega Kasparov fer í sakirnar. Þetta er út af fyrir sig eðlileg taktík því Karpov verður ekki tekinn með áhlaupi. Hér er venjulega leikið 8. .. 11 c5 og 9. .. Rc6 og er víst að Kasparov hefur eitthvað til málanna að leggja í því afbrigði svo Karpov breytir út af hefðbundnum leiðum. 8. .. Rbd7 9. Rc3 Re4 10. Re2 Það þjónar ágætlega hagsmunum Karpovs að ná uppskiptum svo Kasparov víkur undan. 10. .. a5 11. d3 Bf6 12. Dc2 Bxb2 13. Dxb2 Rd6 14. cxd5 Bxd5 (1.09) 15. d4 (1.26) Kasparov hugsaði sig um í 35 mínútur. Það var álit flestra að staðan væri í jafnvægi, þótt auðvitað njóti Kasparov eilítið betri stöðu vegna meiri rýmis. 15. .. c5 16. Hfdl Hc8 17. Rf4 Bxf3 Einfaldasta leiðin til að stemma stigu við þrýstingi hvíts eftir d- línunni. Nú fær Kasparov aftur á móti sinn „katalónska" biskup sem hann meðhöndlar öðrum betur. 18. Bxf3 (1.50) De7 (1.53) 19. Hacl Hfd8 20. dxc5 Rxc5 21. b4 (2.06) axb4 (2.07) „Það eina sem er áhugavert við þessa skák er klukkan," sagði Jon Tisdall, fréttaritari Reuters við mig en honum fannst byrjun þessarar skákar frámunalega leiðinleg. Og einmitt sú stað- reynd að keppendur voru orðnir geysilega tímanaumir gerði þessa viðureign æsispennandi. 22. Dxb4 Da7 23. a3 Rf5 Eitt helsta vandamál svarts er það hversu erfiðlega riddurunum tekst að finna fótfestu. Kasparov hefur lítið en þægilegt frumkvæði og heldur skynsamlega á málum í næstu leikjum. 24. Hbl Hxdl-t- 25. Hxdl Dc7?! Eitthvað er þetta mislukkaður leikur. Svartur lendir í erfið- leikum með menn sína á c- Iínunni. 26. Rd3 h6 Kannski var skárra að leika 26. .. Rxd3 27. Hxd3 en stöðuyfir- burðir hvíts eru eftir sem áður umtalsverðir, b6 - peðið verður t.d ekki auðvarið. 27. Hcl Re7? Betra var 27. .. Rf5. Karpov átti 6 mínútur eftir til að ná tíma- mörkunum, Kasparov 14. 28. Db5 Rf5 29. a4 Eykur þrýstinginn. Þar sem Karpov átti aðeins röskar 3 mín- útur eftir til að ná tímamörkun- um var ljóst að aðstaða hans var geysilega erfið, sérstaklega vegna þess að minnstu mistök gátu kost- að hrun stöðu hans. Kasparov átti 8 mínútur eftir er hér var komið sögu. 29 ... Rd6 30 Dbl! Stórsnjall leikur eins og kemur á daginn. 30 ... Da7 31. Re5 Rxa4 31... Dxa4 strandar á 32. Dxb6 og svörtum tekst ekki að halda stöðu sinni saman. Kannski mátti reyna 31. ... Hf8. 32. Hxc8+ Rxc8 abcdefgh 33. Dl! Þessi stórsnjalli leikur gerir að- stöðu svarts hreint ekki læsilega. Drottningin er bundin við að valda a4 - riddarann sem vill þýða að hvítur nær að brjótast í gegn. Að sögn sjónarvotta var spennan rafmögnuð þegar síð- ustu leikirnir voru leiknir, Karp- ov var alveg að falla á tíma en einhvernveginn tókst honum að ná mörkunum þótt ekki munaði miklu. 33.. .. Re7 34. Dd8+ kh7 35. Rxf7 Rg6 Eini leikurinn. 36. De8 Hótar 37. Be4 o.s.frv. 36.. .. De7 37. Dxa4 Dxf7 38. Be4 Kg8 39. Db5 Rf8 40. Dxb6 Df6 41. Db5 De7 Hér fór skákin í bið. Með því að mynda breifylkingu peðanna á kóngsvæng og skunda með kóng- inn fram á vígvöllinn ætti Kaspar- ov að ná slíkum tökum á stöðunni að eitthvað verði undan að láta. Ég tel allar líkur á því að honum takist að knýja fram sigur, þótt auðvitað megi ekki afskrifa Karpov. Biðskákin verður til lykta leidd á morgun og hefst kl. 15.30 að íslenskum tíma. Staðan: Karpov 12 - Kasparov 11 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.