Þjóðviljinn - 19.12.1987, Síða 15

Þjóðviljinn - 19.12.1987, Síða 15
ERLENDAR FRÉTTIR Ungur Palestínumaður tekinn ómjúkum tökum af ísraelskum lögreglumanni. Ekkert lát virðist aetla að verða á mótmæl- unum á Gazasvæðinu. ✓ Israel Palestínumenn skotnir Israelskir dátar réðust innísjúkrahús ígœr og börðu á hjúkrunarfólk ogsjúklingum Miklar óeirðir voru á hinu hernumda Gazasvæði í gær, tíunda daginn í röð. Israelskir hermenn brugðu ekki þeim vana sínum að beita skotvopnum og myrtu þeir tvo Palestínumenn að eigin sögn. ísraelsk hernaðaryfirvöld segja sína menn hafa skotið 16 Palestínumenn til bana og sært fleiri en 70 frá því mótmælaað- gerðirnar hófust fyrst á Gaza- svæðinu fyrir 10 dögum. Tals- menn palestínskra samtaka segja þessar tölur um mannfall mjög fjarri lagi og hafi til muna fleiri Palestínumenn verið skotnir en ísraelsmenn láti í veðri vaka. Palestínska fréttaþjónustan greindi frá því að 14 ára gamall piltur hefði dáið í gær af völdum skotsára er hann fékk á miðviku- dag. Ennfremur sögðu frétta- menn hennar frá því að upptök óeirðanna í gær hefðu verið þau að ísraelskir hermenn hefðu skotið táragassprengjum inní mosku, bænahús múhameðstrú- armanna, í bænum Shajafye. Læknar við Shifa sjúkrahúsið skýrðu frá því að þangað hefði verið komið með lík tveggja fórn- arlamba ísraelshers í gær. Fjöl- margir Palestínumenn hefðu safnast saman á spítalalóðinni og haft háreysti í frammi. Þeir sögðu að eftirlitsflugvél ís- raelsmanna hefði hnitað hringi yfir sjúkrahúsinu er þetta fór fram en skyndilega hefði fjöldi dáta ráðist inná lóðina. Þeir hefðu barið alla er á vegi þeirra urðu, lækna og hjúkrunarfólk ekki síður en mótmælendur. Einn læknanna ræddi við fréttamenn Reutersfréttastof- unnar í síma og sagðist honum svo frá: „Fjölmargir hermann- anna ruddust inní sjúkrahúsið sjálft. Þeir lúbörðu framkvæmda- stjórann og fulltrúa hans og mis- þyrmdu einnig þrem hjúkrunar- konum er reyndu að koma í veg fyrir að þeir rifu illa særðan mann uppúr rúminu og hefðu hann á brott með sér. Þeir tóku mann sem var með slæmt sár á læri með sér til aðal- stöðva hersins og héldu honum þar í dágóða stund. Þegar hann var látinn laus báru áverkar á höfði hans og baki vitni um barsmíð." ísraelskir ráðamenn virðast hvorki skeyta um skömm né heiður því þeir hafa látið gagnrýnisorð fjölmargra er- lendra ríkisstjórna vegna hátta- lags þeirra á Gaza sem vind um eyrun þjóta. Forhertastur er sjálfur forsætisráðherrann, Yitz- ak Shamir, sem kveður af og frá að „hryðjuverkamenn" verði látnir komast upp með múður á herteknu svæðunum. -ks. Indland Union Carbide greiði fomaiiömbum skaðabætur Indverskur dómari hefur skipað fjölþjóðahringnum aðgreiða fórnarlömbum eiturslyssins í Bhopal270 miljónir dala Indverskur dómari skipaði í fyrradag fjölþjóðaauðhringn- um Union Carbide að greiða fórnarlömbum eiturlekans í Bhopal 270 miljónir Bandaríkja- dala í skaðabætur til bráðabirgða áður en hann kveður upp endan- legan úrskurð í málinu. Tals- menn Ijölþjóðarisans brugðust ókvæða við og töldu fráleitt að reiða svo mikið fé af hendi án dómsúrskurðar. Indverska ríkið rekur nú mál gegn Union Carbide og krefst 3,3 miljarða dala skaðabótagreiðslu vegna slyssins. Það er kunnara en frá þurfi að segja að þann 3. des- ember árið 1984 lak mikið magn eiturefna út í andrúmsloftið frá skordýraeitursverksmiðju auðfé- lagsins í Bhopal. Að minnsta kosti 2,500 manns létu lífið og 200 þúsund örkumluðust. Nokkur fórnarlamba slyssins auk hjálparstarfsmanna stóðu utan dómshússins í Bhopal þegar M.W.Deo dómari kvað upp úr- skurðinn í fyrradag og fagnaði fólkið ákaflega er því barst frétt- in. Deo sagði að féð yrði notað til að efla heilsugæslu og auka at- vinnutækifæri þeirra 500 þúsund manna er ættu um sárt að binda sökum slyssins. „Viðleitni manna til að ná samkomulagi um bótagreiðslur virðast hafa farið út urn þúfur og enn hafa fórnarlömb eiturlekans verið sett hjá þótt nú séu þrjú ár liðin frá því slysið átti sér stað,“ sagði dómarinn meðal annars er hann gerði grein fyrir ákvörðun sinni. f öndverðum síðasta mánuði hafnaði indverska ríkisstjórnin tilboði Union Carbide um bráða- birgðagreiðslu að upphæð 1,5 miljónir dala. Þann fyrsta þessa mánaðar lagði ríkið síðan fram ákærur á hendur fyrrum forseta Indlandsdeildar fjölþjóðafyrir- tækisins og átta öðrum mönnum. Þeir eru allir sakaðir um mann- dráp. -ks. Laugardagur 19. desember 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 15 Sjúkrahúsið á Siglufirði Tilboð óskast í innanhúsfrágang sjúkraþjálfunar fyrir sjúkrahúsið á Siglufirði. Um er að ræða ca 363 m3 svæði á jarðhæð, sem nú er fokhelt og skal ganga frá að fullu með innréttingum. Verkinu skal skila í tvennu lagi, megin hluta þess skal fullgera fyrir 1. júní 1988, en síðari hluta fyrir 20. janúar 1989. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borg- artúni 7, Reykjavík gegn 10.000 kr. skilatrygg- ingu til og með 5. janúar 1988. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. janúar 1988 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7^ÓSTBÓLF 1450, 125 REYKJAVÍK. M Útboð Einkasímstöð fyrir Stjórnarráðið Óskað er tilboða í stafrænt einkasímstöðvakerfi (PABX) fyrir Stjórnarráðið. Áætluð stærð: 500 númer, stækkanleg í a.m.k. 800 40 línur með beinu innvali, stækkanleg í a.m.k. 70 50 úthringingarlínur, stækkanleg í a.m.k. 90 3 skiptiborð, stækkanleg í a.m.k. 5 Útboðsgögn eru seld á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, á kr. 1.500.- frá og með þriðjudeginum 22. desember 1987. Tilboð verða opnuð á sama stað, föstudaginn 5. febrúar 1988, kl. 11.00 f.h. Þjóðlíf - framkvæmdastjóri Fréttatímaritið Þjóðlíf óskar eftir framkvæmda- stjóra sem hafið gæti störf 1. janúar 1988. Um er að ræða krefjandi og spennandi starf. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Tilboð sendist blaðinu merkt - Þjóðlíf - fyrir 23. desember. Þjóðlíf, fréttatímarit íbúð óskast íþróttafélagið Gerpla í Kópavogi óskar eftir að taka á leigu 3-4ra her- bergja íbúð fyrir erlendan þjálfara. Æskileg stað- setning er í austurbæ Kópavogs eða Breiðholti. Upplýsingar í símum 74925 og 73687. íþróttafélagið Gerpla Skemmuvegi 6 Kópavogi FÉLAGSMÁLASTOFNUN lið REYKJAVÍKURBORGAR Starf yfirmanns fjármála- og rekstrardeildar Fé- lagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar er laust til umsóknar. Viðskiptafræðimenntun áskilin. Upplýsingar veitir félagsmálastjóri Reykjavíkur- borgar í síma 25500. Umsóknir á þartilgerðum eyðublöðum sendist starfsmannahaldi Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, fyrir 5. janúar n.k.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.