Þjóðviljinn - 20.12.1987, Side 12

Þjóðviljinn - 20.12.1987, Side 12
Messías og ríka fólkið Pólýfónkórinn er þrjátíu ára. Allir keppast viö að ausa lofi á eiganda hans og stjórnanda. Segja menn að Ingólfur Guð- brandsson sé merkilegur braut- ryðjandi er gert hafi byltingu í fslensku sönglífi. Ég tek undir þetta. En mig langar til að bera upp hógværa spurningu: Hefði Ingólfur haft tök á því að reka kórinn ef hann hefði alla ævi þrælað sem hafnarverkamaður fyrir smánarlaun? Nú verður sagt að ég sé að gera lítið úr starfi hans. En ég er ekki að gera lítið úr neinum. Ég er aðeins að minna á þá staðreynd, að efnalegar að- stæður skapa að langmestu leyti hetjur menningarinnar í þjóðfé- laginu. Þær koma ekki úr röðum verkalýðsins. En þetta má ekki segja opinberlega. Allra síst á miklum listahátíðum. Það er þegjandi samkomulag um þá lygi að við búum í „velferðarþjóðfé- lagi“, þar sem aliir geta notið þeirrar menntunar er þeir óska og gert yfirleitt allt sem hugurinn girnist. Og yfirstéttin verður sí- fellt frekari og ósvífnari að tryggja forréttindi sín. Nú síðast með söluskatti á matvælum. Allir þurfa að borða en ríka fólkið munar ekkert um þessa hækkun. Það étur jafnvel enn þá meira til að finna til máttar síns. En þetta gerir fátæku fólki erfiðara um vik að njóta lista og menningar. Heimur listarinnar er greinilega ekki talinn við þess hæfi. Lág- launafólk á bara að vinna, éta, sofa og ríða. Það er reyndar skoðun mín, sem ég sé ekki ástæðu til að þegja yfir, að þeir menn sem raka sam- an auði í heimi þar sem fjöl- mennar þjóðir búa við skort og smán, eigi að skammast sín niður í tær og láta sem minnst á sér bera framan í þjáningu mannkynsins. Og má Þjóðviljinn vera stoltur af því að enn skuli finnast menn er halda fram þessari gamalkunnu og alþýðlegu hugsun á síðum blaðsins. Að rökstyðja hana hér er of langt mál. En fróðleiksfús- um lesendum er bent á rit Karls nokkurs Marx er eitt sinn þótti nokkuð áreiðanlegt vitni og guðspjöllin er segja frá Jesú Jós- efssyni, sem var Messías og kenndi burgeisabreiðmennum sinnar tíðar harða lexíu með of- urljósum dæmisögum um allt milli himins og jarðar. Meira að segja um úlfaldadal. Það komast ekki allir í himnaríki. Sumir verða að láta sér lynda að fara til helvítis. En Pólýfónkórinn flutti Messí- as 12. desember í Hallgríms- kirkju. í efnisskrá skrifar IG m.a.: „Sú hrifningaralda sem Messías vakti strax í upphafi, hef- ur síðan borist um allan hinn sið- menntaða heim“. Hvað þýðir þetta? Hver er hinn „siðm- enntaði heimur“ nú á dögum? Og hvar er þá hinn ósiðmenntaði heimur þar sem villimennirnir búa og baula á Messías? Ég hélt að allur heimurinn væri orðinn siðmenntaður. Vestræn tækni og lífsþægindi hafa farið sigurför um hnöttinn. Afleiðingarnar eru þær að jörðin er að verða óbyggileg. Hvernig verður ástandið eft hundrað ár með sama siðmennt- aða áframhaldi? Skrælingjar, eins og íslendingar kölluðu eskimóa áður fyrr, eru taldir sá kynstofn er lifað hefur af mestri snilld í samræmi við náttúrulegar aðstæður. Það er menning. Það er lífsviska. Nú eru þeir að drekka sig í hel. Ekki er hægt að hugsa sér meiri ómenningu en lífshætti er stofna öllu lífi á jörð- unni í bráða voða og leggur heilbrigt mannlíf í rústir. Hvað tónverk Handels um Messías varðar er það vafalaust vinsælt í kristnum ríkjum Evr- ópu, Ameríku og Ástralíu, jafnvel í kristnu Afríku og svo í Japan. En áreiðanlega hefur Messías ekki vakið neina sérs- taka hrifningaröldu í ríkjum ara- ba eða öðrum löndum Múham- eðs, eða þar sem hindúismi og búddatrú stýra hugsun þjóða í Asíu. Að ekki sé minnst á Kína. Þessi landskikar þar sem býr helmingur mannkynsins teljast sennilega ekki til hins „siðmennt- aða heims“. Slíkar ályktanir mætti hæglega draga af orðum IG í söngskránni. Samt ætla ég hon- um ekki svona hrokafulla kenn- ingu. Hann meinar eflaust ekkert með þessu. Hann setur þetta si svona á pappírinn í siðfágaðri hugsanatregðu. Orð hans þýða svo sem ekki annað en jamm og jæja og það held ég. Én slíkur sljóleiki hugans er jafnvel enn ferlegri afspurnar en forhert fyrirlitning á menningu annarra þjóða. En víkjum loks að flutningi Pólýfónkórsins á Messíasi. Ég sat á fjórða bekk frá altari, yst til vinstri ef gengið er inn kirkjuna. Þar var hljómburðurinn hræði- legur. Hljómsveitin rann að mestu út í bassaþungan mattan hljómamökk. Kórinn var skárri þó erfitt væri að greina eina rödd frá annarri. Af einsöngvurum heyrðist sæmilega sópran og ten- ór, illa alt og bassi. Umsögn mín um tónleikana verður því fremur endaslepp. Þó heyrði ég ekki annað en kór og hljómsveit væru harla góð og stjórnandinn næði oft fram dramatískri kynngi og jafnvel mystískri dulúð á við- eigandi stöðum. Og mér heyrðist Inga Jónína Backman og Gunnar Guðbjörnsson syngja ljómandi vel og virðist Gunnar vera afar efnilegur. Ég heyrði svo ekki bet- ur en Sigríður Elliðadóttir hafi litla og lokaða rödd sem hún beitir þó ágætlega og loks heyrðist mér endilega að út- lendingurinn, William Mackie, væri mikill fyrir sér en titrandi og kæfður inn í sig eins og leiðinleg- asti bassi í heimi, landi hans John Shirley-Quirk og má mikið vera ef Mackie hefur ekki lært af hon- um andköfin. Mér leiddist þarna. Það er hart að selja fólki tónleika dýrum dómum sem heyrast svo ekki nema við illan leik. Og það er virðingarleysi við listamennina er leggja sig alla fram. Afhverju berja menn höfðinu við steininn? Afhverju halda menn ekki kon- serta í Háskólabíói þar til tónl- eikahúsið nýja rís af grunni? Að lokum til umhugsunar fyrir eldvarnaeftirlitið: Hvað myndi gerast ef heilagur andi stigi allt í einu niður úr lofti Hallgríms- kirkju í leiftri guðlegrar heiftar í miðri athöfn svo kirkjugestir tækju skelfingu lostnir til fótanna undan því brennandi sannleiks- ljósi? Þá mætti segja mér að fína fólk höfuðstaðarins myndi troða hvert öðru óþyrmilega um tær í þeim sprettharða útgöngumarsi. Rit um jógaspeki Vasaútgáfan hefur gefið út bókina „ Yoga-heimspeki“ eftir Ramacharaka í þýðingu Steinunnar Briem. Hér er um að ræða endurútgáfu á verki sem guðspekingar telja eitt undirstöðurit austrænnar dul- speki. Kom það fyrst út á ís- lensku fyrir 26 árum en var löngu uppselt. Ramacharaka var indverskur spekingur, sem uppi var á 19. öld, en lærisveinn hans Baba Barata ferðaðist til Vesturlanda, skráði þá fyrirlestra hans á ensku með hjálp rithöfundarins Atkinsons. í bókinni Yoga-heimspeki er fjallað um ýmis helstu undir- stöðuatriði dulspekinnar. Þar eru útskýrð ýmis dularfull fyrirbæri eins og fjarhrif, dulskyggni, mannlegt segulafl, dulrænar lækningar og ekki síst hið svokall- aða lífsafl (prana). VIGDIS GRIMSDOTTIR 1 VIGDIS GRIMSDOTTIR kaldaljós „Kaldaljós er óður til fegurðar, trúnaðar, grimmdar, óvenjulega margslungin saga, saga ást- ar og dulúðar og þó raunsæis. Unnin af mikilli list. Henni skal ekki líkt við neitt.“ Jóhanna Kristjónsdóttir Morgunblaðinu „Þessi skáldsaga Vigdísar er án efa eitt athyglis- verðasta skáldverk sem jólabókaflóðið færir okkur í ár.. . hér er ósvikið listaverk á ferðinni." Soffía Auður Birgisdóttir Helgarpóstinum. ^vort á fnntu STEFÁN JÓNSSON íiwm Bernskuminningar Stefáns Jónssonar fyrrverandi fréttamanns og þingmanns. „Mér er eiður sær að bók sambærileg þessari hefur ekki komið til þessarar þjóðar áður.“ Jónas Árnason rithöfundur (í útvarpsviðtali). Svartáfwítu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.