Þjóðviljinn - 20.12.1987, Side 14

Þjóðviljinn - 20.12.1987, Side 14
IÐUNN Guðrún Helgadóttir SÆNGINNI YFIR MINNI Ný búk um yngstu systurina f systkinahópnum sem viö kynntumst i Sitji guðs englar og Saman i hring. Guðrún Helgadóttir er tvímælalaust virtasti barnabókahöf- undur okkar og á þessu ári var hún tilnefnd til H. C. Andersen- verðlaunanna. Ulf Stark MARÍA VEIMILTÍTA Maria er ekki veimiltita þó Gerða segi það. En það er heldur ekki allt að marka sem hún segir, þvíhún er sko galdranorn og engin venjuleg barnfóstra. Og nú er ýmislegt brallað með Ebba vini, nýja stráknum sem allir halda að sé bara montrass. Ulf Stark hefur öðlast sess sem einn fremsti barnabókahöf- undur Norðurlanda. Martin Elmer ÉG ÞOLI EKKI MÁNUDAGA! Martin Elmer hlaut alþjóðleg verðlaun fyrir þessa bók, þegar hún var valin besta unglingabókin 1987. i kringum Daníel fara skritnir hlutir aö gerast jafnt iskólanum sem heima. Hverskyldi búa i kjallaranum? Og hvernig fersak- laus hálsbólga að því að breyta sér íharðsnúið verkfall? Daníel blandaðist ekki hugur um að flest óhöþp gerast á mánudögum. En svo varð hann að endurskoða þá afstöðu. Ulf Stark EINN ÚR KLÍKUNNI? Ný bók eftir höfundmetsölubókarinnar ..Einaf strákunum‘'. Lassi kemst i hálfgerðan bobba þegar mamma hans fer að búa með snobbaða tannlækninum. Þau reyna isameiningu að breyta Lassa i fyrirmyndarungling, klippa hann og klæða i itölsk tískuföt og passa upp á að hann læri vel heima. Krakk- arnir í klíkunni vita hreint ekki hvernig þau eiga að taka breyt- ingunni. Auður Haralds ELÍAS KEMUR HEIM Ný bók i flokknum um ærslabelginn óborgantega, hann Elias. Elias.mamma hans og pabbi eru komin heim til islands aftur og allt hefði átt að vera mjög friðsælt þvi Magga móðursystir varð eftir iútlöndum. En svo varð nú ekki þvieins og Simbi segir: ,,Enginn með vitiþrasar við fiI". Herdis Egilsdóttir RYMPA Á RUSLAHAUGNUM Rympa eriraun indælis manneskja, en hefur bara svolítið ein- kennilega siði. Hún býr á Ruslahaugnum með honum Sexvolta sinumogþartekurhúná móti systkinunum, sem veröa strax vinir hennar. Herdis Egilsdóttir er löngu kunn fyrir skrif sín fyrir yngstu kynslóðinaog erRympa á Ruslahaugnum kærkomin viðbót ísafn verka Herdisar. Helga Ágústsdóttir OG HVAÐ MEÐ ÞAÐ? Þaö er vitað að unglingarnir lenda iýmsu, en grunur leikur á að þeir fullorðnu viti bara ekki ihverju. Enda eins gott. Helga Ágústsdóttir hefur áður sent frá sér tvær bækur fyrir unga fólkið ,,Ekki kjafta frá" og ,,Ef þú bara vissir". Bækur hennar eru spennandi og fullar af óvæntum uppákomum, sem krakkarnir verða að takast á við. Rétt eins og líf þeirra er. GUÐRÚN HELGADÓTTI I

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.